Morgunblaðið - 10.12.1981, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1981
Jafnræði í leik
Ögra og Selfoss
TALSVKRI) spenna hélzt út allan
leikinn er Ögri í Keykjavík og Sel-
fyssingar mættust í 3. deildinni í
handknattleik í Laugardalshöll á
laugardag. Jafnræði var með liðun-
um frá upphafi til loka leiksins, en
Selfyssingar fóru með sigur af
hólmi, skoruðu 23 mörk gegn 21
marki heimamanna.
Selfyssingar höfðu jafnan yfir-
höndina og frumkvæðið í leiknum,
en leikmenn Ögra, sem margir
hverjir eru heyrnardaufir og mál-
lausir, börðust vel og gáfu aldrei
neitt eftir. Með örlitlu meira sam-
spili hefðu þeir trúlega komið bet-
ur frá leiknum, sem einkenndist
lengi vel af miklu hnoði.
í liði Ögra átti markvörðurinn
beztan leik, Júníus Guðjónsson,
sem varði oft skémmtilega, t.d. tvö
vítaskot í seinni hálfleik. Þá skor-
aði Gunnar Kristófersson oft
skemmtilega eftir gegnumbrot.
Lið Selfoss er skipað nokkuð
jafnari einstaklingum, en þar
stóðu sig einna bezt Ámundi Sig-
mundsson, Sævar Sverrisson og
Einar Jónsson. Annars kom það í
ljós í þessum leik, að bæði liðin
standa ýmsum öðrum þriðju deild-
ar liðum talsvert að baki, t.d.
Ármanni og Dalvíkingum, sem
léku á sama stað seinna um dag-
inn. Urslitin urðu annars sem hér
segir:
Islandsmótið 3. deild, Laugar-
dalshöll,
Ögri 21 — Selfoss 23,
Selfyssingar höfðu yfir í hálfleik,
14-12.
#
LjÓBm. Krislján Kinarsson
• Ögri, félag heyrnardaufra, tekur nú í fyrsta skipti þátt í íslandsmótinu í handknattleik meistaraflokki karla og
leikur í 3. deild. Liðið hefur liprum einstaklingum á að skipa sem án efa eiga eftir að láta að sér kveða í framtíðinni.
Þessi mvnd var tekin af liðsmönnum Ögra á æfingu fyrir skömmu.
Ath. Við veitum alla þjónustu í sambandi við varahluti og vélakaup.
UPRmeð
SKRUFLyKILINM
Þetta er
Mercedes Bens Unimog
Samskonar bílar hafa verið notaðir af herjum Nato í fjölda ára, það segir sína
sögu.
Enda er bíllinn:
— Vatnsvarinn að fullu.
— Með læst drif og niðurgíruð í hjól.
— Með gormafjöðrum að framan og
aftan.
— Með drifsköftin lokuð í þéttu
hulstri.
— Með 1,5 tonna burðarþol.
— Mjög háfættur. Það er hálfur meter
undir lægsta punkt.
— Afar lágt gíraöur.
Kramið í þessum bíl er mjög gott. Og þaö er hægðarleikur að fá varahluti. Með
litlum tilkostnaði getur þú hæglega breytt honum í fullkomna:
Ferðabílinn Vinnubílinn Kaggann
Dráttarbílinn Sjúkrabílinn Sveítabílinn O.s.fr.
Verðið er hreinasti brandari; aðeins um kr. 40.000,-
Þetta gæti þess vegna verið jólagjöfin í ár! Hvers annars gæti svo sem bóndinn,
skíðagarpurinn, jeppatöffarinn, ferðamaðurinn, popparinn, björgunarsveitirnar, þú
eða aörir óskað sér?
pfumflxon & vAL/xon
Klapparstíg 16 Sími 27745
Ármann—Dalvík:
Leikurinn jafnari en
tölurnar gefa til kynna
Ármenningar unnu öruggan sigur
á Dalvfkingum í 3. deildinni í hand-
knattleik á laugardag, en leikurinn
fór fram í Laugardalshöll. Sigruðu
Ármenningar med 25 mörkum gegn
18 eftir að hafa leitt leikinn með
fjögurra marka mun í hálfleik er
staúan var 14—10.
