Morgunblaðið - 06.11.1981, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1981
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1981
17
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 85 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 5 kr. eintakiö.
Flugleiðir og
einkarétturinn
• •
Oll saga íslenskra flugmála einkennist af áræði. Frumherjarnir
létu ekkert aftra sér og á Atlantshafsflugleiðinni vildu Loft-
leiðamenn ekki sætta sig við að vera bundnir af neinum, þeir höfn-
uðu fyrirskipunum frá alþjóðasamtökum flugfélaga, IATA, og fóru
sínu ótrauðir fram. Milli Loftleiða og Flugfélags Islands myndaðist
óneitanlega nokkur spenna, Jjegar Loftleiðamenn vildu auka hlut
sinn í Evrópufluginu. Kom að því, að fyrir frumkvæði stjórnvalda
var gengið til sameiningar þessara tveggja félaga í eitt, Flugleiðir.
Ekki hefur farið fram hjá neinum, að Flugleiðamenn telja það
aðför að sér og hagsmunum sínum, ef Arnarflug tekur upp áætlun-
arflug til Evrópulanda. Samgönguráðherra Steingrímur Her-
mannsson hefur nú veitt Arnarflugi leyfi til Evrópuflugs, sam-
keppni er aftur að hefjast í utanlandsfluginu, þó þannig að flugfé-
lögin munu ekki fljúga bæði til sömu borga.
Tilvist Flugfélags íslands og Loftleiða afsannaði raunar réttmæti
þeirrar skoðunar á sínum tíma, að aðeins eitt flugfélag gæti þrifist
í áætlunarflugi til útlanda frá Islandi. Líklega er það ekki tilviljun,
sem ræður því, að Flugleiðir halda ekki að öllum jafnaði úti ferðum
til þeirra borga í Þýskalandi, sem Arnarflug ágirnist. Flugleiðum
hefði og verið innan handar að taka upp loftferðir til Zúrich í Sviss,
ef félagið hefði talið það borga sig. Takist Arnarflugi að reka flug til
þeirra staða, sem Flugleiðum finnast ekki álitlegir fyrir sig, hlýtur
það fyrst og fremst að koma þeim til góða, sem fyrirtækin eru
stofnuð til að sinna, farþegunum. Loftleiðamenn börðust ekki gegn
IATA, af því að þeir vildu koma Pan American eða TWA á kné,
heldur af því að þeir vildu láta samkeppni dafna til hagsbóta fyrir
farþegana. Gleymi flugfélög því, að þau eru stofnuð vegna farþeg-
anna, er illa komið. Vilji farþegar ekki ferðast með Arnarflugi til
þeirra staða, sem félagið flýgur, lognast starfsemi þess út af.
Það er af þessum einföldu ástæðum, sem Morgunblaðið telur
skynsamlegt að verða við beiðni Arnarflugs um rétt til áætlunar-
flugs til útlanda. Gera verður sömu kröfur til þess og Flugleiða,
sömu skilyrði verða að gilda um félögin bæði. Síðan á það að vera
undir félögunum sjálfum komið, hver framvindan verður, og þar
eiga úrslitavöldin að vera í höndum viðskiptavinanna, farþeganna.
Fiskur undir steini?
Fátt ætti að sýna mönnum betur en afskipti þeirrar ríkisstjórn-
ar, sem nú situr, hve hættulegt það er fyrir viðkvæman
atvinnurekstur eins og farþegaflug að eiga allt sitt undir ríkisvald-
inu. Hinn svarti blettur á málefnum Flugleiða og Arnarflugs kemur
í ljós, þegar litið er til afskipta opinberra aðila með samgönguráð-
herra Steingrím Hermannsson í broddi fylkingar. Hér á þessum
stað skulu ekki rakin helstu æviatriði Arnarflugs eða hvernig Flug-
leiðir hafa komið þar við sögu og hvers vegna, öðrum stendur það
nær og líklega þó helst flokksbræðrum samgönguráðherra, sem
sýnast eiga þann draum, að geta létt af sér áhyggjum vegna erfið-
leika hjá kaupfélögum og frystihúsum SÍS með því að svífa um
loftin blá í SÍS-flugvél hjá SÍS-flugfélagi.
