Morgunblaðið - 12.09.1981, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981
23
Bandarískir herflutningabílar aka yfir bráðabirgðabrú yfir Main i þorpinu Kleinwelzheim skammt frá Aschaffenburg i
Vestur-Þýzkalandi. Um 1300 bílar fóru yfir brúna áleiðis til heræfingasvæðis sunnan við Frankfurt þar sem herlið tekur þátt í
NATO-heræfingunum „Certain Encounter“ er hefjast 14. sept. Um 71.000 hermenn frá Bandarfkjunum, Bretlandi og Vestur-Þýzkalandi
taka þátt i æfingunum.
400.000 hermenn taka
þátt í æfingum NATO
BrUsscl. 10. srptcmbcr. AP.
NATO efnir til víðtækra heræf-
inga i þessum mánuði i skugga
vaxandi máttar sovézka sjó-
hersins og niðurskurðar á her-
útgjöldum i aðildarrikjunum.
Rúmlega 400.000 hermenn,
sjóliðar og flugliðar taka þátt í
æfingunum og 17.000 bandarísk-
ir hermenn verða fluttir flug-
leiðis til Evrópu frá bandarísk-
um herstöðvum.
Æfingarnar ná hámarki um
miðjan þennan mánuð og í þeim
á að prófa hve vel hersveitir
bandamanna vinna saman og
hve fljótt Bandaríkjamenn geta
komið Vestur-Evrópu til hjálpar
ef til sovézkrar árásar kemur á
landi og sjó.
„Á örfáum árum höfum við
fylgzt með því hvernig sovézki
sjóherinn hefur vaxið og breytzt
úr strandgæzlu í úthafsflota,
sem veruleg hætta getur stafað
frá á siglingaleiðum," sagði tals-
maður æfingaliðsins. „Nú er
meiri ástæða en nokkru sinni
áður að sannreyna hvort við
getum staðizt þess konar
ógnun."
Þetta sést á yfirstandandi
flotaæfingum Rússa á Eystra-
salti með þátttöku átta
landgönguskipa, flugvélamóð-
urskipsins „Kiev“ (30.000 lestir)
og rúmlega 50 annarra skipa.
Skipin styðja landgönguæfingar,
einhverjar hinar mestu sem
Rússar hafa haldið síðan síðari
heimsstyrjöldinni lauk.
„Yfirmaður Atlantshafsflot-
ans verður að sýna fram á að
hann geti ráðið yfir svæðum og
haldið siglingaleiðum opnum
hvarvetna á Atlantshafi," sagði
talsmaðurinn.
Ein flotaæfingin kallast „Oce-
an Safari" og 90.000 sjóliðar
munu taka þátt í henni á
Biskayaflóa undan ströndum
Frakklands og Spánar og á
Austur-Atlantshafi.
I æfingunum „Magic Sword“,
sem er nýlokið, tóku þátt deildir
bandariskra flugvélamóðurskipa
í Norðursjó og á hafinu á milli
Islands og Noregs.
Bandarískar æfingar með
þátttöku 120.000 manna hafa
staðið yfir á Suður-Atlantshafi
síðan í ágústbyrjun.
Lokaflotaæfingin fer fram á
Eystrasalti 29. sept. til 15. okt.
með þátttöku bandaríska Atl-
antshafsflotans og flotadeilda
frá Danmörku, Vestur-Þýzka-
landi og Hollandi.
Ekkert skip í þeim æfingum
verður notað til að fylgjast með
Eystrasaltsæfingum sovétblakk-
arinnar. Sérstök skip sjá venju-
lega um það starf.
Haig ætlar að styðja við
bakið á Helmut Schmidt
Stjórnin
heldur velli
í Finnlandi
Frá Harrv (íranherK i IIclsinKfors.
STJÓRNARKREPPU hefur verið
afstýrt í Finnlandi og samkomu-
lag hefur náðst i aðalatriðum i
deilunni um fjárlög fyrir næsta
ár.
Miðflokkurinn vildi draga sig í
hlé þegar hinir stjórnarflokkarnir
þrír vildu ekki rétta við fyrir-
sjáanlegan halla á fjárlögunum.
