Morgunblaðið - 25.02.1981, Side 19

Morgunblaðið - 25.02.1981, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1981 19 „Mál þetta er allt hið skuggalegasta“ segir Karl Steinar Guðnason alþm. um Þórshafnarmálið „Ék lasðist strax KPRn þessu máli og taidi ok tel þctta ekki réttu leiðina til að leysa vanda Þórshaín- arbúa. Þegar rikisstjórnin sam- þykkti samt sem áður þessi skipa- kaup og fól Byggðasjóði fjárútveR- un. lét ég bóka í stjórn Fram- kvæmdastofnunar, að ég væri á móti innflutningi nýrra togara <>k vakti athyKÍi á að hver nýr skuttoK- ari hefði i för með sér fleiri skrapdaKa fyrir þá sem fyrir eru. Mbl. spurði Stefán ValKeirsson í Kaer, hvort rétt væri, að til umræðu hefði verið i upphafi, að kaupa mun ódýrara skip? „ÚtKPrðarfélaK Norður-ÞinKey- inKa óskaði eftir þvi, að stjórnvöid Kerðu ráðstafanir tii að þeir fenKju að kaupa bv. GuðbjörKU ÍS 46, sem átti að fara úr landi i staðinn fyrir annan toKara. En eftir því sem toKarakaupin voru meira rædd heima fyrir kom betur í Ijós, að mönnum leist ekki á að endurtaka kaup á Kömlu skipi. Þess veKna var leitað að nýleKU skipi. — En hvers vegna var hætt við kaup á frönskum togara, sem sagt hefur verið frá? „Ég hef ekki fylgst með því, hvaða skip norðanmenn hafa skoðað. En ég stend í þeirri trú, að þeir hafi ekki gert kaupsamning um franskt skip. Hitt mun sanni nær, að einhver skipasali hafi komið með uppkast að kaupsamningi á átta ára gömlu skipi, sem enginn norðan- maður hefur skoðað. Ætli hin dýr- keypta reynsla af Fontinum hafi ekki orðið því valdandi, að lítill áhugi hafi verið fyrir kaupum á svo gömlu skipi." — En er skipið ekki nú mun dýrara en gert var ráð fyrir þegar kaupin voru rædd í stjórn Fram- kvæmdastofnunar ríkisins? „Það má segja það. Kaupsamning- urinn var upp á 21 milljón norskar. Upplýst var á þessum fundi, að þetta væri rækjuskip, sem yrði að breyta. Ekki lá þá fyrir hvað breytingarnar myndu kosta, en Þá sagði ég engan veginn ljóst, hvort nýr togari leysti vandamál atvinnulífs á Þórshöfn og Raufar- höfn. Þá hef ég einnig bent á niðurstöður áætlunar um rekstur togarans, sem sýna, að að ibúum Þórshafnar og Raufarhafnar verð- ur ókleift að standa undir rekstri hans,“ sagði Karl Steinar Guðna- son, alþingismaður og stjórnarmað- ur í Framkvæmdastofnun, i viðtali við Mbl. í gær, sem tekið var við framkvæmdastjóri Framkvæmda- stofnunar nefndi á fundinum 3 til 4 millj. norskar. Ekki veit ég, hvort í þessari tölu voru fiskikassar í togar- ann, sem kosta mikið. Það er rétt, að togarinn mun kosta um 28 milljónir norskar, eða verða 3—4 milljónum dýrari en reiknað var með. En ætli breytingar á flestum skipum hafi ekki reynst dýrari en í fyrstu var áætlað. — En nú samþykkir stjórn Fram- kvæmdastofnunar að greiða 20% af 21 milljónum norskum, en þú telur að ljóst hafi verið að skipið myndi kosta með breytingum 24 —25 millj. norskar. Hvernig útskýrir þú það? „Þessi niðurstaða þýddi raunar það, að þeir væru að hlaupa frá málinu. Öllum var ljóst, að Norður- Þingeyingar höfðu enga möguleika að ná skipinu með þessari af- greiðslu." Stefán Valgeirsson sagði í lokin: „Sighvatur Björgvinsson upplýsti í þingræðu í síðustu viku, að Karl Steinar Guðnason hefði alltaf verið á móti þessum togarakaupum. Það er að mínu áliti í samræmi við byggðastefnu kratanna. Þá hefur það ekki komið fram fyrr, hvað Eggert Haukdal er nærsýnn. Hann telur sig þess umkominn að kveða upp úr um það á þingi, hvernig leysa eigi vandamál Norður-Þingeyinga og það skiptir hann engu rnáli, þó að Byggðadeild Framkvæmdastofnun- ar hafi gert tillögur um lausn málsins. En það á hún að gera lögum samkvæmt og það hefur hún gert.