Morgunblaðið - 25.02.1981, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1981 1 5
Tejero Molina
- andstæðingur lýðræðis
- lærisveinn Francos
Madrid. 24. febrúar. — AP.
Antonio Tejero Molina ofursti, höfuðpaurinn í
byltingarsamsærinu á Spáni, var lærisveinn Francos
einræðisherra og yfirmenn hans í hernum hafa ætíð
sýnt honum linkind. Fyrir síðasta samsærið, Galaxy-
áætlunina, í nóvember 1978, hlaut hann aðeins sjö
mánaða fangelsisdóm, en sá atburður hefur verið
kenndur við kaffihús það í Madrid er Tejero Molina og
fjórir aðrir foringjar í Þjóðvarðliðinu brugguðu vél sín.
Þá var ætlunin að ræna Adolfo Suarez forsætisráð-
herra og hafa hann í haldi
verið komið á í landinu.
Galaxy-áætlunin fór út um
þúfur þegar þrír samsær-
ismannanna sáu sig um hönd á
síðustu stundu og gerðu for-
sætisráðherranum viðvart.
Tejero Molina og fimmti sam-
særismaðurinn, Richardo Sa-
ens de Ynestríllas höfuðsmað-
ur, voru settir í stofufangelsi
og látnir dúsa þar þangað til
herréttur var settur yfir þeim
rúmu ári síðar. Dómur gekk í
maí 1980, og fékk Tejero Mol-
ina þá sjö mánaða fangelsi og
félagi hans sex mánaða dóm.
Rétturinn tók hins vegar til
greina þann tíma sem þeir
kumpánar höfðu verið í stofu-
fangelsi; þannig að þeim var
sleppt þegar í stað og tóku þeir
til starfa í Þjóðvarðliðinu á ný,
án þess að vera lækkaðir í tign.
Við réttarhöldin ásakaði
Tejero Molina ríkisstjórnina
um að hindra lögregluna í
baráttunni gegn skæruliðum
Baska og krafðist heimildar til
að fá að elta þá uppi með öllum
tiltækum ráðum eins og tíðk-
azt hefði á tímum Francos.
Tejero Molina er 49 ára að
aldri og ókvæntur. Hann er
öfgafullur þjóðernissinni og
það er bjargföst skoðun hans
þar til hægri stjórn hefði
að ótryggt stjórnarfar á Spáni
síðan Franco leið sé óyggjandi
sönnun þess að lýðræði henti
ekki á Spáni. Skömmu áður en
Galaxy-málið komst á döfina
ritaði hann Juan Carlos kon-
ungi bréf þar sem hann krafð-
ist þess að án tafar yrði látið
til skarar skríða gegn hryðju-
verkamönnum og stuðnings-
mönnum þeirra, „þar á meðai
ýmsum þingmönnum", eins og
hann sagði í bréfinu.
Tejero Molina var yfirmaður
Þjóðvarðliðsins í Guipuzcoa-
héraði í norðanverðu Baska-
landi um árabil. A þeim tíma
lögðu skæruliðar Baska að
velli um 300 manns, hermenn,
lögreglumenn og óbreytta
borgara. Tejero Molina var
látinn hætta þessu starfi árið
1977, þar sem hann neitaði að
láta það viðgangast að Baskar
drægju að húni þjóðfána sinn,
sem þá hafði nýlega öðlazt
viðurkenningu. Var Tejero
Molina fluttur til Malaga, þar
sem hann er upprunninn. Þar
lenti hann fljótlega í kasti við
yfirmenn sína fyrir að fyrir-
skipa að mótmælafundur
vinstri sinna skyldi leystur
upp.
Viðbrögðin við valdaránstilrauninni:
Miklu lofsorði lokið
á Juan Carlos konung
Madrid. 24. íebrúar. — AP.
ÖLL dagblöðin i Madrid luku i
dag upp einum munni i fordæm-
ingu sinni á valdaránstilraun
þjoðvarðliðanna og lögðu til. að
þeir yrðu dregnir til fullrar
ábyrgðar á gerðum sinum. Er-
lendis hafa viðbrögðin verið svip-
uð og margir hafa lokið miklu
lofsorði á Juan Carlos Spánar-
konung fyrir einarðleg og skjót
viðbrögð.
Dagblaðið ABC, helsta dagblað í
Madrid, sagði, að valdaránstil-
raunina hefðu gert „geðsjúkir
menn“ en lagði jafnframt áherslu
á, að gera yrði skjóta bragarbót á
þeirri stjórnarkreppu, sem nú
ríkti f landinu. Blaðið E1 Pais
kallaði atburðina „sviksamlegt til-
ræði við spænsku þjóðina" og
bætti því við, að Juan Carlos
konungur hefði komið fram sem
„einarðastur og aðdáunarverðast-
ur málsvari stjórnarskrárinnar".
Sendinefnd spænskra kommún-
ista á þingi sovéska kommúnista-
flokksins í Moskvu bjóst til ferðar
þaðan í dag til að taka þátt í
„fjöldamótmælum" gegn valda-
ránstilrauninni, Carillo, formaður
spænskra kommúnista, var ekki í
sendinefndinni enda hefur hann
aðrar skoðanir á samskiptunum
við Kreml. Hann var staddur í
þinghúsinu þegar þjóðvarðliðarnir
tóku það.
Breska stjórnin fordæmi í dag
tilraunina til að steypa stjórn
Spánar og kallaði hana „hryðju-
verk“. „Stuðningur Breta við lýð-
ræðið á Spáni er engum takmörk-
unum háður," sagði í tilkynningu
utanríkisráðuneytisins.
Með atburðunum á Spáni í gær
var hvergi fylgst betur en hjá
grönnum þeirra Portúgölum. Qr-
lög þessara þjóða hafa verið sam-
ofin um langan aldur og eru báðar
ungar í hópi lýðræðisþjóðanna.
Forseti Portúgals, Antonio R.
Eanes, talaði við Spánarkonung
snemma í gærkvöldi en ekki hafa
nein opinber viðbrögð borist það-
an enn.
Bruno Kreisky, kanslari Aust-
urríkis, sagði í dag, að Juan Carlos
Spánarkonungur hefði brugðist
við atburðunum á „aðdáunarverð-
an“ hátt, staðið vörð um stjórn-
arskrána og komið í veg fyrir
mikla ógæfu.
I Róm efndu æskulýðssamtök
kommúnistaflokksins til mótmæla
fyrir utan sendiráð Spánar í
Vatikaninu þar sem mest bar á
vígorðum gegn CIA, bandarísku
leyniþjónustunni. Sandro Pertini,
Italíuforseti, talaði við Spánar-
konung í dag í síma og hrósaði
honum fyrir „ákveðni og stað-
festu".
Anker Jörgensen, forsætisráð-
herra Dana, harmaði í dag atburð-
ina á Spáni í gær og sagðist vona,
að þeir væru aðeins „síðustu
dauðateygjur" fasisraans þar í
landi. Dönsku blöðin lofuðu mjög
þátt Juan Carlos konungs í að
kveða niður valdaránstilraunina
en sögðu jafnframt, að hættan á
nýju borgarastríði á Spáni væri
ekki endanlega úr sögunni.
VOLVO Lapplander
fœr varla nokkur
fegurðarverðlaun,
en hann stendur fyrir sínu
Skoðaðu sýningarbíl hjá okkur.
Hann venst!