Sú spurning vaknar, hvers vegna Steingrímur Hermannsson get-
ur ekki látið hjá líða, um leið og hann býr sig undir að veita
Arnarflugi flugleyfi, að veitast að stjórnendum Flugleiða og félag-
inu í heild. Hvað var samgönguráðherra að fara, þegar hann bætti
þessari setningu við Iýsingu sína í útvarpsræðu á bjartari framtíð
Flugleiða: „Spurningin er hvort sá lífsneisti sé enn þá til hjá
forráðamönnum félagsins (Flugleiða, innsk. Mbl.) sem nauðsynlegur
er til að þetta megi takast. Þeirri spurningu læt ég ósvarað." Að
loknum þessum dylgjum fer sjálfur samgönguráðherra að tala um
„úreltar flugvélar" Flugleiða, „mistök í bókun og fleira sem óþolandi
er“ að hans mati í rekstri fyrirtækisins. Hvers vegna Iagði Stein-
grímur Hermannsson sig fram um það síðsumars 1980, að svo
„Iélegt“ fyrirtæki skyldi halda áfram að fljúga yfir Norður-
Atlantshaf? Eru þessi orð sjálfs samgönguráðherra til þess fallin að
treysta stöðu Flugleiða út á við? Voru þau mælt til að hjálpa
ríkisstjórn Luxemborgar að fá samþykkta áframhaldandi fjárhags-
aðstoð við Atlantshafsflug Flugleiða á næsta ári?
Það kemur svo úr hörðustu átt, þegar formaður Framsóknar-
flokksins, þess flokks, sem fram á síðustu vikur, hefur talið það til
marks um óskeikula og markvissa flugmálastefnu sína að hafa
sameinað Loftleiði og Flugfélag íslands og veitt Flugleiðum einka-
rétt í utanlandsflugi, segir á Alþingi, að fráhvarf frá þeirri stefnu
„hreinsi einokunarstimpilinn" af Flugleiðum. Á meðan samgöngu-
ráðherra Steingrímur Hermannsson finnur ekki skynsamlegri rök
fyrir gerðum sínum í flugmálum, er ekki nema von, að marga gruni,
að þar liggi framsóknarfiskur undir steini.
Danskur rithöfundur handtekinn
fyrir njósnir í þágu Sovétmanna
Sá um að borga auglýsingakostn-
að „friðarhreyfingarinnar“
með peningum frá KGB
Kaupmannahofn, 5. nov. Frá fréltaritara Mhl., Ib Hjörnbæk og AP.
ARNE Herlöv Petersen, kunnur danskur rithöfundur, sem
staðið hefur framarlega í „Friðarhreyfingunni“ svokölluðu,
var handtekinn í gær af dönsku lögreglunni og gefið að sök
að hafa verið útsendari KGB, sovésku leynilögreglunnar um
tíu ára skeið. Hann var handtekinn daginn eftir að dönsk
stjórnvöld skýrðu frá því að öðrum sendiráðsritara sovéska
sendiráðsins hefði verið vísað úr landi fyrir þremur vikum.
Eftir því sem heimildir
innan dönsku lögreglunnar
segja, er A.H. Petersen
sakaður um að hafa unnið
fyrir KGB-menn í sendi-
ráði Sovétmanna í Kaup-
mannahöfn síðustu tíu ár-
in, eða allt frá 1970. Frá
1977 í samvinnu við Vlad-
imir Merkoulov, sovéska
sendiráðsritarann, sem vís-
að var úr landi, og þar áður
við fyrirrennara hans í
embætti. Kona Herlöv Pet-
ersens, Inger Gorm Knud-
sen, var einnig handtekin
en látin laus aftur gegn því
að hún héldi kyrru fyrir á
Fjóni þar sem þau hjónin
búa. Hún fær þó ekki að
dvelja í húsi þeirra á
Langalandi vegna þess, að
lögreglan hefur það til
rannsóknar.
