Morgunblaðið - 10.12.1981, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1981
Peninga-
markadurinn
GENGISSKRÁNING
NR. 234— 8. DESEMBER 1981
Ný kr. Ný kr.
Eining Kl. 09 15 Kaup Sala
1 BandariKjadollar 8,156 8,180
1 Sterlingspund 15,851 15,898
1 Kanadadollar 6,896 6,916
1 Dónsk króna 1,1269 1,1303
1 Norsk króna 1,4274 1,4316
1 Sænsk króna 1,4874 1,4917
1 Finnskt mark 1,8814 1,8870
1 Franskur franki 1,4437 1,4479
1 Belg franki 0,2140 0,2146
1 Svissn. franki 4,5217 4,5350
1 Hollensk florina 3,3334 3,3432
1 V-þýzkt mark 3,6433 3,6541
1 ítolsk lira 0,00679 0,00681
1 Austurr. Sch. 0,5192 0,5207
1 Portug. Escudo 0,1268 0,1272
1 Spánskur peseti 0,0852 0,0854
1 Japansktyen 0,03763 0,03774
1 Irskt pund 12,931 12,969
SDR. (sérstok
dráttarrettindi 07/12 9,5719 9,6000
✓
r N
GENGISSKRÁNING
FERÐAMANNAGJALDEYRIS
8. DESEMBER 1981
Ný kr. Ný kr.
Eining Kl. 09.15 Kaup Sala
1 Bandankjadollar 8,972 8,998
1 Sterlingspund 17,436 17,488
1 Kanadadollar 7,586 7,608
1 Donsk króna 1,2396 1,2433
1 Norsk króna 1,5701 1,5748
1 Sænsk króna 1,6361 1,6409
1 Finnskt mark 2,0695 2,0757
1 Franskur franki 1,5881 1,5927
1 Belg. franki 0,2354 0,2361
1 Svissn. franki 4,9739 4,9885
1 Hollensk flonna 3,6667 3,6775
1 V.-þýzkt mark 4,0076 4,0195
1 ítólsk lira 0,00747 0,00749
1 Austurr. Sch. 0,5711 0,5728
1 Portug Escudo 0,1395 0,1399
1 Spánskur peseti 0,0937 0,0939
1 Japanskt yen 0,04139 0,04151
1 irskt pund 14,224 14,266
L-
Vextir: (ársvextir)
INNLÁNSVEXTIR:
1. Sparisjóðsbækur................ 34,0%
2. Sparisjóðsreikningar, 3 mán.1). 37,0%
3. Sparisjóðsreikningar, 12. mán. * 11... 39,0%
4. Verðtryggðir 6 mán. reikningar. 1,0%
5. Avisana- og hlaupareikningar... 19,0%
6. Innlendir gjaldeyrisreikningar:
a. innslæður í dollurum......... 10,0%
b. innstæður í sterlingspundum. 8,0%
c. innstæður í v-þýzkum mörkum.... 7,0%
d. innstæöur i dönskum krónum.. 10,0%
1) Vextir færðir tvisvar á ári.
ÚTLÁNSVEXTIR:
(Verðbotaþáttur i sviga)
1. Vixlar, forvextir..... (26,5%) 32,0%
2. Hlaupareikningar....... (28,0%) 33,0%
3. Lán vegna útflutningsafurða... 4,0%
4. Önnur afurðalán ...... (25,5%) 29,0%
5. Skuldabréf ............ (33,5%) 40,0%
6. Vísitölubundin skuldabréf....... 2,5%
7. Vanskilavextir á mán.............4,5%
Þess ber aö geta, að lán vegna út-
flutningsafurða eru verötryggö miöaö
við gengi Bandaríkjadollars.
Lífeyrissjódslán:
Lifeyrissjóöur starfsmanna ríkisins:
Lánsupphæö er nú 120 þúsund ný-
krónur og er lániö vísitölubundiö með
lánskjaravisitölu, en ársvextir eru 2%.
Lánstími er allt að 25 ár, en getur veriö
skemmri, óski lántakandi þess, og eins
ef eign sú, sem veð er í er lítilfjörteg, þá
getur sjóöurinn stytt lánstimann.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna:
Lánsupphæö er nú eftir 3ja ára aöild aö
lífeyrissjóönum 72.000 nýkrónur, en
fyrir hvern ársfjóröung umfram 3 ár
bætast viö lániö 6.000 nýkrónur, unz
sjóösfélagi hefur náö 5 ára aðild aö
sjóðnum. Á tímabilinu frá 5 til 10 ára
sjóösaöild bætast viö höfuöstól leyfi-
legrar lánsupþhæöar 3.000 nýkrónur á
hverjum ársfjóröungi, en eftir 10 ára
sjóósaðild er lánsupphæöin oröin
180.000 nýkrónur. Eftir 10 ára aöild
bætasl viö 1.500 nýkrónur fyrir hvern
ársfjóröung sem líöur. Því er í raun ekk-
ert hámarkslán í sjóönum.
