Morgunblaðið - 25.02.1981, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1981
17
KARL BRETAPRINS OPINBERAR TRÚLOFUN SÍNA OG DÍÖNU SPENCER
Karl Bretaprins, erfingi bresku krúnunnar, ætlar að
ganga að eiga 19 ára gamla breska stúlku, lafði Diönu
Spencer, að því er tilkynnt var í Buckingham-höll í dag.
Ekki var þess getið hvenær brúðkaupið mun fara fram en
líklegt er talið að það verði í dómkirkjunni í Westminster í
lok júlí. Díana verður fyrsta enska blómarósin sem giftist
breskum ríkisarfa í 300 ár. Árið 1659 giftist Jakob III
enskri stúlku, Anne Hyde. Síðan þá hafa allir makar
þjóðhöfðingja Breta verið af erlendu bergi brotnir. Síðustu
viku hefur fjölskyldumeðlimum verið tilkynnt um trúlofun-
ina, einnig forsætisráðherranum, leiðtoga stjórnarandstöð-
unnar og erkibiskupnum af Kantaraborg.
Prinsinn, sem fullu nafni heitir
Karl Filipus Arthúr George
Windsor og ber titlana riddari af
sokkabandsorðunni, prins af Wal-
es, jarl af Chester, hertogi af
Cornwall og Rothesay, jarl af
Carrick, Renfrew barón, lávarður
Skosku eyjanna og verndari
Skotlands, er nýorðinn 32 ára.
Töldu Bretar hann vera kominn
vel á giftingaraldurinn og fylgd-
ust því náið með hverju fótmáli
hans, hvort hann væri nú ekki á
leið að biðja sér konu.
„ÉG VAR ALDREI
___________I VAFA“_____________
Síðastliðið haust sáust Karl og
Díana tiltölulega oft saman og
fylgdust fjölmiðiar vel með fram-
vindu mála. Flestir muna eftir því
er fréttamenn settust um sveita-
setur konungsfjölskyldunnar í
Skotlandi vissir um það að Díana
væri á leið þangað. En ekkert sást
til Díönu. I viðtali sem breska
fréttastofan Press Association
átti í Buckingham-höll í dag við
þau Díönu og Karl sagði hann að
Díönu hafi verið smyglað inn á
sveitasetrið í það skiptið. Hafi sú
aðgerð verið þrautskipulögð sem
hernaðaraðgerð.
Karl sagði þó að umsátur
fréttamanna hefði ekki verið það
erfiðasta, heldur það að þurfa að
þegja yfir trúlofuninni. Hann
sagðist hafa beðið Díönu er þau
borðuðu saman í íbúð hans í
Buckingham-höll ein síns liðs 6.
febrúar sl., rétt áður en Díana fór
í frí til Ástralíu.
„Ég vildi gefa henni tækifæri til
að hugsa sig um,“ sagði hann. En
Díana sem sat við hlið Karls
meðan á viðtalinu stóð, sagði: „Ég
var aldrei í vafa."
Unga parið sagðist eiga margt
sameiginlegt. „Díana er mikið
gefin fyrir útiveru," sagði Karl.
„Og við höfum bæði gaman af
tónlist og dansi og höfum bæði
sömu kímnigáfuna," sagði Díana.
„Það er líka nauðsynlegt," bætti
Karl við og hló.
Það eina sem þau hafa ekki
bæði áhuga á er líklega hesta-
mennska. „Ég féll einu sinni af
hestbaki og missti áhugann,"
sagði Díana.
ÁSTIN FÓR AÐ
BLÓMSTRA I JÚLÍ SL.
Þótt það hafi oft komið fram að
Díana og Karl hafi þekkst frá
barnæsku muna þau ekki eftir því
að hafa hist fyrr en 1977, árið sem
Elísabet móðir Karls hafði setið í
hásætinu í 25 ár. Systir Díönu,
lafði Sara McCorquodale, kynnti
þau er Karl var í heimsókn á setri
Spencerfjölskyldunnar í Nort-
hamptonshire.
