Morgunblaðið - 02.12.1981, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981
55
v—
Háskólinn útskrif-
ar 72 stúdenta
í UPPHAFI haustmisseris luku eft-
irtaldir 72 stúdentar prófum við Há-
skóla íslands:
Embættispróf í guðfræði (1)
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Embættispróf í læknisfræði (1)
Edda Jónína Ólafsdóttir
Aðstoðarlyfjafræðingspróf (1)
Elísabet Sólbergsdóttir
B.S.-próf í hjúkrunarfræði (2)
Kristín Björnsdóttir
Magnús Ólafsson
B.S.-próf í sjúkraþjálfun (2)
Anna G. Eiríksdóttir
Ásdís Kristjánsdóttir
Kandídatspróf í viðskiptafræðum (19)
Birna Snót Stefnisdóttir
Bolli Héðinsson
Einar Kristinn Jónsson
Guðmundur Arnaldsson
Gunnar Örn Kristjánsson
Hrafnhildur Sigurgeirsdóttir
Hörður Gunnarsson
Hörður Óskarsson
Jón Bergþór Hrafnsson
Jón Ellert Lárusson
Magnús Ægir Magnússon
Maríanna Jónasdóttir
Salvör K. Gissurardóttir
Sigurður P. Óskarsson
Sigurður Þorsteinsson
Sigurþór Guðmundsson
Sverrir Arngrímsson
Trausti Bragason
Tryggvi Jónsson
Kandídatspróf í íslenskum
bókmenntum (1)
Sigurður Bjarnason
Kandídatspróf í ensku (1)
Ólöf Helga Guðmundsdóttir
B.A.-próf í heimspekideild (15)
Ágústa Unnur Gunnarsdóttir
Guðlaug Ólöf Ólafsdóttir
Guðný Árnadóttir
Hallfríður Ingimundardóttir
Hjálmar Jónsson
Jón Axel Harðarson
Kirsten Wolf
Kristín Baldursdóttir
Sigrún Oddsdóttir
Sonja Birna Jónsdóttir
Stefán Baldursson
Svava Björnsdóttir
Þorgerður Ásdís Jóhannsdóttir
Þorsteinn Hilmarsson
Þórunn Sigurðardóttir
Próf í íslenzku fyrir erlenda
stúdenta (1)
Rubek Rubeksen
Verkfræði- og raunvísindadeild (21)
Lokapróf í vélaverkfræði (1)
Hallgrímur Arnalds
Lokapróf í rafmagnsverkfræði (3)
Haukur Eggertsson
Heimir Þ. Sverrisson
Tómas Björn Ólafsson
B.S.-próf í stærðfræði (1)
Birgir Guðjónsson
B.S.-próf í tölvunarfræði (2)
Ebba Þóra Hvannberg
Helgi Þorbergsson
B.S.-próf í eðlisfræði (1)
Björn Erlingsson
B.S.-próf í jarðeðlisfræði (1)
Þorsteinn Egilsson
B.S.-próf í matvælafræði (3)
Ágúst Thorstensen
Jón S. Jóhannesson
Þorbjörn Guðjónsson
B.S.-próf í líffræði (7)
Ásbjörn Karlsson
Björn Þorsteinsson
Eva Guðný Þorvaldsdóttir
Ingibjörg Pétursdóttir
Kristinn H. Skarphéðinsson
Kristín M. Siggeirsdóttir
Þórólfur Már Antonsson
BJí.-próf í jarðfræði (2)
Edda Lilja Sveinsdóttir
Sigrún Gunnarsdóttir
B.A.-próf í félagsvísindadeild (7)
B.A.-próf í bókasafnsfræði (2)
Guðmunda Rannveig Gísladóttir
Sigríður Sigtryggsdóttir
B.A.-próf í sálarfræði (2)
Þór Eysteinsson
Þorlákur Karlsson
B.A.-próf í uppeldisfræði (1)
Steinunn Helgadóttir
B.A.-próf í stjórnmálafræði (2)
Gunnar Helgi Kristinsson
Herdís Þorgeirsdóttir
„Gleymméreiu
Barnabók eftir Sigrúnu og Þórarin Eldjárn
ÚT ER komin hjá Iðunni barnabók-
in „Gleymmérei“ eftir Sigrúnu Eld-
járn, en Þórarinn Eldjárn Ijóð-
skreytti.
