Morgunblaðið - 12.09.1981, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1981
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
I0100KL. 10— 11
FRÁ MÁNUDEGI
Athugasemd
til Guðjóns Ó. Hanssonar
frá Björgu Einarsdóttur
í Morgunblaðinu þriðjudag-
inn 8. þ.m. biritst grein undir
fyrirsögninni „Forystumál
Sjálfstæðisflokksins og framtíð
flokksins" eftir Guðjón Ó.
Hansson. Kennir þar margra
grasa og meðal annars vikið að
undirritaðri.
Eitt af því sem verður Guð-
jóni tilefni til að draga nafn
mitt inn í skrif sín, er grein mín
„Flokkur og forysta" í Vísi 22.
júlí sl. sem hann metur sem
lofgrein uin Geir Hallgrímsson,
formann Sjálfstæðisflokksins
og nefnir í sama orðinu og
$r -„Tíaai—til—kaminn
ý’-í: •' •:nH 22. ág. sl.) eftir
Gisla Jónsson, rr untaskóla-
kennara á Akureyri.
En þar segir Gísli Jónsson
m.a.: „Það er tími til kominn, að
yfirlætislevsi, hófsemi og heil-
indi séu n._i,in að verðleikum og
þeir menn valdir til æðstu
trúnaðarstarfa, sem hægt er að
treysta, bæði í hópi skoðana-
bræðra og meðal andstæðinga."
Engin ástæða er fyrir mig að
harma mat Guðjóns á mínum
skrifum eða það samhengi, sem
hann setur þau í.
Hins vegar veit ég ekki hvort
prentvillupúkinn hefur leikið
Kæri Velvakandi.
Bréf mitt að þessu sinni er
skrifað til að hæla en ekki til að
finna að. Mér finnst mál til komið
að Ragnheiður Ásta Pétursdóttir
þulur Ríkisútvarpsins fái hrós
fyrir hve „mjúkum höndum" hún
meðhöndlar mann á morgnana.
Lagavalið er mjög smekklega bor-
ið á borð fyrir okkur útvarpshlust-
endur, oft kannski vansofin og
úrill og maður kemst ósjálfrátt í
Guðjón grátt eða lestrarkunn-
áttu hans er eitthvað áfátt —
því fáfræði mína um flokksmai
Sjálfstæðisflokksins rökstyður
hann þessum orðum: „í grein
sinni í Vísi segir hún að aðal-
verkefni landsfundar sé að
kjósa formann, varaformann og
miðstjórn, en formaður marki
svo stefnuna, en landsfundur
fjalli aðeins um hið liðna."
í umræddri Vísisgrein minni
segir orðrétt: „Verkefni lands-
fundar, sem er að hluta til eins
og hvert annað þing eða aðal-
f 4"r, er að fá yfirlit um
£rá
asut iu.idi, kjósa formar.n,
varaformann og miðstjórn, sem
fer með vald landsfundar milli
funda og mótar málefnalega
stefnu flokksins og stjórnmála-
afstöðu."
Um skrif Guðjóns hlýtur að
gilda sem og allt annað að hafa
ber það, er sannara reynist. En
ég vil hér nota það tækifæri,
sem skrif hans færa mér upp í
hendur til að árétta nokkur
atriði úr minni grein — atriði
sem ég tel að okkur sjálfstæðis-
mönnum öllum sé hollt að hafa
í heiðri.
„Reyndar er það fráleitt að
gott skap áður en hið daglega
amstur hefst.
Ég hvet hana eindregið að halda
strikinu. Fyrir mig persónulega er
jass-sveiflan hennar rúsínan í
pylsuendanum, en það er líka
gaman að poppinu og svo hinu sem
flýtur með. Þetta er allt gæðavara
hjá Ragnheiði Ástu. Sem sagt „par
excellence".
Slagbrandur.
Björg Einarsdóttir
bera innri mál stjórnmála-
flokks á torg, koma flugum í
munn pólitískra andstæðinga,
sem þeir síðan matreiða og
senda til baka sem agn. Alltof
margir sjálfstæðisme"" átta
sij' ekki á þvssu r> •■■• ,:t-
stæðinga r<tua atstoou sinni
með skrifum og rógsherferðum.
Styrkur Sjálfstæðisflokksins
hefur jafnan verið að standa að
baki þeim foringjum, sem
landsfundur kýs hverju sinni.
Þeim mun betur, sem við stönd-
um saman milli funda — sýnum
flokkslegan trúnað og hollustu
hvert við annað og foringja
okkar — þeim mun sterkari
verður flokkurinn.
