Morgunblaðið - 26.07.1981, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 26.07.1981, Blaðsíða 5
eru skipulagöar, fylgdi höfundur þeirra hugmyndum sínum eftir meö því aö hanna húsin aö fullu á svæöinu. Eöa þá aö byggöirnar væru fullhannaöar og fólk sækti síöan um ákveöna húsagerö. HEPPILEGT BYGGINGARFORM Guörún tók fram, aö fólk geröi oft skörp skil á milli einbýlishúsa og raöhúsa, en ef rétt væri á málum haldið, hvaö varöar aö- komu aö húsi og garöi, þá væru raöhúsin afar heppilegt byggingar- form og byöi upp á svipaöa kosti og einbýlishús. Vaidís tók í sama streng og sagöi, aö garöa mætti til dæmis afmarka meö því aö útbyggja eöa innbyggja viökomandi hús. Fyrir- komulagiö gæti verið þannig, aö eitt húsiö í lengjunni væri útbyggt en þaö næsta inndregiö, þannig mætti einangra ákveöin svæöi frá næstu húsum. Hljóöeinangrun ætti heldur ekki aö vera neitt vandamál, því mögu- leikar til einangrunar væru orönir þaö miklir. Þegar nefndir eru kostir raö- húsa má líka taka fram, aö þau eru ódýrari í byggingu og gjöld eins og gatnageröar- og fasteignagjöld eru lægri. Einnig má ætla aö hitakostnaöur sé lægri í raöhúsum. Gallana viö raðhúsin kvaö Val- dís einkum vera þá, aö fólk gæti ekki gert nákvæmlega þá hluti, sem það sjálft vildi, heldur yröi aö samræma þá og taka fullt tillit til nágrannanna einnig eftir aö bygg- ingu hússins er lokiö. BLÖNDUD BYGGD Hverfiö i Öskjuhlíöinni er á afmörkuöu svæöi og gefur því möguleika til aö skapa heilsteypta byggö meö ákveönum séreinkenn- um. Þaö er hugsaö sem sambland af byggö einbýlishúsa, par- og raöhúsa og sambýlishúsa, þar sem einbýlishúsunum er dreift um byggöina og sambýlishúsin koma inn í raöhúsaiengjuna, eins og áöur segir. Sagöi Valdís, aö meö þessu fyrirkomulagi væri veriö aö draga úr einhæfni byggöarinnar, þar sem til dæmis öllum einbýlishúsum er MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ1981 37 þjappaö fyrir á einu svæöi, par- og raðhúsum á annaö og sambýlis- húsum á þriöja svæöiö eins og víöa má sjá. Þar sem húsageröum er bland- aö saman eins og gert er í Öskjuhlíöinni, er hægt aö nýta betur útivistarsvæöi, sem skipu- lögö eru á svæðinu, aö sögn Valdisar, og gera má ráö fyrir aö samskipti fólks yröu meiri f slíkri byggö. TVENNS KONAR BYGGINGAREFNI í blandaöri byggö sem þessari veröur aö gæta þess, aö heildar- svipur sé yfir henni. Sagöi Valdís í því sambandi vilja benda á, aö nota mætti tvenns konar efni viö byggingu raöhúsanna, þaö er aö segja steypu og timbur eöa steypu og klæðningar. Yki þetta á mögu- leika á útfærslu raöhúsanna auk þess sem slík hús hæföu betur heildarsvip byggöarinnar þar sem gera má ráö fyrir aö veröi bæöi timburhús og steinhús. ÍSLENDINGAR VAKANDI FYRIR NYJUNGUM Hér hefur stuttlega veriö rætt um ýmsar hugmyndir hvað varöar raöhúsagerö. Þróun í húsagerö í heiminum hefur veriö á þann veg, aö draga úr einhæfni og auk á fjölbreytni húsa og hverfa. Þessi þróun krefst þess, aö fólk sé vakandi fyrir nýjungum. Sagöi Valdís, aö sér fyndist íslendingar einkar móttækilegir fyrir nýjum hugmyndum hvaö varöar húsa- geröarlist og því væri hún ekki hrædd um, aö fólk kynni ekki aö meta þær hugmyndir, sem fram heföu komiö bæði hvaö raðhúsa- gerðina í Öskjuhlíöinni varöar og aðrar hugmyndir, sem koma fram í hinu nýja skipulagi þar. HE Hluti af raðhúsi í Hvömmun um í Hafnarfírði, þar sem nýting innra rýmis er mis- munandi og kemur það aö nokkru leyti fram í útliti. Arkitekt: Sigurþór Adalsteinsson. Skyssa af raðhúsi þar sem greinilega kemur fram fjölbreytileiki. y 1 ANSICHT VOM GARTEN Raðhús þar sem eitt hús- iö er hærra en hin. Einbýlishús, raöhús tengd saman með tengibyggingum. Sambland einbýlishúsa og raðhúsa þar sem raðhúsin eru farin að fá á sig meiri svip einbýlishúsa. Ævintýraleg skemmtisigling um Miðjarðarhafið BROTTFÖR 1. SEPTEMBER. Nú bjóöum viö skemmtisiglingu meö lúxus-skipinu Mikhail Lermontov frá London til Miöjaröarhafs- ins. Komiö veröur viö í Malaga á Spáni, Ajaccio á Korsíku, Civitauecchia (Róm) og Napólí á ítalíu, La Gaulette í Túnis og Corunna á Spáni. Flogið veröur til London aö morgni 1. september og siglt af staö kl. 19.00 sama dag. Komið er til baka til London þann 16. september og flogið heim þann 17. september. Mikhail Lermontov er 20.000 tonna skip og tekur 650 farþega. Um borö er allur sá lúxus, sem hugsast getur, s.s. barir, setustofur, veitingasalur, kvikmyndasalur, verslanir, hárgreiöslustofur, gufubaö, leikfimisalur og sundlaug. Og aö sjálfsögöu mikiö og rúmgott dekk, sem sagt allt sem þarf til gleöi og skemmtunar, vellíöanar og afslöppunar. Komiö á skrifstofu okkar og fáiö nánari upplýsingar. SÉRHÆFÐ FERÐAÞJÓNUSTA ÁNÆGJA OG ÖRYGGI í FERÐ MEÐ OTC<KVTI<< FERÐASKRIFSTOFA — lönaðarmannahúsinu — Hallveigarstíg 1. Símar: 28388—25850.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.