Höfuðstóll lánsins er tryggöur meö
byggingavisitölu, en lánsupphæöin ber
2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til 32 ár
aö vali lántakanda.
Lanskjaravisitala fyrir desember-
mánuö 1981 er 292 stig og er þá miöaö
við 100 1. júní '79.
Byggingavísitala var hinn 1. október
siöastliðinn 811 stig og er þá miöaö viö
100 í október 1975.
Handhafaskuldabréf í fasteigna-
vióskiptum. Algengustu ársvextir eru nú
18—20%.
„Þyrnirós vaknar“
Agnar Þórdarson
Á dagskrá hljóðvarps kl. 21.10
er nýtt leikrit eftir Agnar Þórð-
arson, „Þyrnirós vaknar". Leik-
stjóri er Brynja Benediktsdóttir.
Með hlutverkin fara Sigríður
Þorvaldsdóttir, Gísli Alfreðsson,
Guðrún Þórðardóttir og Hákon
Waage. Flutningur leiksins tekur
40 mínútur. Tæknimenn: Jón Örn
Ásbjörnsson og Hreinn Valdi-
marsson.
Halli og Rós hafa verið gift í
nokkur ár og komið sér þægilega
fyrir. Atvinnurekstur Halla
blómgast, hann er semsagt einn
þeirra sem hefur „komið sér
áfram í lífinu". Fyrr á árum hafði
hann þekkt glæsilega stúlku sem
heitir Sonja. Hún er nú orðin
þekkt sýninga dama erlendis, en
kemur í heimsókn til þeirra
hjóna. Henni virðist einsýnt að
breyting þurfi að verða á högum
Rósar, mál sé til komið að „Þyrni-
rós vakni".
Agnar Þórðarson er fæddur í
Reykjavík 1917. Hann lauk prófi í
íslenskum fræðum frá Háskóla
íslands 1945 og stundaði síðan
framhaldsnám í Englandi árin
1947-’48. Um skeið dvaldist hann
einnig í Bandaríkjunum. Hann
varð bókavörður við Landsbóka-
safnið 1951. Fyrsta útvarpsleikrit
hans var „Förin til Brasilíu" 1953.
Agnar hlaut miklar vinsældir
fyrir framhaldsleikritið „Víxlar
með afföllum" sem flutt var 1958.
Hann hefur einnig skrifað skáld-
sögur og smásögur.
Hljóðvarp kl. 22.00: Hljómsveitin Mezzoforte syngur og
leikur.
Afkoma iðnaðarins
Á dagskrá hljóðvarps kl. 11.00
er þátturinn Iðnaðarmál. Umsjón:
Sigmar Ármannsson og Sveinn
Hannesson. Rætt við Val Valsson,
framkvæmdastjóra Félags ís-
lenskra iðnrekenda, um ástand og
horfur í iðnaði.
— Ástæða þess að talað er við
Val Valsson að þessu sinni er
fundur sem Félag íslenskta iðn-
rekenda gekkst fyrir á föstudag-
inn, sagði Sveinn Hannesson, —
þar sem Valur hélt almenna inn-
gangsræðu um afkomu iðnaðarins
á þessu ári. Hann rakti þar hvað
helstu þættir hafa haft áhrif á
afkomuna, bæði tekjur og gjöld.
Niðurstaða hans var nú ekki
glæsileg, því að sýnilegt er sam-
kvæmt henni, að það stefnir í auk-
inn taprekstur á þessu ári eftir
slæmt ár í fyrra, sé litið á iðnað-
inn í heild. Við fjöllum fyrst um
þessar niðurstöður hans og þá
þætti sem hann drap á í ræðu
sinni og síðan gerir hann grein
fyrir hvað helst megi verða til úr-
bóta á þessu sviði að hans mati,
en þar leggur hann áherslu á tvö
atriði: að viðhalda réttri geng-
isskráningu og aflétta einhverju
af skattbyrði iðnfyrirtækja.
Valur Valsson
útvarp Reykjavík
FIM/MTUDtkGUR
10. desember
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.20 Leikfimi.
7.30 Morgunvaka.
Umsjón: l’áll Heiðar Jónsson.
Samstarfsmenn: Önundur
Björnsson og Guðrún Birgis-
dóttir. (8.00 Fréttir. Dagskrá.
Morgunorð: Dr. Þórir Kr. Þórð-
arson talar. Forustugr. dagbl.
(útdr.). 8.15 Veðurfregnir. For
ustugr. frh.).
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Sampó litli lappi“ eftir Topeli-
us. Sigurður Júl. Jóhannesson
þýddi. Heiðdís Norðfjörð les
síðari hluta.
