Morgunblaðið - 18.09.1981, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1981
„VILKtkópO EE>A TRcSpiCANASAFA?"
ást er...
... að taka dreng-
ina sína með í
göngutúr
TM Reg US Pat Oft all nghts reserved
® 1979 Los Angeles Times Syndicate
Ertu harður á því að þú ok
hann fra'ndi þinn sáluKÍ hafið
aAoins vcrið ósammála um eitt
minniháttar atriði?
„ Mú þjarrts no jfrjn t/r>/o
xúu od/a/i//? r?.. "
„Varla líður sú vika að síminn
sé ekki meira og minna bilaður44
Til Velvakanda.
V.A. skrifar:
í Morgunblaðinu 28. ágúst sl.
birtist frétt undir fyrirsögninni
„Landeyjar og Eyjafjöll; Sjálf-
virkur sími fyrir jól“.
Mig langar til að leiðrétta þessa
frétt. Sannleikurinn er sá að verið
er að leggja jarðlínur fyrir sjálf-
virkan síma í Landeyjar og fjóra
bæi vestan Markarfljóts, sem til-
heyra Vestur-Eyjafjöllum. Aðrir
sveitabæir undir Eyjafjöllum fá
ekki sjálfvirkan síma í náinni
framtíð að sögn ráðamanna Pósts
og síma við Austurvöll.
Um leið og ég samgleðst Land-
eyingum og Hólmbæingum, hlýt
ég að harma að Póstur og sími sjái
sér ekki fært að byggja nokkura
fermetra kofa yfir stöð hjá Stein-
um, sem keyptur var til landsins í
fyrra, ef mark er takandi á orðum
ráðamanna þess fyrirtækis, en
Eyfellingar taka orðið öllu með
miklum fyrirvara sem úr þeim
búðum heyrist, svo margar eru
þversagnirnar þaðan orðnar.
Ófremdarástand hefur ríkt í
símamálum undir Eyjafjöllum
síðan símstöðvarnar í Skarðshlíð,
Varmahlíð og Seljalandi voru
lagðar niður og „þjónustan" flutt í
símstöðina á Hvolsvelli, 60 km frá
Skarðshlíð.
Varla líður sú vika að síminn sé
ekki meira og minna bilaður,
viðgerðarþjónusta í lágmarki og
flest í óiestri í símamálum hér í
sveit. Litið verk er að ljúka við
línulagnir hér, sjálfvirkur sími er
kominn í Skógaskóla og Búnaðar-
bankann Skógum — en þar þjónar
ríkið sjálfu sér augljóslega og án
sérstakrar fjárveitingar á fjárlög-
um. Einnig er kominn sjálfvirkur
sími í útibú hf. Þór í Skarðshlíð,
kannski fyrir tilviljun?
Krafa sveitafólksins er bætt
þjónusta með sjálfvirkum síma en
ekki Ioforð án efnda og undan-
færslur ráðamanna ár eftir ár, eða
misskilningur í fréttaflutningi. Ef
til vill liggur leiðin til bættrar
þjónustu til handa Eyfellingum
gegnum útvarpsþáttinn „Um dag-
inn og veginn" eins og Landey-
inga?
Eyfellingur.“
Þessir hringdu . . .
Indriðatorg — ætla
borgaryfirvöld ein-
hvern tíma að koma
því upp?
Hjörtur Hjartarson hringdi:
„Mig langar að koma smá fyrir-
spurn á framfæri varðandi svo-
nefnt Indriðatorg, sem eitt sinn
stóð til að komið yrði upp hér í
borginni.
Þannig er mál með vexti að
þegar Þjóðleikhúsið var tekið í
notkun 20. apríl 1950, að því er
mig minnir, var mikið um það
rætt að gera torg fyrir framan
leikhúsið. Eins og allir Reykvík-
ingar vita er stórt autt svæði
þarna fyrir framan Þjóðleikhúsið
sem nú er notað sem bilastæði.
Ekki man ég hver átti uppruna-
lega hugmyndina að því, en þarna
skyldi ryðja torg til virðingarauka
leikhússins og til að setja meiri
svip á umhverfi þess. Átti torgið
að heita Indriðatorg eftir leikhús-
frömuðinum Indriða Einarssyni,
sem einnig var leikritaskáld.
En nú um langt skeið hefur
verið alveg hljótt um þetta mál,
það hefur varla heyrst nokkur
rödd um þetta — hvort hætt hafi
verið við að gera þetta eða hvort
það stendur til einhvern tíma í
framtíðinni. Ég og eflaust fleiri,
hefðu gaman af því að vita hvort
þetta væri enn á áætlun hjá
borginni."
Skattamál —
kirkjuyfirvöld eru
máski á varðbergi
Skattgreiðandi hringdi:
„Þegar álagningu opinberra
gjalda er nú lokið og litið er yfir
útreikninginn þykir mér sem
málshátturinn „að margur sníði
breiðan þveng af annars skinni",
sannist á yfirvöldum í skattamál-
um.
Eitt atriði er ámælisvert og
skylt að leiðrétta, en það er:
mismunað er um fastan frádrátt
frá útsvari af launum, því hjónum
í vígðri sambúð eru ætluð 10
prósent hvoru í fastan frádrátt, ef
ekki er tekinn D- og E-frádráttur,
en sambúðarfólki er veittur ein-
staklingsfrádráttur, gkr.
797.500.00 hvoru.
Eftir að tekið var upp skatt-
framtal fyrir hvern einstakling
virðist það tímaskekkja að tala
um hjónaafslátt.
Ef skattyfirvöld mismuna gift-
um hjónum, gæti sú stefna ýtt
undir óvígða sambúð frekar en