Morgunblaðið - 23.06.1981, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 23.06.1981, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ1981 r ÍSLENSKA karlalandsliðinu í frjálsum íþróttum tókst ekki að komast í undanúrsiitakeppnina i Evrópukeppninni eins og svo margir höfðu vonað. íslenska liðið átti fremur siæman síðari dag í Luxemborg og hafnaði í fjórða sæti í keppninni, hlaut 58 stig. Sex stigum á eftir Iiði íriands, sem varð í þriðja sæti með 64 s#ig. bað var sterkt lið Danmerkur sem sigraði, hlaut 71 stig í keppninni og Tyrkir sem komu mjög á óvart, hlutu 69 stig. Luxemborg rak svo lestina með 37 stig. brátt fyrir að íslenska liðinu tækist ekki að komast áfram, voru margir ljósir punktar hjá íslensku keppendunum og i liðinu eru nokkrir frábærir afreksmenn. Engin þjóð hlaut fleiri sigur- vegara í keppninni en Island, íslendingar náðu að sigra í sex greinum, írar í fimm, Danir í fjórum, Tyrkir i fjórum og Lux- emborg sigraði í einni grein. En aftur á móti ráku íslendingar svo lestina í sjö keppnisgreinum. Það sem reið baggamuninum í keppninni að þessu sinni, var að bæði grindahlaupin gáfu aðeins eitt stig og keppendur í þeim greinum brugðust. í sjö hlaupa- greinum, hlaut ísland aðeins tíu stig, en Oddur Sigurðsson, sem var tvímælalaust maður móts- ins, færði íslandi fjórtán stig í þeim þremur hlaupagreinum sem hann keppti í. Oddur sigraði í 100 og 200 metra hlaupunum og varð annar í 400 metra hlaupinu. Sér í lagi var sigur Odds í 200 metrunum glæsilegur, hann hljóp mjög vel og áttu mótherjar hans aldrei neina möguleika. Oddur slakað verulega á síðustu 60 metra hlaupsins, en var samt mjög nálægt því að setja ís- landsmet, hljóp á 21,55 sekúnd- um. Stangarstökkvarinn efniiegi, Sigurður T. Sigurðsson, stökk 5 metra og var mjög nálægt því að fara yfir 5,10 metra. Formaður frjálsíþróttasambandsins Örn Eiðsson sagði eftir keppnina, að þrátt fyrir góðan árangur hjá íslenska liðinu i ýmsum grein- um, hefði það valdið miklum vonbrigðum að liðinu skyldi ekki takast að komast áfram. „Ég gerði mér góðar vonir, en þær brugðust. Tyrkirnir voru til dæmis með mun sterkara lið en nokkur átti von á. Það sem fór verst með lið okkur var hversu fáum stigum millivegalengdar- hlaupararnir skiluðu inn.“ Sigurður Björnsson, varafor- maður FRÍ og liðstjóri landsliðs- ins sagði að hann teldi þetta jafnsterkasta landslið sem ís- land hefði teflt fram í svona keppni og því væru það mikil vonbrigði að ekki skyldi takast að ná einu af þremur ‘efstu sætunum. „Það eru grindahlaup- in, 800 metrarnir og löngu hlaupin sem brugðust okkur að þessu sinni," sagði Sigurður. Evrópumótið í frjálsum íþróttum: ísland komst ekki — þrátt fyrir flesta sigra af öllum — landinn rak lestina í 7 greinum bað kom strax fram á fyrri degi Evrópukeppninnar i Lux- emborg hvesu hörð keppnin var og jöfn. Eftir fyrri dag keppninn- ar voru ísland og Danmörk með forystuna, höfðu hlotið 33 stig, en írland var i þriðja sætinu með aðeins einu stigi minna. í fjórða sætinu var svo Tyrkland með 31 stig. Luxemborg rak lestina með 21 stig. íslendingar hlutu fjóra sigurvegara fyrri daginn, Hreinn Ilalidórsson sigraði með