Morgunblaðið - 06.11.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1981
15
Vinningur innan
seiiingar hjá
Korcimoi
Skák
Jóhann Hjartarson
13. einvígisskák
Hvítt: Korchnoi
Svart: Karpov
Drottningarbragð.
1. c4 — e6, 2. Rc3 — d5, 3. d4 —
Be7, 4. cxd5 — exd5.
Hér bregður Korchnoi út af
framhaldi fyrri skáka. Áður lék
hann ætíð 4. Rf3.
5. Bf4 — c6, 6. e3 — Bf5, 7. g4!
Þessi hvassi leikur vakti fyrst
athygli er Botvinnik beitti hon-
um gegn Petrosjan í heims-
meistaraeinvígi þeirra kappa
1963.
7. — Be6, 8. h3 — Rf6, 9. Bd3 —
c5, 10. Rf3 — Rc6, 11. Kfl.
Þessi óvenjulegi leikur er sá
besti í stöðunni því eftir 10. 0-0
— h5, 11. g5 — Re4 stendur
svartur betur.
11. — 0-0, 12. Kg2 — Hc8, 13. Hcl
— He8, 14. dxc5.
Korchnoi afræður að létta
spennunni á miðborðinu til að
gera menn sína virkari.
14. — Bxc5, 15. Rb5 — Bf8, 16.
Rfd4 — Rxd4, 17. Hxc8 — Dxc8,
18. exd4 — Dd7.
Hvítur hefur náð rýmri stöðu
og stendur nokkru betur. Með
næsta leik sínum tekst Korchnoi
að framkalla bakstætt peð í
stöðu andstæðings síns.
19. Rc7 — Hc8, 20. Rxe6 — fxe6,
21. Hel.
Korchnoi beinir spjótum sín-
um að peðinu á e6.
21. — a6, 22. g5 — Re4, 23. Dg4!
— Bb4, 24. He2 — Hf8, 25. f3.
Korchnoi þjarmar stöðugt að
andstæðingi sínum.
25. — D(7, 26. Be5 — Rd2.
Karpov reynir að fara í gagn-
sókn, en hún er of seint á ferð-
inni.
27. a3 — Rxf3, 28. g6! — hxg6, 29.
Bg3.
Betra en 29. axb4 — Rel+, 30.
Hxel - DÍ2, 31. Khl - Dxel, 32.
Dgl — Dd2!, 33. Dxg6 — Ddl, og
svartur nær þráskák.
29. — Be7, 30. Hf2 — Rel+, 31.
Khl.
Svartur kemst nú ekki hjá
liðstapi.
31. — Dxf2, 32. Bxf2 — Rxd3, 33.
Dxe6+ — HÍ7, 34. Bg3 — Rxb2,
35. Dxd5 — Bf6, 36. Bd6 — g5, 37.
Db3.
Tímahraksleikur, en kemur þó
ekki að sök.
37. — Bxd4, 38. De6 — g6, 39.
De8+ — Kg7, 40. Be5+ — Bxe5,
41. Dxe5+ — Kh7.
Hér lék Korchnoi biðleik sem
að öllum líkindum verður 42.
Dxb2. í fregnum frá Merano
hermir að þar bíði menn aðeins
eftir uppgjöf Karpovs.
Búið að taka
við 16.000
lestum af loðnu
Akranpsi 5. nóvember.
í VIKUNNI sem er að líða var land-
að úr tveimur loðnuskipum í Síldar
og fiskimjölsverksmiðjunni hér á
Akranesi. Víkingur AK 100 var með
1320 lestir og Bjarni Ólafsson AK 70
var með 1100 lestir. í dag er verið að
landa úr Sigurfaranum AK 900 lest-
um. SFA er þá búin að taka á móti
16000 lestum af loðnu á yfirstand-
andi vertíð. Útskipanir hafa gengið
eðlilega á afurðum verksmiðjunnar.
Togarinn Krossvík AK 300 er
hér í höfn í dag með um 90 lestir
af blönduðum fiski til vinnslu í
frystihúsunum. Atvinna virðist
vera næg og eðlileg hér ennþá.
