Morgunblaðið - 06.09.1981, Side 16

Morgunblaðið - 06.09.1981, Side 16
64 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1981 Ein hin óhrifaríkasta ailra franakra kvikmynda eftiratríðsáranna var Orphée. „Litla prinsinn" skrifaði Antonie de Saint Exupére á flugferöum sínum yfir óvinasvmöið í seinni heimsstyrjöldinni og sem betur fer var hann búinn aö því er hann mmtti örlögum sínum og var skotinn niður. Samuel Becket var mikill áhrifavaldur á sviði leiklistarinnar. Maria Helena Vieira da Silva þótti á engan hátt standa karlpeningnum aö baki í málverkum sínum. Hreint frábmr í sínum bestu myndum. André Malraux var einn af leiðandi áhrifavöldum aldarinnar á andlega sviöinu. einungis á frönsku. Má skrifa langt mál um það, hve Frökkum er ósýnt um að auðvelda erlendum gestum aðgang að hinum ýmsu heimildum með því að bæta við ágripi eða stuttum textum á fleiri þjóðartungum. Nei, franska skal það vera og megi þeir fara hopp- andi í hærusekk, er ekki skilja það hágöfugasta allra tungumála! Þetta veldur fróðleiksfúsu fólki að sjálfsögðu miklum erfiðleikum og gleymist það seint, er ég í fyrsta skipti kom á staðinn og sneri mér til fyrirgreiðsluskrifstofu blaða- manna og fékk þar mikinn stafla af upplýsingaritlingum ókeypis. Heldur en ekki ánægður fór ég að fletta í þeim, en þá kom í ljós, að pésarnir voru einungis merktir hinum ýmsu löndum á titilsíðu, t.d. Englandi, Þýskalandi, Spáni, Ítalíu, en allt innihaldið var á frönsku! Skiljanlega var lítil bót að slíku fyrir þá, sem ekki kunna málið, og því verður hver að bjarga sér sem hann getur með hjálp uppsláttarbóka. Ætla má, að þegar sýndarmennsku sleppi, þá muni fjöldamargir halda að sér höndum um kaup á rándýrum óaðgengilegum sýningarskrám og því mun slíkur eintrjáningsháttur vera hreint tap fyrir útgefendur. Þegar fyrri sýningar tóku fyrir samtímalist frá fyrsta áratug ald- arinnar og þróun hennar fram á síðustu tíma, þá hefur þessari sýningu verið afmarkað tíma- skeið, er nær yfir áratugina 1937—1957. Hér er tekið til með- ferðar allt, er varðar skapandi listir, Iistiðnað, iðnaðarhönnun, tízkuþróun, stjórnmál og svo tím- ana sjálfa. í heild er það líkast lífrænni uppfræðslu að ráfa um sali fimmtu hæðar listhallarinnar, sem sýninguna húsar, gesturinn fylgist með franskri hámenningu, en svo einnig afturför og úrkynj- un, sem að nokkru getur minnt á pönk-bylgjú nútímans, svo vísað sé til ummæla um sýninguna. Það, sem á þessum tímum var talið til hnignunar, hefur unga kynslóðin hafið til vegs og er á sinn hátt hægt að útskýra það á skilmerkilegan hátt. Það er eins og hluti ungu kynslóðarinnar taki sér til fyrirmyndar útlifað fólk þessara ára, er drukkið hafði í botn dreggjar stórborgarmunað- arins og hélt sér gangandi á alkóhóli og eiturlyfjum, eins og t.d. Mome Bijou og Kiki á Mont- parnasse síðustu æviár þeirra, eins konar veruleikaflótti og „narkissosismi". A sýningunni er mikið um myndbandaskerma (full litla þó), er bregða upp myndum frá tíma- bilinu, lífi myndlistarmanna, skálda, rithöfunda, stjórnmála- manna og fjölda annarra frægðar- persóna. Þá er hernámsárunum gefið mikið rými og myndir sýnd- ar frá fangabúðum nazista og brennsluofnum þeirra. Jafnan var mikil örtröð við þá skerma og virðist það í anda nútímans, að fólk sækir stíft í hryllinginn. Borgarastyrjöldinni á Spáni er einnig gerð ítarleg skil. Tímabil- unum eru þannig ekki síður gerð skil en listviðburðum og fátt dregið undan. Helst er til gagnrýni, að sýning- in í heild skuli ekki ná yfir hálfa öld, spanna allt fram til ársins 1977, því hún væri þá nær okkur í nútímanum og öllu aðgengilegri til samanburðar og skilnings öll- um þorra fólks. Þeim yngri, er í síbylju eru að tala um tíma- skekkju í list hinna eldri, væri vissulega hollt að skoða þessa sýningu. Það sem skeði löngu fyrir fæðingu þess, og margt af því hefur litla hugmynd um, hefur það sem sagt hafið til vegs á ný eða þó öllu réttara, kaupahéðnar, sem ábata hafa af slíkum uppákomum, tiltektum og listabylgjum og beita óspart fyrir sig skrumpésaiðnað- inum. En nú virðist margt af þessu unga fólki einmitt lítt kæra sig um að sækja slíkar sýningar, þykir víst ekki fíntt enda myndi það afhjúpa margt. Ég varð a.m.k. lítið var við það þau tvö skipti, sem ég heimsótti sýninguna, en annan daginn var skólafrídagur og var þá mikill fjöldi hressilegs ungs fólks á sýningunni og skoðaði hana af miklum áhuga, bæði eitt sér og í hópum í fylgd með leiðsögumönnum. Meira bar á hinu fólkinu fyrir utan og sjáist það á sýningum, er það oft meira til að sýna sig og afkáraskap í klæðnaði en til að skoða sýn- ingarmunina. Það er langt frá því, að allir séu yfir sig ánægðir með þessa risa- sýningu, þótt hér sé samankominn gífurlegur fróðleikur, tína má ým- islegt til og þykir sumum t.d. furðulegt, að Frakkar skuli setja listamenn á borð við Klee og Kandinsky undir franska listhefð þessara ára. Báðir voru þeir brautryðjendur og mjög sjálfstæð- ir í listsköpun sinni. Klee starfaði alla ævi í Þýskalandi og Sviss, og þótt Kandinsky hafi setzt að í Neuilly sur Seine í nágranni Parísarborgar árið 1933, hafði hann þegar markað sér svo per- sónulegan stíl, að hann getur ekki talist afkvæmi Parísarskólans. Einmitt þess vegna mun hann hafa átt svo erfitt uppdráttar, enda lifði hann nú erfiðasta tíma- skeið lífs síns og listar, þar til hann lézt árið 1944. Fjölmargt fleira er undir smá- sjá, t.d. hví einungis ein mynd er eftir menn eins og Marcel Gro- maire og Jean Deyrolle, en báðir voru þeir harðsoðnir Frakkar af Parísarskólanum og miklir áhrifa- valdar á þessum tímum. Maður hélt jú, að skipuleggjendurnir væru að bregða upp sem sannverð- ugastri mynd frá þessu tímabili en ekki að hér kæmi einnig fram einhliða mat og endurmat núlif- andi manna. Menn spyrja sig j-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.