„Karl kom til þess að fara á
fasanaveiðar," sagði Díana.
„Hann var góður vinur systur
minnar þá.“
Prinsinn sagði að hann myndi
eftir því hvað honum þótti Díana
„yndisleg 16 ára stúlka". „Ég
hugsaði líka mikið um það hvað
hún væri skemmtileg," bætti
hann við.
Þau sögðu að ástin hefði farið
að blómstra milli þeirra í júlí sl.
er Díana fór í heimsókn til
Balmoral, sveitaseturs konungs-
fjölskyldunnar í Skotlandi. „Þá
urðum við vör við að eitthvað
hafði gerst," sagði Karl, sem
minntist þess einnig að síðar um
árið hefði þau hist á heimili
móður drottningarinnar í Birk-
hall í Skotlandi.
Karl sagði að þau ættu enn eftir
að gera margar áætlanir um
framtíðina. Hann sagði að brúð-
kaupið yrði líklega síðast í júli og
að þau myndu búa á sveitasetri
hans í Highgrove rétt fyrir utan
London. „Ég hef aðeins tvö her-
bergi í höllinni svo við getum ekki
verið hér lengi," sagði hann.
Er Diana var spurð að því hvort
hún væri búin að skipuleggja nýja
heimilið brosti hún og sagði:
„Ekki ennþá.“ Karl keypti setrið á
sl. ári. „Það er aðeins búið að
standsetja tvær stofur á efri
hæðinni og svefnherbergið. Að
öðru leyti er nú verið að mála allt
húsið,“ sagði Karl. „En húsið er
enn alveg tómt, þar eru engin
gluggatjöld, engin húsgögn og
engin teppi."
ALDURSMUNURINN
SKIPTIR ENGU MÁLI
Prinsinn var í dag í gráum
jakkafötum en lafði Díana var í
rauðu flauelspilsi og jakka og
blússu í stíl við. Þau sátu sitt
hvorum megin í sófa og skiptust á
augnagotum meðan þau töluðu.
Díana tók það fram að 12 ára
aldursmunur á þeim skipti hana
engu máli. „Ég hef aldrei hugsað
út í þennan mun nema þegar fólk
var að para okkur Andrew sam-
an.“ Andrew er yngri bróðir
Karls, 21 árs.
„Díana mun halda mér ungum,"
„Díana mun sóma
sér vel sem prins-
essa af Wales44
sagði Karl. „Þú ert aldrei eldri en
þér finnst þú vera.“
Karl sagði að Díana mundi
sóma sér vel sem prinsessa af
Wales. „Hún verður bráðum 20
ára, hún er á svipuðum aldri og ég
var er ég fór að gegna opinberum
störfum. Það verður erfitt fyrir
hana til að byrja með en hún
verður bara að hella sér út í þetta.
Díana var varkárari: „Ég verð
bara að taka því sem að höndum
ber,“ sagði hún.
Þótt Díana sé aðeins 19 ára
virtist hún vera örugg og í góðu
jafnvægi er hún sat við hlið
prinsins í dag. En sagði þó: „Það
er alltaf betra þegar maður hefur
— segir Karl
í viðtali
sem tekið
var við
hann og
Díönu í gær
Diana vann þar til á síðasta ári
á barnaheimiii í London en þar
var þessi mynd tekin. Bresk
blöð, sem þó hafa hrósað Diönu
mikið, telja hana hafa gert
mikil mistök er hún ieyfði töku
myndarinnar.
Diana og Karl munu búa á sveitasetri Karls í Ilighgrove rétt fyrir
utan London.
Karl prins og lafði Díana
Spencer við Buckingham-höll i
gær.
einhvern við hlið sér, einhvern
sem hjálpar.“
GIFTIST STÚLKUNNI
t NÆSTA HÚSI
Lafði Diana Frances Spencer er
dóttir Spencers jarls sem er einn
afkomenda hertogans af Marlbor-
ough, frægs hershöfðingja á 18.
öldinni. Hertoginn er einnig for- “
faðir Winstons Churchills sem
fullu nafni hét Winston Spericer
Churchill.
