Morgunblaðið - 25.02.1981, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1981
11
Akraborgin:
Ferðir hafnar
að nýju eftir
mikla viðgerð
AKRABORGIN hóf á manudag
ferðir eftir mikla viðgerð og
endurnýjun, sem gerð var hjá
Slippstóðinni á Akureyri. Voru
háðar aðalvélar skipsins teknar
upp, gert við þær og skipið málað
stafna á milli. Helgi Ibsen fram-
kvæmdastjóri útgerðarinnar
kvað endanlegar töiur um kostn-
að ekki liggja fyrir.
Helgi Ibsen sagði að í raun hefði
Akraborgin átt að fara í fyrra í
viðgerð þessa, en af því hefði þó
ekki orðið fyrr en nú. Skipið siglir
nú samkvæmt áætlun fjórar ferðir
á dag og í apríl verður fimmtu
ferðinni bætt við á sunnudags-
kvöldum, í maí og júní verða fimm
ferðir föstudaga og sunnudaga og í
júlí og ágúst eru fimm ferðir alla
daga nema laugardaga. Helgi
Ibsen sagði aðspurður að vel væri
mögulegt að hafa stærra skip á
þessari leið, oft þyrfti að snúa
fólki frá, sérstaklega yfir sumar-
tímann og myndi skipt um skip
þegar útgerðin sæi sér það mögu-
legt.
Flaug með
jöklavír til
Grænlands
Bæjum, 21. febr. 1981.
SKJÓTT var hér viðbrugðið i
dag, er upplýst var að einn
rafmagnsstaur hafði brunnið
sundur um miðju í túninu á
Lynghoiti, þar sem virinn hafði
losnað úr kúlu i ofviðrinu siðasta
og þvi snert staurinn er til
annarrar áttar gekk i veður.
Islandsmet í maraþon-
dansi sett á Akureyri
Akureyri, 23. febr.
UM HELGINA fór fram í Æsku-
lýðsheimilinu Dynheimum á Akur-
eyri maraþondanskeppni, og er
þetta þriðja árið i röð sem slik
keppni fer fram i Dynheimum.
Keppnin hófst kl. 10 á laugar-
dagsmorguninn og voru þá mættir
80 þátttakendur til leiks og hættu
þeir, sem lengst héldu út, ekki að
dilla sér fyrr en kl. 11 á sunnu-
dagsmorguninn og höfðu þá dansað
samfleytt í 25 tíma. Með þessari 25
tíma törn settu krakkarnir nýtt
Islandsmet, en það fyrra var 23
timar og sett í Dynheimum í fyrra.
Kl. 11 á sunnudagsmorguninn
voru fjórir keppendur eftir og var
þá hætt að dansa og kom það þá í
hlut dómnefndar að dæma hver
hefði staðið sig best þegar á
heildina var litið.
Sú sem lenti í fyrsta sæti heitir
Sigurjóna Halldóra Frímann, núm-
er tvö var Pétur Pétursson, númer
þrjú Bergiind Rafnsdóttir og í
fjórða sæti varð Anna Valgeirs-
dottir. Qrtu
Orkubú Vestfjarða fékk varð-
skipið Ægi með viðgerðarmenn
frá ísafirði til að endurbæta
óhappið með nýjum staur í skarð-
ið. Var talin hætta á frekari
skemmdum og rafmagnsleysi ef
veður aftur versnaði. Þá hefur
fárviðrið mikla stórskemmt ferju-
bryggjuna hér í Bæjum þar sem
vestanhafrokið hefur hrannað eit-
ilhörðum íshroða að henni og
nagað steinsteyptan miðstöpul
bryggjunnar og brotið svo nú
hangir hann á mjóu hafti annars
vegar og því stórhættulegt um að
fara. Þá er ennfremur stór-
skemmd í ferjubryggjunni á
Hvítanesi, nýbyggðri frá síðasta
sumri.
Síminn við Inndjúp komst í lag í
gær, eftir að jöklavír hafði verið
rakinn í 6 til 700 metra skarð í
símalínuna í Seyðisfirði þar sem
snjóflóð hafði sópað allt að 15
staurum í sjó fram, en jöklavír
þennan kom Hörður flugmaður
með frá Reykjavík kvöldið áður,
sem hann þó í þeirri ferð tók
lykkju á leið sína að fljúga til
Grænlands, þar sem ófært reynd-
ist á ísafirði að lenda vegna
snjókomu. Beið þar fram á kvöldið
að élið birti og lenti í sinni
heimahöfn í bezta yfirlæti.
Jens i Kaidalóni.
Samvinnuferðir — Landsýn:
Danska f lugf élagið Sterling
hefur leiguflug frá íslandi
Ferðaskrifstofan Samvinnu-
ferðir — Landsýn hefur samið við
danska flugfélagið Sterling um
farþegaflug frá lsiandi til Kaup-
mannahafnar á komandi sumri.
Þá hefur einnig verið samið um
leiguflug til Möltu frá Kaup-
mannahöfn á vegum dönsku
verkalýðshreyfingarinnar. A
blaðamannafundi sem ferða-
skrifstofan Samvinnuferðir —
Landsýn efndi til kom fram að
Flugleiðum var gefinn kostur á að
bjóða i þetta flug en tilboð þeirra
verið mun hærra en danska flug-
félagsins.
