Alþýðublaðið - 01.06.1931, Page 2

Alþýðublaðið - 01.06.1931, Page 2
t ALÞÝÐHBLiAÐI© Verkamannabústsðir í leflpil. Er Jónas enn við völd? Lánsfé fengið. Snemma á pingtímanum fékk formaður stjórnar Byggingarsjóðs Réykjavíkur loíorð fyrir 200 þús- und krónu (ísl.) erlendu láni, ef ríkisábyrgð fengist fyrir því til verkamannabústaða. Alþýðuflokk- urinn bar þá fram á .þinginu frumvarp til breytinga á lögunum um vérkamannabústaði um ríkis- ábyrgð á lánum tií þeirra, á eftir fullri bæjar- eða sveítar-ábyrgð, í stað þesis að Tryggvi Þórhalls- son hafði í fyrstu smeygt inn í lögin ákvæði um að rikisábyrgð- in næði að eins til helmings láns- fjárins, en hlutaðeigandi bæjar- eða sveitar-félag ætti að ábyrgj- ast að hálfu, en þetta ákvæði gerði að hvergi var íhægt að fá lánsfé svo að um munaði. Enn fremur voru í frumvarpi Al- þýðuflokksins ýmisar aðrar end- urbætur, svo sem aukinn opinber styrkur til byggingarsjðða verka- rnanna, að veðdeilidarfé mætti nota, og síðan fá annars veð- réttar lán úr byggingarsjóðum, er hefði gert fjáröflun miklu auð- veldari, og loks að stofnaður yrði sameiginlegur byggingarsjóður fyrir verkamannabústaði víðs vegar um landið, er aflaði láns- fjár og skifti því niður á bæina ef'tár þörfum. Alt þetta var eyðilagt í bili með pingrofinu, er drap þetta frumvarp eins og önnur þingmál. Vegna hinnar aðkallandi nauð- synjar, sem er á góðum og ódýr- um verkamannabústöðum í Iteykjavlk, og atvinnuleysisins bér í bænum, var stjcrn Bygg- ingarfélags verkamanna ljóst, að gera þyrfti það, s.sm hægt væri, til að hrinda í framkvæmid bygg- ingum í Reykjavík fyrri bluta þessa sumars, þótt ekki væri hægt að fá endurbætur á lög- unum samþyktar fyrr en síðar. Við gengumst þá fyrir því, að Leitaö var til miðstjórna allra þingflokkanna um það, að þær lýstu yfir, aö stjórnmálafiokkarn- ir myndu að minsta kosti sam- þykkja ríkisábyrgð á því 200 þús. kr. láni, sem í boði var, svo að Byggingarsjóður Reykjavíkur gæti tekið það lán og hægt yrði að byggja nú ,í sumar. Þetta tókst. Floklíarnir lýstu þessu yfir og Lífsábyrgaðarstofnun danska ríkisins hefir nú lofað þessu láni, er útborgast bráðlega. Kjörin til byggingarsjóðsins eru þessi: Lán- ið er til 42 ára, með 5 f'o vöxtum og útborgunargengi 90. Vextir og afborgun eru á hverjum 6 mán- uðum 2,86o/o. Lánið er óuppsegj- anlegt af hálfu lánveitanda, en byggingarsjóður getur sagt því upp með 1 árs fyrirvara. Kjörin eru mikla betri an á sídast\a ís- lenzka ríkisláni, raunverulegir vextir ekki nema 5,72 »/0 p. a. Auk þessa fjár á byggingar- sjóður Reykjavíkur nú að hafa fengið tillögin úr ríkis- og bæj- arsjóði 1930 og 1931, samtals um 108 þúsund krónur, sem honum ber lögum samkvæmt. Að vísu mun sumt af þessu fé enn ekki innborgað, en hlýtur að fást þeg- ar eftir því er kallað. , Félagsmenn, er íbúðir kaupa, eiga sjálfir að leggja fram 15“/o af byggingarkostnaði. Sé gert. ráð fyrir að bygðar yrðu í fyrstu 50 verkamannaíbúðir, sem kostuðu um 8000 kr. hver, ættu þau fram- lög að nema 