Morgunblaðið - 18.01.1981, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR18. JANOAR 1981
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Sendill óskast
á skrifstofu blaðsins. Vinnutími 9—12 f.h.
Upplýsingar á skrifstofu, sími 10100.
Sölumaöur óskast
Vel þekkt innflutningsfyrirtæki óskar að ráða
duglegan og sjálfstæðan sölumann. Starfið
er fólgið í sölu á þekktum neytendavörum
bæði á Reykjavíkursvæðinu og úti á lands-
byggöinni. Nauðsynlegt er aö viðkomandi
hafi reynslu af sölustörfum og geti hafið störf
sem fyrst.
Góð laun í boði fyrir duglegan starfskraft.
Tilboö óskast send augld. Mbl. merkt:
„Sölumaður — 3326“.
Skálatúnsheimilið
í Mosfellssveit
óskar að ráða framkvæmdastjóra
Hér er um nýtt starf að ræöa. Framkvæmda-
stjóra er ætlað að hafa yfirstjórn á rekstri
heimilisins sérstaklega fjármálastjórn og
eftirlit með eignum og framkvæmdum á
staönum. Hér er um fullt starf að ræða.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 1981.
Starfið veitist frá og með 1. maí eða eftir
samkomulagi. Laun eftir samkomulagi.
Skriflegar umsóknir sendist til stjórnar
Skálatúnsheimilisins, Mosfellssveit.
Ung kona
óskar eftir starfi fyrri hluta dags viö bókhald
eða almenn skrifstofustörf.
Próf frá verslunar- og skrifstofubraut við
fjölbrautaskóla fyrir hendi.
Tilboð sendist Mbl. merkt: „Hafnarfjörður —
3137“.
Afgreiðslustúlka
óskast
vinnutími frá kl. 1—6. Uppl. á mánudag milli
5 og 6.
KUZUIi
HAFNARSTHÆTI 15
Innflutnings-
fyrirtæki
óskar eftir að ráöa skrifstofumann. Vinnutími
1—5. Helstu verkefni eru:
1. Enskar bréfaskriftir.
2. Tollskýrslugerð og verölagsskýrslu-
gerð.
3. Vélritun og símavarsla.
Tilboð óskast send augld. Mbl. fyrir 20. jan.
merkt: „Áreiðanleg — 3323“. |
Atvinna —
bílaumboð
Viljum ráða röskan mann til útkeyrslu og
lagerstarfa sem fyrst. Æskilegt er að viðkom-
andi hafi starfað við varahlutaverzlun eða
hafi áhuga á slíku starfi og sé reglusamur og
áreiðanlegur.
Tilboð sendist Mbl. sem fyrst merkt: „Röskur
— 3437“.
Atvinna óskast
Ég er 28 ára fjölskyldumaður, húsgagna-
bólstrari. Hef starfað að þeirri iðn með
húsgv. í 12 ár bæöi hjá öðrum og sjálfstætt.
Hef fengið orð fyrir að vera duglegur,
handlagin og heiöarlegur. Er með atvinnu-
breytingu í huga, en allt kemur til greina.
Tilboð sendist augld. Mbl. merkt: „A —
3440“.
Meðmæli ef óskaö er.
Bæjarstjóri
Starf bæjarstjóra ísafjaröarkaupstaðar er
laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 25. janúar n.k.
Umsóknir skulu stílaðar til forseta bæjar-
stjórnar Guðmundar H. Ingólfssonar, bæj-
arskrifstofunum Austurvegi 2, ísafirði, sem
gefur einnig uppl. varðandi starfið.
Bæjarráö ísafjarðar.
Barnaheimilið Os
óskar eftir starfsmanni til afleysingar V2
daginn í tvo mánuði (frá miðjum feb. til miðs
apríl). Gæti hugsanlega verið í afleysingum í
sumar. Upplýsingar veittar á:
Barnaheimilinu Ós,
Bergstaðastræti 26b, sími 23277.
Félagsráðgjafar —
sálfræðingar —
uppeldisfræðingar
Svæðisstjórn um málefni þroskaheftra og
öryrkja á Norðurlandi vestra óskar eftir að
ráða mann til að koma á fót þjónustumiðstöð
fyrir þroskahefta óg öryrkja. Þjónustumið--
stöð þessi hefði aðsetur á Blönduósi.
