Morgunblaðið - 12.09.1981, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981
Snúum okkur að bölvaldinum
sjálfum og leggjum áherzlu
á fyrirbyggjandi starf
- segir Hilmar Jónsson, stórtemplar —
Á barnaárinu 1979 gengust
bindindissamtökin fyrir
áhrifamikilli herferð, sem kölluð
var vika gegn vímugjöfum og í ár
hefur bindindissamtökunum aftur
tekist að fylkja fjölmörgum aðil-
um saman undir vígorðinu: Átak
gegn áfengi. 1979 var það Ungl-
ingareglan sem átti frumkvæðið
en nú er það Stórstúkan. Af þessu
tilefni átti Morgunblaðið eftirfar-
andi viðtal við Hilmar Jónsson,
stórtemplar.
— býðir þetta að bindindis-
hreyfingin sé að fara inn á nýjar
lciðir, Ililmar?
. — Við erum að reyna að ná
þjóðarvakningu gegn áfengisböl-
inu. Og mér finnst eins og það sé
að verða hugarfarsbreyting.
Æðstu menn þjóðarinnar ræða
þessi mál opinskátt eins og for-
sætisráðherrann gerði 17. júní og
nú hafa 43 þingmenn ásamt for-
seta landsins og biskupi undir-
skrifað ávarp þar sem hvatt er til
bindindissemi. 1979 voru stjórn-
málaflokkarnir ekki með í aðgerð-
um okkar en nú hafa þeir allir
sent fulltrúa á fundi okkar. Það
ber líka vott um að ráðamenn ætli
ekki að láta sitja við orðin ein, að
forsætisráðherra hefur kallað
nokkra aðila á sinn fund til að
ræöa áfengismálastefnu. Slíkt
hefur ekki skeð í mörg ár.
— Ert þú með einhverjar
ákveðnar tillögur til úrb<)ta?
— Við leggjum að sjálfsögðu
áherslu á, að það opinbera sýni
gott fordæmi. Það verður ekki
gert á annan veg en með algerri
stöðvun á vínveitingum í opinber-
um veislum. Einn ráðherra, Vil-
hjálmur Hjálmarsson fyrrverandi
menntamálaráðherra braut ísinn,
og hlaut bæði virðingu og vinsæld-
ir fyrir. Landssambandið gegn
áfengisbölinu hefur oft bent á
vínskömmtun, sem leið til minnk-
andi áfengisneyslu. Á Grænlandi
hefur slík leið verið valin og gefið
góða raun. Á Norðurlöndum fer
nú fram mikil umræða um áfeng-
ismál og þar eru flestir sammála
því að minnkandi sala áfengis sé
það sem skipti máli. Hér á landi
hefur umræðan alltof mikið staðið
um meðferðarstofnanir og hvort
áfengisneysla sé sjúkdómur eða
ekki. Höfuðatriðið er að snúa sér
að bölvaldinum sjálfum og til þess
þarf að sjálfsögðu að leggja
áherslu á hið fyrirbyggjandi starf.
Ef okkur tekst að auka fjölda
bindindismanna í landinu þá er
það meiri gæfa fyrir þjóðarbúið
heldur en hjöðnun verðbólgu og
ætla ég þó ekki að gera lítið úr
hættunni af henni. Það er vísinda-
leg staðreynd að af 10 vínneytend-
um verður einn áfengissjúklingur.
— En eiturlyfin?
— Um þau hefur ríkt alltof
mikil þögn í fjölmiðlum. 1973 og
1974 var mikið um þau fjallað í
blöðum, útvarpi og sjónvarpi. Og
þessi athygli á vandanum olli
samdrætti í sölunni. Nú hefur
saian aftur aukist og það stórlega
og jafnframt tekið á sig alþjóðlegt
snið. Nú eru komnir til sögunnar
sölumenn sem hóta meiðingum og
lífláti ef kjaftað er frá. Lögreglu-
mönnum ber saman um að miklu
erfiðara sé nú en áður að fá
neytendur til að tala af ótta við
afleiðingarnar. Þetta skýrist best
af dæmum um hvaða fjármuni hér
er verið að tefla. Kannabisefni,
sem keypt er í Amsterdam á 4
millj. gamalla króna, er selt á
Islandi á 14 millj. Hagnaðurinn er
með öðrum orðum 10 millj. gam-
alla króna. Til að gefa neysluna til
kynna, þá hefi ég fyrir satt að um
250 suðurnesjamenn séu á skrá
yfir neytendur og um 50 þar fyrir
utan liggi undir grun. Þetta eru
hrikalega háar tölur í byggðarlagi
sem telur um 8—9 þús. íbúa. Hér
verður að sjálfsögðu að koma til
hert eftirlit og aukið fjármagn
bæði til aðgerða og fræðslu. Þarna
gæti sjónvarpið unnið gott starf,
ef fólk með sérþekkingu yrði til
kallað.
