Morgunblaðið - 16.10.1981, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981
41
MEZZOFORTE: FRIORIK KARLSSON EYÞÓR GUNNARSSON, BJÖRN THORAR-
ENSEN, EIRÍKUR INGÓLFSSON („LJÓSI" OG ,,UMBI“) OG JÓHANN ÁSMUNDSS-
ON. GUNNLAUGUR VAR AO KENNA. (LJÓSM. EMILÍA.)
hefur líka aldrei staðið til að
græða pening á þessu. Þetta er
gaman. Við vorum fyrst nú um
daginn að fá pening fyrir fyrstu
plötuna. Það er nú svoleiðis hér,
að tónlistarmenn fá yfirleitt varla
grænan eyri nema í höfundarlaun.
Við höfum þó fengið dálítið af
stúdíóvinnu. Þannig erum við til
dæmis að fara að taka upp plötu
með Hauki Morthens núna.“
Söngur kvedinn niður
„Nýja platan er ennþá nafnlaus
og lögin heita bara númer þetta og
hitt. Hún kemur sem sagt út í
næsta mánuði en eitthvað verður
beðið með að gefa hana út í Eng-
landi. Ætli það verði ekk. gefin úr
lítil plata fyrst þar ytra með lög-
um af henni. Það verður varla fyrr
en eftir áramót. Hin platan okkar
er svo nýlega komin á markað þar.
Luxor
LITASJONVORP
20“ Verö kr. 9.300.- meö
hjólstelli
22“ Verö kr. 10.860.-
með hjólastelli.
26“ Verö kr. 12.150.-
meö hjólastelli
Sænsk hönnun ★
Sænsk endiníj ★
Bestu kaupin! ★
hljömtækjadeild
Úhj) KARNABÆR
W LAUGAVEGI 66 SÍMI 25999
Utsolustaðir Karnabær Laugavegi 66 —
Karpabær Glæsibæ — Fataval Ketlavik —
Portið Akranesi — Patrona Patreksfirði —
Eplið Isafirði — Affholl Siglufirði —
Cesar Akureyrl — Bókav Þ S Husavik —
Hornabær Hornafirði — M M h f Seltossi —
Eyjabær Vestmannaeyjum A
Við erum mjög ánægðir með
samstarfið við Steinar. Hann sér
um peningahliðina, við um mús-
íkkina. Þetta hefur gengið prýði-
lega allt saman.
Jú, það er alltaf verið að spyrja
okkur út í þetta með sönginn og
við höfum rætt um þetta, en það
hefur alltaf verið kveðið niður
með skynsamlegum rökum. Lag-
línurnar hjá okkur eru líka fæstar
almennilega sönghæfar. Við höf-
um aldrei vanist þvi að semja
fyrir söng. Það er svo sem ekki
útilokað að við eigum það eftir.
Það er mikið að gerast í tónlist-
inni hér núna og sumt af því er
gott. Það er til dæmis að vaxa úr
grasi ný kynslóð af metnaðarfull-
um hljóðfæraleikurum í FÍH-
skólanum. Sumt af þessari ný-
bylgju hérna er hins vegar heldur
fátæklegt og ekkert nýtt í því. En
það er jákvætt að menn skuli vera
að semja sína eigin tónlist í stað
þess að herma eftir útlenskum
hljómsveitum. Eftir tvö til þrjú ár
fara að síast úr þessu bestu
hljómsveitirnar og hinar hverfa.
Það sem maður saknar stundum í
sambandi við þetta, er það hvað
lítið er lagt upp úr því að gera
vandaða hluti. Sumum finnst nóg
að eiga gítar og græjur til að vera
músíkant."
Höldum bara áfram
„Hvað gerist í framtíðinni er
ekki gott að segja. Við höldum
áfram að reyna að gera okkar
tónlist sem besta. Hvort hún svo
selst eitthvað erlendis er ekki á
okkar valdi. En i augnablikinu er
útlitið nokkuð gott hvað það
snertir. Alla vega í Englandi, að
því er fróðir menn telja.
í nánustu framtíð verðum við
með hljómleika á ýmsum stöðum
til að kynna plötuna. Fyrstu
hljómleikarnir voru reyndar sl.
laugardag í klúbbi NEFS. Þeir
tókust prýðilega. Það er mun
skárra að spila í Félagsstofnun
núna, eftir að sviðið var sett upp
og tjaldið í loftinu gerir kannski
eitthvert gagn líka.
Svo förum við sjálfsagt að huga
að næstu plötu. Við erum á góðri
leið, finnst okkur, svo við höldum
bara áfram." — SIB.
Greta Garbo og John Gilbert 4
meðan 4 töku kvikmyndarinnar
Kriatín drottning atóö.