Iæikurinn var annars jafnari en
tölurnar gefa til kynna og munurinn
á lióunum ekki eins mikill og halda
mætti. Var lengst af ekki nema eins
til tveggja marka munur allt þar til á
15. mínútu seinni hálfleiks, er staó-
an var 17—15 fyrir Ármann.
En þaö var eins og botninn dytti
úr leik Dalvíkinga siðasta korter-
ið, þá hófst hnoð og þó af þeirra
hálfu er gaf ekki af sér nema þrjú
mörk síðustu 17 mínúturnar, og
skoruðu þeir t.d. aðeins eitt mark
síðustu 11 mínútur leiksins.
Annars voru ýmsir nettir leik-
menn í liði Dalvíkur, og trúlega
hefur þá aðeins vantað úthald síð-
asta korterið.
Ármenningar tvíefldust á sama
tima og Dalvíkingar urðu að slaka
á klónni og náðu afgerandi forystu
á fimm mínútna kafla upp úr
miðjum seinni hálfleik og gerðu út
um leikinn.
Leikurinn var lengst af spenn-
andi, en oft á tíðum var þó um of á
þófi af beggja hálfu.
Hjá Dalvíkingum áttu beztan
leik Björn Ingi Hilmarsson
markvörður, Magnús Guðmunds-
son og Stefán Georgsson að öðrum
ólöstuðum. Hjá Ármanni voru
Björn Jóhannsson, sem skoraði 11
mörk, Einar Eiríksson og Kristinn
Ingólfsson einna beztan leik.
j stuttu máli:
íslandsmótið 3. deild, Laugardals-
höll: Ármann 25 — Davík 18.
Ármenningar höfðu forystu í hálf-
leik, 14—10.
Stórsigur ÍA
ÍA SIGRAÐI Dalvík mjög örugglega
í 3. deildinni í handknattleik um síð-
ustu helgi 33—25. Leikurinn fór
fram á Akranesi. Það var lands-
liðsmarkvörðurinn í knattspvrnu,
Bjarni Sigurðsson, sem skoraði flest
mörk IA eða 8. Pétur Ingólfsson
gcrði líka 8 mörk. Flest mörk Dal-
víkur skoraði Stefán Georgsson, 8.
Haukar mæta
Fylki í kvöld
í KVÖLD fer fram einn leikur í ís-
landsmótinu í handknattleik 2.
deild. Haukar mæta Fylki í íþrótta-
húsinu í Hafnarfirði kl. 20.00. Strax
á eftir leika Haukar og HK í 2. deild
kvenna.
Veittar verða viðurkenningar
EINS OG fram hefur komið á
íþróttasíðum Morgunblaðsins, hefur
vcrið áframhald á einkunnagjöf fyrir
leikmenn í handknattleik og körfu-
knattleik í Islandsmótunum í meist-
araflokki karla, I. deild og úrvals-
deild. Þessu mun verða haldið
áfram út íslandsmótin. En sá galli er
á gjöf Njarðar, að vegna verkfalls
bókagerðarmanna duttu allmargir
leikir út. Það verður til þess að ekki
er hægt að gefa mcðalcinkunn fyrir
keppnistímabilið í heild. íþrótta-
fréttaritarar blaðsins munu því út-
nefna leikmenn mótsins í báðum
greinum að þcim loknum og styðjast
við einkunnagjöf blaðsins. En eins
og áður mun stigahæsta körfuknatt-
leiksmanninum og markahæsta leik-
manninum I handknattleik verða
veittar viðurkenningar.
- ÞR.
Einkunnagjöfin
LIÐ ÍS:
Gísli Gíslason
Arni Guðmundsson
Itjarni Gunnar
Albert Guðmundsson
Ingi Stefánsson
Þórður Oskarsson
LIÐ KR:
6 Garðar Jóhannsson
6 Ágúst IJndal
6 Jón Sigurðsson
4 Bjarni Jóhannesson
4 Páll Kolbcinsson
4 Birgir Mikaelsson
Kristján Rafnsson
-
7
5
7
5
5
5
4