glæsi- brag í kúluvarpi, Oddur Sigurðs- son sigraði í 100 metra hlaupi og síðan komu tveir óvæntir sigrar. Jón Oddsson varð sigurvegari i langstökki og Einar Viljálmsson sigraði i spjótkasti. En i þremur greinum ráku íslendingarnir lestina, 10 km hlaupi, hástökki og 400 metra grindahlaupi. Oddur varð annar í 400 metra hlaupi. Jón Diðriksson þriðji i 1500 metra hlaupi og islenska hoðhlaupsveitin varð þriðja i 4x100 metra boðhlaupi. Úrhellisrigning var áður en keppnin hófst og töluverðir pollar á brautinni, en keppt var á nýjum og stórglæsilegum leikvangi sem heitir Esch-Alzette og er um 20 kílómetra frá Luxemborg. En þeg- ar fyrsta keppnisgreinin hófst, stytti upp og ágætt veður var meðan á sjálfri keppninni stóð. Fyrsta keppnisgreinin var 400 metra grindahlaup. 400 m jrrind: Eftir eitt þjófstart komust keppendurnir úr startblokkunum. Þorvaldur Þórsson keppti fyrir hönd íslands í þessari grein og hljóp hann mjög vel framan af. Hann var í öðru sæti þegar keppendurnir komu út úr síðustu beygjunni inn á beinu brautina, en var þá orðinn þungur og farinn að stífna upp. Þorvaldur náði ekki réttri skreflengd á milli síðustu grindanna, missti hina keppend- urna fram úr sér og varð lang síðastur. Mjög hörð keppni var milli Tyrkjans og Danans, en Tyrkinn sigraði á síðustu metrun- um, hljóp á 52,59 sekúndum. Þorvaldur fékk tímann 56,69 sek- úndur, sem er Iangt frá hans besta. Úrslit: 1. Solmas, Tyrkl. 52,59 2. Have, Danm. 52,66 3. Currid, írl. 53,02 4. Savic, Lux. 54,90 5. Þorvaldur Þórsson, ísl. 56,69 1500 m hlaup Keppendurnir í 1500 metrunum fóru mjög greitt af stað og voru í einum hnapp fyrstu 1200 metrana. Millitíminn á 400 metrunum var ein mínúta, 800 metrana hlupu þeir á 2 mínútum sléttum og 1200 á 3 mínútum og einni sekúndu. Þegar 300 metrar voru eftir í mark var Jón Diðriksson í fjórða sæti, en tókst á síðustu 100 metrunum að komast fram úr Dananum og ná þriðja sætinu í hlaupinu. Tími Jóns var 3:47,68, sem er hans besti tími í ár. írinn Taylor sigraði mjög örugglega, hljóp létt og fallega á 3:44,29. Úrslit: 1. Taylor, írl. 3:44,29 2. Timurlenk, Tyrkl. 3:45,35 3. Jón Diðriksson, ísl. 3:47,68 4. Sörensen, Danm. 3:48,52 5. Bloden, Lux. 3:49,96 100 metra hlaup: Oddur Sigurðsson náði fremur slæmu starti í 100 metrunum og varð í fjórða sæti er komið var fram á miðja braut. En þá tók hann mikið kapp, seig fram úr keppinautum sínum og sigraði glæsilega á 10,93 sekúndum. Crslit: 1. Oddur Sigurðsson, ísl. 10,93 2. Catrazli, Tyrkl. 10,97 3. Atkinson, Irl. 11,06 4. Martinelli, Lux. 11,08 5. Karlsen, Danm. 11,15 Örlítill mótvindur var í keppn- inni. Kúluvarp: Hreinn Halldórsson hafði gífur- lega yfirburði í kúluvarpinu, kastaði 19,69 metra, annar varð daninn Henningsen með 16,99. áfram Hreinn kastaði 19,25 í fyrsta kasti, 19,69 í þriðja kasti en öll köst hans voru yfir 19 metra utan eitt, sem var ógilt. Úrslit: 1. Hreinn, ísl. 19,69 2. Henningsen, Danm. 16,99 3. Harpigan, írl. 14,96 4. Zeimetz, Lux. 14,83 5. Erkmen, Tyrkl. 