Morgunblaðið - 18.09.1981, Síða 18

Morgunblaðið - 18.09.1981, Síða 18
1 g MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1981 BORGARRÁÐ Reykjavikur hefur samþykkt að heimila Ilitaveitu Reykjavikur að selja Kjalarneshreppi heitt vatn, sem nemur fimm lítrum á sekúndu. Verður vatnið tekið úr aðalæð i Mosfellssveit, Reykjaæðinni gömlu, að sögn Gunnars Kristinssonar, yfirverkfræðings Hitaveitunnar. Gunnar sagði að þessi sala hefði ekki umráða væru á þessu svæði. Hefði því áhrif á þá erfiðleika sem Hitaveitan ekki verið talin ástæða til að hafna ætti nú í, aðeins væri verið að selja 5 beiðni um sölu vatns til Kjalarness. sekúndulítra af um 1700, sem til Star trek - f y rsta f lokks vísindaskáldskapur Sjónvarpsþættirnir Kvikmyndin Star Trek, eða Geimstríðið, eins og hún kallast í íslenskri þýðingu, er sýnd um þessar mundir í Háskólabíói. Hún er byggð á samnefndum geysivinsælum bandarískum sjónvarpsþáttum er fjalla um ævintýri áhafnar hins risastóra geimskips, Enterprise, á ferð þess til ókannaðra plánetna í óravíddum geimsins á 23. öldinni og er því sannkallaður vísinda- skáldskapur. Star Trek-þættirnir voru á sínum tíma (1966—’68) eitt mesta hættuspil sem bandaríska sjónvarpsstöðin NBC hafði ráð- ist í. Bæði var kostnaðurin tröllhár vegna tæknibreilna og svo hitt að óvissan um vinsældir þáttanna var mikil. Til þessa hafði verið litið svo á að vísinda- skáldskapur væri léttmeti fyrir börn. Á því varð nú breyting. Fyrir tilstilli hins kappsama framleiðanda og sköpuðar þátt- anna, Gene Roddenberry, og samstillts hóps leikstjóra og leikara urðu þættirnir fastur dagskrárliður í sjónvarpinu og höfðuðu jafnt til yngri sem eldri, átta ára sem áttræðra. Star Trek reyndist ekki vera enn eitt geimrusl sem gleymist. Porsónurnar Vinsældir þáttanna verða ekki aðeins raktir til hraðrar at- burðarásar og spennu eða nýst- árlegs geimumhverfis með tölv- um, geislabyssum og geimverum. Boðskapurinn í Star Trek og skil hinna ólíku manngerða í röðum yfirmanna geimskipsins á hon- um eiga sinn þátt í vinsældun- um. Boðskapurinn er í stuttu máli sá að mannshuganum sé þekk- ingarleitin eðlislæg og þekking og góðmennska þurfi að fara saman til að vel fari. Sú mann- gerð sem hrífur hugi manna mest er ekki Kirk skipstjóri, fulltrúi dugnaðar og mannlegra tilfinninga, eða aðrir jarðarbúar í áhöfn hans heldur fyrsti stýri- maðurinn, Mr. Spock, frá eld- fjallaplánetunni Vúlkan, með uppmjó eyru, ygglibrún og grænt blóð. Hann er rökvísin og þekkingin uppmáluð og hefur lausn á hverjum vanda, en hefur jafnframt megnustu fyrirlitn- ingu á mannlegum tilfinningum. Hvorugur getur þó án hins verið. Aðdáendurnir Eftir að búið var að sýna Star Trek í sjónvarpinu í tvö ár ætlaði NBC að hætta að fram- leiða þættina vegna þess að kannanir sýndu að áhorfendur væru ekki eins margir og best gerðist. En þá skeði undrið. Tugþúsundir bréfa streymdu inn til sjónvarpsstöðvarinnar, kröfu- göngur voru farnar og greinar skrifaðar í mótmælaskyni. Þetta var fyrsta nasasjónin af hinum stóra hópi Star Trek-aðdáenda um heim allan. NBC neyddist til að halda Star Trek