Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 16
Blóðheit, æriegllfssaga LÍFSJÁTNING, endurminningar Guðmundu Elíasdóttur söngkonu, skráðar af Ingólfi Mar- geirssyni, er engin hversdagsleg æviferils- skýrsla. Þetta er opinská, blóðheit, ærleg saga, — ein eftirminnilegasta ævisaga sem hér hefur komið út um langt skeið. Ævisaga — ævintýri líkust Guðmunda á að baki óvenjulegan feril, saga hennar er ævintýri líkust, — og þó um- brotasamari en nokkurt ævintýri. Hún segir hér frá bemsku sinni og uppvexti á Vestfjörð- um, dvöl í Reykjavík rétt fyrir seinna stríð, starfi og námi í Kaupmannahöfn á myrkum hemámsárum, þar sem hún hlýðir kalli söngs- ins. Tók þátt í 1. óperusýningu Þjóðleikhússins Hún greinir frá hjúskap sínum sem var nokkuð rysjóttur á köflum, margvíslegum vina- kynnum, listferli sínum og lífsbaráttu heima og erlendis. Við lesum um viðburðaríka vist henn- ar vestan hafs árum saman þar sem hún bjó lengstum við þröng kjör, án þess að fara var- hluta af þeim heiðri að syngja i útvarps- og sjónvarpsstöðvum og koma fram í garði Hvíta hússins. Á þessum árum söng hún víða við mik- inn orðstír, hér heima tók hún meðal annars þátt i fyrstu óperusýningu Þjóðleikhússins. Frá vesturheimi til Danmerkur og þaðan heim Eftir Ameríkudvölina sest hún að í Dan- mörku og býr þar í mörg ár, verður að hætta að syngja og fæst við margt, gerist meira að segja atvinnurekandi um skeið. Loks kemur að því að hún flyst heim og tekur að stunda söng- kennslu. Flest bendir til að líf hennar færist nú i fastar skorður. En það er öðru nær: nú vitjar ástin hennar á ný, hún kynnist hinum ógleym- anlega bóhem og snillingi, Sverri Kristjánssyni sagnfræðingi, þau giftast og eiga nokkur ár saman. Við dauða hans lýkur frásögn Guð- mundu i þessari bók. Frá öllu þessu ævintýri lífs sins segir Guð- munda af óvenjulegri hreinskilni og hispurs- leysi, húmor og fjöri, en umfram allt mann- eskjulegum næmleika og hlýju. Hlutur skrásetj- arans, Ingólfs Margeirssonar, er mikill og góð- ur. Hann er kunnur fyrir lifandi og skemmtileg blaðaviðtöl við margs konar fólk. Hér hefur honum tekist að skila Guðmundu Elíasdóttur til lesandans: skaphita hennar og geðsveiflum, lífsnautn hennar i sorg og gleði, æðaslœtti manneskjunnar sjálfrar. Sá nákomni hugblær sem verður til við trúnaðarsamband sögu- manns og skrásetjara leikur um sögu Guð- mundu frá upphafi til enda og gerir lestur hennar að heillandi ævintýri. — í bókinni er fjöldi mynda. LÍFSJÁTNING er ævisagan í ár. yfir 50 myndir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.