Morgunblaðið - 26.07.1981, Page 23

Morgunblaðið - 26.07.1981, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ1981 55 Björgvin á heima- slóðum + Á velheppnuðum tón- leikum i Þjóðleikhús- inu, sem „vinir og vandamenn“ héldu á dögunum til styrktar MS-félaginu, gladdi það ekki hvað sist hlustir manna að heyra Björgvin Gislason og féiaga, sem eitt sinn skipuðu hljómsveitina Náttúru, rifja upp gamla takta með til- þrifum. Nokkuð er sið- an Björgvin kom siðast fram opinberlega hér á landi, en hann er einn af okkar snjöllustu git- arleikurum og hefur að undanförnu m.a. dvalið í Bandaríkjunum og iðkað hljóðfæraleik með þarlendum. Björgvin Gislason rifjaði upp gömul kynni með félögum sinum úr Náttúru á sviði Þjóðleikhússins á dögunum. I.jimm. Mbl. GuAJón. Erum að vega svolítið upp á móti pönkinu jr Hann klippir „Utlagann“ Sex félagar úr Visnavinum, sem er hópur fólks er spilar á hljóðfæri og syngur þjóðvisur, gamanvisur og aðrar vísur. eru nýkomnir heim til Reykjavikur eftir að hafa ferðast i kringum landið og sungið og spilað. Reyndar fóru þau ekki alveg allan hringinn þar sem þau enduðu á Dalvík en aðspurð kváðust þau hafa lagt mestu áhersluna á austfirðina. Fór hópurinn á eigin vegum að mestu en fræðslusamband Alþýðunnar styrkti þau nokkuð og var samvinna þar á milli. Var spilað á vinnustöðum og spítölum á daginn en á kvöldin héldu þau tónleika í félagsheimilum og bíóum. Aðsóknin var geysilega misjöfn eftir stöðum og sóttu tónleikana allt frá 14 manns upp í hús- og troðfylli. Reyndar var á einum staðnum sem þurfti að aflýsa tónleikum vegna fámennis en það var á Norðfirði og skaut það skökku við á svo stórum stað. Annars vegar voru þau mjög ánægð með tónleikana sem þau héldu á Seyðisfirði og var það á stefnuskrá hjá þeim að fara þangað aftur sem fyrst. Tilgangur þessarar ferðar Vísnavina var að auglýsa plötuna sem kom út frá þeim í vor er ber nafnið „Heyrðu". Tónlist og vísur sem fluttar voru í reisunni voru eingöngu frumsamið efni. Vildu þau afmá þann misskilning er virðist hafa fest rætur meðal íslend- inga að Vísnavinir séu einhverjir kvæðamannasnill- ingar. Heldur er það félagsskapur sem hefur gaman af að flytja músík og er ekkert í ætt við að vinna að kveðskap. önnur ferð er í bígerð um landið og er þá áætlað að fara Vestfirðina og Snæfellsnes. Aðspurð um plötuút- gáfur á næstunni sögðust þau eiga efni í einar fjórar skífur og að í félagsskapnum væri fullt af óbeisluðum kröftum. AHs eru í Vísnavinum u.þ.b. 140 vinir og þessi hópur því aðeins brot af félagsskapnum. „Við erum,“ sagði Alli, „að reyna að vega svolítið upp á móti pönkinu og diskóinu." Ilér er Svava að sýna prjónafatn- að, en á honum þarf hún varla sjálf að halda i Manilla þessa dagana. William Diver við klippinga- takin á skrifstofu ísfilm. (l.joMB Mbl. Emilia Hjoric)- + Nú er unnið af miklum krafti við töku myndarinnar um Gisla Súrsson, „Útlagans“, og er það kvikmyndafélagið fsfilm, sem að gerð myndarinnar stendur. Eitt er það atriði, sem er ekki siður mikilvægt en sjálf kvikmyndatakan og það er klipping filmunnar. Þeir fsfilm-mcnn hafa komið upp aðstöðu til slikra hluta í skrifstofum sínum í Hafnarstræti og er hún með því fullkomnara sem þekkist á þessu sviði hér á landi, að sögn kunnugra. Á meðfylgjandi mynd, er aðalklippari „Útlagans“, bandarikja- maðurinn William Diver, sestur í viðhragðsstöðu við tækin. Diver hefur komið víða við í kvikmyndaheiminum, var m.a. aðstoðar- klippari við hryllingsmyndina „Ópið“, sem Jack Nicholson lék aðalhlutverkið i og Skolemovsky leikstýrði. og diskóinu Hópurinn úr Vísnavinum er fór um landið. Talið frá vinstri: Bcrgþóra, Alli, Ingi G., örvar, Gísli og Eyvi. íslenskir hœfileikar í Manila + Hvaða skoðun sem menn kunna að hafa á fegurðar samkeppnum fer víst og þvíumlíku, ekkert milli mála að það gleður landann þegar Islendingum vegnar vel á erlendri grund. í dag verður keppt til úrslita um titilinn „Miss Young International“ austur á Filippseyjum og þar verður Svava Johansen, sautján ára Reykjavík- urstúlka, í fremstu víg- línu. Svava hefur nú þegar hlotið einn eftir- sóttasta aukatitilinn í keppninni „Ungfrú Hæfileikar“, „Miss Tal- ent“, komið fram í sjón- varpi og verið hampað á ýmsa lund, þannig að möguleikar hennar á að sigra í keppninni eru töluverðir. Þó að það sé ef til vill ekki aðalatrið- ið. En Svava stundar nám við Verslunarskóla íslands og hyggst, að því er hún segir, halda því áfram, hvaða tilboð um gull og græna skóga, sem henni kunna að berast í Manila. fclk f fréttum Vísnavinir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.