Morgunblaðið - 06.11.1981, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1981
Sjómenn á Qlafsvík:
„Komið verði í veg fyrir að stjórnvöld
haldi áfram að skerða kjör sjómanna*
Á MILLI 70 og 80 sjómenn í Ólafs-
vík hafa undirritað mótmæli gegn
nýju fiskverði. í ályktun, sem þeir
hafa sent Morgunblaóinu, segir, að
fiskverðsákvörðun, sem gerð hafi
verið með atkvæðum fiskkaupenda
og fyrir atbeina hins opinbera
oddamanns, feli í sér mikla hlut-
fallsskerðingu á launakjörum sjó-
manna, miðað við aðrar vinnustéttir.
„Sjómenn í Ólafsvík skora á
aðra starfandi sjómenn í landinu
að standa saman og tryggja ekki
bara 5% hækkun fiskverðs heldur
15% og þá ekki síður það að koma
í veg fyrir, að með atfylgi stjórn-
valda verði kjör sjómannastéttar-
innar í landinu lækkuð hlutfalls-
lega miðað við aðrar stéttir, eins
og með hinni nýju fiskverðs-
ákvörðun var gerð tilraun til.
Það er viðurkennt, að sjómenn
Basar Kven-
félags Háteigs-
sóknar
HA/AR Kvenfélags Háteigssóknar til
styrktar málefnum kirkjunnar verður
að þessu sinni í félagsmiðstöðinni
Tónabæ, Skaftahlíð 24, laugardaginn
7. nóvember og stendur yfir frá kl.
I4.CM) til 17.00.
A bazarnum verður margt fal-
legra og eigulegra muna.
Konurnar í Kvenfélagi Háteigs-
sóknar hafa unnið að því að gera
kirkjuna sem best úr garði.
I* f
RHD
ERMETO
háþrýstirör og tengi
Atlas hf
Grófinni 1. — Sími 26755.
Pósthólf 493, Reykjavík.
vantar um 20% til þess að ná þeim
kaupmætti, sem landverkafólk
hefur, en það er von okkar að sjó-
menn um land allt standi saman
að baki þeim er með samningamál
fara í næstu kjarabaráttu og sýni
þar með stjórn landsins að þeir
5900 sjómenn sem afla 85—90%
þjóðartekna eru uppistaða þjóðfé-
lagsins og óskað er eftir að ekki sé
litið á þá sem einhverja þurfa-
linga á islensku þjóðinni."
Akureyri:
Fyrstu áskriftar-
tónleikar vetrarins
KYRSTU á.skriftartónleikar Tónlist-
arfélags Akureyrar á nýbyrjuðu
starfsári verða í Borgarbíói á Akur-
eyri 7. nóvember.
Á þessum tónleikum leikur Jon-
athan Bager flautuleikari ásamt
strengjakvartett, en hann skipa
eftirtaldir hljóðfæraleikarar:
Laufey Sigurðardóttir og Júliana
Kjartansdóttir, fiðla, Helga Þór-
arinsdóttir, lágfiðla og Nora
Kornblueh, selló.
Á efnisskrá er flautukvartett í
C-dúr eftir Mozart, strengjakvart-
ett eftir Þorkel Sigurbjörnsson,
flautukvartett í D-dúr eftir Moz-
art og strengjakvartett í a-moll
eftir Brahms.
Tónleikarnir hefjast kl. 17.00.
Aðgöngumiðar og áskriftarkort að
tónleikum vetrarins verða seld í
Bókabúðinni Huld og við inngang-
inn.
Kynlegar ástríð-
ur á bókauppboði
Klausturhóla
KLAUSTUKHOLAK, listmunauppboð
(iuðmundar Axelssonar, efna til 87.
upphoðs fyrirtækisins nk. laugardag kl.
14.00. Að þessu sinni verða seldar
bækur og ýmis prentverk, gömul og ný.
