Morgunblaðið - 17.06.1981, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.06.1981, Blaðsíða 8
56 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ1981 Arnarflug ára BoeinK 720-þota Arnarflugs kemur inn til lendinKar á Keflavikurfluíívelli. Ljósmynd Mbl. RAX. Twín Otter í fiugíaki á Rc/Kjavíkurflugvelli. Ljósmynd Mbl. Ól.K.M. Velta Það fór vel á því, að á 5 ára afmæli Arnarflugs skyldi félagið stíga eitt af stærri skrefum í íslenzkri flugþróun, þ.e. að fá hingað til landsins þotu af gerð- inni Boeing 737-200, sem notið hefur geysilegra vinsælda víða um heim. Svo notuð séu orð Magnúsar Gunnarssonar, framkvæmda- stjóra félagsins, fyrir skömmu, þá er félagið með þessu að stökkva inn í nútímann. Arnarflug hefur sem sagt lifað af þessi 5 ár, þrátt fyrir nokkrar hrakspár í upphafi vega, en það hefur ekki farið framhjá neinum, að félagið hefur verið mjög umdeilt í gegnum tíðina. Margir hafa viljað halda því fram, að því væri ofaukið í íslenzkum flugheimi, hafi aðeins tekið verkefni frá öðrum, sem fyrir voru. Undir þetta er ekki hægt að taka með nokkru móti. Það hefur verið mikið líf í félaginu og forráðamenn þess hafa farið vítt og breitt um heiminn til að leita verkefna, og hafa þannig skapað fjölmörgum starfsmönn- um atvinnu. Arnarflug hefur hins vegar nánast ekkert staðið í áætl- unarflugi. Hélt að vísu uppi reglu- bundnu flugi til Dússeldorf í Vestur-Þýzkalandi um tveggja ára skeið, en það leyfi var síðan tekið af félaginu, þrátt fyrir, að reynsl- an sýndi að vélar félagsins flugu alltaf þéttsetnar á milli. Áður en lengra er haldið er kannski ekki úr vegi að árétta ástæðu tilskrifa þessara. Ástæðan er 5 ára afmæli félagsins og sú mikla framþróun sem orðið hefur hjá félaginu að undanförnu. Það er kannski dálítið erfitt að fjalla um Arnarflug og stöðu þess í íslenzkum flugheimi í dag, vegna þeirrar óvissu sem ríkt hefur um framtíð félagsins. Starfsmenn hafa um nokkurt skeið haft í Flugmennirnir voru í 3 upphafi en eru nú 30 Fengu fyrstu Boeing 737-200 þotuna hingað frammi óskir um að fá keypt einhver hlutabréfa Flugleiða hf. í félaginu, en Flugleiðir hafa átt þar meirihluta. Það hefur verið álit starfsmanna Arnarflugs, að mun eðlilegra væri að félagið væri óháð Flugleiðum. Það sé mjög óheppilegt fyrir Arnarflug að vera háð ýmiss konar innanhúsdeilum í Flugleiðum, eins ög verið hefur um árabil. Þá er það skoðun Arnarflugsmanna, að til að tcygKja rekstrargrunn félagsins verði það að fá fastar áætlunar- ferðir út úr landinu. Þegar þetta er ritað, virðist sjást fyrir endann á þessu vandamáli félagsins, því fyrir skömmu buðu Flugleiðir starfsmönnum Arnarflugs hluta- bréf sín til kaups fyrir liðlega 3,5 milljónir króna. Gunnar Þorvalds- son, aðstoðarframkvæmdastjóri Arnarflugs, sem átt hefur sæti í nefnd þeirri á vegum Arnarflugs, sem fjallað hefur um þetta mál, sagði í samtali við Mbl., að unnið væri af kappi, en ennþá væri óleyst deilumál er varða varahluti og fleira, sem Flugleiðir vilja selja með. Það er spurning upp á 7—8 milljónir króna til viðbótar. Eins og kom fram í fréttum fyrr á þessu ári, pantaði Arnarflug sér nýja Boeing 737-200 þotu hjá Boeing-verksmiðjunum : Seattle, sem