“ hann i tilefni af ummælum Stefáns Valgeirssonar i Mbl. þá. Þá sagði Karl Steinar: „Þá má benda á aðra hlið þessa máls. Upphaflega voru það sex þingmenn sem óskuöu eftir því að úr vanda- máli þessu yrði leyst. Síðan hefur aðallega einn þingmaður, umræddur Stefán Valgeirsson, tekið rekstur málsins svo hatrammlega að sér, að Árni Gunnarsson, sem óskaði tvíveg- is eftir þingmannafundi til að fá að fylgjast með, hefur ekki fengið að koma nærri. Á sama tíma hefur kostnaður við togarann vaxið hröð- um skrefum og allt hefur verið gert á bak við og framhjá Framkvæmda- stofnun. Ég vil, eins og umræddur þingmaður, einnig vitna í bundið mál í þessu sambandi: Hálfsannleikur oftast er óhrekjandi lýgi! — Hefur þú heyrt talað um mútur og mútuþægni í sambandi við málið? „Já, ég hef heyrt af þessu, en ég veit ekkert um það né vil hafa með það að gera. En auðvitað vaknar tortryggni, þegar málið er komið á þetta stig. Hvers vegna rækjuskip? — Hvers vegna frystitæki? Það hlýtur að hafa verið ætlast til þess, að togarinn verði látinn sigla. Þá veit ég af telexskeyti sem barst, þar sem upplýst var, að boðinn hefði verið til kaups togari á 13 millj. norskar kr. í staðinn fyrir 28 millj., sem nú er verið að kaupa, en að ekki hefði verið talað við þá aðila. Hvers vegna var ekki rætt við þá?“ Þá sagði Karl Steinar: „Mál þetta er allt hið skuggalegasta og það sætir furðu, hversu menn geta verið grimmir í fyrirgreiðslupólitíkinni. Þetta kemur byggðastefnunni hvað verst. Auðvitað er verið að taka fjármuni frá þeim stöðum öðrum, sem einnig þurfa á aðstoð að halda. Um dylgjur í minn garð vil ég aðeins segja, að hér er á ferð maður, sem er trúandi til alls. Ég bið menn aðeins að lesa vel viðtalið í Mbl. við Stefán Valgeirsson, þá komast þeir að sömu niðurstöðu. Ég tel, að almenningur eigi ský- lausa kröfu á að vita hvað hér er á ferðinni. Þingmönnum allra flokka ofbýður. Umræður og samlíkingar við Geirfinnsmálið og Göbbels- aðferðir eru vart svaraverðar, en ég tel mikla ógæfu fyrir fólk á norð- austurlandi að sitja uppi með slíka forsvarsmenn. Sannleikurinn er sá, að þarna býr fólk, sem vill bjarga sér sjáift og mun gera það, sé því veitt aðstoð til sjálfshjálpar. Fyrir- greiðsluforingjar í þessa veru skemma fyrir hinni raunverulegu byggðastefnu og almennum vilja til aðstoðar einangruðum og afskekkt- um stöðum landsins. Stefán Valgeirsson alþingismaður: „Það á Byggða- deild að gera og það hefur hún gert“ Eggert Haukdal stjórnarformaður Framkvæmdastofnunar: „Málið er komið í strand, vit- leysan keyrir um þverbak“ „Ilagleg stjórn Framkvæmda- stofnunar er ekki í höndum stjórn- ar stofnunarinnar. Stefán Val- geirssun segir, að ég þekki ekki lögin. Jú, jú, ég þekki þau. En það er ekki hægt að ætlast til að skitamál flokkist undir byggðast- efnu. — Mál eins og þetta og málareksturinn eyðilegKja hina raunverulegu byggðastefnu og álit almennings á hcnni,“ sagði EgKert Haukdal stjórnarformaður Fram- kvæmdastofnunar i tilefni af um- mælum Stefáns Valgeirssonar i Mbl. i gær. — Hvað gerið þið í Fram- kvæmdastofnun þar sem ríkis- stjórnin hefur frestað afgreiðslu málsins, sem þið vísuðuð til hennar? „Við gerum ekkert fyrr en ríkis- stjórnin afgreiðir málið. Þó ríkis- stjórnin ákveöi, þegar þar að kemur, að afgreiða málið jákvætt, þ.e. samþykki kaupin, sem ég vona auðvitað að hún geri ekki, þá á málið eftir að fara í gegnum þingið. Annars finnst mér, að allir viðkom- andi aðilar ættu að skoða málið að nýju og hætta þessari vitleysu. Það á að leysa þessi vandamál með skaplegum hætti." — Hvaða hætti? „Til dæmis með skaplegri togara, eins og upphaflega var talað um, bát, miðlun fisks, fækkun skrap- daga. Málið er komið í strand, vitleysan keyrir um þverbak, við verðum að læra af reynslunni.“ — Hefur þú orðið var við umræð- ur um mútur? „Nei, en mér sýnist eitthvað vera undir yfirborðinu á þessu öllu sam- an.“ — Kemur afgreiðsla ríkisstjórn- arinnar á máli þessu til með að hafa áhrif á stuðning þinn við hana? „Verk ríkisstjórnarinnar hafa auðvitað áhrif á skoðanir mínar á henni. Ég fæ tækifæri í þessu máli sem öðrum til að segja álit mitt við afgreiðslu málsins á þingi og ég hef lýst því margoft yfir, hver sú afstaða mín sé.