Morgunblaðið - 12.05.1981, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ1981
Þátttakendur á ráðstefnunni við náttsöng í Skálholtskirkju.
Kirkjuritið efndi til
ráðstefnu myndlistar-
manna og guðfræðinga í
Skálholti helgina 2. og 3.
maí sl. Rætt var um trúar-
lega list og sóttu ráðstefn-
una 16 manns, m.a. for-
maður Félags íslenskra
myndlistarmanna, Sisrún
Guðjónsdóttir, og skóla-
stjóri Myndlista- og hand-
íðaskólans, Einar Ilákon-
arson. Ráðstefnustjóri var
dr. Gunnar Kristjánsson.
Að sögn séra Bernharðs Guð-
mundssonar, fréttafulltrúa Þjóð-
kirkjunnar og ritstjóra Kirkju-
ritsins, voru umræður á ráð-
stefnunni fjörugar og myndaðist
þar sérlega skemmtilegt samfé-
iag.
„Einhuga ósk kom fram á
ráðstefnunni um að komið yrði á
fót nefnd til ráðgjafar um búnað
og gerð kirkjubygginga. Slík
nefnd væri til ráðgjafar jafnt
þegar kirkjan væri á hönnun-
arstigi og eins þegar óskað væri
eftir að fegra hana síðar með
myndverkum.
Þá kom fram vilji fyrir því að
efnt verði til sýningar á mynd-
verkum með trúarlegu efni í
tilefni kristniboðsársins," sagði
Bernharður.
Þrír ráðstefnugestanna, Sig-
rún Gísladóttir, Richard Valtin-
gojer og dr. Gunnar Kristjánsson
gengu á fund biskups sl. miðviku-
dag og báru undir hann þessar
óskur ráðstefnumanna. Biskup
fagnaði þessum tillögum og mun
þeim væntanlega verða komið í
framkvæmd.
í Skálholti höfðu myndlistar-
mennirnir sýningu á verkum
sínum, bæði voru myndir hengd-
ar upp í setustofu lýðháskólans
og skyggnimyndir sýndar af
kirkjuskreytingum, glermunum
og keramik. Þá voru kynntar
vinnuteikningar og sýnishorn af
textilvinnu, t.d. höklum og vegg-
myndum. Einnig voru kynnt sýn-
ishorn af erlendri trúarlegri list.
Bernharður sagði að glögglega
hefði komið í ljós að þörf er á
námskeiði um kirkjulist bæði
fyrir listamenn og forráðamenn
safnaða.
Við morgunbæn á sunnudag í
Skálholtskirkju máluðu þátttak-
endur sameiginlega myndverk
yfir texta dagsins: „Komið til
mín allir þér sem erfiðið og
þunga eru hlaðnir og ég mun
veita yður hvíld.“ Tóku allir þátt
í því starfi, listamenn, guðfræð-
ingar, heimspekingar, listfræð-
ingar, félagsfræðingar sem og
aðrir viðstaddir. Skreytir hin 8
metra langa mynd nú matsal
Skálholtsskóla.
Sumarhefti Kirkjuritsins sem
kemur út í júnílok mun birta
bæði myndir og greinar um
kirkjulist eftir þátttakendur
ráðstefnunnar. Þetta er önnur
ráðstefnan sem Kirkjuritið efnir
til með listamönnum og guðfræð-
“Ekki
Listaverkið sem ráðstefnugestir máluðu við morgunbæn í Skálholtskirkju skreytir nú
matsal Lýðháskólans i Skálholti.
bylting
heldur
hagræðing""
Rætt við myndlistar-
menn og guðfræðinga
sem voru á ráðstefnu
Kirkjuritsins um
list og trú í Skálholti
helgina 2. og 3. maí
Oddur Albertsson,
æskulýðsfulltrúi
Heimir Steinsson,
rektor Skálholtsskóla
Gestur Þorgrímsson,
myndhöggvari
Dr. Gunnar Kristjánsson, Richard Valtingojer og Sigrún Gisladóttir ræða við biskup íslands, dr.
Sigurbjörn Einarsson, um ályktanir ráðstefnunnar i Skálholti.
ingum. í fyrra voru skáld í
Skálholti í samræðu við kirkj-
unnar menn og birtist árangur
þeirrar samveru í Kirkjuritinu
undir yfirskriftinni: Skáld og trú.
Séra Bernharður Guðmundsson
sagði að áætlað væri að hafa
slíkar ráðstefnur í Skálholti ár-
lega, en staðurinn þykir henta
einkar vel til slíkra samvera.
Dvalist er í húsakynnum Skál-
holtsskóla.
„Skref í þá átt
að auka og bæta
myndlist í kirkjum“
„Það kom strax í ljós að mjög
brýn þörf er á náinni samvinnu
presta og listamanna," sagði
Gestur Þorgrímsson myndhöggv-
ari.
„Þarna voru allir sammála um
allt sem bar á góma. Meðal
annars um það að auka þirrfi
myndlist í kirkjum og safnaðar-
heimilum og vanda val á lista-
verkum.
En þótt allir hafi verið sam-
mála komu fram ýmis mismun-
andi sjónarmið, persónulegar
skoðanir hvers og eins.
Ég þekki marga presta og
þekki flesta þá sem voru í
Skálholti persónulega. En þó hef
ég aldrei áður tekið þátt í svo
alvarlegum umræðum um
kirkjuleg málefni út frá sjónar-
miði myndlistar. Ég vænti því
mikils af þessari ráðstefnu.
Hana sóttu að vísu ekki margir
en hún var þó vísir að einhverju.
Og ef ályktanirnar sem gerðar
voru verða að veruleika er það
áreiðanlega skref í átt til þess að
auka og bæta myndlist í kirkjum
landsins."
Gestur sagði að eitt hið athygl-
isverðasta við þessa ráðstefnu
hefði verið þau kynni sem tókust.
„Þarna tókust miklu nánari
kynni en ég hafði haldið. Hópur-
inn blandaðist svo vel saman.
En þó skipti hann sér aftur
strax að ráðstefnunni lokinni.
Prestarnir sátu saman og lista-
mennirnir saman. En það þarf
ekki að sýna fram á annað en að
það sem fyrst og fremst batt
okkur saman var það sem við
vorum að vinna að. Við vorum öll
ákveðin í að gera okkar besta og
það voru áreiðanlega engir for-
dómar fyrir hendi. Það er ekki
svo lítill árangur út af fyrir sig,“
sagði Gestur að lokum.
„Sjálí kirkjulistin var
sameiningarpunkturinn“
Séra Heimir Steinsson, rektor
Skálholtsskóla, er einn prest-
anna sem sótti ráðstefnuna.
„Þetta var mjög jákvæð og
skemmtileg ráðstefna," sagði
hann. „Ég er orðinn þó nokkuð
vanur slíkum ráðstefnum í Skál-
holti og þær hafa alla jafna farið
mjög vel fram. Þessi er þó
tvímælalaust í hópi hinna bestu.
Ég hafði sérlega gaman af því
samfélagi sem strax myndaðist.
Mjög fljótlega kom í ljós ótví-