Morgunblaðið - 12.05.1981, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAI 1981
„Útiloka ekki stóriðju
við Reyðarf jörð“
- segir Hjörleifur Guttormsson
„FARIÐ vorði með (íát i upp-
byKBÍnKU orkufreks nýiðnaðar
(>K tryjjKt vcrði virkt íslenskt
forra“ði. m.a. með því að leiíKja í
fyrstu áherslu á þá kosti að öðru
jofnu. sem minni eru í sniðum <>k
viðráðanleKastir. Höfuðáhersla
verði iöKð á slíka miðlunKsstóra
iðnaðarkosti (100 til 500 GWh)
fram undir lok þessa áratuKar.“
— FramanKreind tilvitnun er í
KreinarKerð með frumvarpi því
er Hjörleifur Guttormsson
kynnti í K*r, ok fjallar um
uppbyKKÍnKU raforkuvera hér á
landi næstu 10 til 15 árin.
Á blaðamannafundi vegna frum-
varpsins sagði Hjörleifur, að þessi
klausa táknað alls ekki að útilokað
væri að stóriðja risi við Reyðar-
fjörð í tengslum við virkjun á
Fljótsdal. Hann sagði hins vegar
að þarna væri skýrt kveðið á um
að horft væri fremur til smærri
fyrirtækja, en veittu um 100 til
120 manns atvinnu, heldur en til
stórfyrirtækja á borð við Álverið í
Straumsvík, þar sem vinna um 700
manns.
Gúrkur lækka
um þriðjung
„ÞEIR garðávextir, sem
komnir eru nú. eru helst
gúrkur og salad og tómatar
eru að byrja að sjást,“ sagði
Þorvaldur Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Söluíélags
garðyrkjumanna, í samtali
við Morgunblaðið.
Þorvaldur sagði, að nú væri
nóg af gúrkum og hefði verð
þeirra lækkað um þriðjung
nýlega. Þorvaldur sagði, að
heildsöluverð á gúrkum væri
nú 18 krónur hvert kíló af
fyrsta flokki, verð á saladi
væri 5 krónur og 10 aurar hver
haus, en verðið á tómötum
væri 39 krónur hvert kíló af
fyrsta flokki. Hins vegar
myndi verðið á tómötunum
lækka eftir því sem framboðið
ykist.
Ragnar Jónsson veit-
ingamaður látinn
RAGNAR Valur Jónsson, fyrr-
verandi veitingamaður í Þórs-
café, er látinn í Reykjavík. 68 ára
að aldri, en hann var fæddur 30.
júní 1912 í Gaulverjabæ í Árnes-
sýslu.
Ragnar Jónsson fékk meistara-
bréf í veitingarekstri árið 1943.
Hann stundaði veitinga og gisti-
húsarekstur í Reykjavík um ára-
bil, auk þess í Vaglaskógi sex
sumar á árunum 1945 til 1952.
Ragnar stofnaði Þorscafé árið
1945 og rak það um langt árabil.
Ragnar Jónsson var giftur Júlí-
önu Sigurbjörgu Erlendsdóttur
frá Vestmannaeýjum.
Orkuþingi frestað
að ósk þingflokka
„VIÐ VORUM alveg sammála
hinum flokkunum um að þetta
væri ómöguiegur tími fyrir þing-
menn á lokadögum þinghalds, og
því skrifaði ég undir heiðni þess
efnis, að orkuþinginu yrði fresta
fram i júní,“ sagði Ólafur G.
Einarsson, formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins, í samtali við
Mb!.. er hann var inntur eftir
ástæðum þess. að hann ásamt
formönnum alira þingflokka
skrifaði undirbúningsnefnd fyrir
orkuþinK bréf fyrir helKÍna, þar
sem óskað var eftir frestun þess.
„Mitt álit er það, að ágætt sé að
halda orkuþing í júní, en hins
vegar hefði ég ekki samþykkt
frestun fram á haustið eins og
sumir ræddu um,“ sagði Ólafur G.
Einarsson ennfremur.
Ákveðið hafði verið að halda
orkuþing dagana 13.—15 maí nk.,
en á föstudagsmorgun barst und-
irbúningsnefndinni beiðni frá ein-
um fyrirlesaranum og þingflokki
Alþýðubandalagsins um frestun á
orkuþinginu til hausts. Undirbún-
ingsnefndin hafnaði þeirri beiðni
en tók fram, að' skemmri frestun
væri hugsanleg, ef allir þingflokk-
arnir færu fram á hana. Frétta-
tilkynning um orkuþing í maí var
svo send út um hádegisbil á
föstudag, en síðdegis voru fjöl-
miðlar beðnir að hinkra með
málið, þar sem beiðni um frestun
hefði borizt frá öllum þingflokk-
um. Þessa beiðni ætlaði undirbún-
ingsnefnd að taka fyrir og af-
greiða á laugardagsmorgun.
