Alþýðublaðið - 08.06.1931, Síða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
KJósfð A-'IIstaHami
hann verði kosinn, að haida á-
fram að vera prestur peirra þar
eystra. Þó að ekki væri öðru en
hreinlyndinu til a'ð dreifa, pá er
ekki ólíklegt, að þetta göfug-
mannlega tilboð freisti Rangæ-
inga. Hins vegar mun pað ætl-
anin, að lofa skólanefnd alls kon-
ar fríðindum fyrir hönd skólans,
ef hann nái kosningu, gegn því,
að hann fái að hýrast þar í for-
stjórastöðu. Má segja, að ekki sé
ólaglega séð fyrir uppeldi ung-
línganna í Hafnarfirði, er þeim
er fenginn svo duglegur andlegur
kaupahéðinn tii leiðsögu.
En hins mætti spyrja, hvort
séra Sveinbjörn er þess virði,
sem hann metur sjálfan sig ti!
sem uppboðsvöru. Afrekaferillinn
ier í stuttu máli þessi:
Félagsmálastarfsemi — engin.
Fræðisförf — engin.
Ritstörf — engin.
Hugsjónir — skoðanabrasik.
Markmið — eigin hagsmunir.
Kjósendaftmduriim
í gær í barn.c)skóla„portinu“ var
fjölsóttur vei. Stóð hann í 5
stundir, eins og ráð var fyrir
gert. Af hálfu Alþýðuflokksins
töluðu á fundinum Sigurjón Á.
Ólafsson, Héðinn V.aldimarsson,
Ólafur Friðriksson og Stefán
Björnsson. Hélt Sigurjón íiuni-
ræðuna og lýsti þar m. a., hversu
„F r am sók nar “ í 1 okkuri n n hefir
bfugðist fjölda þeirra rnála, siem
hann gerði sér títt um áður en
hann náði því að komaslt í 'Stjórn.
Gát Sigurjón m. a. um, hversu
„Framsókn“ þóttist fyrst vilja út-
rýma áfenginu úr landiinu, en
eftir að hún tók við völdum
stuðlaði hún að því, að áfengis-
fióðið hefir vaxið gífurlega. Minti
Sigurjón á fleiri hliðstæð dæmi
um snúninga hennar ígegn þvi,
siem hún taidi áður stefnumál sín.
Það staðfestist á fundinum,
sem áður var vitáð, að bæði
„Tíma'iistinn og iisti Guðjóns
Benediktsstínar hafa sáraiitið
fylgi, en baráttan er urn, hvort
þaö verði Sigurjón eða Magnús,
fyrrurn dósent, sem kosinn verð-
ur.
Hafnaríjðrðiir.
Otiskemtun alpýðufélaganna í
Hafnarfiröi í gær var mjög fjöl-
sótt og fór prýðilega fram.
Porvaxtahœkkun. Vínarborg, 7.
júní. UP.—FB.: Þjóðbankinn aust-
urríski hefir hækkað forvexti úr
B í 6o/o.
Veðrið. Kl. 8 í morgun var 7
stiga hiti í Reykjavik. Otlit við
Faxaflóa: Norðangola. Skúraleið-
ingar sunnan til, en annars bjart-
viðri.
§w«®aa erai pelr alllr.
Konnngi helir verlð ntútað
með 25 milljónaitt til pess
að láta rfki sitt fara í ófrið.
Þegar Alfons litli Spánarkon-
ungur varð að hröklast frá völd-
um hérna um daginn, eftir að
vera búinn að margbrjóta stjórn-
arskrá lands síns árum saman,
komst það upp, að hann var Iíka
þeim syndum klifjaður, að hann
hafði notað ríldsfé í alls konar
brask sjálfum sér til ágóða og
stóffénast á. En nýverið hefir
kornist upp um einn úr hinni
fyrverandi konungssveit það at-
hæfi, að fáir myndu trúa, ef ekki
væri þáð eins vendilega sannað
og raun er á. Árið 1915, þegar
ófriðiurinn sitóð sem. hæst, fór
konungsrikið Búlgaría í ófriðinn.