60 þús. kr. Sam- kvæmt þessu ætti að vera fáan- legt fé nú í 50 verkamannaíbúö- ir í Reykjavík: Lánið raunverulega 180 þús. Tillag ríkis og bæjar 108 — Framlög félagsmanna 60 — 348 bús. Vantar þá ekki nema um 52 þús. kr„ er auðvelt ætti að vera aö fá hjá annari tryggingastofnun, t. d. slysatryggingu ísl. ríkisins. Féö á því nú aÖ vera fyrir hendi. Staðið hefir á lóðaspildu undir verkamannabústaðima marga mánuði. „Tún séra Jó- hanns“ var ekki hægt að nota og farið var fram á við bæjarstjórn að fá ræmuna sunnan við Hring- braut, frá Bræðraborgarstíg að Eliiheimilinu. Nú fyrir skömrnu hefir bæjarstjóm leyft vestasta hluta þessarar ræmu undir verka- mannabústaðina, en uppdráttur befir ekki fengist á bæjarskrif- stofunni af lóðinni fyr en fyrir nokkrum dögum síðan. Hefir því ekki verið hægt að ljúka upp- dráttum og skipulagi verka- m.annabústaðanna fyr en ióðin var ákveðin. Einar Erlendsison, fulltrúi húsameistara ríkisins, hef- ir nú tekist á hendur að ljúka þessum uppdráttum, með nauð- synlegum breytingum, eftir vilja félagsmanna á síðasta byggingar- felagsfundi, og hefir hann lofað að hraða verkinu sem mest. Tilætlun stjórnar félagsáns er að kalla þegar saman félagsfund er uppdráttum er lokið, fá endr anlega samþykt þeirra eins og þeir verða þá breyttir, og gera allar ráðstafanir til að byrja á byggingu verkamannabústaðanna, svo fljótt sem hægt er, nú í sumar. Félagsimenn, sem vilja kaupa íbúðirnar, ættu því áð < undirbúa sig undir að hafa framlög þau Hl, er af þeim yverður krafist bráðlega. Hédinn Valdimarsson. Með kaupunum á „Þór“ haustið 1930 ákvað ríkisstjórnin að láta skipið stunda fiskiveiðar með varðgæzlu við Vestmiannaeyjar. Til að reyna að vinna upp í kostnaðinn, og til þess að eiga sem minst á hættu með þessa tOraun, fékk þáverandi idióms- málaráðherra þá flugu í höfuðið að ráða skipshöfnina upp á 20°/o af söluverði aflans og lækka mánaðarkaupið um helming frá því, sem samningar stóðu milli Sjómannafélags Reykjavíkur og ríkisstjórnarinnar eða fr.am- kvæmdarstjóra ríki&skipa, á strandferðaskipunum og samkv. varðskipalögunum. Þegar skips- höfnin varð þess vís, hvað hér var á seyði, kom hún til stjórnar Sjómannafélags Reykjavíkur og bað hana að hafa áhrif á ab þeirra réttur væri ekki fyrir borð borinn. Stjórn félagsins átti nokkra fundi með framkvæmdar- stjóra rikisskipa, sem hafði þau áhrif, að kaupið hélzt óbreytt eins og á hinum varðskipunum. Ef þessi breyting hefði komist á, befði hver háseti fengið kr. 107,50 um mánuðinn og 20«/o af nettó söluverði aflans, og eftir því, sem heyrst hefir um söluna á aflanum, mun láta nærri, að nú, eftir að hafa stundað veiöar í 4 mánuði, væri komið í hlut hvers manns kr. 220,00, eða kaup og prósentur kr. 650,00 í 4 mánuði. Með þessu hefði kaupið hrapað úr kr. 215,00 niður í 162,50. Þar að auki átti að afnema alla eftir- vinnu og svefnlög samkvæmt skipun Jónasar, sem hann er að hæla sér af að hafa verið með að koma fram í þinginu. Paö er ekki nýtt að sjá það í íhaldsblöðunum, að