Þetta eru myndir af lítilli stúlku
og er ætiast til að börnin liti
myndirnar. Hverri opnu fylgja
rímaðir textar og hafa myndirnar
þann tilgang að kenna litlum
börnum að þekkja ýmsa nauð-
synjahluti sem nota þarf í daglega
lífinu. Texti við fyrstu mynd er til
dæmis þannig „Buxurnar Gleym-
mérei hefur á hælum,/ haldast
þær uppi með lími? Með nælum?/
Hún þarf ekki að grufla svo langt
út í löndin,/ því lausnin er heima."
— Svarið kemur svo með mynd ef
blaðinu er flett: „Axlaböndin".
S'yrún Eldjérn
GLEYMMÉREI
Þórarinn Eldjám Ij6ö»kr»ytti
Kristniboðssjóður-
inn Vonin stofnaður
í DESEMBER síðastliðnum var
stofnaður kristniboðssjóðurinn Von-
in í Hafnarfirði. Hann er til minn-
ingar um hjónin Jóhönnu Fr. Lofts-
dóttur (1869—1953) og Sumarliða
Guðmundsson (1867—1937) að Borg
í Reykhólasveit, dætur þeirra, Sól-
veigu (1897—1937) og Þóreyju
(1911 — 1962) og Ingibjörgu Guð-
mundsdóttur (1864—1948), systur
Sumarliða.
Stofnendur sjóðsins eru frænd-
systkinin Karl Árnason, Kambi,
Reykhólasveit og Ingibjörg
Sumarliðadóttir, Svalbarði 12,
Hafnarfirði.
Eins og nafn sjóðsins ber með
sér, er honum, samkvæmt
stofnskrá sinni, ætlað að styrkja
kristniboð, bæði innanlands og
utan. Sjóðurinn hefur gefið út
minningarspjöld og fást þau hjá
stofnendum hans og á eftirtöldum
stöðum: Krossinum, Auðbrekku
34, Kópavogi, hjá Unni Guð-
mundsdóttur, Stað í Reykhóla-
sveit, Guðbjörgu Karlsdóttur,
Ölduslóð 26, Hafnarfirði og Jó-
hönnu Karlsdóttur, Móabarði 20 b,
Hafnarfirði.
Þessi mynd var tekin af Sigrúnu fyrr á þessu ári í Landakirkju, við
sorgarmöttul sem gefinn var kirkjunni.
Hlýtur lofsamlega
dóma erlendis
MORGUNBLAÐINU hafa bor
ist umsagnir úr erlendum blöð-
um um sýningu Sigrúnar Jóns-
dóttur í Luxemburg sl. vetur.
Sigrún sýndi þar batikverk
á hótel Aérogolf-Sheraton.
Sigrún fær mjög lofsamlega
dóma og er mikið talað um
hina djúpu og sterku liti sem
hún notar í verkum sínum, lit-
ir íss og elda í samræmi við
það land sem ól Sigrúnu upp.
Sigrún er þar talin með merk-
ustu batiklistakonum, og verk
hennar þekkt víða um heim.
Sigrún dvelur nú erlendis
vegna veikinda.
Landið þitt
2. bindi
komið út
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Ör-
lygur hefur sent frá sér 2.
bindi ritverksins ísland, land-
ið þitt, eftir þá Þorstein Jós-
epsson og Steindór Steindórs-
son. 1‘etta er þriðja útgáfa
þessa mikla verks.
I Landinu þínu er sagt frá
sögu og sérkennum þúsunda
staða, bæja, kauptúna, hér-
aða og landshluta og þar er
ennfremur að finna hundruð
litmynda. Landið þitt, 2.
bindi, er 288 blaðsíður og
fjallar um staði, sem byrja á
stöfunum H—K.
Landið þitt hefur notið
mikilla vinsælda síðan rit-
verkið var fyrst gefið út árið
1966.