Var þá Ferdinaod af Kóburg
konungur þar. Fóru Búlgarar
herfiiega út úr ófrið'num,. eins
og allir bandamenn ímiðVeld-
anna, en grædidu samt það á,
þótt lítið væri, a'ð Ferdinand varð
að hröklast frá völdurn. Um dag-
inn, þegar verið var að ræ'öa fjár-
lög Þjóðverja á þiaginu þar, lá
íneðal ánnárs fyrir styrkveiting
til Ferdinands, sem er af þýzk-
um ættum. Var það þá borið
.á Ferdinand, að þýzka stjórni''
heföjj á sínum. tínia greitt honurn
25 milljóna marka mútu í hans
eigin vasa, til þesfe að hann létí
Búlgaríu fara í ófriðinn með
Þjóðverjum, sem og varð. Vaíð
hermálaráðherra Þjóðverja að
játa, að þessi áburður væri rétt-
ur. Auövitaö eru þetta bein land-
ráð og m.yndi hver annar mað-
ur hafa verið hengdur fyrir, en
sá fyrverandi lifir enn í bezta
gengi og fær enn lífeyri af Þjóð-
verjum,. Það er efnilégt að búa
við jslíkt sljórnarfar, þar sem
þetta er mögulegt og annaö eins,
og er þ,eim þjóðum, sem það
gera, visisara að koma stjórnar-
hátíum sínum öðru vísá fyrir, áð-
ur en eiris er farið fyrir þeirn eins
og Búfgörum. —- Hér á landi er
enn þá konungsstjórn, og hversiu
óráðvandlega má beita henni hér,
fengu menn smeituna af, er þing-
ið var rofið hér á dögunum.
Ljðveldissinni.
Dra «las§Ieas3 og vegsisffi.
Á stjórnmálafundum
á Húsavík og Breiðumýri, siem
báðir eru nýafstaðnir, talaði
Benedikt Snædal af hálfu jafnað-
armanna. Á Húsavíkurfundinum
voru um 300 manns, en um 100
á hinum.
Mentaskólanum á Akureyri
var sagt upp á laugardaginn.
15 nemendur tóku stúdentspróf.
en 54 gagnfræðápróf. (FB.)
Skdfsiofa A-iistans
er í Edinborgarhúsinu, sími
1262.
KJésid
Kjósendafundur
verður annað kvöld í „porti"
barnaskólans gamla. Tala þar
frambjóðendur allra flokka.
Fundurinn hefst kl. 8. Verður
ræðutími hvers flokks 20 mín.,
15 mín„ 10 og 5 rnín. Samkvæmt
þvi mun fundurinn standa til kl.
11 og 20 mín.
Fímínn
kemur nú út hér um bil dag-
lega, og snúast flestar greinarnar,
sem hann flytur, gegn Alþýðu-
flokknum,. Vilja þeir „Fram“-
sóknar“-menn auðsjáanlega mikið
ti! vinna að reyna að veiðia ein-
hver atkvæði frá Aiþýðuflokkn-
um, þótt þeir viti, að það sé að
eins til þess að koma Magnúsí
f. dósent að.
Dánaifregn.
Magnús Einarsson, loftskeyta-
máður hjá loftskeytastöðinni.
andaöist í morgun.
Frambjóðendur í Árnessýslu
i
hafa nú haldið fundi um mest-
a:i hluta sýslunnar. Hafa deilurn-
ar á fundunum staðið svo að
segja eingöngu milli Alþýðu-
fipkksmannanna og „Framsókn-
aj“-ma:nnanna, en á íhaldsfram-
bjóðeudunum hefir borið mjög
lítið. Á fundunum á Eyrarbakka
og Stokkseyri voru svo að segja
aliir fundarmenn fylgjandi Al-
þýðuflokknum.
