Morgunblaðið - 12.11.1981, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1981
21
Hvað segja þeir um efnahagsráðstafanirnar
Davíð Sch. Thorsteinsson formaður Félags ísl. iðnrekenda:
Brúar ekki bilið milli
kostnaðarhækk-
ana og gjaldeyrisverðs
„IÐNAÐURINN er um þessar
mundir rekinn með 10—19%
halla, misjafnlega miklum eftir
greinum. 6,5% gengislækkun á
vegnu meðalgengi íslenzku
krónunnar brúar ekki bilið milli
innlendra kostnaðarhækkana og
verðs á erlendum gjaldeyri. Inn-
lendur tilkostnaður iðnaðar hef-
ur aukist um 25—30% það sem
af er þessu ári, en sem dæmi má
nefna að sterlingspund er nú
selt á svo til sama verði og um
síðustu áramót. Hvernig á iðnað-
urinn að geta keppt við innflutn-
ing við þessi skilyrði?" sagði
Davíð Scheving Thorsteinsson
formaður Félags íslenskra iðn-
rekenda.
Hann sagði einnig: „Lækkun
tilkostnaðar útflutningsat-
vinnuveganna, þar með talið
útflutningsiðnaðar, með til-
færslum úr Seðlabanka er
hagstæð aðgerð fyrir þessar
greinar atvinnulífs, en aug-
ljóst er að ekkert tillit hefur
verið tekið til þess hluta iðn-
aðarins sem keppir hér á
heimamarkaði. Samkeppnis-
aðstaða hans versnar sem
nemur þessum tilfærslum og
var þó ekki á það bætandi.
Þessu til viðbótar skerðir
enn frekari niðurgreiðsla
vaxta á afurðalánum sam-
keppnisaðstöðu iðnaðarins þar
sem aðeins einn fjórði hluti
rekstrarlána hans er afurða-
lán en meira en helmingur
rekstrarlána sjávarútvegsins
eru afurðalán.
Það sem sýnir þó kannski
bezt hvernig ríkisstjórnin
hundsar gersamlega vandamál
framleiðsluiðnaðarins er sú
staðreynd að mesta tap iðnað-
arins er um þessar mundir hjá
þeim greinum sem búa við
svokallaða „verðstöðvun"
þessarar ríkisstjórnar. I þess-
um ráðstöfunum felst ekkert
sem réttir hlut þessa hluta
iðnaðarins. Atvinnuöryggi og
afkoma þeirra þúsunda sem
við framleiðsluiðnaðinn starfa
er enn í voða vegna stefnu rík-
isstjórnarinnar."
„Gengisbreytingin
dregur úr tapinu“
- segir Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson forstjóri SH
„ÞESSI gengisbreyting og þær
ráðstafanir sem hafa verið gerð-
ar stuðla að því að draga úr tap-
inu á árinu, en engu að síður
verður áframhaldandi tap hjá
frystingunni," sagði Eyjóifur Is-
feld Eyjólfsson forstjóri Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna,
þegar hann var spurður álits á
efnahagsaðgerðum ríkisstjórn-
arinnar.
„Það felst tvennt í þessum
aðgerðum, annars vegar 6,5%
gengisfelling og hins vegar, að
gengistryggðu afurðalánin
breytast ekki, verða óbreytt.
Gengisbreytingin er of lítil,
hún hefði þurft að vera
10—11% til þess að frystihús-
in geti lagfært stöðu sína
verulega. Það er búinn að vera
taprekstur á frystihúsunum
allt árið og fjárhagsvandræðin
því mikil, sem kemur ekki síst
fram í því að óreiðuskuldir
hafa hlaðist upp, auk þess sem
vaxtabyrðin hefur verið klafi á
húsunum.
Bindingin á afurðalánunum
er mjög jákvæð ráðstöfun og
virkar því gegnisbreytingin
meira aftur fyrir sig og gengur
að nokkru upp í það, sem tap-
ast hefur á árinu,“ sagði Eyj-
ólfur Isfeld Eyjólfsson að lok-
um.
að nokkur gengisfelling væri
franiundan. Þessi framkoma rýrir
álit almennings á ráðherrunum og
ríkisstjórninni í heild,“ sagði
Kjartan Jóhannsson formaður Al-
þýðuflokksins.
Hann sagði einnig: Ákvörðun-
in ein sér um gengisfellingu og
hugsanlega breytingu afurða-
lána yfir í íslenzkar krónur
framlengir aðeins núverandi
ástand. Við höldum áfram í
sama farinu og þessi bráða-
birgðaákvörðun endist aðeins í
einn til tvo mánuði, enda er því
beinlínis lýst yfir í fréttatil-
kynningu Seðlabankans að
þannig eigi staðan aðeins að
vera í tvo mánuði.