“ ERLENDAR FRÉTTIR j STUTTU MÁLI Páfi í Japan JÓHANNES Páll páfi II sagði á fundi meö fulltrúum erlendra ríkja í Tókýó í dag, aó „skortur á pólitískri einbeitni" væri um þessar mundir ein helzta ástæðan fyrir þjáningum mannfólks- ins. Þá kom páfi á fund meö japönsku æskufólki, og beindi til þess þeirri áskorun aö þaö gerói gangskör aö því aó bæta hag fátæklinga og fatlaöra. Páfi hefur veriö tvo daga í Japan og er hvarvetna vel tekiö. aövörunum, svo valdi." Þá varaöi Khomeini vió útlendingum og þeim, sem vildu endurvekja gömul vanda- mál. Hin nýja herhvöt byltingarleiö- togans kemur í kjölfar aukinna upp- þota, sprengjutilræóa og pólitískra æsinga í landinu. Ríkidæmi Reagans metið á 4 milljónir OPINBER stofnun í Bandaríkjunum birti í dag skýrslu um efnahag Ronald Reagans, hins nýja forseta Bandaríkj- anna. Þar kemur fram aö eignir hans séu metnar á fjórar milljónir dala, en þar af séu 740 dalir í reiöufé, en hitt ýmist í fasteignum eöa veröbréfum. Khomeini hvetur til ofbeldis AYATOLLA Khomeini ávarpaöi í dag íranska lögregluforingja og hvatti þá til aö beita óeiröaseggi og vopnaöa hópa valdi. „Þjóöin er ykkar megin," sagöi Khomeini viö lögreglumennina, „og meö aöstoö fólksins getiö þiö bælt niöur uppþot. Fyrst á aö beita Korchnoi ákveðinn í að tefla SOVÉZKI útlaginn og áskorandinn í heimsmeistaraeinvíginu í skák á sumri komanda, Victor Korchnoi, lét þau ummæli falla í Hong Kong í dag aö „Sovétmenn eigi þaö ekki skilió að hann gefist upp án þess aö tefla". Vilmundur Gylfason alþingismaður: „Samanburðurinn við Mafíu og Geirfinnsmál- ið lýsir bezt sálar- ástandi viðkomandi“ „Ég var einfaldlega að leggja út af ummælum Sverris Hermannsson- ar, sem á kjarnyrtri íslenzku sagði, að leysa þyrfti niður um menn. Ég spurðist einfaldlega nánar fyrir um við hvað væri átt og samkvæmt íslcnzkri meiningu kjarnyrða Sverris gátu þau ekki fjallað um annað en hér væru á ferðinni einhver skugKaviðskipti. — Við þessu fengust engin svor.“ saKði Vilmundur Gylfason alþingismaður m.a. í viðtali við Mbl. í gær, í tilefni af ummælum Stefáns Valgeirssonar hér í blaðinu í gær. „Annars er þetta táknrænt póli- tískt hneykslismál. Það er skákað í skjóli byggðastefnu, sem kemur þessu ekkert við. Þá er rótað upp tilfinningarökum og göslað áfram. Tiltekinn þingmaður veður uppi og fær fleiri þingmenn með sér og þeim er síðan stillt upp, sem séu þeir með byssu í hrygginn. Hér hefur allt verið upplýst. Flotinn er allt of stór og hefur enda komið í Ijós, að fjöldi fólks á Þórshöfn skilur þetta að því er virðist betur en viðkomandi þing- maður.“ í tilefni samlíkingar Stefáns við Mafíu og Geirfinnsmálið sagði Vil- mundur: „Ég held að það lýsi bezt sálarástandi viðkomandi, þessi sam- anburður hans við Mafíu og Geir- finnsmálið. Ég veit ekkert um um- ræður um mútuþægni hér innan veggja alþingis, en ég tel að heiftúð- ug viðbrögð undirstriki það, að þetta mál er allt mjög skritið. Þá er einn stór vandi sem fylgir því þegar þingmenn sem Stefán Valgeirsson, fyrirgreiðsluþingmenn af þessari tegund, ausa úr almanna- sjóðum í þágu tiltölulega þröngs hóps, þá kemur auðvitað að virðingu alþingis og áliti almennings á því og þingmönnum. Við höfum annað ný- legt dæmi sem er hótun annars þingmanns um að hætta stuðningi við ríkisstjórnina, ef hann fái ekki virkjun í sitt kjördæmi." Vilmundur Gylfason sagði í lokin: „Þetta er pólitík eins og hún gerist minnst virðuleg. Þetta lýsir fyrir- brigði sem lítur á það sem sitt hlutverk að vaða með lúkurnar í almannasjóði til hagsbóta fyrir þröngan hóp, — eigin kjósendur." Félag járniðnaðarmanna Aðalfundur veröur haldinn laugardaginn 28. febrúar 1981, kl. 13.00 aö Hótel Esju 2. hæö. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Reglugerö sjúkrasjóös. 3. Önnur mál. Mætiö vel og stundvíslega. Ath. Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofunni föstudaginn 27. febrúar kl. 16.00—18.00 og laugardaginn 28. febrúar kl. 10.00—12.00. Stjórn Félags járniðnaðarmanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.