Morgunblaðið - 06.11.1981, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1981
23
Oddrún Elísdótt-
ir - Minningarorð
Fædd 28. júní 1914.
Dáin 31. október 1981.
„Kallid er komið
komin er nú stundin
vinaskilnaður viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna
er sefur hér hinn síðasta hlund.“
Æviskeið tengdamóður okkar er
nú á enda. Okkur langar að minn-
ast hennar með nokkrum fátæk-
legum orðum, því þó að minn-
ingarnar streymi fram, verða þær
ekki allar festar á blað.
Dodda, eins og hún var oftast
kölluð af vinum og vandamönnum,
fæddist 28. júní 1914 á Húsavík,
Borgarfirði eystra, dóttir hjón-
anna Guðbjargar Gísladóttur og
Elísar Guðjónssonar. Þar ólst hún
upp í stórum systkinahópi. Síðar
flutti fjölskyldan til Seyðisfjarð-
ar. Ung að árum fór Dodda suður
til Reykjavikur og kynntist hún
þar tengdaföður okkar Pétri
Gíslasyni, múrarameistara, ætt-
aður frá Meðalnesi, Fellum. Þann
18. september, árið 1937 gengu þau
síðan í hjónaband og byrjuðu
búskap sinn að Njálsgötu 110, en
árið 1950 festa þau kaup á
Nökkvavogi 14, þar sem heimili
þeirra hefur verið síðan. Dodda og
Pétur eignuðust 3 börn, Hörð
Gísla, f. 8. október 1937, kvæntur
Gyðu Gunnlausdóttur, búsett í
Reykjavík, — Sigurð Þór, f. 13.
október 1944, kvæntur Arníu Dúa-
dóttur, búsett á Húsavík, og Bellu
Hrönn, f. 22. nóvember 1951, gift
Brynjólfi Sigurðssyni, búsett í
Reykjavík. Barnabörn þeirra
Doddu og Péturs eru orðin sex og
eitt barnabarnabarn.
Margs er að minnast úr
Nökkvavoginum þar sem við öll
áttum svo sannarlega okkar annað
heimili, því þar var okkur tekið
opnum örmum og með mikilli
hjartahlýju sem einkenndi
tengdamóður okkar. Þar var oft
margt um manninn enda gestrisn-
in í heiðri höfð. Dodda var
hreinskilin og óhrædd að segja
sína meiningu og ætlaðist til hins
sama af öðrum, en hún var réttsýn
og leit á málin frá öllum hliðum,
enda voru mörg vandamálin leyst
fyrir hennar tilstilli.
Barnabörnin áttu ekki síður
gott athvarf í ömmufaðmi og
sakna hennar sáran, því margar
voru sögurnar sagðar og vísurnar
sungnar og best var að láta ömmu
hugga ef eitthvað bjátaði á.
Dodda var ötull félagi í Kvenfé-
lagi Langholtssafnaðar og starfaði
þar af miklum áhuga og dugnaði
og var kirkjubyggingin henni mik-
ið áhugamál.
Síðastliðið vor vorum við öll
saman í Nökkvavoginum til að
halda upp á 70 ára afmæli tengda-
föður okkar. Þá var Dodda farin
að kenna lasleika, en það aftraði
henni ekki frá því að sinna sínum
húsmóðurskyldum og sýna vinum
og vandamönnum þá gestrisni sem
einkenndi heimilið. Við vissum að
þetta var henni mikils virði svo og
það að hafa alla fjölskylduna sína,
sem hún lifði fyrir, saman.
Nú síðustu vikurnar vissi hún
að hverju stefndi, en aldrei lét hún
bugast. Hún var sátt við allt,
þakklát öllum, því hún trúði á
eilíft líf.
Með þakklæti og trega kveðjum
vð tengdamóður okkar sem var
okkur svo góð, börnunum sínum
mikil mamma og barnabörnunum
yndisleg amma.
Guð styrki tengdaföður okkar
sem á um sárt að binda við missi
góðrar konu. Blessuð sé minning
Oddrúnar Elísdóttur.
Tengdabörn.
Minning:
Þorkell Sigurgeirs-
son frá Hellissandi
Fæddur 6. febrúar 1890.
Dáinn 28. október 1981.
