Morgunblaðið - 18.09.1981, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1981
Framkvæmdastj. Alþjóðlegu endurhæfingasamtakanna:
*
Forseta Islands afhent
stefnuyfirlýsing samtakanna
NORMAN Acton. artalfram-
kvæmdastjóri AiþjóólcKU endur-
hæfinKarsamtakanna. er vamtan-
lejjur hingaA til lands frá New
York 16. sept. nk. Mun hann á
fimmtudaK afhenda forseta Is-
lands stefnuyfirlýsinKU samtak-
anna í málcfnum fatlaAra fyrir 9.
áratuííinn.
Miövikudaginn 16. september
mun Norman Acton halda opinn
fyrirlestur í Norræna húsinu kl.
20.30.
I fyrirlestrinum mun hann
fjalla um skipulag og starfssvið
Alþjóðlegu endurhæfingarsam-
takanna og svara fyrirspurnum.
Ilafnarfjörður:
Fresta heimild til
hundahalds í bænum
Skoðanakönnun um málið fer fram samhliða
næstu bæjarstjórnarkosningum
ÁRNI Grétar Finnsson. hæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
HafnarfirAi, flutti á fundi hæjar-
stjórnar í fyrradag tillógu þcss
efnis. að ba'jarstjórnin ^taki til
endurskoðunar á nýján leik
hvort leyfa heri hundahald i
hamum, og sagði Árni Grétar í
samtali viö Mbl., að þetta væri
m.a. framkomið vegna tilmæla
frá heilbrigðisráði.
Tillaga Árna Grétars var felld
með sjö atkvæðum gegn fjórum
eftir nafnakail. Þeir sem greiddu
tillögunni atkvæði auk Árna Grét-
ars, voru Árni Gunnlaugsson,
Brynjólfur Þorbjarnarson og Ein-
ar Mathiesen. Á móti voru Stefán
Jónsson, Guðmundur Guðmunds-
son, Hörður Zophaníasson, Jón
Bergsson, Markús Á. Einarsson,
Rannveig Traustadóttir og Þor-
björg Samúelsdóttir.
Síðan var samþykkt með tíu
atkvæðum gegn einu, að láta fara
fram skoðanakönnun um afstöðu
manna til hundahalds, við næstu
bæjarstjórnarkosningar. Jafn-
framt var samþykkt að fresta því,
að ákvæði um heimild til hunda-
halds komi til framkvæmda fyrr
en að lokinni þessari skoðana-
könnun, en heimildina átti að nota
nú í haust.
Frá setningu Nýja tónlistarskólans.
Nýi tónlistarskól-
inn í nýtt húsnæði
NÝI tónlistarskólinn, Ár-
múla 44, var settur 15. sept-
ember. Þetta er 4. starfsár
skólans, sem nú er starfrækt-
ur í nýju húsnæði. Tónleika-
salurinn rúmar 270 manns i
sæti.
Nemendur verða 240 í vetur
í hljóðfæra- og söngnámi, auk
forskóladeilda. Kennarar eru
20. Skólastjóri er Ragnar
Björnsson en skólanefnd
skipa: Garðar Ingvarsson hag-
fræðingur, formaður, Árni
Bergmann ritstjóri, Gylfi Þ.
Gislason prófessor og Ólafur
Skúlason dómprófastur.
Ragnar Björnsson skólastjóri.
Ótrúlegt
en satt
Mikið úrval
af
leðursófasettum
Verð frá kr.:
14.500
húsgögn
Langholtsvegi 111.
Símar 37010 - 37144.
íslenzk tón-
verk flutt á
NOR-VEST ’81
Á listahátíðinni NOR-VEST ’81 i
Þrándheimi munu Manuela
Wieslcr og Helga Ingólfsdóttir
halda tónleika 24. og 25. október.
Munu þær flytja eftirfarandi
íslensk verk: Brck eftir Jón
Þórarinsson, Stúlkan og vindur-
inn eftir Pál P. Pálsson.
Á efnisskránni verður einnig
verk eftir norska tónskáldið Lasse
Thoresen, sem hann samdi sér-
staklega fyrir þær, svo og verk
eftir Bach, Hándel, Mattheson o.fl.
Þá mun Manuela leika með
Sinfóníuhljómsveitinni í Þránd-
heimi 22. okt. flautukonsertinn
Evridís eftir Þorkel Sigurbjörns-
son og Flautukonsert í G-dús eftir
Mozart.
Þá verður Kammersveit Reykja-
víkur með tónleika á hátíðinni
með eftirfarandi íslenskum verk-
um: Hjálmar Ragnarsson: 6 söng-
lög við ljóð eftir Stefán Hörð
Grímsson fyrir alt-rödd, flautu,
cello og píanó. Atli Heimir
Sveinsson: Klif fyrir flautu,
klarinett og cello. Sveinbjörn
Sveinbjörnsson: Tríó í a-moll.
Þá verður Pierrot Lunaire eftir
Arnold Schönberg, sem flutt var
hér á Listahátið 1980 við fádæma
mikla hrifningu.
(Fréttatilkynning)