Fullyrt er, að Herlöv Pet-
ersen hafi í eitt skipti, að
minnsta kosti, tekið við
7000 kr. dönskum frá Merk-
oulov auk dýrra hljóm-
flutningstækja. Peningana
hafi hann síðan notað til að
greiða fyrir auglýsingar í
dönsku blöðunum þar sem
danskir rithöfundar og aðr-
ir listamenn kröfðust þess,
að Norðurlönd yrðu gerð að
kj arnorkuvopnalausu
svæði.
Nordfoto-símamynd.
Arne Herlsv Petersen, danski rithöfundurinn, sem um tíu ára skeið hefur verið í
þjónustu sovésku leynilögreglunnar, KGB, og séð um að kosta að nokkru áróðurinn gegn
Atlantshafsbandalaginu í Danmörku og auglýsingakostnað friðarhreyfingarinnar svoköll-
uðu.
í Berlingske Tidende seg-
ir í dag, eitt af verkum
Herlöv Petersens fyrir
KGB hafi verið að koma á
framfæri við sendiráð
Norður-Kóreumanna í
Kaupmannahöfn bréfi, þar
sem skýrt var frá leyni-
legum samningaviðræðum
Bandaríkjamanna og Kín.-
verja. Látið var líta út
fyrir, að bandarískir emb-
ættismenn hefðu skrifað
bréfið en það hefði hins
vegar verið samið af
KGB-mönnum, sem vildu
með því hræða Norður-
Kóreumenn, sem gera sér
jafn dælt við Kínverja og
Rússa, til að halla sér
meira að Sovétmönnum.
Danska lögreglan telur
einnig, að Arne Herlöv Pet-
ersen hafi verið eins konar
„ráðningarstjóri" fyrir
KGB, þ.e.a.s, fylgst með því
hvaða rithöfundar og lista-
menn væru fúsir til að taka
þátt í ýmsum aðgerðum,
sem þjónuðu hagsmunum
Sovétmanna.
Danska lögreglan hefur
fylgst með Herlöv Petersen
Russisk
Mplomat
idvfet for
pionage
skfortatter
POLITIKEN
m Kendt forfatte
m- fængslet i
*?. spion-affœre
kiilotd
M»n*. kunrtnar. »>ir«v under
Nordfotosímamynd.
Handtaka rithöfundarins Arne Herlev Petersen var forsíðuefni allra danskra blada í gær. Annað eintakid af
Berlingske Tidende er frá því í fyrradag þegar skýrt var frá brottrekstri annars sendiráósritara sovéska sendiráðsins
í Kaupmannahöfn.
í hálft annað ár og á þeim
tíma hefur hann átt 23
fundi með Vladimir Merk-
oulov, sovéska KGB-mann-
inum, sem vísað hefur verið
úr landi.
Vladimir Merkoulov kom
til starfa í sovéska sendi-
ráðinu í Kaupmannahöfn
árið 1977, og tók þá við af
Stanislav Tsjebotok, sem
fluttur var til Óslóar og
seinna var sagður KGB-
njósnari með þá sérgrein
að koma mönnum hliðholl-
um Rússum inn í pólitíska
hópa og friðarhreyfingar.
Merkoulov hafði svipuðu
hlutverki að gegna. Hans
sérsvið voru þær hreyf-
ingar, sem barist hafa fyrir
úrsögn Dana úr Atlants-
hafsbandalaginu, gegn
Nato-herstöðvum og fyrir
því, að Norðurlandabúar
skuldbindi sig til að hafa
aldrei kjarnorkuvopn á
landi sínu. Að sögn dönsku
lögreglunnar er sannað
mál, að Merkoulov hafi út-
vegað ýmsum vinstrisinn-
uðum hópum fjármagn og
kostað áróðursherferðir
þeirra í fjölmiðlum og ann-
ars staðar.
Tvö hundruð manna kór söngfólks úr kirkjukórum í Reykjavíkurprófastsdæmi syngur á hátíðarsamkomunni.
Afmælishátíð á kristniboðsári:
Hátíðarsamkoma í Þjóð-
leikhúsinu á sunnudag
Á SUNNUDAGINN verður þess
minnst í Reykjavíkurprófastsdæmi,
að þúsund ár eru liðin frá kristni-
boði Þorvaldar víðrörla og Friðriks
biskups. Verður af því tilefni hátíð-
arsamkoma í Þjóðleikhúsinu kl.
