Morgunblaðið - 19.12.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981
15
Rússneskir sjóliðar á bryggjunni í pólsku flotahöfninni í Swinousjcie.
Ótti og óvissa
ríkir í Varsjá
London, París, Róm, New York,
18. desember. AP.
KAKI'EGAR sem komu með fyrstu
vélum frá Póllandi eftir að herlögum
var lýst yfir sögðu að mikið bæri á
vopnuðum hermönnum og skrið-
drekum í Varsjá. Þeir sögðu að ró-
legt væri í borginni en fólk væri
óttaslegið og lifði í mikilli óvissu.
Nýr sendiherra Póllands til
Bretlands kom með einni vélanna
og sagði að ótti stjórnarinnar við
Sprenging
í skrifstofu
Mugabes
Salisbury, 18. desember. AP.
STÓR sprengja sprakk í forsætis-
ráðherraskrifstofum Robert Mug-
abes í Zimbabwe í dag. Að minnsta
kosti fimm fórust og margir særðust.
Talið var að flestir embættismenn
stjórnarflokksins hefðu verið fjar
verandi.
Rúður skrifstofubygginga í ná-
grenninu brotnuðu og götur voru
þaktar glerbrotum. Ekki var vitað
hvað olli sprengingunni.
að 11 ára afmæli Gdansk-upp-
þotanna yrði notað sem afsökun
fyrir blóðugum mótmælum og
jafnvel borgarastyrjöld hefði ver-
ið ein ástæðan fyrir aðgerðum
hennar.
Pólskur farþegi sagðist halda að
allir leiðtogar Samstöðu hefðu
verið handteknir og húsleit gerð í
skrifstofum samtakanna. Annar
sagði að fólk þyrði ekki að nefna
Samstöðu lengur. „Það sáust Sam-
stöðu-veggspjöld fyrir nokkrum
dögum en nú er óðum verið að rífa
þau niður." Hann sagðist hafa
heyrt minnst á mikil mótmæli 21.
desember. Ein kona sagði að fólk
myndi á endanum sætta sig við
ástandið. „Það er vonlaust. Það er
sannfært um að öll andstaða verði
kæfð.“
Aðrir sögðu að handtökur væru
tíðar en fólk fengi að fara um
borgina að degi til. Útgöngubann
er á milli kl. 22 og 6. Fólk mætti til
vinnu en algengt væri að það sæti
aðgerðalaust. Kona sagðist ekki
vita hversu mikið væri um mót-
mælaaðgerðir. „Fólk veit bara það
sem útvarpið og sjónvarpið segja
því — og stjórnin ræður því.“
Konan var spurð hvort biðraðir
væru við matvöruverslanir. „Það
er engan mat að fá,“ sagði hún.
„Mikil jólastemmning í Póllandi“
Kudappst, 18. desember. AP.
HIN opinbera ungverska
fréttastofa skýrði frá því í dag,
og hafði eftir Varsjárútvarpinu,
að mikil jólastemmning ríkti
nú í Varsjá.
Sagt var, að á götum Var-
sjárborgar væru nú víða
jólatréssalar og þó að trén
þættu dýr setti fólk það ekki
fyrir sig. Hvarvetna mætti
sjá fólk með bros á vör burð-
ast heim með trén sín og
annað, sem heyrir til undir-
búningi jólahátíðarinnar.
Sagði fréttastofan að ánægja
og friður ríktu nú aftur í
Póllandi.
Fram - Valur
íslandsmótiö í handknattleik
1. deild Laugardalshöll í dag.
OSRAM
karla kl. 14.00. Mfl. kvenna kl. 15.30.
Framarar mætum allir og hvetjum okkar menn til sigurs.
ÁGÚST ÁRMANN ht JfK
UMBOOS OG HEILCVERZLUN Æ
SUNOABOnG ?4 - RCYKJAVdK * ■
(ÍDpioneer
PLASTPOKAR
l'lusí.os liF
lUÍAorhf
© ALDA
Hoffell sf.
Master handboltar.
Borgarinn
Bakaríiö
Kringlan