Morgunblaðið - 19.12.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981
5
Ottast var um
þrjár rjúpna-
skyttur um tíma
ÓTTAST var um þrjár rjúpnaskyttur
í fyrrinótt, er þær komu ekki til síns
heima á fyrirfram ákveðnum tíma.
Mennirnir þrír, sem voru á veiðum
efst í Hrunamannahreppi, komu
fram undir hádegisbilið í gær, heilir
á hufi.
Bíll þeirra hafði bilað og þeir
því tekið það ráð, að ganga áleiðis
til byggða. Leit var þegar hafin af
nokkrum björgunarsveitum og
skipulagning víðtækrar leitar var
komin vel á veg er þeir komu
fram.
Athugasemd frá
Flugleiðum:
Osanngjörn og
ósönn ummæli
Morgunblaðinu barst f gær eftir
farandi athugasemd frá Flugleiðum:
Vegna ummæla Steinars Berg ís-
leifssonar í Mbl. 18. desember, þess
efnis að hann treysti ekki fraktflugi
Flugleiða skal eftirfarandi tekið
fram:
Þrátt fyrir tafir erlendis vegna
óveðurs að undanRirnu hefur Flug-
lciðum tekist að koma öllum vörum,
er pantað hefur verið rými fyrir, til
íslands í tæka tíð, þar með taldar
vörur, sem Steinar Berg hafði pant-
að flutning fyrir hjá íscargo, sem svo
felldi niður ferðir sínar til íslands
um tíma.
Sl. miðvikudag hafði Steinar
Berg ísleifsson samband við Pétur
Esrason í fraktdeild Flugleiða og
spurði hvort hægt væri að fá flutt-
ar 2 lestir af hljómplötum daginn
eftir. Þar sem nærri fullbókað var
í fraktrými var ekki hægt að lofa
slíku, en honum boðið rými nk.
sunnudag. Augljóst er að varðandi
frakt og sæti í flugvélum er nauð-
synlegt að sýna nokkra fyrir-
hyggju, einkum á mesta annatíma
fyrir jólin. Flestir innflytjendur
sýna sjálfsagða forsjálni og bóka
vörur með góðum fyrirvara.
Flugleiðir hafa að undanförnu
sent sérstakar vöruflutningavélar
til Bretlands og Danmerkur tvisv-
ar í viku til að flytja vörur, sem
ekki komast með áætlunarfluginu
og tryggja þannig að vörur komast
til íslands jafnóðum og þær berast
afgreiðslum ytra. Fyrir því eru
ummæli Steinars Berg ísleifsson-
ar í Mbl. í gær ósönn og óréttmæt
og í hæsta máta ósanngjörn í garð
starfsfólks fraktdeildar Flugleiða.
Opið til
tíu í kvöld
í KVÖLD eru verslanir almennt
opnar til kl. 22 eins og verið hefur
undanfarin ár síðasta laugardag
fyrir jól. Eftir helgina er síðan
opið eins og venjulega, en á Þor-
láksmessu er enn opið frameftir
og þá til kl. 23 að kvöldi.
Laugavegi lokað
milli kl. 13 og 19
I DAG verður Laugavegi lokað frá
kl. 13 til 19 fyrir allri umferð
nema strætisvögnum. Verzlanir
verða opnar til kl. 22 í kvðld. Á
Þorláksmessu verður Laugavegin-
um lokað á sama tíma fyrir allri
umferð nema strætisvögnum.
Verð 213.-
Verð 295.-
Verð 226.-
Jólagjafir