Morgunblaðið - 19.12.1981, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.12.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981 3 Lögreglumenn í deilum um vaktafyrirkomulag: Frestur framlengdur Kjármálaráduneytid framlengdi í gær til I. marz frest lögreglumanna til ad koma á nvju vaktafyrirkomulagi, en deilur hafa að undanlornu staðið um nýtt vaktafyrirkomulag, sem komið var á fyrir skömmu. Mikil óánægja var meðal lögreglumanna með það, auk þess sem það braut í bága við lög og var dregið til baka. „Það er með öllu óútkljáð hvort við höldum okkur við 10 tíma hvíld- arregluna, eins og lög gera ráð fyrir, en það munum við gera ef ekki kem- ur á móti lipurð. Það eru ýmis mál. sem við viljum fá úrlausn á og við ætlum ekki að beygja okkur bóta- laust undir hið nýja vaktafyrir- komulag. Ef ráðuneytið hefur engar frekari tillögur fram að færa, þá eru þessi mál jafn föst og áður,“ sagði Björn Sigurðsson, formaður Lög- reglufélagsins, í samtali við Mbl. Þann 9. desember kusu lögreglu- menn 20 manna „kröfugerðarráð", sem mun koma saman til fundar í byrjun næstu viku, þar sem ákvörð- un verður tekin um aðgerðir lög- reglumanna. Endurnýjun í bíla- flota ráðherranna FYKIK nokkru fengu landbúnaðai- ráðherra, l’álmi Jónsson, og Alþingi: Milljón kr. til Pólverja Á ALÞINGI hefur verið lögð fram tillaga um að Alþingi leggi fram eina milljón króna í sér staka aðstoð við Pólverja, vegna hins alvarlega ástands þar í landi af viildum efnahagskreppunnar er þar geisar. Kjartan Jóhanns- son formaður Alþýðuflokksins mælti fyrir tillögunni, og upplýsti að samkomulag hefði orðið um málið milli allra stjórnmála- flokka. Flutningsmenn eru formenn allra flokkanna, auk Kjartans þeir Geir Hallgrímsson for- maður Sjálfstæðisflokksins, Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknar- flokksins og Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins. dómsmálaráðherra, Friðjón Þórðar son, nýjar bifreiðir, en ríkið pantaði síðastliðið sumar tvær bifreiðir af gerðinni Mercedes Benz 250 fyrir ráðuneyti þeirra. Verð hvorrar bifreið- ar losar 300 þúsund krónur. Bifreið sú, sem ríkið keypti fyrir landbúnað- arráðuneytið, var pöntuð 11. maí síð- astliðið sumar, en bifreið dómsmála- ráðuneytisins 15. júní. Fyrr á árinu festi Gunnar Thor- oddsen, forsætisráðherra, Chevro- let Malibu og tveimur vikum fyrir gengisfellinguna í ágústmánuði festu tveir ráðherranna kaup á nýj- um bifreiðum. Steingrímur Her- mannsson, sjávarútvegs- og sam- gönguráðherra, keypti Buick Sky- lark og Svavar Gestsson, heilbrigð- is- og tryggingaráðherra keypti Opel Kadett. í umræðum á Alþingi á miðviku- dag er rætt var um stöðvun fisk- veiðiflotans sagði Pétur Sigurðsson m.a. í framhaldi af ræðu forsætis- ráðherra, að brýna nauðsyn bæri til, að ræða forsætisráðherra yrði birt í heild til þess að sjómenn gætu séð hvern hug þessi ríkisstjórn bæri til þeirra á sama tíma og sífellt fjölgaði nýjum ráðherrabílum við þinghúsið þótt sumir væru reyndar geymdir í nálægum húsasundum. Jólastemmning í Pennanum Hallarmúla 2 í daq___________ VIÐ FÁUM GESTI. Gunnar Bjarnason áritar bók sína „Líkaböng hringir" kl. 15. Pétur Behrens áritar bók sína „Að temja" kl. 15. Leikspil ársins í Bretlandi „Kensington“ verður kynnt kl. 15. Grýla og Leppalúði koma í heimsókn kl. 16.30. Það er ekkert plat að plötur fást í Pennanurr. Hallarmúla 2. Ef þú trúir því ekki þá skaltu koma kl. 18.00 og hlusta á Graham Smith og félaga leika lögin af nýju plötunni. Graham mun árita plötu sína á staðnum. Sendum aritaðar bækur og plötur í póstkröfu. Gjörið svo vel að panta í síma 83441. HALLARMÚLA 2 LAUGAVEGI 84 HAFNARSTRÆTI 18 Austurstræti 22, 2. hæð Sími 85053 er sérverzlun fyrir konur Við tökum upp nýjar vörur daglega OPIÐ TIL KL. 10 í KVÖLD

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.