Sagði Eysteinn Helgason, fram-
kvæmdastjóri Samvinnuferða, að
hann teldi það sjálfsagða réttlæt-
iskröfu að íslendingar fengju að
njóta hagstæðustu ferðakjara til
Danmerkur á sama tíma og Danir
geta ferðast hingað til íslands á
þessum sömu kjörum. Þá hefur
ferðaskrifstofan samið við Arnar-
flug um leiguflug til Toronto í
BÆJARRÁÐ Kópavogs hefur lagt
til við bæjarstjórn. að gjörð verði
svokölluð módelrannsókn á Engi-
hjallahverfinu tii þess að fá fram
með hvaða aðgerðum megi draga úr
vindhraða i því.
Að sögn Bjarna Þórs Jónssonar,
bæjarstjóra Kópavogs, er það ein-
dreginn vilji bæjaryfirvalda að
minnka vind í hverfinu sé þess
nokkur kostur. Sagði hann, að það
hefði komið fram áður, að verulegir
stormsveipir mynduðust á milli hús-
anna og á bílastæðum og þess vegna
væri mikil þörf að draga úr þeim,
svo ekki færi illa, eins og í óveðrinu
á dögunum.
Kanada og er þar um að ræða
fyrsta reglubundna leiguflugið til
Vesturheims.
í þessu sambandi vildu forráða-
menn Samvinnuferða taka fram að
með samningum við danska flugfé-
lagið Sterling væri ekki verið að
taka farþega frá íslenzka áætlun-
arfluginu og alls ekki verið að selja
einstök flugför tii Kaupmanna-
hafnar. Þetta flug væri aðeins fyrir
fólk sem keypti jafnframt gistingu
og uppihald á vegum danskra
aðilja í Danmörku eða á Möltu.
Hefði tekist að ná mjög lágum
ferðakostnaði með þessu móti og
væru t.d. tveggja vikna ferðir með
gistingu frá kr. 2.800 (280.000 gkr.)
fyrir hvern einstakling í fjöl-
skylduferðum til Helsingör þegar
afsláttur hefði verið dreginn frá.
Þessi þjónusta væri fyrst og fremst
miðuð við fjölskyldur en fyrir
einstaklinga væri jafn hagstætt
eða hagstæðara að ferðast með
áætlunarflugi.
Mikill einhugur
á aðalf undinum
- segir einn stjórnarmanna um aðalfund Fiskeldis
Bæjarráð Kópavogs:
Reynt verði að draga úr vind-
hraða í Engihjallahverfi
AÐALFUNDUR Fiskeldis hf. var
haldinn um helgina og fóru þar
fram venjuleg aðalfundarstörf,
m.a. stjórnarkjör. en fækkað var i
stjórn og aðalstjórn. Núverandi
stjórn Fiskeldis skipa Árni ó.
Lárusson viðskiptafræðingur,
Bjarni Aðalgeirsson bæjarstjóri
Húsavikur, Finnbogi Kjeld for-
stjóri, Jón S. Friðjónsson verkfræð-
ingur og Matthias Kjeld læknir.
Varastjórn skipa þeir Daði Ág-
ústsson, Róbert Pétursson og Viðar
Halldórsson. Árni Ó. Lárusson sagði
að mikill einhugur hefði ríkt á
fundinum og hefði stjórnin verið
kjörin með verulegum meirihluta
atkvæða. Þó hefði borist mótfram-
boð, Pétur Rafnsson bauð sig fram,
en fékk 350 atkvæði á móti 1100 til
1250 atkvæðum þeirra er náðu kjöri.
— Ég býst við að hin nýja stjórn
geti óhikað haldið áfram að starfa
að markmiðum félagsins, en miklar
truflanir hafa orðið vegna þess
moldviðris, sem þyrlað hefur verið
upp kringum félagið, sagði Árni Ó.
Lárusson, en kvaðst þó ekki vilja
tala fyrir hönd stjórnarinnar þar
sem hún ætti eftir að koma saman
og skipta með sér verkum. Yrði það
mjög fljótlega og myndi einnig
fljótlega verða fjallað um hvað helzt
væri á döfinni og e.t.v. um hlutafjár-
aukningu í framhaldi af því.
Þrýstimælar
Allar stæröir og gerðir
StoosHaiuigjiLoir
J^xni©©®in) <@t
Vesturgötu 16, sími 13280
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands á
næstunni sem hér segir:
ROTTERDAM
Arnarfell ........... 2/3
Arnarfell .......... 18/3
Arnarfell ........... 1/4
Arnarfell .......... 15/4
ANTWERPEN
Arnarfell ........... 4/3
Arnarfell .......... 19/3
Arnarfell ........... 2/4
Arnarfell .......... 16/4
GOOLE
Arnarfell ........... 5/3
Arnarfell .......... 16/3
Arnarfell .......... 30/3
Arnarfell .......... 13/4
LARVÍK
Hvassafell ......... 10/3
Hvassafell ......... 23/3
Hvassafell .......... 6/4
GAUTABORG
Hvassafell ......... 11/3
Hvassafell ......... 24/3
Hvassafell .......... 7/4
KAUPMANNAHÖFN
Hvassafell ......... 26/2
Hvassafell ......... 12/3
Hvassafell ......... 25/3
Hvassafell .......... 8/4
SVENDBORG
Hvassafell ......... 27/2
Hvassafell ......... 13/3
Skip ............. 20/3
Hvassafell ......... 26/3
Hvassafell .......... 9/4
HELSINKI
Helgafell .......... 11/3
Dísarfell ........... 9/4
HAMBORG
Dísarfell ........... 9/3
GLOUCESTER, MASS
Skaftafell .......... 5/3
Jökulfell ........... 6/3
Skaftafell .......... 7/4
HALIFAX, KANADA
Skaftafell .......... 9/3
Jökulfell ........... 9/3
Skaftafell ......... 11/4
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101