15:30. Guðsþjónustur verða með
hefðbundnum hætti nema hvað síð-
degismessur hefjast kl. 13:30 í stað
14 til að mönnum gefist kostur á að
komast í Þjóðleikhúsið.
Á hátíðinni er leitast við að
bregða upp svipmynd af Þorvaldi
víðförla og starfi hans fyrir þús-
und árum. Jón Hjartarson leikari
tók saman þátt og koma þar fram
ýmsar persónur auk Þorvaldar og
Friðriks m.a. Ólafur Tryggvason,
Þórdís spákona, Koðrán bóndi og
spámaður hans úr Gullsteini.
Flytjendur eru sex.
Þá segir í frétt frá dómprófast-
inum að á samkomunni verði sýnt
hvernig kristniboð í dag fari fram
meðal framandi þjóða. Samband
ísl. kristniboðsfélaga annast þann
þátt og sýnir Jónas Þórisson
kristniboði myndir frá íslensku
kristniboði í Kenýa og Eþíópíu.
Matthías Johannessen skáld
hefur ort hátíðarljóð að ósk
Tónmenntasjóðs kirkjunnar og
nefnir hann það Sólhjartarljóð
(981 — 1981). Flytur það Helgi
Skúlason leikari. Biskup Islands
hr. Pétur Sigurgeirsson flytur
ávarp og sr. Ólafur Skúlason
dómprófastur.
Tvöhundruð manna kór syngur
á samkomunni og skipar hann
söngfólk kirkjukóra prófastsdæm-
isins. Söngstjórnina annast níu
organistar til skiptis: Jón Stef-
ánsson Langholtskirkju, Jón G.
Þórarinsson Grensáskirkju, Guð-
mundur Gilsson Kópavogskirkju,
Guðný M. Magnúsdóttir Fella- og
Hólasókn, Reynir Jónasson Nes-
kirkju, Guðni Þ. Guðmundsson
Bústaðakirkju, Orthulf Prunner
Háteigskirkju, Ólafur Finnsson
Seljasókn, Kristján Sigtryggsson
Ássókn og söngmálastjóri þjóð-
kirkjunnar, Haukur Guðlaugsson.
Hafa þessir söngstjórar æft hinn
fjölmenna kór síðustu vikur og
Guðrún Tómasdóttir annast radd-
þjálfun.
Þess má einnig geta að Hið ísl.
biblíufélag mun sýna og selja
Biblíuna í anddyri Þjóðleikhússins
og kynna nýja þýðingu Nýja testa-
mentisins. Einnig verður tekið á
móti gjöfum til kristniboðs.
I tilefni afmælisársins verður
efnt til ritgerðar- og teiknisam-
keppni meðal fermingarbarna
þessa vetrar í samvinnu við
fræðsluyfirvöld og skólana í pró-
fastsdæminu. Er aðaltilgangurinn
að vekja athygli á kristniboði
heima og heiman. Öllum er heim-
ill aðgangur að samkomunni í
Þjóðleikhúsinu, sem hefst kl.
15:30.
Matthías Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra:
Hvorki rekstrargrundvöllur
fyrir útgerð né fískvinnslu
-togari, afhentur á næsta ári, þarf að fiska 16.500 lestir til að geta staðið við fjárhagslegar bindingar
I UMRÆÐUM utan dagskrár á
Alþingi um sjávarútvegsmál, sem
fram var haldið seinnipart mið-
vikudags, tók Matthías Bjarnason
(S), fyrrverandi sjávarútvegsráð-
herra til máls ásamt fleirum. Fá-
mennt var á þingfundi og hóf
Matthías mál sitt með því að óska
nærveru einhvers ráðherra og al-
þýðubandalagsfulltrúa, sagði fjar-
veru þeirra hugsanlega benda til
þess að þeir væru að gefast upp á
stjórn landsins og að svo hefði
mátt vera fyrr. Þá taldi hann að
ekki væri rétt af þeim, sem réðu
gangi mála að draga upp ósanna
mynd af ástandinu í sjávarút-
vegsmálum eins og gert hefði ver-
ið, segja yrði sannleikann um-
búðalaust og benti hann á ósam-
ræmi í ræðum forsætisráðherra
og sjávarútvegsráðherra og sagði
mikla breytingu orðna á málflutn-
ingi stjórnarsinna frá því um síð-
ustu áramót. Þá hefði forsætis-
ráðherra sagt fiskvinnsluna rekna
með 3,5% hagnaði, en nú þyrfti að
koma henni upp fyrir núllið. Samt
hefði hann í stefnuræðu sinni talið
ástandið í þessum málum gott.