Uppboðsskráin skiptist að venju eftir
efnum: Ýmis rit, Ijóð og kvæði, rit er
lendra höfunda, fcrða- og landfræðirit,
fornritaútgáfur og fræði, tímarit,
bókfræði og menntir, málfræði, rit ís-
lenzkra höfunda, æviminningar og ætt-
fræði, þjóðsögur og sagnir, saga lands
og lýðs.
Það er sérstakt við þetta uppboð,
að þar er boðið fram margt smárita
Jóhannesar Kjarvals, sem nánast
ekki hafa sézt árum saman. Má þar
m.a. nefna: Bergmál eftir J.S.K. til
Eggerts Stefánssonar söngvara,
Rvík 1959; Eimskip fjörutíu ára,
Rvík 1966, Ljóðagrjót, Rvík 1956,
Þrjú lítil Ijóð, Rvík 1966, Grjót, 1930
og Meira grjót, 1937.
Af öðrum einstökum verkum má
t.d. nefna: Bergþórssaga eftir Sigur-
jón Pétursson á Álafossi ásamt
draumamyndum af ýmsum helztu
köppum á Íslandi á þjóðveldisöld,
Alþingismannatal Spegilsins frá
1930, kver í Ijóðum, nokkur rit eru
eftir Þorvald Thoroddsen náttúru-
fræðing, en þau eru nú æði sjald-
fengin. Einnig má nefna: Privatbol-
igen pá Island cftir dr. Valtý Guð-
mundsson, Hugur og tunga eftir dr.
Alexander Jóhannesson, Ungersvend
og Pige (Piltur og stúlka) eftir Jón
Thoroddsen, útgefin af J. Lefolii,
Flensborg 1877, Nockur gaman-
kvæði, útgefin af Páli Sveinssyni í
Kaupmannahöfn 1832, hið fáséða
ættfræðirit Brynleifs Tobíassonar:
Hver er maðurinn? 1,—2. bindi,
Göngur og réttir, 1.—5., eftir Braga
Sigurjónsson og fleiri og verk Mar-
geirs Jónssonar um Torskilin bæja-
nöfn, 1.—4. hefti.
Að lokum má geta elzta prentaða
verks, sem Þórbergur Þórðarson
stóð að: Kynlegar ástríður, sögur
eftir Edgar Allan Poe, sem prentuð
var í Reykjavík 1915, nokkru áður en
fyrstu pésar höfundarins sáu dags-
ins Ijós. Bækurnar eru til sýnis hjá
Klausturhólum nk. föstudag kl.
(Fréttatilkynning)
Kabarcttdagskrárnar byggjast á stuttum grínatriðum, þar sem víða er
komið við: I eldhúsinu, sjónvarpinu, Þjóðleikhúsinu, húsaleiguharkinu,
hjá bankastjóra, tannlækni og víðar. (Ljósm.: l>jóðleikhú.síA)
Þjóðleikhúskjallarinn:
„Kjallarakyöld“
tekin upp að nýju“
KJALLARAKVÖLD í Þjóðleik-
húskjallaranum verða tekin upp að
nýju nú um helgina, en þá er mat-
argestum boðið upp á skemmti-
dagskrá í ætt við kabarett á föstu-
dags- og laugardagskvöldum, sem
e.k. endurgjaldslausa ábót. Var
þessari starfsemi hleypt af stokk-
unum sl. vetur og þótti gefast vel.
Þjóðleikhúsið hefur í þetta
sinn fengið til liðs við sig höf-
unda útvarpsþáttanna „Ullen-
dúllendoff", þau Gísla Rúnar
Jónsson, Eddu Björgvinsdóttur
og Randver Þorláksson. Hafa
þau samið þrjár mismunandi
kabarettdagskrár, sem eru hver
um sig 45 mínútur að lengd.
Tvær þeirra hafa þegar verið
æfðar og verða sýndar á víxl
fyrst um sinn, ýmist föstu-
dagskvöld eða laugardagskvöld,
eftir því hvaða sýning er á stóra
sviðinu, þar eð af því mótast
hvaða leikarar eru lausir. Verð-
ur auglýst í blöðum hverju sinni,
hvaða dagskrá verður flutt.