— Hvað er framundan hjú
bindindismönnum?
— Það er margt. Unglingaregl-
an mun gefa út bækling um áfengi
fyrir nemendur í grunnskóla og
Stórstúkan bækling um eiturlyf.
1984 verður minnst hundrað ára
afmælis bindindishreyfingarinnar
á Islandi. Af því tilefni verður hér
haldið stórt alþjóðlegt mót, sem
við erum þegar farin að undirbúa.
Nú þessa dagana erum við að
ljúka sölu á happdrætti, sem fyrst
og fremst á að styðja við barna-
starfið. Okkur skortir gæslumenn
til barnastúkna, ekki síst hér á
þéttbýlissvæðinu. En góð barna-
stúka er besti félagsmálaskóli sem
völ er á. Þá viljum við fjölga að
mun kaupendum Æskunnar. En
hún er nú 82 ára og viðurkennd
sem eitt besta og útbreiddasta
barnablað á Norðurlöndum.
— Hvernig er háttað afskipt
um hins opinbera af æskulýðs-
málum?
— I stærstu kaupstöðunum eru
starfandi æskulýðsráð. Þar sem
þau eru eingöngu skipuð af póli-
tískum aðilum eins og í Reykjavík,
þar er mjög lítið samráð haft við
hin frjálsu félög. Annars staðar
eins og á Akureyri og í Keflavík,
þar eiga frjáls félög aðild að
æskulýðsráði og þar starfa þau í
samvinnu við skólana að tóm-
stundamálum. Mín skoðun er sú
að bæjar- og sveitarfélög eigi ekki
að keppa við félögin á þessu sviði,
heldur eingöngu að veita til þeirra
styrki. Ég tel að það eigi að efla
hið frjálsa framtak í félagsmálum.
Skref fram á við væri að leggja
niður pólitikt kosin æskulýðsráð. í
þeim situr oft fólk sem hvorki
hefur vilja né getu til að fjalla um
þessi mál.
— Þú ert sem sagt bjartsýnn á
framtiðina?
— Eigum við ekki að segja, að
það sé í hófi. Stundum hefur mér
fundist sem við sem vinnum að
bindindismálum séum deyjandi
þjóðflokkur, nokkurskonar Geir-
fuglar. Nú var ég á fundi í Svíþjóð
í sumar þar sem nýkjörinn for-
ystumaður í norrænum bindindis-
samtökum lýsti yfir takmarki sem
vinna bæri að: Áfengislaus Norð-
urlönd. Þetta hefði ábyrgur aðili
aldrei látið frá sér fara, ef hann
fyndi ekki að það eru að verða
straumhvörf í þessum málum.
Meira að segja Sameinuðu þjóð-
irnar eru farnar að senda frá sér
ávörp eins og templarar.
Dagslátta
Drottins
komin út
Bókaklúbhur Almenna bókafé-
lagsins hefur sent frá sér skáld-
söguna Dagslátta Drottins eftir
bandaríska rithöfundinn Erskine
Caldwell í þýðingu Hjartar Ilall-
dórssonar. Þetta er önnur prent-
un bókarinnar á islensku. en
fyrsta prentun kom út 1944.
Erskine Caldwell er eins og
kunnugt er á svipuðum aldri og
þeir Hemmingway, Faulkner og
Steinbeck og er sá eini af þessum
fjórum sem enn er á lífi. Þessir
höfundar voru og eru enn lesnir
um allan heim — hér á íslandi
ekki síður en annars staðar.
Caldwell er Suðurríkjamaður og
féll í hlut hans að draga fram á
sjónarsvið bókmenntanna líf og
einkenni hinna snauðu hvítu í
Suðurríkjum Bandaríkjanna.
