Morgunblaðið - 16.10.1981, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981
39
LÍFSSTÍLL
Rætt við Kristleif Þorsteinsson
ferðamannabónda í Húsafelli
um starfsemina þar
leifs bónda, að sóknargestir
væru að jafnaði um fimmtíu tals-
ins og margir þeirra væru sum-
ardvalargestir í Húsafelli.
Ef fólk hefur áhuga á aö
skoða fjarlægari staði, annaö
hvort fótgangandi eöa akandi,
þá er gaman aö fara upp aö
Surtshelli, sem er í um 13 kíló-
metra fjarlægð frá Húsafelli.
Arnarvatnsheiöi er heldur ekki
langt undan og þar er hægt aö
renna fyrir silung.
Þaö eru fáir sumarleyfisstaðir
hér á íslandi, sem bjóöa upp á
útsýnisflug og leiguflug. Krist-
leifur og synir hans, Þorsteinn
og Bergþór, hafa byggt flugvöll í
landi sínu. Nú er veriö aö
stækka hann og verður hann
800 metrar. Þeir Þorsteinn og
Bergþór eiga flugvél af geröinni
Cessna Skyhawk HFL og bjóöa
þeir meðal annars upp á útsýn-
isflug og er aö sögn þeirra, sem
hafa fariö í slíkt flug afar fallegt
yfir aö líta, þar sem flogiö er yfir
Langjökul og nágrenni. Flug-
mennirnir eru vel hæfir, Þor-
steinn hefur atvinnuflugmanns-
próf og bróöir hans einkaflug-
mannspróf.
Þeir sumardvalargestir sem
hafa önnur áhugamál en nátt-
úruskoöun og gönguferöir geta
til dæmis fengiö leigöa hesta aö
Bjarnarstöðum á Hvítársíðu,
sem er í nágrenni Húsafells og
látiö gamminn geysa um grænar
grundirnar. Félagsskapurinn
Langjökull hf. hefur veriö meö
skíöastarfsemi í Langjökli. Á
vorin er komið með traktor og
sett upp toglyfta neöst í jöklin-
um og er hægt aö stunda skíöi
þar fram eftir sumri.
Kristleifi bónda finnst aö bú-
staðaeigendur, hvort sem það
eru einstaklingar eöa félög, ættu
aö nýta bústaöi sína betur á vet-
urna. Því aö á Húsafelli og í
nágrenni þess er gott skíöaland
bæöi til iökunar svigskíöa og
fyrir skíöagöngur. Hægt er aö
fara í sundlaugina eöa bara
liggja í leti eins og Kristleifur
orðaði þaö.
Þaö er búið aö byggja upp
skemmtilega starfsemi aö Húsa-
felli og að sögn Kristleifs, þá á
aðstaöan eftir aö veröa betri.
Sagöist hann stefna aö því aö
gera Húsafell aö skemmtileg-
asta sumarbústaðalandi í heimi.
Hvort sem þetta var sagt í al-
vöru eða bríeríi, þá er Kristleifur
og fjölskylda hans á góöri leiö
að þessu takmarki.
Drðfn Baldvinsdóttir, sonurinn Fjalar og hundurinn Dolly í hjólhýsinu í
góóu yfirlæti. l.jórnn.: Krintján Einanwon.
Notar bala og
þvottabretti
Rætt við Dröfn Baldvinsdóttur
Dröfn Baldvinsdóttir og synirnir
Fjalar og Egill, dóttirin Björk og
hundurinn Dolly dvöldu í hjólhýsi í
Húsafelli.
Sagöi Dröfn, þegar viö heimsótt-
um hana, að þetta væri þriöja
sumariö í röö sem þau dveldu þarna.
Þegar komið væri vor þá linntu
krakkarnir ekki látunum fyrr en fariö
væri upp í Húsafell, því þau vildu
hvergi annars staöar vera á sumrin.
Dóttir Drafnar, sem oröin er 14
ára, vinnur viö sundlaugina og annar
strákurinn, sem er 12 ára, er bensín-
tittur í þjónustumiðstööinni.
„Þaö er alltaf sama fólkiö sem
kemur hingaö ár eftir ár,“ sagöi
Dröfn, „og þó ég sé ein núna með
börnin og hundinn, þá er svilkona
mín venjulega í hjólhýsi viö hliöina."
Sagöist Dröfn hafa ágætis að-
stöðu í hjólhýsinu, sem væri sæmi-
lega rúmgott og með fortjaldi. í þvi
væri ágætis eldunaraöstaöa og svo
hefði hún kælibox. Allt óhreint tau,
kvaöst hún þvo í bala og notar viö
það þvottabretti og síðan hengir hún
þvottinn á snúru. Kvaöst hún hafa
gaman að því að þvo viö svo frum-
stæöar aðstæöur og ekkert sakna
þvottavélarinnar.
