Morgunblaðið - 18.12.1981, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1981
Sjómannafélag Reykjavíkur:
Yfirgnæfandi meirihluti
með verkfallsboðun
SJÓMANNASAMBAND íslands mun í dag boda verkfall á öllum fiskiskipa-
flota landsmanna frá og með 25. desember, jóladegi. í gærkvöldi lauk at-
kvæðagreióslu Sjómannafélags Reykjavíkur um verkfallsboðun og var at-
kvæðagreiðslan leynileg. Af 134 sem greiddu atkvæði greiddu 128 atkvæði
með verkfallsboðun, 4 voru á móti, 1 seðill var auður og 1 ógildur.
- Þessi niðurstaða er afgerandi
bg það munu vera mörg ár síðan
sjómenn um allt land hafa sýnt
jafn mikla samstöðu, sagði Guð-
mundur Hallvarðsson, formaður
Sjómannafélags Reykjavíkur, þeg-
ar Mbl. hafði samband við hann
eftir að talningu atkvæða lauk.
Guðmundur sagði að það þyrfti
engan að undra þótt sjómenn
sýndu samstöðu nú, t.d. eftir um-
mæli forsætisráðherra á þingi í
fyrrakvöld, t.d. væri það algjörlega
út í hött, að segja, að sjómenn og
útgerðarmenn væru að reka á eftir
sjálfum sér með rekstarstöðvun.
Ríkið ætti oddamann yfirnefndar
og væri þar með í leiknum. Þá vissu
allir sem vildu vita að sjómenn
hefðu dregist aftur úr í launum á
síðustu árum og ekki fengið það
sem fólk í landi hefði fengið á silf-
urfati á fárra mánaða fresti.
Ragnar Birgisson, forstjóri Sanitas
um kæru Qlgerðarinnar:
Er út í hött og ber
vitni um taugaveiklun
„ÞESSI kæra er auðvitað út í hött,
allt tal um undirboð á sér enga stoð í
veruleikanum. Auk þess sem Sam-
keppnisnefnd hefur nýverið kcmist að
þeirri niðurstöðu, að ekkert væri at-
hugavert við viðskipti okkar á öðrum
stöðum, sem (ilgerðin og Vífilfell
höfðu kært," sagði Kagnar Birgisson,
Rafmagnsveita Reykja-
víkur í fjárþröng:
Alþingi og ríkis-
stjórn heimili
lántöku
BORGARSTJÓRN samþykkti í
gærkveldi tillögu frá öllum flokkum
þess efnis, að í lánsfjárlögum yrði
gert ráð fyrir lántökuheimild til
handa Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Segir í tillögunni, sem samþykkt
var með öllum greiddum atkvæð-
um, að mikil þörf sé á því að Raf-
magnsveitan fái heimild til lán-
töku, því litlar líkur væru á því að
fjárþörf RR fengist leyst með
gjaldskrárhækkun. Því skoraði
borgarstjórn á Alþingi og ríkis-
stjórn að heimiluð verði umbeðin
lántaka. Að öðrum kosti myndi RR
komast í alvarlegt fjárþrot, sem
gæti haft það í för með sér að ekki
yrði unnt að leggja rafmagn í ný
byggðahverfi.
forstjóri Sanitas, í samtali við Mbl., er
hann var inntur álits á kæru Ölgerðar-
innar Egils Skallagrímssonar á hend-
ur Sanitas, þar sem Sanitasmenn eru
sakaðir um að hafa brotið lög um
samkeppni og óréttmæta viðskipta-
hætti, þegar þeir sátu einir um sölu
gosdrykkja í V’erzlunarskólanum fyrir
tveimur árum.
- Þessi kæra ber augljóst vitni
um taugaveiklun Ölgerðarmanna
þegar við höfum verið sýknaðir af
fyrri kæru. Salan hjá þeim hlýtur
einfaldlega að hafa dregist saman
og þeir líta á okkur sem höfuðóvin.
Þá er sérstakt við þessa kæru, að
í ár verzla Verzlunarskólamenn alls
ekki við okkur, heldur Ölgerðina, og
ekki höfum við hlaupið upp til
handa og fóta og kært þá. Nú, við
höfum haft af því spurnir, að nem-
endur, sem reka búðina í Verzlun-
arskólanum, hafi verið kallaðir
fyrir á sínum tíma, og gert grein
fyrír því, að óskað væri eftir því, að
þeir beindu viðskiptum sínum til
Ölgerðarinnar. Auk þess má benda
á, að appelsínuauglýsing Ölgerðar-
innar í sjónvarpi er einmitt gerð í
Verzlunarskólanum.
Nú, við vorum sakaðir um að hafa
veitt skólafélaginu styrk að upphæð
700 þúsund gkrónur. Það er auðvit-
að aiveg út í hött. Hins vegar aug-
lýstum við tvisvar á baksiðu skóla-
blaðs Verzlunarskólans og greidd-
um fyrir það 700 þúsund gkrónur,
sagði Ragnar Birgisson að síðustu.