Hann hefði lýst ástandi fisk-
vinnslunnar í tveimur setningum:
„Skreiðar- og saltfiskverkun eru
reknar með verulegum hagnaði.
Afkoma frystingarinnar er litlu
lakari." Hvað væri hann að gera
með þessu annað en að fela stað-
reyndir? Matthías sagði síðan að
núverandi stjórn væri komin langt
fram úr krötum hvað hávaxta-
stefnu varðaði, þrátt fyrir að hún
hefði fordæmt þá fyrir slíka
stefnu. Nú væru öll lán verðtryggð
og auk þess hefði þóknun banka
hækkað gífurlega. Sagt væri að
þess vegna væri nóg fé í bönkum,
en þó fengjust ekki lán úr þeim.
Þá hefði svo farið að fiskverðs-
hækkun hefði aðeins orðið 5% í
stað 9% til allra annarra lands-
manna og með því væri verið að
veitast að sjómönnum og útgerð-
armönnum einum. Vegna þessa
alls væri nú svo komið, þrátt fyrir
góðæri, að hvorki væri rekstrar-
grundvöllur fyrir fiskvinnslu né
útgerð. Tók hann dæmi um togara,
sem nú væri í smíðum og yrði af-
hentur á fyrsta ársfjórðungi
næsta árs. Til þess að hægt yrði að
standa í skilum með afborganir og
vexti þyrfti skipið að fiska 16.500
lestir. Slíkt væri auðvitað
óframkvæmanlegt. Til þess að
leiðrétta rekstrargrundvöllinn
þyrfti sameiginlegar aðgerðir,
byggðasjóður gæti ekki aukið út-
lán á meðan framlög til hans
minnkuðu og að greiða þyrfti
niður lán á þeim skipum, sem
verst væru sett. Þá sagði hann að
gengi yrði að skrá rétt, til að eðli-
legt verð fengist fyrir afurðir, en
svo væri ekki nú. Að lokum þakk-
aði Matthías sjávarútvegsráð-
herra, Steingrími Hermannssyni,
fyrir að hlusta á svona mikilvægar
umræður og bað hann að skila
kveðju til hinna ráðherranna,
hvar sem þeir væru.
Stefán Valgeirsson (F) sagðist
ekki kannast við það að framsókn-
armenn hefðu leynt þjóðina stöð-
unni í þessum málum og það væri
allra alþingismanna að leysa
vandann. Sagði hann verðbólguna
mestu valda í þessum erfiðleikum
og að stjórninni hefði verið það
ljóst að, þegar verðtrygging lána
hefði verið ákveðin, að útgerðin
þyldi hana ekki nema verðbólgan
kæmist niður fyrir visst mark.
Það hefði ekki tekizt og því væri
meðal annars svona komið nú. Þá
sagðist hann hafa orðið fyrir
vonbrigðum með það hvernig
stjórnin hefði tekið á málefnum
þeirra fyrirtækja, sem ekki hefðu
skuldað opinberum sjóðum og tók
þar Jökul á Raufarhöfn sem dæmi
og stöðu ullariðnaðarins. Þá sagði
hann enga fjármuni vera í bönk-
unum, þeir hefðu allir nema einn
verið í skuld við Seðlabankann um
síðustu mánaðamót. Þá sagðist
hann vilja leggja þá spurningu
fyrir forsætisráðherra, sem því
miður væri fjarverandi, hverjir
væru að fjalla um málefni Rauf-
arhafnar. í því máli hefði nánast
ekkert verið gert og slík vinnu-
brögð, að neita fyrirtæki, sem
hefði nægilega góða eignastöðu til
lántöku að mati Framkvæmda-
stofnunar og Landsbankans, um
lán gengju ekki.