„Þaö er góður samgangur á meö-
al fólksins hér og aldrei þarf aö
kvarta undan hávaöa eöa látum,“
sagöi Dröfn. Kvaöst hún eyöa tíma
sínum i útsaum og einnig færi hún
mikiö í sundlaugina og á haustin í
berjamó, en Húsafell væri einstak-
lega gott berjaland.
Húsafellskirkja var reist af áhugafólki. Þó hún sé ekki sóknarkirkja, þá er messaó þar annan hvern sunnudag og
eru sumardvalargestir í Húsafelli stór hluti kirkjugestanna.
Daglegt
Hildur Einarsdóttir
Gamiir legsteinar úr kirkju-
garói Húsafellskirkju, sem ver-
ið var aó hreinsa og gera vió.
Si'
Gæsin Rósa er afar gæf og í
miklu uppáhaldi dvalargesta.
„Skemmti-
legt
verkefni“
- segir Sveinn Gústafs-
son, sem sér um greiða-
sölu að Húsafelli
Sveinn Gústafsson rekur
Þjónustumiöstööina í
Húsafelli, þar sem fæst ýmis-
legt matarkyns svo sem allar
nauösynjavörur, gosdrykkir og
sælgæti. Sagöi Sveinn, að
hann hefði tekið við Þjónustu-
miöstöðinni í vor en Sveinn er
viöskiptafræöingur aö mennt,
svo verslunin er í góðum hönd-
um auk þess sem hann nýtur
aðstoðar dætra sinna þeirra
Önnu og Dagbjartar.
Aödragandinn að því, aö
hann tók viö Þjónustumiðstöð-
inni var sá, aö síðastliðna
Hvítasunnu dvaldist hann
ásamt fjölskyldu sinni í VR.
sumarbústaðnum í Húsafelli.
Kynntist hann Kristleifi bónda
og tóku þeir tal saman. Út úr
þeim samræðum kom sú
ákvörðun, aö Sveinn tæki
Þjónustumiöstöðina á leigu yfir
sumariö. Sagði Sveinn, að vin-
ir og kunningjar heföu haldið
aö hann væri aö verða eitt-
hvaö skrítinn að taka slíka
ákvöröun og segja skilið viö
skrifstofustólinn, en þeir vissu
ekki hvers þeir væru aö fara á
mis. Því sumarið væri búiö aö
vera einstaklega skemmtilegt
og heföi hann kynnst mörgu
ágætu fólki og upplifað
skemmtilega atburöi. Kvaðst
Sveinn ákveðinn í að reka
Þjónustumiöstööina aö Húsa-
felli aftur næsta sumar.
„Gott aö vera laus viö borgarysinn"
- segja hjónin Signý Guöbjartsdóttir og Birgir Gunnlaugsson
í reisugilli var einn sumarbústaöurinn í Húsafelli skíröur Sig-
nýjarstaöir. Eigendur Signýjarstaöa eru hjónin Signý Guðbjarts-
dóttir og Birgir Gunnlaugsson, en Birgir spilar í hljómsveit sinni,
sem heitir í höfuöiö á honum og skemmtir hún gestum Hótel Sögu
á sumrin, eins og flestir vita.
Þau hjónin eiga fjögur börn á unga aldri. Þau kváðu þaö afar
gott, aö eyöa sumrinu fjarri borgarysnum og malbikinu. Börnin
nytu sín vel og þau þyrftu ekki aö hafa áhyggjur af bílaumferð og
öðrum hættum, sem steðja aö ungum borgurum.
Sumarbústaðinn keyptu þau hjón af Húsasmiðjunni en síöan
innréttaði Birgir bústaöinn og smíöaöi flest húsgögnin sjálfur.
Sagöist Birgir ekki hafa uppgötvað smíðahæfileika sína fyrr en þau
réðust í sumarbústaðarkaupin!
I sumar eyddi fjölskyldan tveimur mánuöum í Húsafelli. Um
helgar fór Birgir til Reykjavíkur til aö spila á Sögu og um leið fór
hann meö óhreint tau og setti í þvottavélina áöur en hann hélt
aftur í sveitasæluna.
Kvaöst þeim hjónum aldrei leiöast í sumarbústaönum. Þau færu
í sund auk þess sem nóg væri aö starfa í kringum sumarbústaðinn
og börnin. Sögöu þau aö það ríkti einstaklega góður andi meðal
þeirra, sem dveldu að Húsafelli.
Hjónin Signý Guóbjartsdóttir og Birgir Gunnlaugsson ásamt börnunum Þorsteini Má, Hlaógerði Iris og
Drífu Birgittu, yngsta barniö sem er nýfætt lá inni í rúmi. I.jósm. Kristján Einarsson.