Væntanlega fer þriðja dagskráin
í æfingu fljótlega. Dagskrá I
verður frumflutt föstudag, en
dagskrá II laugardag.
Leikstjóri er Gísli Rúnar
Jónsson, en leikendur auk hans
eru Edda Björgvinsdóttir, Rand-
ver Þorláksson, Helga Bach-
mann, Sigríður Þorvaldsdóttir,
Sigurður Sigurjónsson og Þór-
hallur Sigurðsson. Þá mun Sig-
urður Þórarinsson leika á píanó
milli atriða.
Ekki verður sami matseðill
með dagskrá I og II. Veitinga-
maður er Svanur Ágústsson.
Margrét H. Magnúsdóttir tekur við
stofnskránni úr höndum Patriciu
Hand.
Akranes:
Málfreyju-
deild stofnuð
FYRIK skömmu var stofnuð sérstök
málfreyjudeild á Akranesi og fékk
hún nafnið Ösp. Með stofnskrár
fundi sem haldinn var 3. október sl.
öðlaðist deildin fullt lögmæti innan
ITC, Alþjóðasamtaka málfreyja.
Stofnforseti deildarinnar á
Akranesi er Margrét H. Magnús-
dóttir og afhenti Patricia Hand
henni stofnskrána.
Málfreyjudeildin Ösp er áttunda
málfreyjudeildin sem starfar á ís-
landi.
Bandalag kvenna:
Fræðslufundur um félags- og tóm-
stundastörf reykvískrar æsku
BANDALAG kvenna í Reykjavík efnir
til fræðslufundar um félags- og tóm-
stundastörf reykvískrar æsku í Kristal-
sal llótel Loftleiða næstkomandi laug-
ardag, 7. nóv. Hefst fundurinn kl. 9.30
og stendur allan daginn til kl. 16 með
hádegisverðarhléi og verða bæði fram-
söguerindi og pallborðsumræður. Unn-
ur S. Ágústsdóttir, formaður BKK, set-
ur fundinn kl. 9.30. Fundarstjóri fyrir
hádegi cr Sjöfn Sigurbjörnsdóttir og
eftir hádcgi Elín Pálmadóttir.
Erindi hefjast kl. 9.40. Niels Á.
Lund, æskulýðsfulltrúi ríkisins, tal-
ar um þátttöku ríkis í félags- og
tómstundastörfum ungmenna. Ómar
Einarsson, framkvæmdastjóri
Æskulýðsráðs Reykjavíkur, talar
um félags- og tómstundastörf ungl-
inga. Sigurður Magnússon, fram-
kvæmdastjóri, talar um íþrótta-
starfsemi og útilíf fatlaðra, Agnes
Sigurðardóttir, æskulýðsfulltrúi
Þjóðkirkjunnar, flytur erindi um fé-
lags- og tómstundastarf ungmenna
og Stefán Kristjánsson, íþróttafull-
trúi Reykjavíkurborgar, erindi um
íþróttir og tómstundastarf ung-
menna. Eftir kaffihlé kl. 11 talar
Karl Rafnsson kennari um félags- og
tómstundastarf í grunnskólum
Reykjavíkur, Áslaug Friðriksdóttir
skólastjóri um viðhorf skólastjóra til
félags- og tómstundastarfa í skólum,
Konráð Kristjánsson og Berglind
Einarsdóttir ræða viðhorf ung-
menna til félags- og tómstunda-
starfa og Þórunn Gestsdóttir blaða-
maður talar um viðhorf foreldris til
félags- og tómstundastarfa. Eftir
hádegisverð kl. 13.30 verða pall-
borðsumræður, sem fyrirlesarar
taka þátt í og einnig verða fyrir-
spurnir og umræður úr sal.
Auk bandalagskvenna eru allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.