12,90 400 metra hlaup Oddur Sigurðsson þurfti að keppa í 400 metrunum aðeins 15 mínútum eftir að hann hljóp 100 metrana. Oddur hafði því litla hvíld á milli, fór beint úr 100 metra hlaupinu í það að koma startblokkunum fyrir í 400 metr- unum. Hann hafði ekki einu sinni tíma til að mæta í verðlaunaaf- hendinguna fyrir 100 metra hlaupið. Þrátt fyrir það hljóp Oddur mjög vel. Hann var á annarri braut og þegar komið var út úr síðustu beygjunni inn á beinu brautina, hafði hann tveggja metra forystu. Gífurleg barátta var síðustu 90 metrana á milli Odds og danska hlauparans Jens Smedegaard og á síðustu metrunum tókst Dananum að smeygja sér fram úr og sigra. Þess má geta, að danski hlauparinn er gífurlega góður 400 metra hlaup- ari og á best 45,8 sekúndur. Það var greinilegt að Oddur hefði þurft meiri hvíld á milli hlaupana. Á síðustu metrunum var Oddur greinilega þreyttur og hann sagði eftir hlaupið að hann hefði fengið krampa í kálfana. Úrslit: 1. Smedegaard, Danm. 46,62 2. Oddur Sigurðss. ísl. 47,66 3. Delanie, Irl. 48,09 4. Abhman, Tyrkl. 49,28 5. Junker, Lux. 50,91 Eftir þessa keppnisgrein hafði ísland tekið forystu, hreppt 18 stig, en Irland var í öðru sæti með 17 stig. Spjótkast: Einar Vilhjálmsson sigraði óvænt í spjótkasti, kastaði 70,68 metra. Eftir keppnina sagði Ein- ar: „Ég hafði ekki ætlað mér að keppa fyrr en í júní vegna meiðsla í öxl, en þar sem Sigurður Ein- arsson var meiddur, tók ég áhættu, fór í keppnina og stend núna uppi sem sigurvegari. í keppninni sjálfri varð ég að vanda útkastið til að komast hjá sárs- auka í öxlinni, og það heppnaðist. Að sjálfsögðu var ánægjulegt að sigra,“ sagði Einar. Úrslit: 1. Einar, ísl. 70,68 2. McHugh, írl. 65,98 3. Martby, Danm. 63,10 4. Krier, Lux. 58,54 5. Kabal, Tyrkl. 56,32 Hástökk: Unnar Vilhjálmsson var óhepp- inn í hástökkskeppninni, hann „Gæti enn slegið Islandsmetið" - segir Hreinn Halldórsson HREINN Halldórsson var mik- ill yfirburðasigurvegari í kúlu- varpinu á undankeppninni i frjálsum íþróttum sem fram fór í Luxemborg um helgina. Hreinn hefur átt við slæm meiðsl að striða að undaníörnu og eigi alls fyrir löngu varð hann að gangast undir upp- skurð þar sem hann átti við liðmús að striða. í Luxemborg spurði blaðamaður Mbl. Hrein, hvort hann hefði náð sér af meiðslunum. „Já, ég er orðinn nokkuð góður af meiðslunum, uppskurðurinn heppnaðist vel, en ég má samt gæta þess að kasta ekki of mikið eða of oft, ofgera handleggnum." Hreínn Halldórsson er orðinn 33 ára gamall og á undanförnum árum hefur hann jafnvel haft á orði að hann myndi hætta að keppa í kúluvarpi. Þegar blm. Mbl. spurði hann hvort þetta væri síðasta keppnisárið svaraði Hreinn: „Að undanförnu hefur hvert ár átt að verða það síðasta. Satt best að segja veit ég ekki sjálfur hvenær ég legg kúluvarp- ið á hilluna. Ég hef ánægju af þessu og þetta togar í mann. Hvort ég hef náð mínu besta er spurning sem erfitt er að svara og þó ég sé að kasta miili 19 og 20 metra þessa stundina, tel ég sjálfur, að ég eigi alveg mögu- leika á því að bæta íslandsmetið mitt, þó svo að ég geri mér vissulega grein fyrir því, að möguleikarnir minnka með ári hverju. Það sem hefur háð mér er að ég hef átt við langvarandi meiðsl að stríða, fyrst í hnénu og síðan í öxl og olnboga. Ég þarf að sleppa við meiðsl í langan tíma til þess að ná mér á strik. Ég þarf að fá meira vald á tækninni, ná meiri samhæfingu í allt kastið," sagði þessi eljusami íþróttamaður að lokum. Þr. skrifar frá Luxemborg byrjaði á 1,90 metrum og fór léttilega yfir þá hæð, sleppti 1,95, en felldi síðan 2 metra þrisvar sinnum. í öll skiptin virtist Unnar vel vera yfir ránni, en felldi með hælunum á niðurleið. Úrslit: 1. Ozdamar, Tyrkl. 