Morgunblaðið - 26.08.1981, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1981
29
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
OIOOKL. 10—11
FRÁ MANUDEGI
ymtfmPfimi'u it
Vinstrímeirihlutanum verður ágengt:
„Hér tíðkast líka
sósíalískir lífshættir“
ÁKacti Velvakandi.
Oveðrið sem gerði sl. sunnu-
dag minnti mann óþægilega á
að nú líður að hausti og veður
fara senn að ókyrrast. Það
minnti mig á málefni sem ég
hef oft ætlað að koma á
framfæri en þó ekki látið
verða að — strætisvagnabið-
skýlin (eða strætisvagnabið-
skýlaleysið) hér í borginni. Þó
þúsundir manna ferðist með
strætisvögnum á degi hverjum
eru þessi mál í algerum ólestri
eftir því sem ég best fæ séð.
Hver sem vill getur t.d. séð
hvernig ástandið er í Lækjar-
götu, þar norpar fólk daglangt
og bíður eftir síðbúnum
strætisvögnum, án þess svo
mikið sem að komast undir
þakskegg til að skýla sér fyrir
rigningunni. Hins vegar við
götuna er búið að byggja
útitafl (sem verður hugsanlega
notað nokkrum sinnum á ári)
fyrir eina millj. nýrra króna.
Svona vel hugsar vinstri-
meirihluti borgarstjórnar
fyrir þörfum almennings —
þeir eiga allir bíla þessir
herrar og frúr, og þurfa ekki
að híma eftir strætó dagsdag-
lega. Það er því ekki von að
þeir skilji þetta, og ekki var
það í þeirra valdatíð sem
ákvörðun var tekin um að
reisa biðskýlin á Hlemmtorgi
og við Lækjartorg. Nú er
fjármunum borgarinnar sóað í
„þarfari" verkefni 6 útitöfl og
tjarnarbryggjur, og hver veit
nema þeir hafi fleiri skemmti-
legar hugmyndir í pokahorn-
inu t.d. að dubba upp Fjala-
köttinn fyrir nokkrar milljón-
ir.
Og einn veturinn enn á fólk
að standa í hríðarkófinu í
Lækjargötunni og skjálfa sér
til hita. Strætisvagnabílstjór-
arnir eru skammaðir fyrir að
vera á eftir áætlun, þó allir
viti að þeir hafi alltof lítinn
tíma til að keyra sína áætlun
þegar göturnar eru glerhálar
og umferðin þung. Kommún-
ista forkólfar og vinstripeð
ásamt Tyrfingum, ættu að
labba sér niður í Lækjargötu
einhvern óveðursdaginn þegar
fólk hímir þar í höm blátt af
kulda. „Já, þetta er bara alveg
eins og í Rússlandi — eða
næstum því,“ — gætu þeir sagt
við hvorn annað og brosað
svona í kambinn. Vissulega
hefur þeim orðið svolítið
ágengt hérna líka þrátt fyrir
allt.
Hann Svavar gæti haft
með sér mynd af þessu þegar
hann á erindi til Kreml næst
og leyft „vildarvinum" okkur
þar að skoða. Já, það er víðar
aumingjaskapur en í Sovét-
ríkjunum og hér tíðkast líka
sósíalískir lífshættir þó í litlu
mæli sé — það skulum við
muna þegar kosið verður næst
í borgarstjórn.
Einstæð móðir og híllaus.
Þessir hríngdu
Hækkið
auglýsinga-
gjöld — ekki
afnotagjöld
Þ. Ólafsson hringdi og vildi
koma á framfæri athugasemd við
bréf í Velvakanda í gær um
hljóðvarpið og afnotagjöld þess:
„Ég er alls ekki sammála Birni um
að það beri að hækka afnotagjald
af útvarpi," sagði hann. „Það er
heldur ekki víst að dagskráin
myndi skána neitt, jafnvel þó það
yrði gert. Björn talar um að
afnotagjöld hafi verið hærri hér
áður fyrr og tekjur útvarpsins því
meiri. Þetta er út í hött. Hér áður
fyrr voru þeir sem greiddu afnota-
gjöld miklu færri, ekki var nema
eitt útvarp á hverju heimili og var
jafnvel ekki á öllum heimilum. —
En svo ég komi mér nú að
aðalefninu þá held ég að einfald-
asta leiðin fyrir útvarpið til að
komast út úr fjárhagskröggum
sínum sé að hækka auglýsinga-
gjöld. Jafnframt mætti gera út-
varpsauglýsingar líflegri, setja
inn í þær músík og gera þær meira
aðlaðandi. Það er hryllilegt hvern-
ig þulir eru látnir buldra auglýs-
ingarnar í belg og biðu, þannig að
maður fær gæsahúð og hleypur til
að slökkva á útvarpinu.
En hvað lélega dagskrá varðar
þá held ég að hún myndi varla
skána neitt verulega þó útvarpið
hefði meiri peninga. Það hefur
einhvern vegin dagað uppi — ef til
vill vegna þess að það skortir alla
samkeppni eins og talað var um í
Velvakandabréfi fyrir skömmu.
Lausnin er kannski einmitt sú að
leyfa annarri útvarpsstöð að taka
til starfa, þá yrði ríkisútvarpið
annað hvort að taka sig á eða
detta uppfyrir."
Hjartans þakkir til allra, nær oy fjær, er i/löddu
m i</ á nírædisafmæli mínu 17. áyúst sl.
Guö blessi ykkur öll.
Áyústa ÞórÖardóttir.
Þakkir
Hjartans þakkir til allra, sem glöddu mig meö
heimsóknum, heillaóskum og gjöfum á SO ára afmæli
mínu 17. ágúst.
Guö blessi ykkur öll.
Beryur A rnbjörnsson.
B
V
/
Hef opnað
nýtt stilli-
verkstæði
Fullkomin tölvubúin
stillitæki.
Bílastilling Birgis, Skeifan 11,
sími 37888.
Krossaóu vió eftirfarandi kosti
Spsih
SX2000
rafeindakveikibúnaóarins’
sem þú metur mikils
02P SIG&A V/öGA C uLVtRAK
Örugg gangsetning
9 minni innsogsnotkun
\M betri gangur vélar
n aukinn kraftur
9 mun minni bensín-
eyðsla (þú vinnur
upp verðið á skömm-
um tíma)
m ending á kertum,
platínum, startara
og rafgeymi eykst til
muna
\M skiptirofi (þ)ófavöm)
19 2ja ára ábyrgð
9 hentar í alla bíla
(4—8 strokka)
m nijög auðveld ísetn-
ing
Bensinsparnaöurinn einn
er jafnvel næg ástæða til
að kaupa SPARKRITE
SX2000 i bilinn
SPARAÐU OG
NOTAÐU SPARKRITE
Sölustaðir:
• Bílanaust Siðumúla 7—9 R
• Citroén viðgerðir Súðarvogi 54 R
• Velsmiðjan Þór Isafirði
• Höldur s.f. Fjölnisgötu 1 Akureyri
• Vélaverkstæðið Foss Husavík
Islenskur bæklingur á sölustöðurr
Sími 91 77348