Það sem virtist búa undir hjá
Miðflokknum var að slíta stjórn-
arsamvinnunni, en Mauno Koiv-
isto forsætisráðherra hikaði við að
segja af sér.
Einingarflokkurinn krafðist
þess að þing yrði kallað saman, en
Johannes Virolainen þingforseti
sagði nei. Þing kemur saman 25.
september.
Sósíaldemókratar gáfu í skyn að
sá möguleiki væri fyrir hendi að
taka í stjórnina ráðherra úr
Frjálslynda þjóðarflokknum ef
Miðflokkurinn lamaði ríkisstjórn-
ina.
Stjórnir flokkanna komu saman
til funda og lýstu yfir fullum
stuðningi við ráðherra sína í
tilraunum þeirra til að semja um
lausn á deilunni. Það er því ljóst
að stjórnin mun halda velli, hvað
sem gerist þegar þingið fjallar um
fjárlagafrumvarpið.
Steel vill
formlegt
bandalag
Lundúnum. 11. scptombor. AP.
DAVID Steel, leiðtogi Frjáls-
lynda flokksins á Bretlandi,
sagði i útvarpsviðtali i dag, að
bandalag frjálslyndra og sósial-
demókrata gæti orðið til þess að
vinna meirihluta á þingi. „Ég
hefði ekki sagt þetta fyrir sex
mánuðum. þá var þetta bara
draumur,“ sagði Steel í útvarps-
viðtali.
David Steel lýsti stuðningi við
formlegt bandalag frjálslyndra og
sósíaldemókrata. Skoðanir eru
skiptar meðal frjálslyndra og hafa
margir lýst andstöðu við formlegt
bandalag. Þing Frjálslynda
flokksins hefst í Llandudno í
Wales í næstu viku og verður þá
gengið til atkvæða um hvort
mynda skuli formlegt bandalag.
Sósíaldemókratar stofnuðu
flokkinn þann 26. marz síðastlið-
inn. Leiðtogar flokksins eru Roy
Jenkins, Shirley Williams, David
Owen og William Rogers. Síðan
flokkurinn var stofnaður hafa 16
þingmenn gengið til liðs við sósí-
aldemókrata. Frjálslyndir hafa 11
þingsæti.
„Allar skoðanakannanir benda
til, að ef okkur tekst að mynda
bandalag muni þriðja aflið rísa
upp í brezkum stjórnmálum. Þetta
hefur orðið til að gefa hugmynd-
inni um bandalag byr undir báða
vængi," sagði Steel.
En ýmsir meðal frjálslyndra eru
ekki jafn hrifnir og þegar hefur
komið til árekstra. Shirley Willi-
ams hugðist bjóða sig fram í
Croydon-kjördæmi en hætti við
þegar William Pitt, þingmaður
frjálslyndra neitaði að draga
framboð sitt til baka. „Báðir
aðilar verða að taka hinu vonda
með því góða,“ sagði Steel.
Þann 20. „g.ist var birt Gallup-
skoðanakönnun. Samkvæmt henni
var fylgi frjálslyndra og sósíal-
demókrata 41,5%, Verkamanna-
flokksins 33,5% og thaldsflokksins
24%. Þingkosningar eru fyrirhug-
aðar í maí 1984.
ALEXANDER IIAIG, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna. mun i
ferð sinni til Vestur-Þýzkalands
reyna að veita Ilelmut Schmidt
kanzlara siðferðilegan stuðning
vegna þeirrar ólgu, sem hefur
skapazt sökum andúðar i garð
Bandarikjamanna og á
kjarnorkuvopnum. að sögn emb-
ættismanna i Washington i gær.
Verið getur að Haig verði sjálf-
ur fyrir barðinu á þessari ólgu þar
sem mótmæli er fyrirhuguð í
Berlín þegar hann kemur þangað
á sunnudaginn. Haig ætlaði að
leggja upp í ferðina seint í gær og
fara fyrst til Spánar og Júgó-
slavíu, en hann verður í Vestur-
Þýzkalandi á sunnudaginn og
mánudaginn.