Á sama hátt — ef við höldum
ekki hópinn eða látum af holl-
ustu við þá, sem við höfum kosið
til að fara fyrir liði okkar,
veikist staðan. Út yfir tekur þó,
þegar sjálfstæðismenn taka níð
um eigin foringja ómelt úr
rógsdálkum málgagna pólit-
ískra andstæðinga og halda á
loft við hvern sem er.“
Að öðru leyti elti ég ekki ólar
við ritverk Guðjóns og verð að
segja, að af tvennu tel ég hann
betur kominn sem ræðumann á
fundum en dálkahöfund í dag-
blaði.
Virðingarfyllst,
Björg Einarsdóttir,
Einarsnesi 4,
Reykjavík.
„Allt gæðavara hjá Ragnheiði Ástu“
-
meðal Hafnfirðinga um afstöðu
þeirra til hundahalds í bænum.
Verði skoðanakönnun þessi lát-
in fara fram samhliða næstu
kosningum til bæjarstjórnar."
Ég vil sérstáklega koma á
framfæri þakklæti til Stefáns
fyrir að bregðast svona við —
þegar mönnum greinir á í bæj-
arfélaginu er náttúrulega lang
eðlilegast að bæjarfulltrúar
gangi úr skugga um hvaða
afstöðu bæjarbúar hafa áður en
þeir taka ákvörðun.
En í fréttinni kemur einnig
fram afstaða sem mér finnst
einkar athyglisverð. í fréttinni
segir frá umræðum á fundinum
um tillögu Stefáns og segir þar
m.a.: „.. • og raunar lýsti einn
bæjarfulltrúi yfir að hann teldi
sig alls óbundinn af slíkri skoð-
anakönnun". Þarna úttalar sig
maður sem segir: Það er ég einn
sem veit — mér kemur ekkert
við hvað almenningi í Hafnar-
firði finnst um hundahaldið,
þetta mál verður afgreitt eftir
því sem ég segi og ég vil, sko!
Þetta finnst mér afleit af-
staða hjá bæjarfulltrúa. Og ég
vildi mjög gjarnan vita hver
það er af bæjarfulltrúunum sem
þannig er skapi farinn. Við
Hafnfirðingar höfum svo tæki-
færi til að sýna það í bæjar-
stjórnarkosningum á næsta
sumri hversu mikils við metum
svona „mikilmenni". Þess vegna
óska ég þess eindregið að það
komi í ljós hver þessi hroka-
gikkur er.
Að lokum vil ég svo ítreka
þakkir mínar til Stefáns fyrir
að taka svo röggsamlega á
málinu að bera fram þessa
skynsamlegu tillögu.
Búa ekkjur í
auðu húsnæði?
Jón frá Pálmholti hringdi og
bað Velvakanda að birta eftir-
farandi pistil um málefni leigj-
enda og umræðuna sem um þau
hefur verið að undanförnu:
„Undarleg viðbrögð hafa
sumstaðar orðið við hugmyhd-
um borgaryfirvalda um að
koma í notkun húsnæði sem
lengi hefur staðið autt. Það
hlýtur þó að teljast eðlilegt að
hugsað sé að einhverju slíku
þegar neyðarástand ríkir hjá
fjölda fólks og sumir verða að
hætta námi eða flytja vegna
þessa. Eða til hvers höfum við
verið að lána fé úr sjóðunum
okkar til þeirra sem byggja ef
þessir sömu láta svo húsnæðið
standa autt?
Svolítið kúnstugt dæmi um
viðbrögðin við þessum hug-
myndum, sem þó eru aðeins
eitt atriði af fleirum, eru orð
Guðlaugar Magnúsdóttur í
Velvakanda 9. september síð-
astliðinn, en hún varð ekkja í
fyrra og hringir og spyr, hvort
eigi að bera sig út. Eg hef nú
aldrei heyrt þess getið fyrr að
fólk sé borið út úr auðu húsi
nema það hafi í vandræðum
sínum komið sér þar fyrir án
heimildar. Enn veit ég ekki til
að neinn hafi nefnt eignarnám
og víst er að leigendasamtökin
hafa marg tekið skýrt fram að
þau ljá ekki máls á slíku, og
það er stór munur á eignar-
námi húsnæðis sem búið er í
eða koma í gagnið íbúðum sem
staðið hafa auðar um lengri
tíma. Það má benda Guðlaugu
Magnúsdóttur á að ekki búa
allar ekkjur í Reykjavík í
öruggu húsnæði og til eru þær
sem búa við húsnæðisskort.
Það að greiða fyrir eignar-
skiptum sjálfviljugra einstakl-
inga er annað mál. Margir búa
rýmra en þeir vilja, en þar
kemur að sjálfsögðu engin
valdbeiting til heldur eðlileg
viðskipti fólksins sjálfs sem hið
opinbera gæti hugsanlega liðk-
að til fyrir, gert auðveldari. Ég
vona að fólk geti andað rólega
vegna „eignarnáms“ — það er
ekki á dagskrá."
