Morgunblaðið - 25.02.1981, Page 7

Morgunblaðið - 25.02.1981, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1981 7 Ný kjólasending Dömu- og frúarkjólar í stærðum 36—50. Glæsilegt úrval, gott verð. Dragtin, Klapparstíg 37 Hugheilar þakkir til allra sem heimsóttu mig og sýndu mér vinarhug á áttrœðisafmœli mínu þann 15. febrúar meö gjöfum og skeytum. Sérstakar þakkir til kórs Hábæjar- kirkju. GuÖ blessi ykkur öll. Egill Friðriksson, Skarði, Þykkvabæ. Hjartans þakkir sendi ég þeim fjölmörgu vinum mínum, sem glöddu mig meö margvíslegu móti á nírœðisafmæli mínu 15. þ.m. INGIMAR JÓNSSON frv. skólastjóri. 1 dzz Hafnfirðingar Félagsmálaráðuneytiö hefur óskað eftir því aö Hafnarfjarðarbær safni saman upplýsingum um það eignartjón sem varö í Hafnarfirði í óveörinu þann 16. og 17. febrúar sl. Tjónþolar eru beðnir aö gefa sig fram við skrifstofu bæjarverkfræöings, Strandgötu 6, sími 53444 fyrir 17. marz nk. Bæjarstjóri KJÖLJARN RENNUBÖND ÞAKPAPPA ÞAKSAUM B.R fyrir þá sem byggja BYGGINGAVÖRUR HE Suðurlandsbraut 4. Simi 33331. (H. Ben-húsið). í öllum lengdum Þakjárnið fæst í öllum lengdum upp að 10 metrum. Einnig í „standard" lengdum frá 6-13 fet. Höfum einnig fyrirliggjandi: MOBGUNBLAOID. MIDJUDAGUR 34 FEBRt AR IMl ,J>etta er fínasta hús“ Lúðvik Jós- epsson i heimm'tkn á vélaverkxtœói J. Hinriks- son biaAuknri* Of nMi k,nn. fal Iwfur natl nyjar braulir I tmaum efnum. of hloUS >i*ur krnmmra okkar baalu n.ki.kip- •tjkra. nu rnnfrrmur hrfur hann fluM ul fr.mlnA.lu .Ina mrf k«mlia áraagri * Svo frn«u l.uftvik Jónrpnnon. Pklur Snmlnnd of Mm MM um vklavrrknunM I fylfd JAaafaU >iu rr flnanU hoa.' nafki Lu*- vik of mt rkttu Húaakynm Jftnn . • -Hér rr nikil of fóA hrlU rr frmnilrfa fyrirUrki i . _ _ . of nnn of alllaf hja fynrtmhjum I uppkyffinfu. rru rkki allir hluUr fullfrifrnfnir Hér k n*r Mak mnrkikf upphyff- Lúövík gefur Þjóöviljanum lexíu! •k Þjóðviljinn gerði fyrír nokkru haröa hríð að nafngreindu vélaverkstæöi hér í borginni, sem lagt var „fréttaatgeirum“ af mikilli orðgnótt og áhuga. Nú skyldi „arðr»ningi“ að velli lagður, gat verið sá tilgangur sem helgaði meðaliö, ef mið er tekið af marxíakum fraeðum. ★ Lúövík Jósepsson heimsótti síöan sama vinnustað og segir allt hvítt sem Þjóðviljinn mólaði svart. Einhverra hluta vegna, máske á reynslu byggðum, trúói hann tæpt „málgagninu", enda er „sjón sögu ríkari". Eftir stendur Þjóöviljinn einni fréttafjöörinni fátækari — og jafnvel enn síöur trúveröugur sem fréttamiðill en áöur. Þjóðviljinn tekur stórt upp í sig Fyrr í þessum mánuði birti Þjóðviljinn sjö dálka rammafrásöRn, sem var magnþrungin árás á fyrirtæki hér i borginni, J. Hinriksson, vélaverkstæði, Súðavogi 4. Málað var i sterkum litum hve vinnuaðstaða væri hábölvuð þar, að dómi blaðsins, _sóða- skapur yfirgengilegur", enda hefðu kvartanir yfir þessum vinnustað borizt til Félags járniðn- aðarmanna i Reykjavik. Viku siðar birtir bjóð- viljinn baksiðufrétt um meintar hefndarráðstaf- anir þessa vinnuveit- anda á hendur starfs- manns (neitun á borgun kaups). en þessi starfs- maður hafði kvartað undan vinnuaðstöðu og sagt upp starfi. Þessar stórárásir Þjóðviljans á vélaverk- stæði J. Hinrikssonar þóttu tiðindum sæta. bæði efnisatriði skrif- anna en ekki siður hitt, hve mikla „alúð" blaðið lagði i að búa þessum frásögnum sinum þann búning að eftir yrði tek- ið. En það verður stund- um litið úr þvi högginu sem hátt er reitt, segir máltækið. Og þá er kom- ið að Lúðviks þætti Jós- epssonar, fyrverandi formanns Alþýðubanda- lagsins. sem gengur fram fyrir skjöldu og blæs fréttafrásögn Þjóð- viljanfl um koll, þann veg, að tangarsókn hans rennur út i sandinn.. EðUlegt er að spurt sé, hvort aðrar fréttir þessa blaðs af mðnnum og málefnum, hérlendum og erlendum, séu svo gjórsamlega úr lausu lofti gripnar og Lúðvik Jósepsson vill vera láta um þennan jstórasann- leik“ Þjóðviljans. Vinnustaðar- heimsókn Lúðviks Jósepssonar Lúðvik Jósepsson, fyrverandi sjávarútvegs- ráðherra, gerir siðan heimsókn sina á þennan vinnustað. 