lifandi og framleiddi fleiri þætti en aðeins í eitt ár. Þá héldu flestir að þeir væru búnir að syngja sitt síð- asta. En þá átti annað undur sér stað. Byrjað var að gefa út bækur um Star Trek, jafnt vísindaskáldsögur sem heimilda- bækur um þættina og hefur það haldist til dagsins í dag. Að- dáendaklúbbar voru stofnaðir og hundruð Star Trek-tímarita voru gefin út á vegum þeirra. Reglubundnar endursýningar þáttanna hafa magnað þessi áhrif og fjölgað fylgismönnum. Star Trek-þættirnir seldust víða um heim, m.a. til flestra Geimvera úr óvinahcrhúðum Evrópulanda, og rak jafnvel á strandir austantjalds. Sú spurn- ing vaknar hvers vegna þættirn- ir hafi ekki verið sýndir hér á landi nema á myndböndum. Of dýrir fyrir íslenska sjónvarpið geta þeir varla verið því að þeir elstu eru orðnir 15 ára gamlir. Kvikmyndin Frekari tilraunir til að fá fleiri þætti gerða en þá 79 sem nú voru til runnu út í sandinn en Paramount-félagið sem hafði séð um framkvæmd þeirra sam- þykkti að síðustu að gera kvik- mynd um sama efni. Þótt tíu ár væri nú liðin frá gerð síðasta þáttarins tókst Gene Rodden- berry, manninum á bak við Star Trek, að safna saman öllum gömlu leikurunum og reka smiðshöggið með kvikmyndinni Star Trek (Star Trek — The Motion Picture). Þeir sem kynnst hafa sjónvarpsþáttunum kunna auðvitað best að meta hana. Það er þó óhætt-að mæla með henni fyrir unga sem gamla, því að hér er á ferðinni fyrsta flokks vísindaskáldskapur. Marteinn Þórisson Starfsmannafélög útvarps og sjónvarps: Ekki eitt einasta dæmi um pólitíska misnotkun fréttamanna í starfi MORGUNBLAÐINU barst í gær cftiríarandi ályktun, sem samþykkt var í fyrrakvöld á sameiginlegum fundi starfs- mannafélags útvarps og sjón- varps: „Fjórir útvarpsráðsmenn hafa í hókun 11.9 '81 veist að fréttamönnum Ríkisútvarpsins með þeim hætti að ekki verður flokkað undir málefnalcga gagnrýni. I ályktun fjórmenn- inganna segir að „trúnaðarbrot fréttamanna og formleg tengsl sumra þeirra við ákveðna stjórnmálaflokka vcki tor- tryggni og kalli á pólitiskar deilur, eins og dæmin sanni.“ Enn einu sinni hafa útvarps- ráðsmenn byggt afstöðu sína á pólitík í staðreynda stað og má ætla að annað hvort séu þessir menn ekki starfi sínu vaxnir eða þá að núverandi fyrirkomu- lag útvarpsráðs sé ekki heppi- legt til þess að tryggja hag almennings og stofnunarinnar. Það má heita hlálegt að starfsmenn Rikiútvarpsins þurfi að minna útvarpsráðs- menn á að fréttamenn njé»ta sömu mannréttinda og aðrir þjóðfélagsþegnar. Þeir hafa full leyfi til þcss að hafa pólitíska skoðun og vera i pólitiskum flokki svo framar- lega sem það kemur ekki fram í starfi þeirra. Eðlilegt er að þeir sæti gagnrýni sé um slíkt að ræða. Sé réttu máli hallað með einhverjum hætti er vitaskuld eðlilegt að gagnrýni sé sett fram og leiðréttingu komið við. Hvorki síendurteknar árásir Vilmundar Gylfasonar alþing- ismanns á fréttamenn ríkis- fjölmiðlanna nú undanfarnar 'dkur, né bókun fjögurra út- varpsráðsmanna síðastliðinn föstudag getur flokkast undir málefnalega gagnrýni heldur at- vinnuróg af versta tagi. Þeir útvarpsráðsmenn sem nú