Júlíus.
Hádegisverðar-
fundur hjá Hvöt
Á HÁDEGISFIJNDI Hvatar í sjálf-
stæðishúsinu Valhöll á morgun kl.
12—14 verður umræðuefnið Áð lokn-
um landsfundi — næsti áfangi og eru
málshcfjcndur gestir fundarins, þær
Ragnhildur Helgadóttir, fyrrv. alþm.,
og Salome Þorkelsdóttir, alþm.
Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna í
Reykjavík, gengst nú fyrir fjórum
raðfundum um hádegið á laugar-
dögum og er þessi fundur annar í
röðinni. Laugardaginn 24. okt. var
fjallað um breyttar prjófkjörsregl-
ur, en 14. og 21. nóv. verður próf-
kjörsundirbúningur á dagskrá.
í upphafi fundar á morgun verð-
ur kosið í uppstillingarnefnd vegna
aðalfundar Hvatar, sem er fyrir-
hugaður mánudaginn 16. nóv. Á
hádegisfundunum, sem eru öllum
opnir, eru á boðstólum léttar veit-
ingar á vægu verði.
Sýning Jakobs V. Hafstein í Ásmundarsal:
„Mætti hund-
ur heita ef
ég kvartaði"
Rætt við Jakob V. Hafstein um sýninguna
JAKOB V. HAFSTEIN, lögfræðingur og listmálari, sýnir nú í
Ásmundarsal. Á sýningunni, sem er á tveim hæðum, eru 70
myndir, olíumyndir, vatnslitamyndir, olíupastelmyndir, þurrpast-
elmyndir og touchmyndir ásamt blandaðri tækni þessara aðferða
allra. „Ég vildi gjarnan gera mitt til að kynna fyrir fjölmiðlum þá
aðstöðu sem Arkitektafélag íslands býður listafólki í Ásmundar-
sal,“ sagði Jakob í samtali við Morgunblaðið. „Ég tel salinn
hiklaust þriðju beztu sýningaraðstöðuna í höfuðborginni — Ás-
mundur Sveinsson myndhöggvari hefur verið framsýnn maður.
Það mun hafa valdið „hneyksi-
un“ hjá menningarvitum þjóðar-
innar og nokkrum æsinga-
mönnum er ég „braust" inn á
Kjarvalsstaði árið 1975. Kjar-
valsstaðir og kjallari Norræna
hússins, stóru nöfnin í sýningar-
aðstöðu borgarinnar, virðast al-
veg lokaðir fyrir mér. Ég hef
tvisvar sótt um að fá að sýna á
Kjarvalsstöðum síðan ég sýndi
þar 1975, en fengið neitun í bæði
skiptin, skriflega. Jafnoft hef ég
fengið neitun frá Norræna hús-
inu, munnlega. Þess vegna hef ég
þurft að flýja á náðir annarra
sýningarsala.
— Hvað er langt síðan þú
hélst sýningu síðast?
Það eru nú um 2 ár síðan ég
sýndi Reykvíkingum myndir
mínar, en ég stefni að því að
halda næst sýningu í október
eftir 3 ár. Ég er einmitt að sækja
um til Kjarvalsstaða fyrir þá
sýningu núna, allt er þá þrennt
er.
Þrátt fyrir þessar köldu kveðj-
ur frá menningarvitunum sem
fara með lyklavöldin að menn-
ingarlífinu hérna, get ég unað
vel við minn hlut. Mér þykir
ákaflega vænt um hversu fólkinu
virðist líka vel við vatnslita-
myndirnar mínar, þær hafa
hlotið lof sýningargesta. Vatns-
litun hefur lengi verið mitt eftir-
læti, kannski m.a. vegna þess
Jakob V. Hafstein fyrir l'raman nokkur verkanna á sýningunni.
hversu erfitt er að fara með
vatnsliti svo vel fari. Þessi sýn-
ing hefur gengið vel þessa fjóra
daga sem hún hefur staðið, 17
myndir hafa selst og fjöldi fólks
hefur komið til að skoða sýning-
una. Núna í dag komu hingað
ung og falleg, nýgift hjón og
keyptu dýrustu olíumyndina á
sýningunni. Ég mætti hundur
heita, ef ég kvartaði yfir þessum
viðtökum. Ég er þakklátur öllum
sem koma og vilja sjá myndirnar
mínar og ekki síður þeim sem
vilja eiga þær.
