Morgunblaðið - 12.05.1981, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ1981
33
Þreyttir
Utangarðsmenn
kveöja landann
frá hljómleikum Utangarösmanna í Háskólabíói
Utanuarðsmenn sýndu nreini-
leg þreytumerki á lokahljómlcik-
um sinum i Háskólahíói 2. aprii
sl.
UtanKarósmcnn hafa nú spil-
að na r linnulaust í rúmt ár ok
aukið fyljfi sitt jafnt og þétt og
Kefið út fjórar plötur, ef sóló-
plata Bubba Morthcns er talin
með.
Efnið á hljómleikunum var af
öllum þessum fjórum plötum.
sum laxanna komin i nýjan
búninjf oj{ sumir textar breyttir.
Auk þess voru á prÓKramminu
nokkur óútkomin lög, sem sum
ei«a eftir að lfta dagsins Ijós, en
líklega koma út þrjár plötur,
tengdar Utanxarðsmönnum
lauslena, á meðan þeir verða
erlendis. Er þar um að rseða
safnplötu með óútKefnu efni ok
flciru frá Steinum hf., sólóplötu
Bubba nr. 2 ok litla plötu frá
Danny Pollock.
Hljómleikarnir
Purrkur Pillnikk lék líka i
síðasta sinn opinberlega (að
sinni) á hljómleikunum. og kom
mun betur í ljós, að hér er um
alvöruhljómsveit að ræða, en
hljómhurður Steriómanna var
mjöK tfóður á þessum hljómleik-
um.
I>að er ekki K«tt að segja til
um hæfni hljómsveita, þegar þær
leika á Borginni, þó vísbendinKÍn
sé ágæt.
Purrkurinn lék Iök af nýrri
plötu sinni „Tilf“ auk nokkurra
annarra i tuttugu mínútur ok
flutningur allur i stil „nýbylgj-
unnar“ svokölluðu. Hljómsveitin
hefur til að bera hæfni til sér-
stöðu með þróuðum, sjálfstæðum
stíl. Allir hljóðfæraleikarar cru
KÓðir, trommuleikarinn er nokk-
uð sérstæður, en hann hafði
leikið á bassaKÍtar, áður en hami
Kckk í Purrkinn, en aldrei á
trommur! Eins er Kitarleikarinn
efnileKur. með Kóðan ritmaleik
ok kann sinn Chuck Berry.
Ekkert hlé var á hljómleikun-
um, sem byrjuðu klukkan hálf-
fimm. Utangarðsmenn léku i rétt
rúmleKa hálftima, sem er minna
en ég bjóst við af þeim.
bó flutningurinn hafi verið
lýtalaus, mátti Kreinilcga merkja
á honum þreytu ok enn frekar á
þeim sjálfum. beir hafa oftast
gert betur en á þessum hljóm-
leikum.
Auk hinna gamalkunnu laga
eins ok „Where Are the Bodies?“,
„RækjureKKae“, „Jón Punkari“,
„MB Rosinn“, „Masi“, „Sigurður
er sjómaður“, „Ék vil ekki stelpu
eins ok þig“ ok „IIiroshima“,
fluttu þeir nokkur ný, sem ekki
voru siðri. ef miðað er við að hafa
heyrt þau nokkrum sinnum á
hljómleikum. ok ber þar hæst
lagið „IIeróín“, en textinn að því
lagi mun verða á sólóplötu
Bubba, en með öðru lagi.
hia
Purrkur Pillnikk
lætur gamminn geysa
„Ég kann ekki að spila og ég er falskur og ég er laglaus. En ég hef
smá takt í mér og það er það sem bjargar mér í þessari hljómsveit,“
segir Einar Örn Benediktsson söngvari Purrks Pillnikks, sem hefur
vakið þó nokkra athygli undanfarnar vikur. „Síðan hef ég ágæta menn
til að starfa með sem eru músíkantar.“
Það hefur varla farið framhjá nokkrum, að margar nýjar hljómsveitir hafa skotið
upp kollinum undanfarið, ekki með meðlimum úr nýdauðum hljómsveitum, heldur
með andlitum, sem ekki hafa sést áður. Og oftast með tónlist sem ekki hefur áður
heyrst á sviði hér.
„Það er komið allt annað andrúmsloft, gott og jákvætt. Og það er ekki bara
hljómsveitunum sem fjölgar, heldur fer það í aukana, að menn taki á sig áhættu við
útgáfu platna og útgáfumerkjunum fer fjölgandi.
Það eru ekki lengur fáir „stórir“ útgefendur sem ráða, fólk er orðið móttækilegra
fyrir „nýrri“ tónlist og enn fleiri nýjar hljómsveitir spretta upp með nýja tónlist."
Hljómsveitin Purrkur Pillnikk var stofnuð 8. mars 1981, þegar Einar Örn og Bragi
Ólafsson ákváðu að spila svolítið „fríkaða" tónlist á Nemendatónleikum í
Hamrahlíðarskóla daginn eftir! Sama kvöld sömdu þeir níu lög og fluttu daginn
eftir. Bragi leikur á bassagítar, en hinir tveir í Purrknum eru þeir Friðrik Erlingsson,
sem leikur á gítar og Asgeir Bragason, sem leikur á trommur, en hann er
aldursforseti hljómsveitarinnar, 21 árs, en hinir eru átján og nítján. Eftir að hafa
leikið tvisvar til viðbótar ákváðu þeir að taka upp plötu.
Það var ekkert verið að tvínóna við hlutuna, því 1. apríl voru þeir komnir inn í
stúdíó ásamt Didda fiðlu og Dirty Dan (Danny Pollock). Var platan tekin upp þá í
einni lotu, öll hljóðfæri og söngur í einu.
„Ef maður er ekki ánægður með hlutina á maður að gera eitthvað í því, þess
vegna varð Purrkurinn til!“
Síðan hafa þeir félagar leikið sjö sinnum opinberlega og voru síðustu hljómleikar
þeirra í Háskólabíói 2. maí. Einar Örn er einnig umboðsmaður Utangarðsmanna og
fór þar af leiðandi til útlanda í vikunni í sumarlangt ferðalag með þeim um Evrópu
og Skandinavíu.
„Purrkurinn verður frystur í sumar, en við mætum ennþá sterkari til leiks í
haust."
Á meðan má gera ráð fyrir, að tala nýrra hljómsveita aukist í sumar og
samkeppni verði mikil.
„Borgin hefur verið hvatning ungra hljómsveita til að láta í sér heyra.“
Fyrr í vikunni kom plata þeirra út, „Tilf“ og höfðar nafnið til eins laganna, sem
heitir „Tilfinning“.
„Okkar drifkraftur er tilfinning, það er okkar músík.“ Og varðandi plötuna:
„Platan fylgir okkur eftir, ekki við plötunni, eins og venjan er.“
hia