2,11 2. Axen, Danm. 2,08 3. Wintersdorf, Lux. 2,04 4. Murrey, írl. 1,95 5. Unnar, ísl. 1,90 10 km hlaup Gunnar Snorrason keppti fyrir íslands hönd í þessari grein. Gunnar setti persónulegt met í hlaupinu, hljóp á 33:36,34 sekúnd- um. Þess má geta að Gunnar er matsveinn á strandferðaskipi og hefur því lítinn tíma til æfinga. Millitíminn eftir 5 km hjá fyrstu mönnum var 14:48,1 mínúta. Úrslit: 1. Sakariesen, Danm. 29:30,1 2. Tracey, írl. 29:31,17 3. Ayac, Tyrkl. 29:32,52 4. Agosta, Lux. 31:36,48 5. Gunnar, ísl. 33:36,34 Langstökk: Jón Oddsson sigraði í lang- stökkinu. Sigur hans kom nokkuð á óvart, hann byrjaði keppnina vel, stökk 7,10 metra í fyrsta stökki. Sigurstökk Jóns var 7,14 metrar, en keppnin í langstökkinu var gífurlea hörð og mikið senti- metrastríð. Daninn Eriksen varð annar, stökk 7,10 metra. írinn Atkinson varð því þriðji, stökk 7,08 metra. Jón sýndi í þessari keppni, að hann er mikill keppnismaður og gefur sig ekki fyrr en í fulla hnefana. Eftir keppnina sagði Jón að hann ætti að geta miklu betur, þrátt fyrir að atrennan passaði þá væri eins og eitthvað væri að sem hann vissi ekki almennilega sjálf- ur hvað væri. Sennilega væri það uppstökkið af plankanum. Úrslit: 1. Jón, ísl. 7,14 2. Eriksen, Danm. 7,10 3. Atkinson, írl. 7,08 4. Geltzen, Tyrkl. 6,91 5. Forh, Lux. 6,42 4x100 metra boðhlaup: Islensku sveitina í 4x100 metra boðhlaupi skipuðu þeir Sigurður T. Sigurðsson stangarstökkvari, sem hljóp fyrsta sprett, Oddur Sigurðsson á öðrum spretti, Hjörtur Gíslason á þriðja spretti og Sigurður Sigurðsson á fjórða spretti. Islenska sveitin varð í þriðja sæti, hljóp á 42,56 sekúnd- um. Islensku hlaupararnir hlupu all vel, en eins og oft áður hefðu skiptingar hlaupara mátt vera betri, enda var samæfing þeirra litil. Sveit Luxemborgar marði sigur í greininni, hljóp á 41,76 sekúndum, í öðru sætinu var sveit Tyrkja á 41,90 sekúndum. Eins og sjá má á tímanum var hart barist. Sveit írlands varð í fjórða sæti, 42,69 sekúndur og danska sveitin rak lestina, 42,70 sekúndur. SÍÐARI keppnisdagurinn í Lux- emborg hófst á 110 metra grinda- hlaupi. Veður var mjög gott til keppni, glampandi sólskin og stafalogn. Þorvaldur Þórsson, sem átti að keppa í grindinni fyrir íslands hönd fann fyrir eymslum I læri i upphituninni og treysti sér þvi ekki til að hlaupa. Því var brugðið á það ráð að láta Hjört Gislason koma inn sem varamann. Hjörtur varð siðastur i hlaupinu, hljóp á 15,47 sekúnd- um. Baráttan í hlaupinu stóð milli Danans og Tyrkjans og hafði Daninn betur, sigraði á þremur sekúndubrutum. Eftir þessa fyrstu keppnisgrein síðari daginn var fsland komið niður i fjórða sætið i stigakeppninni með 34 stig. Úrslit: 1. Jörgenson Danm. 14,64 2. Agribas Tyrkl. 14,67 J

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.