Sól frelsisins
LEONID Brezhnev hefur verið
sæmdur æðsta heiðursmerki Afg-
anistan, orðu Solar frelsisins, að
því er segir í frétt frá fréttaþjón-
ustu APN í Reykjavík. Forseta
Sovétríkjanna var afhent orðan í
tilefni 75 ára afmælis hans 19. des-
ember nk. til að votta honum
„bróðurlega vináttu, einlæga virð-
ingu og hugheilar þakkir".
I fréttabréfi APN segir m.a.:
„Ég er djúpt snortinn yfir þeirri
ákvörðun Lýðræðisflokks Afgan-
istan, Byltingarráðsins og ríkis-
stjórnarinnar þar að sæma mig
orðu Sólar frelsisins. Ég þakka
ykkur af öllu hjarta þennan
heiður," sagði Leonid Brezhnev
við afhendingarathöfninga.
Barbrak Karmal, þjóðarleiðtogi
landsins, sæmdi hann orðunni í
Kreml 16. desember.
„Sól frelsisins, sem er æðsta
heiðursmerki Afganistan, er
hljómfagurt nafn sem hefur
pólitíska þýðingu. í þessu nafni
kristallast sú framtíð sem afg-
anska þjóðin hefur barist fyrir
og heldur áfram að berjast fyrir,
sú framtíð sem þjóðin mændi
augum til, er hún framkvæmdi
Aprílbyltinguna. Félagslegar
Leonid Brezhnev
framfarir, sjálfstæði þjóðarinn-
ar og varanlegur og réttlátur
friður, eru allt hugtök, sem eru
órjúfanlega tengd frelsinu,"
sagði forseti Sovétríkjanna.
Ljósm. Mbl. Kmilía.
Leikarar LR á áhorfendapöllum í borgarstjórn.
Borgin veitir 1,5 milljón til Borgarleikhúss á fjárhagsáætlun:
Kemur eins og reidarslag, fram-
kvæmdir munu líklega stödvast
segja Þorsteinn Gunnarsson og Stefán Baldursson
LEIKARAR frá Leikfélagi Reykja-
víkur fjölmenntu á áhnrfendapalla
borgarstjórnar í gærkveldi, en þá
fór fram fyrri umræða um fjár
hagsáætlun burgarinnar. Kom m.a.
fram í máli borgarstjóra að gert
yrði ráð fyrir 1,5 milljóna króna
framlagi úr borgarsjóði til bygg-
ingar Borgarleikhúss, á móti 3,5
milljóna framlagi LR.
í samtali við Morgunblaðið
sögðu þeir Þorsteinn Gun’nars-
son og Stefán Baldursson leik-
hússtjórar, að leikarar væru
mættir á áhorfendapalla til þess
að leggja áherslu á þá ósk LR að
verulegu fé verði veitt til bygg-
ingar Borgarleikhúss. Borgar-
leikhús hefði verið áhugamál
Leikfélagsins og leiklistarunn-
enda í 25 ár. Þeir sögðu að fram-
kvæmdir við Borgarleikhús
hefðu hafist 1976 og staðið til
1978, en hefðu þá stöðvast um
2ja ára skeið. En með verulegu
framlagi úr borgarsjóði gæti
Borgarleikhús komist í gagnið
árið 1986, á 200 ára afmæli
Reykjavíkur. Hins vegar kæmi
1,5 milljóna framlag úr borg-
arsjóði eins og reiðarslag, og ef
framlag borgarinnar myndi ekki
hækka á milli umræðna um fjár-
hagsáætlun, þá myndu fram-
kvæmdir við Borgarleikhús að
öllum líkindum stöðvast.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið hefur aflað sér
mun borgarstjórnarmeirihlutinn
ekki telja fært að auka framlag
til byggingar Borgarleikhúss
fyrir árið 1982.
Breyttar mælingar á ákvæðisvinnu trésmiða:
Breytingarnar hækka
laun smiða um 10%
VERÐSKRÁRNEFNI) trésmidafélag-
anna hofur nýlega gefið út breytingar á
mælingum vegna ákvæði.svinnu, en
mælingar þessar eru endurskoðaðar
reglulega. Mbl. hefur aflað sér þeirra
upplýsinga að breytingarnar geti leitt
til verulegrar launahækkunar hjá
trésmiðum. Hafi einhliða fjölgun ein-
inga í ákvæðisvinnu gefið allt að 10%
launahækkun hjá trésmiðum. Georg
Olafsson verðlagsstjóri tjáði Mbl. að
Verðlagsstofnun myndi kanna í hverju
breytingar trésmiða væru fólgnar,
stofnunin hefði ckki fengið gögn um
málið, en það myndi kannað. Einnig
eru þessar breytingar til athugunar hjá
VSÍ.