9.20 Iæikfimi. Tilkynningar.
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
11.00 Iðnaðarmál.
Umsjón: Sigmar Ármannsson
og Sveinn Hannesson. Rætt við
Val Valsson framkvæmdastjóra
Félags íslenskra iðnrekenda
um ástand og horfur í iðnaði.
11.15 Létt tónlist.
Ýmsir listamenn syngja og
leika.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
SÍÐDEGID
14.00 Dagbókin.
Stjórnendur: Gunnar Salvars-
son og Jónatan Garðarsson.
Dagbókin er að þessu sinni
helguð minningu John Lenn-
ons, en ár er nú liðið frá dauða
hans.
15.10 Á bókamarkaðinum.
Andrés Björnsson sér um lestur
úr nýjum bókum. Kynnir: Dóra
Ingvadóttir.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
16.20 Lagið mitt.
Helga Þ. Stephensen kynnir
óskalög barna.
FÖSTUDAGUR
11. desember
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.45 Skonrokk
Popptónlistarþáttur. Umsjón:
Þorgeir Ástvaldsson.
21.15 A döfinni
Umsjón: Karl Sigtryggsson.
21.40 Fréttaspegill
Umsjón: Guðjón Einarsson.
22.25 Eg átti þátt í falli Hitlers
17.00 Síðdegistónleikar.
Sinfóníuhljómsveit útvarpsins í
Frankfurt leikur; Eliahu Inbal
stj.
a. „Fléttur" eftir Iannis Xenak-
is.
b. Sinfónía nr. 4 í e-moll op. 98
eftir Johannes Brahms. (Hljóð-
ritun frá útvarpinu í Frankfurt.)
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
KVÖLDIÐ
19.35 Daglegt mál.
Helgi J. Halldórsson flytur þátt-
inn.
(Adolf Hitler — My Part in
His Downfall) Bresk gam-
anmynd frá 1972. Leikstjóri:
Norman Cohen. Aðalhlutverk:
Jim Dale, Spike Milligan,
Arthur Lowe.
Myndin segir frá nokkrum
náungum, sem fara í herinn,
þegar Hitler ræðst inn í Pól-
land. Gamanið byrjar þegar
trompettleikarinn Spike Mill-
í igan fer í læknisskoðun. Þýð
andi: Kristmann Eiðsson.
23.55 Dagskrárlok
19.40 Á vettvangi.
20.05 „í mánaskímu",
saga eftir Stefan Zweig, síðari
hluti. Þórarinn Guðnason les
eigin þýðingu í tilefni af aldar-
afmæli skáldsins.
20.30 Tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar fslands í Háskólabíói.
Beint útvarp frá fyrri hluta tón-
leikanna. Stjórnandi: Lutz
Herbig. Einleikari: Gísli Magn-
ússon. Svíta úr „Blindingsleik”
eftir Jón Ásgeirsson. Píanó-
konsert í C-dúr nr. 21 eftir W.A.
Mozart. Kynnir: Jón Múli Árna-
son.
21.10 „Þymirós vaknar"
Leikrit eftir Agnar Þórðarson.
Leikstjóri: Brynja Benedikts-
dóttir. Leikendur: Guðrún Þórð-
ardóttir, Gísli Alfreðsson, Sig-
ríður Þorvaldsdóttir og Hákon
Waage.
21.50 „Hrif“
Arnar Jónsson leikari les úr
Ijóðabókinni „Björt mey og
hrein“, æskuljóðum Baldurs
Pálmasonar.
22.00 Hljómsveitin „Mezzoforte"
syngur og leikur.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.35 Á bökkum Rínar.
Jónas Guðmundsson segir frá.
Þriðji þáttur.
23.00 Kvöldstund með Sveini Ein-
arssyni.
23.45 Fréttir. Ilagskrárlok.
Leikrit vikunnar kl. 21.10:
. ÁSGEIR JAKO
er örlaga saga tveggja einstaklinga, en hún er
ekki síður þjóðlífssaga, skrifuð til að sýna,
hversu ríkur þáttur ástin var í lífi þjóðarinn-
ar í fábreytni og fásinni fyrri tíma eða eins og
segir á einum stað í bókinni:
Hvert gat fólkið flúið í þennan tíma undan
ástinni? Ekki í ferðalög, skemmtanir, aðra
atvinnu né hugsjónir. Það bjó með ástinni og
sælimoigunn
ÞJÓÐSAGA
hafði engin ráð til að eyða henni, ef hún var
sár, stundum vildi það ekki eyða henni, þó
hún væri sár, hún var það eina sem það átti.
Ef hún á hinn bóginn var lukkuð, þá varð hún
lífsfyiling í baslinu og fyllti kotið unaði.
Hinn sæli morgun, er ekki hefðbundin ástar-
saga, hún er annað og meira.
Verð kr. 197,60
ÞINGHOLTSSTRÆTI 27 — SÍMI 13510