Morgunblaðið - 12.05.1981, Qupperneq 44
Síminná QQflQQ
afgreiöslunni er OOUOO
í>fi0iwinWa^itíi
1 Sími á ritstjórn -j A -j nr\
og skrifstofu: IUIUU
2ttt>r£unMaíiií>
ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1981
Raforkufrumvarp ríkisstjórnarínnar:
Engin ákvörðun um
virkjun fyrr en í haust
Sextíu dauðir fýlar fund-
ust í fjörunni við Útskála-
hamar í Kjós eftir heim-
sókn hyssumanna á föstu-
dasskvöidið. Pétur Hjalta-
son á Kiðafelli sagði, að
þetta jjerðist á hverju ári,
þótt ekki væri vitað um
slíkt í svo miklum mæli
sem nú.
Sjá frásögn á bls. 2.
Ljósm. Mbl. Kristján.
RÍKISSTJÓRNARFRUMVARP til la>{a um raíorkuver var laíít fram á
Alþinni í Kar. ok síðdegis í gær kynnti Hjörleifur Guttormsson
iðnaðarráðherra frumvarpið fyrir hlaðamönnum. t fyrstu Krein
frumvarpsins se(íir svo: „Ríkisstjórninni er heimilt að semja við
Landsvirkjun um að reisa ok reka eftirtaldar vatnsaflsvirkjanir. en
takist slíkir samnin«ar ekki verði Rafmagnsveitur ríkisins virkjunar-
aðili.
— Virkjun við Blondu í Blöndudal (Blönduvirkjun). með allt að 180
MW afli. — Virkjun við Jökulsá í Fljótsdal (Fljótsdalsvirkjun). með allt
að 330 MW' afli. — Virkjun Héraðsvatna við ViIIinKanes (VillinKanes-
virkjun). með allt að 40 MW' afli.
A sama hátt getur ríkisstjórnin
heimilað Landsvirkjun:
— Að stækka Hrauneyjafossvirkj-
un í allt að 210 MW' afl.
— Að gera ráðstafanir sem nauð-
synlegar þykja til að tryggja rekstur
orkuveranna á Þjórsársvæðinu og
koma vinnslugetu þeirra í eðlilegt
horf, m.a. með Kvíslaveitu, stækkun
Þórisvatnsmiðlunar og stíflu við
Sultartanga.
— Að virkja á ármótum Þjórsár
og Tungnaár við Sultartanga (Sult-
artangavirkjun), með allt að 130 MW
afli.“
Hjörleifur Guttormsson tók fram
á blaðamannafundinum í gær að hér
að ofan væri virkjunum raðað í
stafrófsröð, það er Blanda, Fljóts-
dalur og Villinganes, en ekki yrði
tekin ákvörðun um forgangsröð fyrr
en í fyrsta lagi í tengslum við
afgreiðslu lánsfjárlaga um eða eftir
næstu áramót. Hjörleifur sagði sam-
Meðvitundar-
laus á gjör-
gæzludeild
SJÖ ÁRA stúlka var hætt komin í
sundlauginni við Laugaskóla í
Ilvammssveit í Dalasýslu í gær-
morgun.
Þegar komið var að henni á
laugarbotninum var hún búin að
missa meðvitund og hætt að anda.
Eftir lífgunartilraunir tókst að
koma andardrættinum í gang og
var stúlka síðan flutt til Reykja-
víkur með þyrlu Landheigisgæzl-
unnar í umsjá læknisins í Búðar-
dal.
Stúlkan var enn meðvitundar-
laus á gjörgæzludeild Borgrspítal-
ans í gærkvöldi
komulag hafa náðst um frumvarpið
á ríkisstjórnarfundi á laugardaginn,
og kvaðst ekki kannast við þau
ummæli er dr. Gunnar Thoroddsen
forsætisráðherra lét nýlega falla í
útvarpsþætti, að forgangsröð raf-
orkuveranna yrði ákveðin fyrir þing-
lok í vor. Sagði hann frumvarpið
hafa verið unnið í fullu samráöi við
forsætisráðherra, sem hefði séð það í
nær endanlegu formi áður en hann
hélt utan í síðustu viku.
Á blaðamannafundinum greindi
ráðherrann frá því, að samkvæmt
nýjustu útreikningum, væri Blöndu-
virkjun talin 20% hagkvæmari en
Fljótsdalsvirkjun, ef einungis er
miðað við krónur á kílówattstund á
ári. Ýmis þjóðhagsleg hagkvæmni
yrði þó einnig að vera með í
reikningnum sagði iðnaðarráðherra
svo sem sú staðreynd að mun meira
miðlunarrými væri á svæði Fljóts-
dalsvirkjunar en Blöndu. Þá væri
þegar samið við landeigendur í
Fljótsdal, og fleira mætti nefna, en
ekki vildi Hjörleifur segja hvort
hann teldi þetta jafna út það „20%
hagkvæmnisforskot" sem Blöndu-
virkjun hefði. Hann neitaði einnig
að segja hver væri hans persónulega
skoðun á því hvor virkjunin skyldi
fyrr byggð.