Undirbúningsnefndin sam-
þykkti svo að fresta orkuþinginu
til 9., 10. og 11. júní nk.
Samningur um gæzlumenn
Á FIMMTUDAG var undirritað-
ur í Reykjavík samningur milli
íslands og Spánar um gæslu-
menn í hvalveiðistiiðvum.
Hér er um að ræða sams konar
samning og gerður var milli Is-
lands, Noregs og Kanada árið 1972
um að skipst yrði á eftirlits-
mönnum við hvalveiðar.
Samningurinn er gerður á
grundvelli ákvæða alþjóðasátt-
málans um skipan hvalveiða frá
árinu 1946.
Samninginn undirrituðu
Steingrímur Hermannsson, sjáv-
arútvegsráðherra og Juan Prat
Coll, varafiskimálastjóri Spánar.
Fýlshræin liggja eins og hráviði um aiia fjöruna.
Eyða í klettinum þar sem
áður var krökkt af fugli
Skotfæri hafa síður en svo verið spöruð við fugladrápið þvi
haglaskot liggja víða i hrúgum.
— ÞAÐ IIAFA sjálfsagt verið
einhverjir hyssuKæjar úr bænum
sem hafa verið að Irika sér að
þessu. ÍUKÍinn lÍKKur þarna dauð-
ur í hrönnum. sagði Pétur Iljalta-
son sonur bóndans á Kiðafelli i
Kjós í samtali við Mbl. Þar
skammt frá bamum nála'Kt Út-
skálahamri voru skotmenn á ferð
síðastliðið föstudaKskvöld <>k her
staðurinn ófögur ummerki eftir
hrimsókn þeirra því þar lÍKKja um
60 fýlshræ í blóði sínu.
— Já, fuglinn var drepinn þarna
í varpstöð en fýllinn er ekki farin
að verpa ennþá. Maður sér að það
er stór eyða í klettinum þar sem
var krökkt af fugli áður.
Það er sjálfsagt bannað að skjóta
hérna enda létu þessir skotmenn
alveg hjá líða að fara fram á leyfi
landeiganda. Þetta er líka það
nálægt æðarvarpi að þetta væri
ólöglegt alla vega — mér skilst að
öll meðferð skotvopna sé bönnuð
innan við einn kílómetra frá æð-
arvarpi.
Nei, við höfum ekki hugmynd um
hverjir þarna voru á ferð. Það
versta er að þetta skeður á hverju
ári að einhverjir fara þarna til þess
að skjóta í óleyfi. Fýllinn er líka
næsta auðveld bráð — hann svífur
þarna fram með klettinum rétt við
andlitið á manni. Fuglinn hefur þó
ekki verið drepinn í svona miklum
mæli áður svo ég viti en það virðist
vera ógerningur að koma í veg fyrir
þetta, sagði Pétur að lokum.
„Staðfesting á því sem haldið
var fram á árunum 1974-1978“
- segir Matthías Bjarnason um rýrnun
kaupmáttar elli- og örorkubótaþega
„ÞETTA er staðfesting á því
sem haldið var fram á þeim
árum sem sú ríkisstjórn sat
1974 til 1978, það er, að þá
var alltaf reynt að verja
rýrnun á kjörum þeirra sem
minna mega sín í þjóðfélag-
inu. þeirra í atvinnuvegunum
sem höfðu lægst launin með
lágmarksbótunum og svo aft-
ur elli- og örorkulífeyris-
þega,“ sagði Matthías Bjarna-
son, sem var ráðherr ..eil-
hrigðis- og tryggingamála í
ríkisstjórninni 1974 — 1978,
er Mhl. har undir hann skrif
Guðmundar II. Garðarssonar
í Mhl. 6. og 7. maí sl., en þar
kemur fram að kaupmáttur
láglaunafólks. lífeyris- og ör-
orkuh«'>taþega hefur rýrnað
verulega síðustu árin, eða allt
frá árinu 1979.
Þá sagði Matthías: „Höfuð-
breytingin sem þá var gerð
fólst í því að grunnlaun ellilíf-
eyrisþeganna hækkuðu til
samræmis við almenn laun í
landinu og tóku alltaf gildi
sama mánuðinn og laun hækk-
uðu. En auk þess gerði það að
verkum að kaupmáttur jókst á
þessu tímabili, að tekjutrygg-
ingarmarkið hækkaði miklu
meira eða úr að mig minnir
54% umfram grunnlaun elli-
lífeyris- og örorkubóta í um
90%.
Skipað í starfs-
aldurslistanefnd
IIÆSTIRÉTTUR hefur skipað
þrjá menn i nefnd til að fjalla um
starfsaldurslistamál flugmanna
FluKleiða.
Þeir eru: Guðmundur Jónsson,
borgardómari í Reykjavík, Bárður
Daníelsson, verkfræðingur, og
Guðmundur Magnússon, rektor
Háskóla íslands.