Þorkell fæddist að Skarði við
Hellissand, sonur þeirra n.erkis
hjóna Sigurgeirs Sigurðssonar og
Guðrúnar Ólafsdóttur er þar
bjuggu. Hann ólst upp í hópi fimm
systkina ásamt einni uppeldissyst-
ur. Bræðurnir voru þrír, Sigurjón,
Ólafur og Þorkell, afburðaduglegir
og eftirsóttir í hin fengsælustu
skipsrúm. Systurnar þrjár, María,
Guðmundsína og Brynhildur
Sveinsdóttir voru jafn eftirsóttar
til starfa í landi sakir dugnaðar,
svo sem verið höfðu foreldrar
þeirra. Þekktastur þeirra systkina
var Sigurgeir rakari, er starfaði
um áratugi í Mjóstræti 4, Reykja-
vík.
Þorkell byrjaði ungur sjó-
mennsku á áraskipum, síðar á
vélbátum og síðustu tólf starfsár-
in vann hann ýmis störf við
Lóranstöðina á Gufuskáium. Öll
störf léku honum í höndum sökum
dugnaðar og lagvirkni.
Þorkell giftist eftirlifandi konu
sinni, Sigurástu Friðgeirsdóttur.
Þau hjón voru ákaflega samhent í
starfi, bjuggu lengst að Laufási á
Hellissandi. Þau eignuðust tólf
böm og ólu upp eina sonardóttur,
Ástu Gestsdóttur. Nú eru átta
börn þeirra á lífi;
Guðríður, gift Cyrusi Danilius-
syni, búsett á Hellissandi, Frið-
geir, giftur Bjarnheiði Gísladótt-
ur, búsett á Hellissandi, Kristján,
giftur Sigríði Markúsdóttur, bú-
sett á Hellissandi, Sigurgeir, gift-
ur Sigurbjörgu Björnsdóttur, bú-
sett í Rvik, Haukur, giftur Láru
Kristjánsdóttur, búsett í Rvík,
Gestur, giftur Gerði Ingvarsdótt-
ur, búsett í Rvík, Karl, Asta og
Lundberg, ógift, búsett í Rvík.
Sumar hvert fór Þorkell til
handfæraveiða vestur á firði til að
vinna fyrir sinni stóru fjölskyldu
en réri heiman að haust- og
vetrarvertíðir. Þorkell var mjög
söng- og músíkelskur, um áratugi
lék hann á hljóðfæri á skemmtun-
um, jafnan á harmoniku. Sorg og
erfiðleikar hafa gist fjölskylduna
á Laufási ekki síður en aðra. Það
að hafa séð á bak fjórum börnum
talar sínu máli. En hlið við hlið
hafa þau yfirstigið alla þá erfið-
leika er á vegi urðu. Með dugnaði,
þreki, starfsemi og sparsemi komu
þau upp sínum stóra barnahóp.
Þegar veikindin herjuðu á fyrir al-
vöru voru flest börnin uppkomin.
Frá 13. ágúst 1979 var hann óslitið
þungt haldinn á sjúkrahúsum þar
til yfir lauk.
Þorkeli, mínum góða vini sendi
ég hinstu kveðjur með þakklæti
fyrir samstarf í æsku og fyrri
hluta manndómsára, þá leið okkar
lá saman í starfi og aldrei bar
skugga á. Lífið er eins og straum-
þung elfa er steymir frá fæðingu
til grafar, en framundan hin
óþekktu eilífðarsvið æðra og full-
komnara lífs. Hvort okkar sál-
arskip er fært til siglingar um
eilífðarhöfin er líklegt að fari eftir
því hvernig tekist hefur að stjórna
ferð frá upptökum að ósi þessa
lífs. Miðað við okkar kynni, þá
mun Þorkell sigla sínu sálar fleyi
léttan byr um eilífðar höf. Eg
votta konu hans, börnum og öllum
aðstandendum innilega samúð.
Karvel Ögmundsson
Lára Rafnsdóttir
ANNA JÚLÍANA Á
HÁSKÓLA TÓNLEIKUM
ÞRIDJl' Háskólatónleikar vetrarins verða í Norræna húsinu fóstudaginn 6.
nóvember kl. 12.30.
Anna Júlíana Sveinsdóttir sópransöngkona syngur lög eftir Dvorák og
Richard Wagner. Lára Rafnsdóttir leikur með á píanó. Tónleikarnir eru
öllum opnir og standa aðeins hálfa klukkustund.
Samtök áhugamanna
um fjölmiðlarannsóknir
Samtökin efna til fræðslufundar
um myndbandabyltinguna að Kjar
valsstöðum laugardaginn 7. nóvem-
ber nk.
Ráðstefnan ber yfirskriftina:
„Myndbandabyltingin: Félagsleg
mengun eða þjóðþrif" og hefst kl.