átti að vera til afhendingar vorið 1982. Vegna hinnar miklu óvissu um framtíð félagsins, var hins vegar ekki hægt að ganga endanlega frá fjármögnun vélar- innar í tæka tíð, þannig að ekki var um annað að ræða fyrir félagið en fara aftur fyrir í röðina hjá Boeing, og væntanlega fær félagið vél afhenta vorið 1983. Nú fyrst farið er að tala um Boeing 737-200, þá er rétt að geta aðeins um þá vél, sem félagið hefur þegar fengið til umráða. Arnarflug tók á leigu slíka vél frá belgíska flugfé- laginu Air Belgium í 12 mánuði, með möguleika á framlengingu. Vélin er nánast ný úr kassanum og Arnarflug hyggst nota hana í leiguflug fyrir brezka flugfélagið Britannia Airways, hefur reyndar þegar hafið það leiguflug. Vélin kom hingað til lands 28. apríl sl. og var hugmyndin að ljúka þjálf- un hinna tíu flugmanna Arnar- flugs á hana hér, áður en hún færi í æigu. Af því varð þó aldrei því íslenskir flugvirkjar gerðu at- hugasemd við að brezkir flugvirkj- ar skyldu koma með vélinni og áttu að sjá um eftirlit með henni þá þrjá til fjóra daga, sem vélin átti að dvelja hér. Engir íslenzkir flugvirkjar hafa réttindi á svona vél ennþá. Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri Arnarflugs, sagði hins vegar að það væri stefna Arnarflugs, að færa hluta viðhaldsins þegar hingað til lands með haustinu, en það væri stefna Arnarflugs, að hafa sem allra bezt samstarf við íslenzka flugvirkja. Vélinni fljúga lOflugmenn Arnar- flugs og bækistöð þeirra er í Manchester í Englandi. Að sögn Arnarflugsmanna hefur flugið til þessa gengið mjög vel. Nú, Arnarflug er auðvitað með fleiri járn í eldinum, heldur en þetta eina. Boeing 720-þota félags- ins hefur verið í stöðugum flutn- ingum með íslenzka sólarlanda- farþega síðan um miðjan apríl- mánuð. Er aðallega um flug fyrir íslenzku ferðaskrifstofurnar til staða við Miðjarðarhaf að ræða. Þessa vél hefur félagið verið með í starfrækslu um árabil og hefur hún reynzt með ágætum, að sögn Magnúsar Gunnarssonar, fram- kvæmdastjóra félagsins. — „Það má kannski segja, að hennar eini verulegi ókostur sé hversu eyðslu- frek hún er. Hún eyðir þó ekki meira eldsneyti á hvert sæti heldur en Boeing 727-100. Sé hún hins vegar miðuð við vélar eins og Boeing 737-200 og 727-200 þá lítur dæmið ekki eins vel út. Nú það er einmitt þess vegna, sem við höfum mikinn hug á að fá Boeing 737-200 í flotann, til að leysa þessa vél af hólmi," sagði Magnús Gunnarsson ennfremur. Arnarflug er með bækistöð í Tripoli í Líbýu, en þaðan flýgur félagið vöruflutningaflug fyrir líb- ýska flugfélagið Libyan Arab Airlines. Flogið er á Boeing 707- 320c, fraktvél, sem félagið tók á leigu til að annast þetta verkefni, sem standa mun í eitt ár, ef ekkert kemur upp á. Aðspurðir sögðu Arnarflugsrnenn, að samskiptin við Líbýumenn gengju nokkuð vel. Það væri ekki hægt að segja annað, en að þeir stæðu við sitt, hins vegar væri allt fyrirkomulag frekar þungt í vöfum, enda væru menn mjög fegnir að komast í frí í menninguna. Vélin, sem Arnar- flug notar niðri í Líbýu, tekur um 40 tonn af frakt í hverri ferð, en fyrirtækisins úr 227 i 12000 milliónir gkróna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.