Morgunblaðið - 09.04.1981, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.04.1981, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRIL 1981 11 Nýtt fyrirkomulag varðandi innritun skólaskyldra barna TEKIÐ heíur verið upp nýtt íyrirkomulag varðandi innrit- un skólaskyldra barna og ungl- inga, sem þurfa að flytjast milli skóla fyrir næsta vetur. Innrit- un þessi fer fram í fræðslu- skrifstofu Reykjavíkur. Tjarnargötu 12 í dag. fimmtu- dag. og á morgun, föstudag, 9. og 10. apríl. kl. 10 til 16 báða dagana. Þetta gildir jafnt um þá nem- endur sem flytjast til borgarinn- ar eða koma úr einkaskólum, eða þurfa að skipta um skóla vegna breytinga á búsetu innan borg- arinnar. Að sögn Kristjáns J. Gunn- arssonar og Ragnars Georgsson- ar skólafulltrúa, er það áríðandi að þessu kalli sé hlýtt, að öll börn og unglingar sem svo er ástatt fyrir verði skráð á ofan- greindum tíma, vegna nauðsyn- legrar skipulagningar skóla- starfsins og undirbúningsvinnu í því sambandi. Það kom fram á blaðamanna- fundi hjá fræðslustjóra, að ekki þarf að innrita þá nemendahópa sem flytjast í heild milli skóla, en það eru börn er ljúka námi í sjötta bekk Breiðagerðisskóla og Fossvogsskóla og flytjast í Rétt- arholtsskóla, börn úr sjötta bekk Laugarnesskóla sem flytjast í Laugalækjarskóla, og börn úr sjötta bekk Melaskóla og Vestur- bæjarskóla sem flytjast í Haga- skóla. Tómas Árnason, viðskiptaráðherra: Ný löggjöf um bankakerf ið og Seðlabankann í undirbúningi VERIÐ er að gera margháttaðar ráðstafanir til þess að trygga að Útvegsbanki íslands geti gegnt hlutverki sínu i framtiðinni, sagði Tómas Árnason, banka- málaráðherra á ársfundi Seðla- bankans í gær og hefur þar verið ákveðið að bankanum séu lagðir til 5 milljarðar gkróna á næstu 12 árum. Ennfremur sagði ráð- herra, að endurskoða ætti löggjöf um Seðlabanka íslands. Tómas Árnason sagði: „Enn- fremur hefur ríkisstjórnin sam- þykkt að skipa milliþinganefnd í bankamálum til þess að endur- skoða allt bankakerfið, þ.á m. löggjöfina um Seðlabanka íslands og hlutverk hans, með það að markmiði að mynda stærri og virkari heild og einfalda banka- kerfið innan ramma heilsteyptrar löggjafar um viðskiptabankana. Ráðgert er einnig að leggja fram á haustþinginu frumvarp til laga um sparisjóði." Seðlabankinn gaf Blindrafélaginu 250 þúsund kr. BANKARÁÐ Seðlabanka íslands hefur ákveðið að færa Blindafé- laginu 250 þúsund krónur til starfsemi félagsins vegna 20 ára afmælis bankans. Þetta kom fram í ræðu Halldórs Ásgrímssonar, formanns bankaráðs. Halldór sagði jafnframt að forystu- mönnum Blindrafélagsins hefði þegar verið færð þessi gjöf og væri það ósk bankaráðsins, að hún yrði til heilla í mikilvægu uppbygg- ingarstarfi. Seðlabankahús á lóð Sænska frystihússins SAMNINGAR milli Reykjavikur- borgar og Seðlabanka íslands um það að bankinn reisi sér hús á lóð Sænska frystihússins eru nú á lokastigi, að þvi er fram kom i ræðu Halidórs Ásgrimssonar, formanns bankaráðs Seðlabank- ans, i gær. Hefur Reykjavikur- borg jafnframt til athugunar að reisa bilageymslu á núverandi lóð bankans sunnan Sænska frystihússins, handan Sölvhóls- götunnar. Halldór Ásgrímsson kvaðst ekki vilja fullyrða, hvort framkvæmdir við nýtt Seðlabankahús hæfust á þessu ári, það væri ekki endanlega ráðið, en hann kvað vel við hæfi að endanleg ákvörðun fengist í mál- inu á þessu starfsári bankans. í árslok 1980 voru 2 þúsund milljón- ir gkróna í húsbyggingarsjóði Seðlabanka Islands. GÆTISPARAÐ ÞÉR ÁHYGGJUR OG ERFIÐISÍÐAR Þessi auglýsing fjallar um nýjung í fasteignaviðskiptum á íslandi: Verð- tryggingu. Seljandi fær sanngjarna út- borgun - og afborganir sem halda fullu verðgildi sínu á hverjum tíma. Greiðslubyrði kaupanda dreifist jafn- ar. Nú er sem sagt runnin upp sú stund að fólk getur hagað fasteignaviðskipt- um sínum eftirgreiðslugetu sinni í dag og í framtíðinni, án þess að raska lífs- háttum sínum um of. Hugsaðu þig um augnablik. Gerðu þér grein fyrir hvað þessi nýjung í fast- eignaviðskiptum þýðir fyrir þig og áform þín. Leitaðu frekari upplýsinga hjá starfs- fólki okkar. Fasteignamarkaöur ,0,RE?K?ArsP:sS Fjárfestingarfélagsins hf (HÚS SPARISJÓÐS REYKJAVÍKUR) Lögfræöingur: Pétur Þór Sigurösson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.