Fyrsta myndin, sem Greta lék í
átti aö vera undir stjórn Stiller, en
vegna ósamkomulags viö ráöa-
menn var annar leikstjóri látinn
taka viö. Stiller leikstýröi þremur
myndum fyrir „Paramount", en hólt
aftur heim til Svíþjóöar, vegna lé-
legrar heilsu, og lóst þar áriö 1928.
Mörgum árum eftir dauöa hans
talaöi leikkonan um hann eins og
hann væri enn á lifi og fylgdist meö
frama hennar af áhuga.
í Hollywood var fyrsta kvikmynd
Gretu Garbo „The Torrent” áriö
1926, „The Temptress" áriö 1927
en síðan kom aö myndinni „Flesh
and the Devil“ áriö 1927 þar sem
þau léku saman John Gilbert og
hún.
Ástarsenur þeirra, í þeirri mynd,
þykja sjálfsagt ekki djarfar nú til
dags, en á þeim tíma, sem myndin
var sýnd, voru kvikmyndagestir
ekki vanir aö sjá svo áköf faömlög
og innileg, á tjaldinu. Þau uröu
ástfangin hvort af ööru Greta
Garbo og John Gilbert eins og sjá
mátti í þættinum um þau, sem var
í sjónvarpinu 11. okt. sl.
En sagan um brúökaupiö sem
átti aö veröa, er þó rituö ööruvisi,
ef marka má æfisöguritara leik-
konunnar.
Gilbert haföi taliö Gretu á aö
hlaupast á brott meö sér („elope"
eins og þaö heitir á enskri tungu)
en hún missti kjarkinn þegar á
hólminn var komiö og faldi sig inni
á snyrtiherbergi kvenna. Gilbert
rauk þá til og giftist annarri leik-
konu, Ina Claire, (sem reyndar lék
síöar með Garbo i kvikmyndinni
„Ninotchka") en skildi viö hana
strax aftur.
Rödd Gilberts eyöilagöi fyrir
honum möguleika á hlutverkum
þegar talmyndirnar komu, hann
var drykkfelldur og fór illa meö sig.
Greta Garbo baröist fyrir því aö
hann fengi hlutverkiö á móti henni
í Kristínu drottningu, í staöinn fyrir
Laurence Olivier, og haföi sitt fram
í þeim efnum.
John Gilbert lést af völdum
hjartabilunar áriö 1936, einmitt
þegar alit var á uppleið meö feril
hans sem leikara.
Eftir því, sem æfisöguritarar
Gretu Garbo segja, slapp hún rótt
naumiega við aö ganga í hjóna-
band í þrígang eftir þetta, og von-
biölarnir voru leikstjórinn Rouben
Mamoulian (sem stjórnaöi upptöku
á Kristínu drottningu), hljómsveit-
arstjórinn Leopold Stokowski og
rithöfundurinn Gaylor Hauser.
Greta Garbo geröist bandarísk-
ur ríkisborgari áriö 1953 og býr nú
í New York. Hún reynir aö láta lítið
á sér bera, eins og áöur segir, fer
þó í gönguferöir um borgina og í
verslanir. Hún á sinn vinahóp, býö-
ur heim fólki og fer annaö. I einu
samkvæmi fyrir nokkrum árum,
spuröi leikarinn Richard Burton
hana hvort hann mætti kyssa á
henni hnéö. „Sjálfsagt," sagöi hún
og Burton beygöi sig niöur og
kyssti hana.
Greta Garbo er sögö hafa haft
minnimáttarkennd vegna stórra
fóta sinna. Leikstjórinn Erich von
Stroheim sagöi einu sinni viö hana:
„Ég skal segja þér, fæturnir á þér
eru ekki eins Ijótir og fólk segir".
Hann sagöi svo frá aö hún hafi
beinlínis Ijómaö af ánægju viö aö
heyra þetta.
Þess má geta að veturinn
1962—63 sýndi ítalska sjónvarpiö
Garbo-myndir og þau kvöld, sem
þær voru á skjánum, minnkaöi aö-
sókn aö kvikmyndahúsum um
75%. Bendir þaö til þess, aö þaö
hafi ekki eingöngu veriö eldra fólk-
iö, sem fylgdist meö sjónvarpinu
þau kvöldin.
Er enginn vafi á, aö enn finnst
fólki Greta Garbo búa yfir ein-
hverjum þeim persónutöfrum sem
erfitt er að skilgreina. Þó aó síöan
hafi komiö margar fallegar og hæf-
ar leikkonur fram á sjónarsviöiö,
segja þeir, sem séö hafa hana í
kvikmyndum, aö hún sé óviöjafn-
anleg.
(B.l. tók saman og þýddi.)