þau tileinki sér mál, sem jafnaðarmenn eru búnir að berjast fyrir í mörg ár og leiða fram til sigurs í almenn- ingsálitinu. Fimdoff í Viðey, í gærkveldi kl. 8V2 hófsit lands- málafundur í barnaskólahúsinu í Viðey. Var hann afarfjölsóttu!T. Þar áttust við jafnaðarmenn og íhaldsmenn, því að enginn „Fram- sóknar“-maöur lét sjá sig þar. íhaldsmienn voru þar fjöimennir héðan úr Rvík, en þeir Vilhjára- ur S: Vilhjálmsison og Jens Páls- son héldu uppi sókn á hendur heim af hálfu verklýðssamtak- anna. Verkamenn og sjómemn í Viðey sýndu það á fundinum, að þeir skipa sér í hóp stéttar sinn- ■ar í þeirri stjórnmálabaráttu, sem nú er háð, enda var ræðum Al- þýöuflokksmannanna tekið mjög vel bæði af þeim og unga fólkinu í eyjunni. Fundurinn stóð til kl. rúmlega 12 á miðnætti — og fóru'þá ihaldsímennirnir til ólafs Gíslasonar og settust að kaffi- Við sjómenn munum vel eftir þeim mönnum, sem lögðu stein í. götu vökulaganna, og þeir ættu ekki að komast inn í þingið aftur á atkvæðum sjómanna. Nú fyrir skemstu komu mien* tíl mín og spyrja mig hvort ég hafi heyrt það, hvað Jónas bjóði sjómönnum á varðbátnum, sem eigi að vera fyrir vestan í sum- ar. Ég sagðist ekki hafa heyrt* það, en spurði, hvort Jónas væ«i. ekki farinn úr stjórninni og hvað þetta kæmi honum við. Það er nú sama, sögðu þeir. Það er þá síðasta kveðjan tíl sjómannastétt- arinnar, áður en hann fó.r frá, en frá honum mun það komið. Þeir ætla að borga sama kaup og í fyrra, kr. 230,00 á mánuði og fæði skipverjar isig af því. Þessa fiska, sem við höfum dreg- ið og liaft sem uppbót á þetta lága kaup, ætla þeir að draga af okkur að hálfu leytí eða taka helminginn til ríkissjóðs. Ekki hefir Pálmi ráðið þessu, varð mér að orði. Það má furðu gegna, ef ríkisstjórn getur lagst svo lágt, að heimta helming af þeim fiski, sen* þessir menn í frístundum sínuui reyna að draga sér í 'Soðið, en rétt á sáma tima selur hún 600 pd. af fiski austur í Vestur- Skaftafellssýslu fyrir 25 krónur. Hér hafa verkin talað í garð sjómanna. Jónas notar sína íyrstu aðstöðu til að brjóta niður vöku- lögin á þessum eina fiskikoppi, sem hann hafði yfir að ráða, og virðist enn þá geta ráðið kjörum sjómamm á varðskipunum, þótt hann sé farinn opinberlega ú»- ríkisstjórninni. Sigurður Ólafsson. P. s. Síðan greinin var skrifuð hefir sú breyting á orðiö fyriT at- beina SjómannafélagsinS', að kjör- in á bátnum haldast óbrevtt. S. Öl. drykkju, en jafnaðarmennimir fóru heim til Kristíns Kristjáns- sonar, hins ágætasta Alþýðu- flokksmanns, og sátu þar í góðu yfirlæti um stutid. Kl. rúmleg? 1 var komið hingað til Rvikur. Um 70 manns munu vera a kjörskrá í Viðey, og þar af munw um 25 fylgja frambjóðanda verk- lýðsfélaganna, Guðbrandi Jöns- syni. Að gefnu tilefni lýsi ég því hér mieð yfir, aö ég fór úx þjórmstw Bergs Jónsisonar sýslumanns af eigin ósk, og er það algerlega rangt, að hann hafi sagt mér upp atvinnunni. Reykjavík, 30/5 ’31. Ragnar Kristjánsson.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.