14.00. Fimm menn munu hafa
framsögu á ráðstefnunni. Þeir eru
Andrés Björnsson, útvarpsstjóri,
Dr. Sigurður Líndal, prófessor,
Njáll Harðarson, annar eigandi
myndbandafyrirtækisins Video-
son, Þorbjörn Broddason, lektor
og Haukur Ingibergsson, SÍS.
Léttklassík á Hlíðarenda
Næstkomandi sunnudagskvöld verður léttklássískt kvöld á Veitingastaðn-
um Hlíðarenda.
. Gestur kvöldsins verður Magnús Jónsson söngvari ásamt undirleikara
Ólafi Vigni Albertssyni. Leikin verða létt og fjörug islensk og ítölsk lög.
Magnús Jónsson verður aðeins þennan eina sunnudag.
FELAGSSKAPUI
’AHUG AFÓLKS
UM
• *
HARMONi’kUTÓnlIST^
Klúbbur harmónikuunnenda
KLÚBBUR er ber heitið Þriðji klúbb-
urinn hcfur starfsemi sína laugar
daginn 7. nóvember með harmóníku-
dansleik að Hótel Heklu við Rauðar
árstíg. Félagar klúbbsins leika fyrir
dansi.
Klúbburinn er hinn þriðji hér í
borg er einkum höfðar til harmón-
íkukuunnenda. Á skemmtikvöldum
klúbbsins er ætlunin að einnig
verði ljóðalestur, vísnasöngur auk
harmóníkuleiks, sem verður hinn
rauði þráður starfseminnar. Fé-
lagsgjöldum er stillt mjög í hóf.
Formaður er Hjalti Jóhannsson.
Fyrirtækin ganga fram hjá
íslenskum textilhönnuðum
Ungir Hafnfirðingar með
myndl istarsýningu
„VID sem vinnum að textil-hönnun
crum orðnar afar hvekktar á því, að
íslenzk fyrirtæki skuli sífellt leita til
erlendra hönnuða en ganga fram hjá
samlöndum sínum eins og dæmin
sanna," sagði Sigurlaug Jóhannesdótt-
ir formaður Textilfélags íslands.
Sigurlaug sagði ennfremur.
„Fyrir nokkru sendi Iðnaðardeild
Sambandsins bréf til sænska textil-
félagsins Stok, sem er sambærilegt
Textilfélagi íslands og bað félagið
að benda sér á sænskt fyrirtæki,
sem tæki að sér textilhönnun, og
sérstaklega fyrirtæki, sem sérhæfði
sig í að hanna værðarvoðir og ferða-
teppi.
Okkur í Textilfélaginu finnst, að
Iðnaðardeildin hefði átt að sýna
okkar félagi jafn mikla virðingu og
hinu sænska og senda okkur bréf og
spyrja, hvort við gætum útvegað
slíkan hönnuð áður en rokið er til að
leita til erlendra fagfélaga. Á sam-
norrænni ráðstefnu textilhönnuða,
sem haldin var í Finnlandi síðastlið-
inn ágústmánuð, þá mátti heyra að
textilhönnuðir á hinum Norðurlönd-
unum eru farnir að undrast yfir því
hvers vegna íslenskir aðilar leita sí-
fellt til textilhönnuða á hinum
Norðurlöndunum, sem hafa þó sam-
bærilega menntun og við.“
Karl Friðriksson hjá Iðnaðardeild
Sambandsins hafði þetta um málið
að segja:
„Við hjá Iðnaðardeildinni höfum
iðulega leitað til íslenskra hönnuða
og hefur líkað prýðilega við vinnu
þeirra.
Skýringin á því, af hverju við
sækjumst eftir erlendum hönnuðum
er sú, að við viljum auka fjölbreytni
og markaðsmöguleika framleiðsl-
unnar. Erlendir hönnuðir, sem
kunnugir eru markaðnum ættu að
geta komið með hugmyndir, sem
falla vel að þeim markaði, sem við
erum að framleiða fyrir, þess vegna
leitum við til þeirra, sagði Karl
Friðriksson.
Ungir hafnfirskir listamenn sýna
verk sín í húsi Bjarna riddara Sívert-
sen, dagana 7. til 15. nóvember nk.
Á sýningunni verða m.a. myndir
sem sendar voru á vinabæjarmót i
Hámeenlinna í sumar.
Eiríkur Smith mun heiðra sýn-
inguna með þátttöku sinni. Tónlist-
armenn munu leika tónlist um
helgar og mun þá jafnframt boðið
upp á kaffiveitingar.
Sýningin verður opnuð laugar-
daginn 7. nóvember kl. 14.00.
Okeypis aðgangur. Allir velkomnir.