Morgunblaðið - 19.12.1981, Page 14

Morgunblaðið - 19.12.1981, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. EBSEMBER 1981 Ævintýraperlur frá Bing & Gröndahl Ævintýraplattarnir frá Bing & Gröndahl eru perlur að allri gerð og útliti. Gullfallegar teikningar færustu listamanna vió ævintýri H.C. Andersens, 12 stk. — og Grimmsævintýri, 6 stk. Handmálað á postulín með ekta gyllingu. Hver platti/diskur í fallegri gjafaöskju kr. 260,— Gullfalleg gjöf til þeirra sem þér þykir vænt um. RAMMAGERDIN Hafnarstræti 19 V estur-Þjóðverj- ar fresta frekari efnahagsaðstoð Bonn, Vín, Washington, 18. desember. AF. VESTUR-ÞÝSKA þingið samþykkti í dag ályktun þar sem skorað er á stjórnvöld í Póllandi að sleppa fong- um úr haldi og hótað er að hætta efnahagsaðstoð við landið. Aðeins einn þingmaður sat hjá við atkvæða- greiðsluna en aðrir studdu ályktun- ina. í ályktuninni er þýska stjórnin kvött til að fresta ákvörðun um frekari efnahagsaðstoð við Pól- land og vinna að því innan Efna- hagsbandalags Evrópu að aðild- arlönd þess geri slíkt hið sama svo lengi sem herlög gilda í Póllandi. Pólverjar skulda Vestur-Þjóðverj- um um 5,4 milljarða dollara. Er- lendar skuldir þeirra eru alls um 26 milljarðar dollara. Fangalistinn ónákvæmur New York, 18. desember. AF. AÐ MINNSTA kosti þremur verka- lýðsleiðtogum af 57 sem sagðir eru í varðhaldi í Póllandi er ofaukið á fangalistanum sem lesinn var í Varsjárútvarpið. Tveir þeirra, Mir oslaw Chojecki og Wojciech Karp- inski, eru í New York og sá þriðji, Seweryn Blumsztajn, er í París. Chojecki og Karpinski fóru frá Póllandi fyrir nokkrum mánuðum. Þeir segja að nöfn þeirra á listart- um bendi til að stjórnin hafi haft áform um hernaðaraðgerðirnar í þó nokkurn tíma og gleymst hafi að bera listann yfir þá sem átti að handtaka saman við nöfn þeirra sem í raun og veru náðust. Helmut Schmidt kanslari sagði í þinginu: „Ég styð baráttu verka- mannanna heilshugar." Þingið skoraði á einstaklinga, stjórn- málaflokka, verkalýðsfélög og önnur samtök að senda matvæli til Póllands. Bruno Kreisky, kanslari Aust- urríkis, sagði að ástandið í heim- inum væri alvarlegra nú en nokkru sinni síðan í seinni heims- styrjöldinni vegna aðgerða stjórn- valda í Póllandi. Hann tengdi ástandið stríðinu milli íran og Ir- ak, innrás Sovétmanna í Afganist- an og innlimun Gólanhæða í ísra- el. Hann sagði að hingað til hefðu ' Sovétmenn ekki ráðist inn í Pól- land „en hvort það verður satt á morgun veit ég ekki“. Kreisky sagði að um 30.000 Pól- verjar sem væru staddir í Austur- ríki myndu líklega sækja um hæli í landinu. Hann sagði að þeir og allir sem kæmust til Austurríkis væru velkomnir. Ronald Reagan Bandaríkjafor- seti ráðlagði Bandaríkjamönnum sem eru staddir í Póllandi að snúa heim þar sem ekki væri hægt að trygftja öryggi þeirra. Hann hefur kennt Sovétmönnum að hluta til um ástandið í Póllandi en neitað að segja hvað Bandaríkjamenn munu gera ef sovéski herinn fer inn í landið. Háttsettur embættis- maður varnarmálaráðuneytisins sagði hins vegar að Bandaríkja- menn myndu væntanlega hætta samningaviðræðum við Sovétríkin um afvopnunarmál a.m.k. um stundarsakir ef til innrásar Sov- étmanna kæmi. Stórkostlegt úrval af nýjum vörum Kassettutöskur, kassetturekkar, plötutöskur og rekk- ar, video-töskur og rekkar og margt fleira. Sendum í póst- kröfu um allt land Heildsölubírgöir SKÍFAN Laugavegí 33, sími 11508.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.