Morgunblaðið - 16.10.1981, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981
55
Winnipeg er fimmta sUersta borg Kanada og höfuðborg Manitoba-fylkis, og þar búa um 580.000 manns og sinna
margvíslegum störfum. Mynd þessi er fengin að láni úr Canadian Handbook, ágætu uppsláttarriti um Kanada, og
sýnir, þar sem strætin Portage og Main mætast í Winnipeg-borg.
Er Winnipeg stöðnuð borg?
R.B. skrifar:
„JFÁ skrifar grein í Morgun-
blaðið 27. september, sem nefnist:
„Útdráttur úr reisubók eða frá-
sögn af ferð kórs Langholtskirkju
til Kanada og Bandaríkjanna."
Ég las greinina og furðaði mig á
ýmsu, sem þar kom fram. Grein-
arhöfundur segir t.d. að kórfélag-
ar hafi verið í nokkra daga að
jafna sig eftir að hafa séð Niag-
arafossana! Hafði fólkið aldrei
séð fossa áður? Reyndar hefði
þetta ekki snert mig svo mjög, ef
ég hefði ekki séð síðar í sömu
grein að það er rétt eins og ferða-
fólkið hafi átt von á fossum eða
fjöllum inn í miðri Winnipeg. Þar
af leiðandi kveður hann þar vera
„litla tilbreytingu í landslagi,
ekki mikið að sjá og að Winnipeg
sé staðnaður bær“.
Ég undirrituð hef dvalist í borg
þessari. Mér fannst ýmislegt vera
að sjá þar og borgin fjarri því að
vera stöðnuð. Ég sá t.d. tvær ár,
sem renna gegnum borgina, önn-
ur heitir Red River og hin heitir
Assiniboine, á árbökkunum vaxa
falleg tré og blóm. Einnig sá ég
fagra trjágarða, þar sem voru
borð og bekkir og fjöldi manns
kom þar og naut útsýnisins.
Leiklist og tónlist standa með
miklum blóma. Ég skoðaði fagrar
byggingar og söfn borgarinnar,
en þau eru fræg um Kanada og
víðar. Sjálfur nefnir JFÁ Cen-
tennial Concert Hall. Fann hann
þar til stöðnunar? Manitoba-
háskólinn er víðfræg stofnun og
sækir hann fólk úr öllum heims-
álfum og komast þar færri að en
vilja, enda eru kennarar þar frá-
bærir, m.a. prófessorinn sem tók
á móti kórnum við komuna til
þingi. Ég óska honum og Sjálf-
stæðisflokknum allra heilla um
ókomna tíð.
Winnipeg. Þarna er erfitt að sjá
merki um stöðnun. Furðuleg er sú
fáfræði höfundar að finnast
merkilegt að hitta íslenskumæl-
andi fólk á elliheimilinu i Selkirk.
Heldur eru þetta kaldar kveðjur
til borgar, sem höfundur þekkir
greinilega ekkert til, og ætti hann
að fara þangað sem fyrst aftur og
kynna sér hana betur, en flóð-
lýsta fossa finnur hann þar
aldrei."
ntnRr.UNBLADiD, gimWUPAOUK Tl-Í
Utdráttur
úr reisubók
Frásögn af ferð kórs
Langholtskirkju #
um Kanada og Bandanki
Norður-Ameríku
■ _ — ‘ —i* —* Wtr
um. rvrópwkrl klrklumáslk Irt IMu o«
i7Hu old ÍHlenskum norrmnum nu-
s.
Kúr Lun*holt»klrkju J‘om
Iknt-rsr- voru Urnú I Ko,br4n ll.rúurúúalr
Athugasemd blaðamanns
RB tekur skakkan pól í hæðina.
Umræddur þáttur var saminn af
blm. Mbl. uppúr blöðum kórs
Langholtskirkju og af samræðu
við nokkra meðlimi hans — eins
og tekið var fram þegar hann birt-
ist. J.F.Á. getur semsé ekki farið
„sem fyrst aftur“ til Winnipeg og
„kynnt sér borgina betur“, af því
hann hefur aldrei komið þangað.
J.F.Á. hefur enga skoðun á því
hvort Winnipeg sé stöðnuð borg
eða ekki, en það er vafasamt að
nátturulýsingar RB skeri úr um
það. Það segir ekkert þó Manit-
oba-háskóli sé víðfræg stofnun —
honum var komið á fót árið 1877
og hefur staðið með blóma meir og
minna síðan (sérílagi eftir fyrra
stríð), og afsannar það ekkert um
stöðnun í bænum nú — og þaðan
af síður þær upplýsingar að tvær
ár renni gegnum bæinn. Aftur á
móti er fært á skýrslur að fólks-
fjölgun í Manitoba-fylki hafi ekki
verið að meðaltali nema 0,7% á
árunum 1961—76.
RB spyr hvort fólkið hafi aldrei
séð fossa áður — jú, það hafði séð
fossa áður, en aldrei Niagarafoss-
ana. Og „fáfræði" er óskylt mál
við það, að finnast „merkilegt" að
hitta íslenskumælandi fólk fjarri
íslandi. Öllum hiýtur að finnast
merkilegt að kynnast sliku af eig-
in raun. Saga Islendinga í Vestur-
heimi er ævinlega merkileg, hvort
sem menn vita mikið um hana eða
lítið.
<\%
kraft]
ríomato
^tchup
** ic poww# sW
r*t.N
Nfl WI. 14 OZS. (39/s)
KRAFT
TÓMATSÓSA
'gðgóð gœðav
frá einum þekktasta
matvœlafmmleiöanda Bandarikjanna
Gerið verðsamanburö
SKAUPFÉIAGIÐ
J.F.A.
AUGLYSINGAR:
22480
53^ SIG6A V/öGA í \iLVt$AU
Guðmundur Karlsson
'ó
'vm %vom
LWm YirrrfwM-
MA
WftfTf/S
^USAVfoWX
víamv m r/M
\m vfiA VÍÍMN/