Tilgangurinn með heimsókninni
til Vestur-Þýzkalands er sumpart
sá að samræma stefnu bandarisku
og vestur-þýzku ríkisstjórnanna
fyrir fund Haigs um vopnatak-
markanir með Andrei Gromyko,
utanríkisráðherra Rússa, síðar í
þessum mánuði. „Þjóðverjar hafa
áhuga á öllu sem við tölum um við
Rússa," sagði bandarískur emb-
ættismaður.
Haig og Gromyko munu reyna
að móta fyrirætlanir um formleg-
ar samningaviðræður síðar á
þessu ári í því skyni að takmarka
staðsetningu meðaldrægra kjarn-
orkueldflauga beggja landa í Evr-
ópu.
Vestur-Þjóðverjar hafa sam-
þykkt að taka við meðaldrægum
bandarískum eldflaugum, en fast
er lagt að Schmidt, jafnvel innan
flokks sósíaldemókrata, að slíta
samkomulaginu. Hann hefur stað-
fastlega neitað að gera það, en
þarf að fá fullvissanir um að
samningaviðræður Bandaríkja-
manna og Rússa muni fara fram.
Schmidt í hættu
Þótt aðeins tæpt ár sé liðið
síðan Schmidt var endurkjörinn
velta Vestur-Þjóðverjar því fyrir
sér hvort hann muni sitja út
kjörtímabilið, en almennt er talið
að hann haldist ekki svo lengi við
völd, skrifar fréttaritari AP í
Bonn.
Vaxandi atvinnuleysi, stöðnun í
efnahagsmálum og þrýstingur frá
Bandaríkjamönnum, sem vilja
aukin herútgjöld, hefur afhjúpað
djúpstæðan klofning sósíaldemó-
krata og hins stjórnarflokksins,
frjálsra demókrata (FDP).
Tal um að stjórnarsamvinnan
muni fara út um þúfur er orðið svo
útbreitt að Schmidt sjálfur hefur
hvatt flokksmenn til að forðast
slík ummæli.
Bæði Schmidt og formaður
FDP, Hans-Dietrich Genscher,
halda því ákveðið fram að stjórnin
muni sitja fram að kosningum
1984 þrátt fyrir ágreiningsmál.
Heimildir í flokkunum herma að
sáttayfirlýsingar geti ekki falið
miklar umræður flokksleiðtoga að
tjaldabaki um þær leiðir er skuli
fara ef stjórnarsamvinnan rennur
út í sandinn. —AP.
Óeirðir er Sadat
vann með 99,45%
Kairó. 11. scptcmbcr. AP.
ÓEIRÐALÖGREGLA bældi niður
mótma'laaðgerðir herskárra Mú-
hameðstrúarmanna á tveimur
stöðum í Kairó í dag er frétta-
stofa ríkisstjórnarinnar tilkynnti
að 99,45% hefðu greitt „já-
atkvæði“ 1 þjóðaratkva'ða-
greiðslu, sem Anwar Sadat efndi
til vegna baráttu sinnar gegn
deilum trúflokka.
Um 300—400 múhameðstrúar-
menn söngluðu „Guð er mikill" og
gengu fylktu liði út á göturnar
umhverfis bænahúsið El-Nur. Þar
réðust á þá um 1.000 menn úr
óeirðalögreglunni, sem beitti bar-
eflum og táragasi og dreifði hópn-
um á stuttum tíma. Nokkrir mót-
mælendur voru lamdir og hand-
teknir.
Svipaður atburður gerðist við
bænahúsið El-Haya skammt frá.
Um 200 sönglandi heittrúar-
mönnum var dreift af lögreglu,
sem sveiflaði bareflum. Engu tára-
gasi var beitt og engann sakaði, en
nokkrir voru handteknir.
Þótt Sadat fengi 99,45% at-
kvæða í þjóðaratkvæðinu hafði
hann sagt að hann byggist við að
„99,9 af hundraði" kjósenda myndu
samþykkja tillögur hans um að
binda endi á deilur múhameðskra
heittrúarmanna og minnihluta
kristinna Kopta, svo að árangur-
inn var ekki alveg eins góður og
hann bjóst við.
Spurningin, sem kjósendur áttu
að svara með „jái“ eða „neii“ á
atkvæðisseðlinum, var á þá leið
hvort þeir „samþykktu fram-
gangsmáta og meginreglur þjóðar-
einingar og samfélagslegs friðar“.