— «
íhaldsmenn
heyktust á því aö setja kon-
unginn af, þegar það var hægt.
Kjósið aldiei konunglega Sjálf-
stæðismenn, er flýja frá kröf-
um ailrar þjóðarinnar, er á reyn-
ir. Kjósið A-listann — alþýöu-
listann.
Ivað er frétta?
Nœturlœknir er í nótt Magnús
Pétuisson, Iækningastofu hans við
Skóiabrú, sími 644.
Af Akureyri var FB. símað á
laugardaginn: Stöðug kuldatíð,
engjnn gróður, svo að heitið geti.
Finimlembinga eignaðist ær
inýlega á Steinastöð'um í Öxnodal.
Lifa öll iömbin við góða heilsu,
var FB. símað á laugardaginn.
Togararnir. 1 nótt k-omu af
veiðu,m „Draupnir“ og „Belga-
Jum“, báðir fullir af fiski.
Knattspyrnumótið. í gærkveldi
vann „Víkingur" „Fram“ með 4:1.
í kvöid keppa „K. R.“ og „Valur“.
Búast margir við, að það verði
fjörugasiti leikur mótsins.
Sundknattleikur (íslandsmóts,
lokaleikur) fór frami í gær á Ála-
fossi. Vann „Ægir“ „Ármann“
mieð 5 mörkuin gegn 1.
Áheit ú ElliheimilLð frá A. og
G. 5 krónur.
Skípafréttir. „Botnía“ kom frá
útlöndúm í igærmorgun.,„SeIfoss“
kom í gær úr vöruflutningaför
ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN,.
Hverfisgötu 8, sírni 1294,
tðkur að sér alls kon
ar tækifærispreiitun
svo sem eríiljóó, að-
göngumiða, kvittanir,
reikninga, bréf o. s.
frv., og afgreiðir
vinnuna fljótt og við
réttu verði.
Kom n r!
BlðJIð tsssi S m á r a. -
s K | § r I í k s pvs að
pað er efmsSsefra ess
túí aasmað smJiSrSíkfe
Spariðpeiiingí!. Fotðsst ópæg-
indi. Munið pvi eftir að vanti
ykkur rúður í glugga, hringið
i sinsa 1738, og verða pær strax
iátnar i. Sanngjarnt vetð.
Nýkomið smekklegf úrvai aí
sumarfataefnum hjá V. Schram
klæðskera, Frakkastig 16, símí
2256.
ílerrar minir og frúr! Ef pið
hafið ekki enn fengið föt yðar
kemiskt hreinsuð og gert við
pau hja V. Schram klæðskera,
pá prófið pað nú og pið munuð
halda viðskiftnnum áfram. —
Frakkastíg 16, sími 2256. Mót-
tökustaðir eru á Laugavegi 6
hjá Guðm, Benjaminssyni klæð-
skera og á Framnesvegi 2 hjá
Andrési Pálssyni kaupm.
Ljósmyndir af Haraldi Níels-
syni og H. Hafstein. Veggmyndir
og sporöskjurammar í fjöl-
breyttu úrvali. Islenzk málverk.
Mynda- og Ramma-verzlunin,
Freyjugötu 11. Sími 2105.
2 herfoergi
og pláss til að eida í
á að leigjast nú strax.
Lág leiga, Upplýsingar
í Klöpp. ‘
til Skaftafellsisýslu. Varð hann
lengi að bíða færis áður en liann
kom vörunum af sér, og með
vörurnar, siem áttu að fara til
Ingölfshöfða, varð hann að koma
aftur. V-ar hann mánuð í ferðinni.
„Súðin“ kom í gær vestan um
iand úr hringferð og „ísland“ í
gærkveldi frá útlönduan,. „Detti'-
foss“ er væntanlegur hingað kl. 6
í dag frá útlöud urn.
Ritstjóri og ábyrgðarm-aður:
Ólafur Friðriksson.
AJþýðuprentsmiðjan.