í greinargerð frumvarpsins er
sérstaklega vikið að því að Lands-
virkjun sé samkvæmt gildandi lög-
um virkjunaraðili á Þjórsársvæðinu,
og að jafnframt sé eðlilegt að leitað
verði samninga við fyrirtækið um
byggingu Fljótsdals- og Blönduvirkj-
ana, sem og annarra meiriháttar
virkjana í landinu. Skýrt er hins
vegar tekið fram, að „takist slíkir
samningar ekki verði stuðst við
Rafmagnsveitur ríkisins eftir því
sem aðstæður bjóða, og eru raf-
magnsveiturnar að óbreyttu áfram
virkjunaraðili við Blöndu- og Fljóts-
dalsvirkjun".
Sjá fréttir iik fráMiKn hls. 2 uie 22.
Mikil aukning í
verkun saltfisks
VERTÍÐARFISKUR hefur í
auknum mæli verið saltaður i
ár «g er veruleg aukninK í
saltfiskframleiðslunni miðað
við síðasta ár, sem þó var mesta
framleiðsluár saltfisks síðan ár-
ið 1952.
Endanlegar tölur liggja ekki
fyrir um saltfiskframleiðsluna í
vetur.en talið er að um síðustu
mánaðamót hafi verið búið að
framleiða um 41 þúsund tonn af
óverkuðum saltfiski, en var
tæplega 37 þúsund tonn á sama
tíma í fyrra. Er því um rösklega
Hátt í 20% meira
saltað til 8. maí,
en á sama tíma í
fyrra
10% aukningu að ræða í þessari
verkunargrein fyrstu fjóra mán-
uði ársins. Ljóst er að sú hlut-
fallstala á enn eftir að hækka
verulega, þegar tíminn fram til
8. maí, þ.e. lok netavertíðar,
hefur verið gerður upp.
Reikna má með, að 41 þúsund
tonn af saltfiski séu um 100
þúsund tonn af fiski upp úr sjó.
1. maí hafði verið afskipað um
10 þúsund tonnum af óverkuðum
þorski, auk lítils háttar magns
af öðrum tegundum. Eftir er að
afskipa 30 þúsund tonnum upp í
fasta samninga, sem gerðir voru
við Spán og Portúgal í vetur. Af
því magni fara væntanlega 14—
16 þúsund tonn í þessum mánuði
og þeim næsta.
Birgðasöfnun og
verðlækkun á áli
„I>AÐ ER ckki hægt að neita því,
að markaðurinn er mjög lélegur
um þessar mundir,“ sagði Ragn-
ar Ilalldórsson, forstjóri ÍSAL, í
samtali við Mbl., er hann var
inntur eftir markaðshorfum
fyrir framleiðslu fyrirtækisins.
„Þessi slæma markaðsstaða hef-
ur svo þýtt mjög aukna birgða-
söfnun víða um heim. Hjá okkur
eru birgðir 3,5 sinnum meiri en í
venjulegu árferði, en annars stað-
ar sem við þekkjum til er hún um
fjórum sinnum meiri," sagði
Ragnar Halldórsson ennfremur.
Þá sagði Ragnar Halldórsson,
að þessi slæma markaðsstaða
hefði auðvitað haft í för með sér
stöðnun og jafnvel verðlækkun á
álframleiðslu. — „Verðið fyrir
hvert tonn á síðasta ári var á
bilinu 1700—1800 Bandaríkjadoll-
arar, en f)ú er verðið á bilinu
1400—1500 Bandaríkjadollarar,“
sagði Ragnar Halldórsson.
Um ástæður þessa sagði Ragn-
ar, að almennt bágborið efnahags-
ástand í heiminum væri höfuðor-
sökin. Hann sagðist hins vegar
vona, að þetta væri aðeins tíma-
bundið ástand, og málin myndu
þróast til betri vegar innan tíðar.
Að síðustu sagði Ragnar Hall-
dórsson um birgðasöfnunina, að
nú væri hjá þeim í Straumsvík um
mánaðarframleiðsla, „en við höf-
um séð það svartara áður“.
Þingmenn
heimsækja
Sovétríkin
FORSETAR AlþinKÍs ok fulltrúar
þingflokkanna halda til Sovétríkj-
anna 28. maí nk. í boði æðstaráðs
Sovétríkjanna. Boð þetta er endur-
Kjald fyrir heimsókn fulltrúa
æðstaráðsins til íslands fyrir
nokkru. Förinni er mcðal annars
heitið til Moskvu, Kiev og Eist-
lands.
Að sögn Jóns Helgasonar forseta
sameinaðs Alþingis verður þetta
vikuferð. Dagskrá er enn ekki fyrir-
liggjandi en vitað er, að ofangreind-
ir staðir verða heimsóttir. Sex
manns var boðið til fararinnar og
verða þeir eftirtaldir: Jón Helgason,
Sverrir Hermannsson, Þorvaldur
Garðar Kristjánsson, Stefán Val-
geirsson, Geir Gunnarsson og
Magnús H. Magnússon. Sagði Jón
Helgason að ákveðið hefði verið að
stærstu flokkarnir sendu tvo menn
hver en hinir einn. Þá reiknaði Jón
með að skrifstofustjóri Alþingis,
Friðjón Sigurðsson, yrði einnig með
í förinni.