Morgunblaðið - 26.08.1981, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1981
Zukofsky-námskeiðið 1981
Kammertónleikar veröa haldnir í sal Hagaskólans
miövikudaginn 26. ágúst kl. 20.00. Allir velkomnir.
Tónlistarskólinn í Reykjavík.
Utsala
Kjólar frá 49 kr. Pils og blússur
50% verölækkun.
Dragtin,
Klapparstíg 37.
Lögtaksúrskurður
Keflavík, Grindavík,
Njarðvík og Gullbringusýsla
Þaö úrskuröast hér meö, aö lögtök geta fariö fram
fyrir vangoldnum þinggjöldum skv. þinggjaldsseðli
1981, er féllu í eindaga hinn 15. þessa mánaðar og
eftirtöldum gjöldum álögöum áriö 1981 í Keflavík,
Grindavík, Njarðvík og Gullþringusýslu.
Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, eignaskattur, kirkju-
gjald, kirkjugarösgjald, slysatryggingagjald vegna
heimilisstarfa, iönaöargjald, iðnlánasjóðs- og iönaö-
armálagjald, slysatryggingargjald atvinnurekenda
skv. 36. gr. laga nr. 67/1971 um almannatryggingar,
lífeyristryggingargjald skv. 25. gr. sömu laga, at-
vinnuleysistryggingargjald, launaskattur, skipaskoö-
unargjald, lesta- og vitagjald, bifreiöaskattur, slysa-
tryggingargjald ökumanna, vélaeftirlitsgjald,
skemmtanaskattur og miðagjald, vörugjald, gjöld af
innlendum tollvörutegundum, matvælaeftirlitsgjald,
gjald til styrktarsjóös fatlaðra, aöflutnings- og
útflutningsgjöld, skráningargjöld skipshafna, skipu-
lagsgjald af nýbyggingum, gjaldföllnum en ógreidd-
um söluskatti ársins 1981 svo og nýálögðum
hækkunum söluskatts vegna fyrri ára, allt ásamt
dráttarvöxtum og kostnaöi. Ennfremur nær úrskurö-
urinn til skattsekta, sem ákveönar hafa veriö til
ríkissjóös.
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum, ásamt drátt-
arvöxtum og kostnaöi, veröa látin fara fram að 8
dögum liönum frá birtingu þessarar auglýsingar veröi
þau eigi aö fullu greidd innan þess tíma.
Keflavík 19. ágúst 1981.
Bæjarfógetinn í Keflavík,
Grindavík og Njarðvík.
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu.
Blaðburðarfólk
óskast
AUSTURBÆR
Freyjugata 28—49
Hringiö í síma
35408
VESTURBÆR
Hringbraut 37—91
Hávallagata
Granaskjól
Bræöraborgarstígur
Garðastræti.
Gengið inn á göngustiginn sem gerður var i sumar og litast um i Mörkinni. ' Ljósm. Emiiia.
Heiðmörk og Elliðaárhólmi:
Sækja Reykvíkingar
langt yfir skammt?
SKÓGR/EKTARFÉLAG Reykja-
víkur hefur ekki látið sitt eftir
liggja við að planta trjám i
Heiðmörk fremur en undanfarin
ár. Ilefur þar á vegum félagsins
verið plantað um 100 þús. trjá-
plöntum í sumar en við það unnu
ta plega 100 stúlkur úr Vinnu-
skóla Reykjavíkur. l>á hafa 30
piltar. einnig úr Vinnuskólanum
unnið að gerð göngustiga um
Mörkina svo auðveldara sé fyrir
fólk að komast þar leiðar sinnar
og skoða sig um. Greiðir Reykja-
víkurhorg allan kostnað af þcssu
starfi og er hann í ár 960 þús. kr.
Þó þetta sé aðalverkefni Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur á sumr-
inu hafa hendur víðar verið látnar
standa fram úr ermum. Á Elliða-
árhólma og í Breiðholtshvarf hef-
ur verið plantað milli 30 og 40
þúsund trjáplöntum, á 30 hektara
svæði og nær skógræktin ailt upp
að Höfðabakkabrú.
Þarna hafa
verið að verki um 60 stúlkur úr
Vinnuskólanum ásamt 5 verk-
stjórum og má segja að landið
þarna hafi skipt um svip fyrir
þeirra tilstilli. Er þarna orðið hið
ákjósanlegasta útivistarsvæði, og
er stutt þangað að fara fyrir flesta
Reykvíkinga.
Fyrir nokkru fóru blaðamenn í
stutta kynnisferð með forkólfum
Skógræktarfélagsins og var þá
litast um þarna og í Heiðmörk.
Munu myndirnar sýna bezt hvert
átak hefur verið gert í Heiðmörk
síðan skógrækt hófst þar um
miðja öldina. Margt bar á góma á
leiðinni og m.a. það að Reykvík-
ingar væru alltof latir við að
heimsækja Mörkina — færu
margir langt yfir skammt, til
Engir orðið innlyksa
á Grænlandi vegna
loftskeytaverkfaflsins
NANOK S eða ísbjörninn,
er annað tveggja skipa,
sem hefur á síðustu tveim-
ur vikum siglt frá Ang-
akssalik á Grænlandi til
Reykjavíkur með græn-
lenska farþega sem ætla
til Danmerkur. Fólk þetta
hefur ekki komist frá
Grænlandi á annan hátt
síðan verkfall græn-
lenskra loftskeytamanna
skall á.
Morgunblaðið fór um
borð í Nanok S þar sem það
lá við Ægisgarð og hitti þar
að máli skipstjórann, Aage
Larsen. Hann sagði að
Nanok S hafi farið þrjár
ferðir frá Grænlandi frá
því verkfallið hófst, og allt-
af frá Angmakssalik. Hafði
Skipstjórinn á Nanok S, Aage
Larsen.
hann flutt í allt um 150
farþega, mest grænlend-
inga. Aage sagði Nanok S
vera bæði flutninga og far-
þegaskip og kvað það sigla
venjulega frá Grænlandi til
Danmerkur, með bæði fólk
og vörur.
Aðspurður sagði Aage
ástandið ekki vera slæmt á
Grænlandi vegna verkfalls-
ins og fáir eða engir hafa
orðið innlyksa vegna þess.
Sagði hann þetta vera síð-
ustu ferð Nanok S með
farþega til íslands vegna
þessa verkfalls því ekki
væri fleiri að flytja. Ekki
vildi hann spá um það
hvenær verkfallið myndi
leysast, sagði það gæti orð-
ið langt í það.