Díana á tvær eldri systur og
einn yngri bróður. Foreldrar
hennar skildu árið 1969 eftir 15
ára hjónaband. Móðir hennar,
sem er dóttir Fermoy baróns er
nú gift kaupsýslumanninum Peter
Shand Kydd. Jarlinn giftist aftur
árið 1976 dóttur Barböru Cart-
lands, rithöfundarins fræga.
Frá barnæsku hefur Díana um-
gengist hefðarfólk. Henni hefur
verið lýst sem fallegri enskri rós,
indælli, saklausri, heiðarlegri, al-
varlegri, ferskri, vingjarnlegri, al-
þýðlegri, þolinmóðri, skynsamri
og varkárri. Bresk blöð hafa gefið
henni nafnið feimna Dí.
Hún er 1,75 m á hæð, grönn,
hljóðlát og hláturmild. Hún hefur
stór blágrá augu og Ijósskollitað
hár og hreinan andlitssvip. Hún
notar lítinn andlitsfarða og lítið
af skartgripum. Hún ferðast oft á
reiðhjóli en keyrir þess utan
rauðan Mini-Metro. Hún stundar
skíði talsvert og er góður sund-
maður en ekki mikið gefin fyrir
veislur.
Diana gekk í einkaskóla nærri
London og var síðan send í skóla í
Sviss en kom heim eftir sex vikur.
Árið 1979 fékk hun atvinnu á
barnaheimili í London. Hún bjó
þá ásamt þremur vinkonum sín-
um í húsi sem faðir hennar á í
Kingston-hverfinu í London. Á
síðasta ári sagði Díana upp starfi
sínu.
Sagt er að börn Spencers jarls
og börn drottningarinnar hafi
leikið sér mikið saman á yngri
árum enda hafi aðeins lág steina-
girðing skilið að landsvæði Spenc-
erfjölskyldunnar og sveitasetur
konungsfjölskyldunnar í Sandr-
ingham. Karl ætlar því að giftast
stúlkunni í næsta húsi.
ORÐAÐUR VIÐ 12
STÚLKUR Á 14 ÁRUM
Þeir sem til þekkja hafa fullyrt
að Díana hafi aldrei haft náin
sambönd við aðra karlmenn. En
Karl hefur verið orðaður við 12
stúlkur á síðastliðnum 14 árum.
Fyrst kom upp nafn Luciu Santa
Cruz, dóttur sendiherra Chile í
London, Karl var þá 19 ára en hún
23 ára. Þá var lafði Jane Wellesl-
ey, dóttir hertogans af Wellington
lengi talin líkleg í sæti drottn-
ingar. Síðan Rosie Clifton, Davina
Sheffiled, Elizabeth Manners,
lafði Sara Spencer, systir Díönu,
Angelika Lazansku greifynja,
Sabirna Guinnes, erfingi Guinn-
esverksmiðjanna, Amanda
Knatchbull, Anna Wallace, Marie
Astride prinsessa af Luxemborg
og að síðustu Díana Spencer.
KONUNGSFJÖL-
SKYLDAN ÁNÆGÐ
Brúðkaup Díönu og Karls verð-
ur 17. brúðkaupið innan bresku
konungsfjölskyldunnar á þessari
öld. Ástamál og brúðkaup kon-
ungsfjölskyldunnar hafa ekki
ætíð gengið hljóðlega fyrir sig,
muna sennilega allir eftir látun-
um í kringum giftingu Játvarðar
VIII og Wallis Simpson. Mikið
háreysti var einnig í kringum
síðasta brúðkaup sem var árið
1978. Þá giftist Michael, yngsti
sonur Georgs konungs, fráskilinni
rómversk-kaþólskri konu.
Bretum var farið að lengja eftir
því að Karl festi ráð sitt og þótti
sumum hann vera helst til laus-
látur. En nú hefur Karl valið og
það líklega vel því konungsfjöl-
skyldan mun vera hæstánægð
með ráðahaginn.
Heimildir: AP og bresk og banda-
rísk blöð.