Sigurjón Pétursson, starfsmaður
verðskrárnefndarinnar, sagði sumar
breytingarnar leiða til launahækk-
unar en aðrar ekki, en verðskrár-
nefndin hefur nýlega gefið út allar
breytingar frá árinu 1978. Sigurjón
sagði að mælingar vegna ákvæðis-
vinnu væru reglulega teknar til
endurskoðunar og vegna nýrrar
tækni og nýrra tækja þyrfti sífellt
að gera breytingar á mælingaút-
reikningunum og meta hina nýju
þætti. Aðallega sagði hann breyt-
ingarnar miða að því að laun fyrir
hina ýmsu þætti trésmíðinnar væru
svipuð. Fylgst væri með því hversu
mikil laun hinir ýmsu verkþættir
gæfu og reynt væri að jafna mismun.
Ekki sagði Sigurjón Pétursson
liggja fyrir útreikninga á því hvað
þessar breytingar hefðu í för með
sér í heild. Ljóst væri þó að sumir
verkþættir yrðu dýrari, aðrir ódýr-
ari og sagði hann þessar breytingar
geta skipt máli fyrir þá sem standa í
framkvæmdum. Þetta myndi hins
vegar skýrast þegar reynsla væri
komin á verkin.
Aldraður maður fyrir bifreið
ALDRAÐUR madur varð á þriðjudag fyrir bíl í Álftamýri, skammt frá vcrzluninni
Víði. Ilann var að ganga yfir götu um kl. 18 þegar hann varð fyrir bifreið.
Maðurinn, sem er 82 ára gamall, lærbrotnaði og hlaut áverka á höfði, þegar hann
kastaðist upp á vélarhlíf bifreiðarinnar og skall með höfuðið á framrúðuna, þá
hlaut hann innvortis meiðsl.
Þá varð alvarlegt umferðarslys á
mótum Réttarholtsvegar og Bú-
staðavegar laust eftir kl. 23 á þriðju-
dag. Tvennt á skellinöðru ók vestur
Bústaðaveg. Bifreið var ekið t veg
fyrir þau af Réttarholtsvegi, og varð
af allharður árekstur. Pilturinn, sem
stjórnaði hjólinu, skaddaðist mikið á
hægra fæti og höfuðkúpa stúlkunnar
brákaðist.
*
Rithöfundasamband Islands:
Oskar lögbanns á ólöglega
fjölföldun ritverka í skólum
„ÞAÐ ER RÉTT, Rithöfundasamband íslands hefur falið lögmanni sínum að
óska eftir lögbanni á ólöglega fjölfoldun ritverka í skólum, sem heyra beint
undir menntamálaráðuneytið. Þetta er gert til að ýta á eftir samningum við
menntamálaráðuneytið um greiðslu fyrir fjölfóldun efnis, en slíkir samningar
hafa staðið yfir í eitt ár án þess að nokkuð hafi gerzt,“ sagði Njörður P.
Njarðvík, formaður Rithöfundasambands íslands, er Morgunblaðið innti
hann eftir því hvort slíkar aðgerðir væru á döfinni.
Njörður sagði ennfremur, að
höfundarréttur væri ótvíræður í
því hvað varðaði fjölföldun rit-
verka. Maður, sem ynni fræðistörf
hefði leyfi til að ljósrita upp úr
ritverkum annarra, en honum væri
óheimilt að afhenda þau öðrum.
Nú væri svo komið að fjölföldun
færi sívaxandi í skólum og opin-
berum stofnunum, sem heyrðu
undir menntamálaráðuneytið, og
það væru dæmi þess að á þann
hátt hefðu beinlínis verið búnar til
sýnisbækur íslenzkra nútímabók-
mennta. Það hefði því komið í veg
fyrir útgáfu slikra bóka.
Þá sagði hann að Rithöfunda-
samband íslands hefði ekkert á
móti fjölföldun, en það vildi semja
um greiðslur fyrir hana. Nú þegar
væri búið að semja um þessa hluti
á öllum Norðurlöndunum og þess-
ar aðgerðir nú væru aðeins til að
ýta á eftir samningum. Rithöf-
undasambandið vildi gera heild-
arsamning við menntamálaráðu-
neytið, annars vegar samning, sem
virkaði aftur fyrir sig til 1972, er
höfundaréttarlögin urðu til, og
hins vegar til þriggja ára til bráða-
birgða. Gengið væri útfrá því að
fjölföldunin næmi um 20 síðum á
nemanda og greiddir yrðú 75 aurar
fyrir hverja síðu. Ef stjórnvöld
tækju nú ekki við sér og gengju af
alvöru til samningaviðræðna
myndi Rithöfundasambandið óska
lögbanns á alla skóla og opinberar
stofnanir, sem heyrðu undir
menntamálaráðuneytið, þar með
talin bókasöfn.