Halldúr Blöndal (S) tók undir
orð Stefáns, en taldi að öðru leyti
að illa hefði verið til stjórnarinnar
stofnað og því væri ekki von á góð-
um árangri. Hann sagði ekki vilja
hjá stjórninni til að koma fótum
undir útflutningsatvinuvegina og
slíkt gengi að sjálfsögðu ekki. Þá
benti hann á að saltfiskverkun
væri nú rekin með tapi, þar sem
viðskiptaaðilar okkar gætu ekki
lengur miðað kaupverð við dollara
og að framleiðsluatvinnuvegirnir
gætu alls ekki bætt upp taprekst-
ur með lántökum eða gengisfell-
ingu vegna verðtryggingar lána.
Þá taldi hann það einkennilega af-
stöðu, ef það ætti að bitna á fyrir-
tækjum að þau skulduðu á vitlaus-
um stöðum, það er ekki hjá opin-
berum sjóðum. Þessi stefna endaði
með því að allt færi á hausinn og
þá yrði hinn almenni borgari
skattpíndur til að greiða ríkis-
tryggð lán. Nú væri ástandið
þannig að þóknanleg fyrirtæki
fengju fyrirgreiðslu en önnur ekki.
Taldi Halldór að breyta yrði
skattheimtu til að rekstrar-
grundvöllur fyrirtækja næðist,
draga yrði verulega úr skatt-
heimtu fyrirtækja.
Sverrir Hermannsson (S) sagði
atvinnuvegina nú þjást af bein-
verkjum gjaldþrots, ekki hjöðun-
arverkjum eins og sjávarútvegs-
ráðherra hefði sagt. Steingrímur
hefði einnig sagt að nú þyrfti
„kommisar Hermannsson" bara
að fara að vinna og úthluta pen-
ingum, en það nægði ekki þó hann
væri allur af vilja gerður, það
væru engir peningar til, sagði
Sverrir. Hann sagði að Seðlabank-
inn hefði lofað yfirdrætti, en hann
nægði aðeins til að bjarga fyrir-
tækjum í Skagafirði og Keflavík,
önnur fyrirtæki væru að stöðvast.
Hann sagðist vita til þess að hjá
sex fyrirtækjum næmi hallarekst-
urinn nú 7,2 milljónum og hjá 21
fyrirtæki væri tapið 110 milljónir,
sem væri meira en ráðstöfunarfé
Byggðasjóðs. Þá sagði hann að
eins og staðan væri í dag, væri
erlend lántaka banvæn leið.
Þá vék Sverrir að ráðherra-
nefnd þeirri, sem falið hefði verið
að leysa vandamál Jökuls á Rauf-
arhöfn. I henni ættu sæti 2 SÍS-
sósíalistar, Svavar Gestsson og
Friðjón Þórðarson og niðurstaðan
væri eftir því. Framkvæmdastofn-
un hefði verið tilbúin til að ganga
í ábyrgð fyrir því, sem Jökull
þyrfti, en ekki bólaði þó á neinum
raunhæfum úrbótun. Hann sagði
ennfremur að nú væri halli í iðn-
aði um 10% af tekjum að jafnaði
og jafnvel enn meiri hjá sumum
fyrirtækjum. Atvinnulífinu væri
að blæða út og atvinnuleysi blasti
við.
Steingrímur Hermannsson,
sjávarútvegsráðherra, svaraði síð-
an fyrirspurnum og sagði, meðal
annars, að það væri rétt að verð á
skreið hefði lækkað, Nigeríustjórn
hefði nú ákveðið nýja umboðsaðila
og vegna erfiðs efnahagsástands
þar hefði verð lækkað í 287 dollara
lestin, en menn gerðu sér vonir um
að markaðurinn héldist stöðugur.
Þá sagði hann saltfisk hafa lækk-
að í verði á Spáni, orðið hefði að
gefa afslátt frá fyrra verði vegna
hækkunar dollarsins. Slíkt hefði
enn ekki gerzt í Portúgal, en líkur
væru á því að svo yrði. Hann sagði
að þó væri búizt við áframhald-
andi eftirspurn og því væri enn
bjart framundan.