Morgunblaðið - 16.06.1981, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 16.06.1981, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ1981 Ökuleikni og listir á heimsmælikvarða Ökuþórar í sýningarflokknum „Hell Drivers“ léku listir sínar fyrir Reykvíkinga og nágranna þeirra á Melavellinum um helgina. Meðal þess sem ökukapparnir sýndu voru ýmsar góðaksturslistir, akstur á tveimut- hjólum, stökk á vélhjóli og bíl, árekstrar og akstur gegnum eldsloga. Aðsókn að sýningunni var mjög góð og næst munu ökuþórarnir sýna listir sínar á Akureyri. að er líklega ekki á hvers manns færi að láta draga sig á afturendanum í gegnum svona eldhaf, enda vöruðu forráðamenn sýningarinnar áhorfendur við því að reyna að leika þessar listir eftir. að vafðist ekki fyrir snillingunum að aka bifreiðum sínum á tveimur hjólum um allan völlinn og leika jafnframt alls konar kúnstir. Hér gerði ein stúlkan úr sýningarflokknum sér lítið fyrir og stóð á hlið bílsins á meðan honum var ekið á tveimur hjólum um völlinn. ann munaði ekki um það þennan að stökkva á vélhjóli yfir sex bíla og lenti heilu og höldnu eftir heljarstökkið, rétt eins og hann hefði ekki gert annað um ævina. Einn ökuþóranna áritar veggspjöld sem seld voru á sýningunum fyrir unga áhugamenn. Meðal atriða á sýningunni var heljarmikill árekstur og í þessu tilfelli fór bifreiðin kollhnís og stöðvaðist síðan á hjólunum aftur. rúðurinn „Booboo" tók einnig þátt í sýningunni og ók í gegnum eld og brennistein á vélhjólinu sínu án þess að láta sér bregða. Ljósm Gunnlauifur RaKnarsHon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.