Æskilegt er að væntanlegur starfsmaður hafi
hlotið menntun í félagsráðgjöf, sálarfræði
eöa uppeldisfræði. Hér er um fram'tíðarstarf
að ræða.
Umsóknarfrestur er til 10. feb. 1981.
Nánari upplýsingar veita Páll Dagbjartsson,
skólastjóri, Varmahlíö sími 95-6125 og
Sveinn Kjartansson, fræðslustjóri, Blönduósi
sími 95-4369.
Mælaviðgerðir
Rafimagnsveita Reykjavíkur vill ráða starfs-
mann til viðgeröa á orkusölumælum.
Æskileg menntun: Úrsmíði eða vélvirki/
rafvirki með reynslu í nákvæmri vinnu.
Umsóknareyöublöð og nánari upplýsingar
fást hjá starfsmannastjóra, Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu 4. hæð.
Umsóknarfrestur er til 26. janúar 1981.
RAFMAGNS
VEITA
REYKJAVÍKUR
Vélaverkfræðingur
óskast til starfa hjá iöntæknistofnun íslands
aö Keldnaholti. Æskileg sérhæfni er efnis-
fræði, fyrst og fremst varðandi málmsmíða-
efni í iönaði, eiginleika þeirra, notkun, vinnslu
o.s.frv.
Verkefni eru rannsóknir, prófanir og athug-
anir á vandamálum iönaöarlegs eölis og
ráögjöf í því sambandi, umsjón með gerð
upplýsingarita og námskeiöa.
Upplýsingar um starfið eru veittar í síma
85400. Umsóknir sendist stofnuninni fyrir 10.
febr. 1981.
Vélritun- og skrif-
stofustörf
Hraðvirkur, vandvirkur og samviskusamur
vélritari óskast til vélritunarstarfa og annarra
almennra skrifstofustarfa. Góð starfsað-
staða.
Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf ásamt meðmæl-
um, ef til eru, sendist auglýsingadeild
Morgunblaðsins fyrir miðvikudaginn 21.
janúar merkt: „Samviskusemi — 3128“.
Offsetljósmyndari
Óskum eftir að ráða offsetljósmyndara til
sölustarfa. Hálfsdagsstarf kæmi jafnvel til
greina.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um
aldur og fyrri störf sendist Mbl. fyrir 23.
janúar merkt: „O — 3130“.
Hans Petersen hf.
Framkvæmdastjóri
Iðnfyrirtæki á suðurlandi óskar eftir fram-
kvæmdastjóra.
Tilboð sendist Morgunblaöinu fyrir 25. janúar
n.k. merkt: „Framtíð — 3434“.
Vinnuvélstjóri
Vantar að ráða mann á stóra vökvagröfu. Til
greina kemur aö ráöa ungan mann sem hefur
áhuga að læra stjórn og meðferð vinnuvéla,
með framtíðarstarf fyrir augum.
Upplýsingar í dag og eftir kl. 18.00 næstu
daga í síma 45034.
Bílstjóri —
aðstoðarmaöur
Óskum að ráða bílstjóra til starfa hjá
hjólbarðadeild. Einnig óskast aðstoðarmað-
ur við standsetningu á nýjum bílum.
Frekari uppl. gefnar hjá skrifstofustjóra
mánudaginn 19. janúar kl. 10—12, (ekki í
síma).
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2, Kópavogi.
Utgerðarmenn
Óskum eftir netabát í viöskipti. Getur
stundað róðra frá hvaða höfn sem er á
Suöurnesjum.
Upplýsingar á skrifstofu, Tryggvagötu 10,
Rvík, símar 11747 og 11748.
Jón Ásbjörnsson,
útflutnings- og heildverzlun.
Stórt
iðnaðarfyrirtæki
á stór-Reykjavíkursvæðinu óskar að ráða
framkvæmdastjóra.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist Mbl. fyrir 25. jan. merkt:
„Framkvæmdastjóri ’81 — 3135“. Fariö
veröur með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
mál.