hafa veist að fréttamönnum Ríkisútvarpsins hafa ekki getað bent á eitt einasta dæmi um að fréttamenn hafi misnotað starf sitt í pólitískum tilgangi. Starfs- menn Ríkisútvarpsins fagna traustsyfirlýsingu fram- kvæmdastjórnar stofnunarinnar og mótmælum hennar gegn þeim órökstuddu dylgjum sem fram hafa komið í útvarpsráði." Kaupir 5 sek.l af Hitaveitunni smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar húsnæöi óskast Ibúö óskast Hjón með 2 börn, nýkomin úr námi erlendis, óska eftir 3ja—5 herb. íbúð. Upplýsingar í síma 92-3465. Tveggja herb. íbúö Ungur verkfræðingur óskar eftir aö leigja 2ja herb. íbúö í 1 ár. Upplýsingar í sima 38590 á skrifstofutíma eöa 25401 eftir kl. 19. Ljósprentun — Fjölritun — Vélritun — Ljósritun Ljósprentun húsateikninga, bréf og plasttransparent. Frágangur útboösgagna. Vönduö vinna, fljót afgreiösla, bílastæöi. Ljósborg hf., Laugavegi 168, Ðrautarholtsmegin, s. 28844. Ljósritun — Smækkun Fljót afgreiðsla, bílastæði. Ljósfell, Skipholtl 31, s. 27210. Innflytjendur Get tekið að mér að leysa úl vörur. Umboö sendist Morgun- blaöinu merkt: „T — 1994“. IOOF 12 =16391881 = IOOF 12 = 1639188V? = FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11798 og 19533. Helgarferðir: 18. -20. sept. kl. 20 Land- mannalaugar. 19. -20. sept. kl. 08 Þórsmörk — haustlitaferö. Farmiöasala og allar upplýsingar á skrifstofunni, Öldugötu 3. Ferðafélag islands. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR 11798 og 19533. Dagsferðir sunnudag- inn 20. sept.: 1. kl. 10 Hátindur Esju. 2. kl. 13 Hofsvik — Brimnes. Verö kr . 40 - Farið frá Umferðamiöstööinni, austanmegin. Farmiöar viö bíl. Ferðafélag íslands. Fíladelfía Bænavikan heldur áfram. Ðæna- samkomur daglega þessa viku kl. 16 og 20.30. \l (il.YSINf, XSIMIVN Klí: ^ 22480 JllorgunMntiiti | atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna | Suðurnes — Skrifstofustarf Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar Dagvistun barna, Fornhaga 8. Sími 27277. Fyrirtæki á Suðurnesjum með vaxandi starf- semi óskar að ráða starfsmann til ritara- og almennra skrifstofustarfa. Umsækjandi þarf aö hafa góða vélritunar- kunnáttu og gott vald á íslenzku og ensku. Umsóknir, með uppl. um aldur, menntun og fyrri störf sendist Endurskoðun hf., Suður- landsbraut 18, Reykjavík, fyrir 25. september nk. endurshoöun hf Suöurlandsbraut 18, 105 Reykjavík, sími 86533 Starf for- stööumanns Grænuborgar er laust til umsóknar. Fóstrumenntun áskilin. Láun samkvæmt kjarasamningi borgar- starfsmanna. Umsóknarfrestur er til 4. október. Umsóknir sendist til skrifstofu Dagvistunar, Fornhaga 8, en þar eru veittar nánari upplýsingar. Starfsfólk óskast strax í skreiðar- og saltfisksverkun. Uppl. í síma 92-1559 á morgun til kl. 16.00 og 92-1849 eftir kl. 8 annaö kvöld. Lögmannsstofa Lögmannsstofa óskar eftir að ráða starfs- mann eftir hádegi, hálfan daginn. Góð vélritunar- og íslenskukunnátta áskilin. Upplýsingar um fyrri störf, aldur og menntun, sendist Morgunblaðinu fyrir 25. september nk. merkt: „Lögmenn — 7586“.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.