23. febrúar sl., til að kanna sann- leiksgildi fréttafrásagn- ar Þjóðviljans, að þvi er hann sagði. Eftir að hafa gengið um vinnustaðinn segir Lúðvik: „Þetta er finasta hús ... Hér er mikil og góð vinnuað- staða. Þetta er greini- lega fyrirtæki i upp- byggingu, og eins og alltaf hjá fyrirtækjum sem verið er að byggja upp, eru ekki allir hlutir fullfrágengnir. Hér á sér stað merkileg uppbygg- ing i höndum aifbragðs manns." Blaðamaður sem fylgdist með ferðum Lúðviks fékk og grein- argóða lýsingu á starfs- ferli vinnuveitandans hjá honum, allt frá þvi er hann byrjaði ungur maður að beita og stokka upp hjá Lóðvik Jósepssyni (sem i þann tið var atvinnurekandi austur í Neskaupstað), varð siðar vélstjóri á togurum og starfsmaður á vélaverkstæði „hjá okkur". eins og Lúðvik komst að orði, unz hann hóf eigin atvinnu- rekstur, m.a. framleiðslu á toghlerum og öðrum útbúnaði fyrir togara. „Jósafat hefur rutt nýj- ar brautir i þessum efn- um," sagði Lúðvik, „og hlotið viðurkenningu okkar beztu fiskiskip- stjóra, og ennfremur hefur hann flutt út framleiðslu sina með ágætis árangri." Lýsingar Þjóðviljans annarsvegar og Lúðviks Jósepssonar hinsvegar á vinnustað og vinnuveit- anda eru eins gjðrólikar og hugsast getur. En leitun mun að öðru dæmi, jafn afgerandi, þar sem maður. vel kunnugur sjávarútvegi og þjónustustarfsemi við sjávarútveg, gerir fréttamiðil, að þessu sinni bjóðviljann, að jafn miklu viðundri i frásögn af daglegri önn i samtimanum. FréttamiðiU eða „sér- trúarrit“? Það er vandasamt verk að segja fréttir, hlutlaust og af sann- girni til allra málsaðila. Það er þó skylda fréttamanna, ekki ein- göngu við þá sem af er sagt, heldur ekki siður I við lesendur viðkomandi blaða. Þeir verða að geta treyst þvi að frétta- streymið sé trúverðugt. Að sjálfsögðu er það mannlegt að skjátlast og öllum getur orðið á i messunni, ekki sizt fréttamönnum, sem eru i stanzlausri keppni við timann og vinna verk sin oftar en hitt á harða- hiaupum. Mistök undir slikum kringumstæðum eru skiljanleg — en þá eiga leiðréttingar aö fylgja i kjölfarið. Slikt leiðir af sjálfsagðri virð- ingu fyrir lesendum, auk þess sem þeir, sem (óvart) er hallað á, eiga skýlausan rétt á sliku. Þjóðviljinn er máske frekar „málgagn" en fréttamiðill en gerir þó kröfu til að flokkast undir seinni skilgrein- inguna. Engu að siður bera skrif hans furðu oft einkenni „sértrúarrits“, sem býr yfir „forskrift" að öllum niðurstöðum — og leitast við að fella fráflagnir að þeim. At- vinnurekendur skulu vera af hinu illa, að mati sumra róttæklinga, og þeirri „trú“ fær sjálfur Lúðvik Jósepsson sjálf- sagt ekki breytt, þrátt fyrir heiðarlega við- leitni! Þingflokkur sjálfstæðismanna: Ákveður að styðja tillögur um Nordsat-gervihnöttinn ÞINGFLOKKUR sjálfstæðismanna samþykkti á fundi sínum á mánu- daginn i þessari viku að styðja áform um að koma upp fjarskipta- gervihnettinum Nordsat, sem i mörg ár hefur verið til umræðu á öllum Norðurlöndunum. Matthias Á. Mathiesen, forseti Norðurlanda- ráðs, sagði i samtali við Morgun- hlaðið í gær, að Nordsat-málið yrði sennilega eitt fyrirferðarmesta málið á þingi Norðurlandaráðs, sem hefst i Kaupmannahöfn eftir nokkra daga, og jafnvel væri að vænta ákvörðunar um málið þar. Matthías sagöi fjarskiptakerfis- gervihnött fyrir Norðurlönd hafa verið geysilengi á dagskrá, og mjög oft hefðu verið tillögur um málið. Nú lægi fyrir Norðurlandaráði til- laga frá ráðherranefndinni um mál- ið, og því væri eðlilegt, að íslend- ingar mótuðu stefnu í málinu. Þess væri vænst, að á fundinum í Kaup- mannahöfn eftir nokkra daga kæmi fram vilji ráðsins í þessum efnum. Að sögn Matthíasar Mathiesen hafa farið fram itarlegar umræður um málið innan Sjálfstæðisflokks- ins undanfarin ár, og lokaumræðan hefði leitt til þess, að ákveðið var á mánudaginn að fylgja málinu eftir. Jeppa- og Weapon-kerrur Vorum aö fá nokkur stykki af notuöum amerískum herkerrum, bæöi fyrir jeppa og stærri bíla. Hagstætt verö, GÍSLI JÓNSSON & C0 HF. Sundaborg 41, R., sími 86644.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.