Ríkisstjórnin státar af ákveð-
inni og öruggri efnahagsstefnu.
Þessi stefna er í reynd aðeins
ein bráðabirgðalausnin sem
tekur við af annarri. Því til
sönnunar má benda á skrípa-
leikinn með niðurgreiðslur
landbúnaðarvara. Landbúnað-
arvörur lækka og hækka til
skiptis, allt eftir því hvað hent-
ar hverju sinni.
Kjartan sagði í lokin: Alþýðu-
flokkurinn hefur lagt áherzlu á
að þessum bráðabirgðaaðgerð-
um verði hætt og að tekin verði
upp ný vinnubrögð sem nái var-
anlegum árangri í stað þess að
við hrekjumst nú úr einni
bráðabirgðalausninni yfir í
aðra.
Skekkir mynd-
ina en breytir
ekki kröfum
- segja forystumenn í verkalýds-
hreyfingunni um gengisfellinguna
TALIÐ er að 6,5% gengisfelling hækki vísitöluna um 2—3%, en
áhrif gengisfellingarinnar verða þó eigi bætt í kaupgjaldsvísitölu
fyrr en 1. marz. Athugun á vöruverði vegna vísitöluútreiknings, sem
kemur á laun 1. desember, fór fram fyrstu vikuna í þessum mánuði
þannig að gengisfellingin kemur ekki inn í þann útreikning heldur
frestast fram á næsta ár þó svo að gengisfellingarinnar fari að gæta
í verðlagi strax á næstu vikum. Einn verkalýðsforingi, sem Morgun-
blaðið ræddi við í gær, sagði það ekki fara á milli mála að gengis-
fellingin hefði verið tímasett þannig að hún næði ekki inn í vísitöl-
una fyrir 1. desember og í annan stað til að stjórnvöld gætu sýnt
fram á lægri verðbólgu í ár en í raun væri hér á landi.
Guðmundur J. Guðmunds-
son, formaður Verkamanna-
sambands íslands, sagði er
hann var spurður hver áhrif
gengisfellingin hefði á kröfu-
gerð ASÍ, að gengisfellingin
myndi ekki breyta kröfugerð-
inni. Hins vegar kvað Guð-
mundur samninganefnd ASI
myndu standa mun fastar á
þeirri kröfu, að engar breyt-
ingar yrðu gerðar á útreikn-
ingi verðbóta, þ.e.a.s. að ekki
komi til Ólafslagavísitölu á
ný, en lögum samkvæmt á hún
að taka gildi að nýju um ára-
mót.
Jón Helgason, formaður
Einingar á Akureyri, sagði að
kannski myndi gengisfellingin
breyta viðhorfum manna í
sjálfri samningagerðinni. „Að
skella á gengisfellingu er brot
á þeim fyrirheitum, sem gefin
voru um að halda stöðugu
gengi, og hún skekkir mjög
myndina fyrir okkur. Við
fáum hana ekki bætta fyrr en
eftir á, tímasetningin er þann-
ig úthugsuð og kannski er það
fyrirfram ákveðið að fella
gengið á þeim tíma, er samn-
ingaviðræður eru að hefjast,
til að draga kjark úr fólki,"
sagði Jón Helgason.
Jón Kjartansson í Vest-
mannaeyjum sagðist ekki
reikna með að gengisfellingin
breytti kröfum verkalýðsfé-
laga, en hún færi beint út í
verðlagið. „Einu sinni kölluð-
um við þetta íhaldsúrræði, en
það virðist vera alveg sama
hverjir sitja við stjórnvölinn.
Auðvitað er þarna ekki um
annað en staðdeyfingu að
ræða. Svo líður deyfingin frá
og sjúklingurinn er jafn þjáð-
ur og áður. Þetta er engin
lækning," sagði Jón Kjart-
ansson.
Morgunblaðið spurði Þor-
stein Pálsson framkvæmda-
stjóra VSÍ hvort gengisfell-
ingin breytti i einhverju við-
horfum vinnuveitenda. „Þessi
gengisfelling um 6,5% sýnir
vel hve staða atvinnuveganna
er erfið og þrátt fyrir þessa
gengisfeilingu er viðurkennt
að rekstur fyrirtækja kemst
ekki einu sinni upp í núllið.
Um hvað höfum við þá að
semja,“ sagði Þorsteinn Páls-
son.