Þetta fólk er fátækt jafnt andlega
sem efnalega og stendur á báðum
sviðum skör lægra en jafnvel
negrarnir sem það fyrirlítur.
Fyrir áhrif frá bókum Caldwells
tóku bandarískir stjórnmálamenn
að gefa gaum þessum Suðurríkja-
fátæklingum, og Roosevelt sagði:
„Ólæsi og dýrslegur lífsmáti þessa
fólks er vandamál þjóðarinnar
númer eitt."
Fólkið í Dagsláttu Drottins hef-
ur sína kosti og sína galla. Gull-
gröftur er jafnvel eina leiðin sem
það þekkir til efnalegra gæða og
það grefur og grefur í jörðina, en
gullið sitt finnur það ekki. Ástríð-
ur þessa fólks eru sterkar og
ótamdar og ráða oft óþægilega
miklu.
Frásögnin er hröð og opinská og
menn hneyksluðust mjög á sínum
tíma á þessari bók — höfðuðu
jafnvel mál á hendur höfundinum
af eintómri vandlætingu. Þó er
eins og maður kannist við í
nútímanum eitthvað svipað og
þarna kemur fyrir og það frá
miklu fínni stöðum en heimkynn-
um hinna snauðu hvítu í Suður-
ríkjum Bandaríkjanna í heim-
skreppunni.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
fundir — mannfagnaöir
Félagsstarf aldraðra
Kópavogi
Fariö verður í Túnaréttir miövikudag 16.
september kl. 8 árdegis frá Hamraborg 1.
Réttarkjötsúpa í Valhöll.
Tómstundaráð.
Suðurnesjamenn —
Skotíþróttafélag
Stofnfundur veröur haldinn í kálfi númer 1 við
barnaskólann í Keflavík mánudaginn 14.
sept. kl. 20. Skilyrði er aö væntanlegir
félagsmenn hafi byssuleyfi.
Undirbúningsnefnd.
Félag kaþólskra
leikmanna
heldur myndakvöld í Stigahlíð 63 mánudag-
inn 14. september kl. 8.30 síödegis. Þeir sem
tóku myndir í ferðalögum sumarsins eru
beðnir aö koma með þær.
Stjórn FKL
| lögtök |
Lögtaksúrskurður
Samkvæmt beiöni sveitarstjóra Geröahrepps
úrskuröast hér meö aö lögtak fyrir ógreiddu
útsvari og aðstöðugjaldi til Gerðahrepps fyrir
gjaldáriö 1981, getur farið fram að liönum 8
dögum frá birtingu lögtaksúrskurðar þessa.
Keflavík, 1. sept. 1981,
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu.
Norðurland
Eystra
Lárus Jónsson og Halldór Blöndal alþingis-
menn mæta á eftirtöldum tundum í kjör-
dæminu: Mánudag 14. á Dalvík Aöalfundur
kl. 20.30. Þriöjud. 15.9. Ólafsfj. Aöalfundur
kl. 20.30.
Sjálfstæðisfélagið
Njarðvíkingur
heldur félagsfund fimmtudaginn 17. sept. kl.
20.30 í Sjálfstæöishúsinu Njarövík.
Fundarefni:
1. Kjör fulltrúa á landsfund.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Húsnæðismál
eignaréttur eignaupptaka
Sjálfstæöisfélögin { Reykjavík boöa til fundar um húsnæöismál,
mánudaginn 14.09. Fundurinn hefst kl. 20.30 og veröur í Valhöll,
Háaleitisbraut 1.
Frummælendur:
Davíö Oddsson, borgarfulltrúi, formaöur borgarstjórnarflokksins
Magnús L. Sveinsson, borgarfulltrúi, form Verslunarmannafélags
Reykjavíkur
Gunnar S. Björnsson, form. meistarasambands byggingarmanna og
form. félagsmálanefndar Sjálfstæóisflokksins.
Fundarstjóri: Björg Einarsdóttir, formaöur Hvatar.
Vinstri meirihlutinn er úrræöa- og stefnulaus í húsnæöismálum,
veröur eignaupptaka næst á dagskrá.
Sjálfstæöisfólk er hvatt til aö fjölmenna og kynnast þeim umræöum
er fram hafa fariö í borgarstjórn síöustu vikur,
Sjálfstæöisfélögin