Hægt að hringja beint
til Bandaríkjanna
Póst- og simamálastofnunin
hefur komist að samkomulagi við
yfirvöld i Bandarikjunum um að
tekið verði upp frá 11. sept. 1981
beint talsimasamband milli
Reykjavíkur og New York, en
fram að þessu hefur verið sam-
band um Montreal i Kanada.
Jafnframt ' verður islenskum
simanotendum gefinn kostur á
sjálfvirku vali til notenda i
Bandaríkjunum og verður
minnsta samtalsbil ein og hálf
sekúnda. Sjálfvirkt val frá
Bandaríkjunum til íslands verð-
ur tekið upp seinna.
Þegar velja á símanúmer í
Bandaríkjunum er valið 90, 1,
svrpðisnúmer notanda og númer.
Upplýsingar um svæðisnúmer og
notandanúmer má fá í síma 08.
Gjöld fyrir talsímaþjónustu
munu frá 11.9. 1981 verða sem hér
segir:
Fyrir sjálfvirkt val kr. 21,00 á
mínútu (minnsta gjald kr. 0,51).
Fyrir samtöl afgreidd af tals-
ímavörðum kr. 72,00 fyrir fyrstu 3
mínúturnar en k1- °V00 '■
hverja rainútu III viðbótar.
Ef samtalið er með kvaðningu
kosta fyrstu 3 mínúturnar kr.
129,00 en hver mínúta til viðbótar
kr. 21,00.
Söluskattur er innifalinn í þess-
um upphæðum.
Miðað við núverandi gjöld verð-
ur sjálfvirka gjaldið fyrir heila
mínútu 42% lægra en áður og
gjald fyrir fyrstu 3 mínútur af-
greiddar af talsímaverði, verður
33% lægra og fyrir viðbótarmín-
útu 42% lægra.
Tekið verður núna gjald fyrir
kvaðningu og er notendum bent á
að hún kostar kr. 57,00 að auki
fyrir fyrstu þrjár mínútur í sam-
tali.
Sem dæmi um áhrif hinna nýju
gjalda má nefna að fimm mínútna
samtal án kvaðningar kostar nú
kr. 114 með aðstoð talsímavarðar
og kr. 105 þegar valið er sjálfvirkt,
en kostaði áður kr. 181. Samsvar-
andi tölur fyrir tiu mínútna sam-
tal eru kr. 219 með aðstoð síma-
varðar og kr. 210 sjálfvirkt, en
kostaði áður kr. 362. Fimm mín-
útna samtal með kvaðningu kost-
ar nú ! T: en áður kr. 181 og tíu
mínútna sam <neð t:.aðninMu
kostar kr ‘VT" rtnð kr
(Frétt ha i\>sti og sima.)
Hörður Ingólfsson í Eden
Ilörður Ingólfsson myndlista-
kennari opnar sýningu á verkum
sínum iaugardaginn 12. sept., i
Eden, Hveragerði. Ilörður stund-
aði nám við Myndlista- og hand-
iðaskólann á árunum 1946—49
og síðar framhaidsnám í Osló
1972—73, við „Stadent iærerskol-
an i forming".
Hann sýndi síðast í Reykjavík
1978. Um 20 olíumálverk eru á
sýningunni flest máluð á þessu ári
auk nokkurra vatnslitamynda.
Allar myndirnar eru til sölu.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 20.
september.
Frá vinstri: Trond Rortveit frá Nofi i Tromsö, Svein M. Tetlie frá
Norsenet i Bergen og Haraldur Henrýsson formaður Sjóslysanefndar
með björgunarstakkinn. LJósm.: Mbl. Ól.K.M.
Gáf u Sjóslysanef nd
björgunarstakk
NORSKIR sölumenn voru stadd-
ir hér á landi fyrir skömmu og
voru þeir m.a. að kynna björgun-
arstakk frá fyrirtækinu Nofi i
Tromso. Björgunarstakkur þessi
er úr ákveðinni gúmmitegund og
er stakkurinn með þeim eigin-
leikum að hann flýtur, og einnig
heldur hann hita á þeim sem í
honum er. Norðmennirnir færðu
Sjóslysahefnd einn stakk að gjöf,
og veitti Ilaraldur Henrýsson
formaður nefndarinnar stakkn-
um viðtöku. fyrir hönd nefndar-
innar.
I samtali við Morgunblaðið
sagði Jónas Haraldsson lögfræð-
ingur hjá Landssambandi ís-
lenskra útvegsmanna, að Norð-
mennirnir hefðu verið hér á veg-
um innkaupadeildar Landssam-
bandsins, og hefðu þeir kynnt
björgunarstakkinn vestur á Isa-
firði og í Reykjavík. Jónas sagði að
stakkar sem þessi væru dýrir, en
þeir hefðu synt og sannað ágæti
sitt og bjargað mannslífum.