— Hvenær byrjaðir þú að
mála?
„Ég var kornungur, þegar ég
byrjaði að gera myndir. Tilsögn
hlaut ég hjá mörgum góðum
listamönnum á árunum milli
1925 og 1940. Svo málaði ég
næstum ekkert um 20 ára skeið,
aðeins örfáar myndir sem flestar
eru nú glataðar. En eftir að ég
kynntist nánar frændum mínum
í Danmörku, þeim Carl
Schwenn, kennara við Listaaka-
demíuna, sem nýlega er látinn,
og Sveini Havsteen Mikkelsen,
einum þekktasta listamanni
Dana í dag, byrjaði ég aftur að
mála árið 1965. Hef ég aukið
þetta ár frá ári síðan, jafnframt
hef ég kynnt mér myndlist á
Spáni og lært mikið af því. Eftir
3 ár er ég hins vegar ákveðinn í
að hætta alveg að fást við
myndlist," sagði Jakob að lokum.
TIL ÍSLA
LESTUNÍ
EMLENDUM
AMERIKA
PORTSMOUTH
Junior Lotte 9. nóv.
Bakkafoss 18. nóv.
Junior Lotte 1. des.
Ðakkafoss 9. des.
Junior Lotte 28. des.
NEW YORK
Ðakkafoss 20. nóv.
Ðakkafoss 11. des.
HALIFAX
Hofsjökull 30. nóv.
BRETLAND/
MEGINLAND
Eyrarfoss 9. nóv.
Alafoss 16. nóv.
Eyrarfoss 23. nóv.
Alafoss 30. nóv.
ANTWERPEN
Eyrarfoss 10. nóv.
Alafoss 17. nóv.
Eyrarfoss 24. nóv.
Alafoss 1. des.
FELIXSTOWE
Eyrarfoss 11. nóv.
Alafoss 18. nóv.
Eyrarfoss 25. nóv.
Alafoss 2. des.
HAMBORG
Eyrarfoss 12. nóv.
Alafoss 19 nóv.
Eyrarfoss 26. nóv.
Alafoss 3. des.
WESTON POINT
Urriöafoss 13. nóv.
Urriðafoss 25. nóv.
Urriðafoss 9. des.
Urriðafoss 23. des.
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
BERGEN
Dettifoss 16. nóv.
Dettifoss 30. nóv.
Dettifoss 14. des.
KRISTIANSAND
Dettifoss 17. nóv.
Dettifoss 1. des.
Dettifoss 15. des.
MOSS
Mánafoss 10. nóv.
Dettifoss 17. nóv.
Mánafoss 24. nóv.
Dettifoss 1. des.
GAUTABORG
Mánafoss 11. nóv.
Dettifoss 18. nóv.
Mánafoss 25. nóv.
Dettifoss 2. des.
KAUPMANNAHÖFN
Mánafoss 12. nóv.
Dettifoss 19. nóv.
Mánafoss 26. nóv.
Dettifoss 3. des.
HELSINGBORG
Mánafoss 13. nóv.
Dettifoss 20. nóv.
Mánafoss 27. nóv.
Dettifoss 4. des.
HELSINKI
Múlafoss 9. nóv.
Irafoss 23. nóv.
Mulafoss 3. des.
RIGA
Múlafoss 11. nóv.
Irafoss 25. nóv.
Múlafoss 5. des.
GDYNIA
Múlafoss 12. nóv.
írafoss 26. nóv.
Múlafoss 7. des.
THORSHAVN
Mánafoss 3. des.
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
- framog til baka
frá REYKJAVÍK alla mánudaga
frá ÍSAFIROI alla þriöjudaga
frá AKUREYRI alla fimmtudaga
EIMSKIP
SÍMI '7100