Morgunblaðið - 19.12.1981, Síða 22

Morgunblaðið - 19.12.1981, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981 ISLENSK KNATTSPYRNA 81 Ævintýralegt jafntefli íslend- inga gegn Walesbúum á Vetch Field í Swansea, 2-2, þar sem Ásgeir Sigurvinsson sýndi allar sínar bestu hliðar. Sigurinn gegn Tyrkjum, jafnteflið við Tékka. Æsispennandi lokasprettur 1. deildarinnar í knattspyrnu þar sem um tima virtist svo sem Vík- ingur væri að missa af lestinni eftir að hafa leitt nær allan tím- ann. Tvö töp í röð breyttu stöð- unni, en með seiglu og ódrep- andi baráttu tókst Hæðargarðs- strákunum að komast á sigur- braut á ný og tryggja sér titilinn. Glæsilegur bikarsigur Eyja- manna þar sem þeir breyttu töp- uðum leik i eftirminnilegan sigur á skömmum tíma. Frásagnir af kapphlaupi ísfirðinga og Kefl- víkinga um sigur í 2. deild, umsagnir um alla leiki 1. og 2. deildar, úrslit úr 3. deild, bikar- keppnin, kvennaknattspyrnan, yngri flokkarnir, frásagnir af atvinnumönnunum auk fjölda L annarra atriða. Að ógleymdum I litmyndum af öllum íslands- og \ bikarmeisturum sumarsins. ■ Allt þettaeri Knattspyrnunnia B Islandi 1981. Kay Langvad verk- fræðingur 85 ára í dag í dag á 85 ára afmæli Kay Lang- vad verkfræðingur, Gyldenholm Allé 16, Gentofte í Danmörku. — Kay Langvad er kunnur og vinmargur hér á landi, enda veitti hann forstöðu mörgum stærstu verkframkvæmdum hér um ára- tugi. Hann varð byggingaverkfræð- ingur 1920, starfaði hjá fyrirtæk- inu Höjgárd & Schultz 1930—1947 en gerðist meðeigandi að E. Pihl & Sön síðarnefnda árið. Meðal verka' sem hann hefur staðið fyrir má nefna Ljósafoss- virkjun, Hitaveitu Reykjavíkur, virkjun Laxár í Aðaldal og Skeiðs- fossvirkjun, öll fyrir stríð og á stríðsárunum. Verk unnin eftir stríð og þá oftast í samvinnu við fleiri fyrirtæki voru m.a. Irafoss- virkjun og Búrfellsvirkjun, og hafnargerð í Njarðvík og Þor- lákshöfn. Kay Langvad kvæntist 10. nóv. 1923 íslenskri konu, Selmu, f. Guð- johnsen. Synir þeirra eru Soren, verkfræðingur, Henrik tækni- fræðingur og Eyvind læknir. Þeir eru allir mæltir á íslensku og kunnir hér. — Þeir feðgar Kay og Sören eiga enn þátt í verkfram- kvæmdum hér á landi með hlut- deild í verktakafyrirtækinu ístaki. Aðventukvöld í Grindavík- urkirkju SKÓLAHLJÓMSVEIT Grindavík- ur heldur aðventukvöld í nýju kirkjunni í Grindavík í kvöld, 20. desember, kl. 20.30. Efnisskráin er fjölþætt og hefst með leik Grindavík Brass Ensamble. Sérstakir gestir kvöldsins verða John Speight baritonsöngvari og Símon ívarsson gítarleikari. Gunn- laugur Dan skólastjóri flytur helgisögu og skólahljómsveitin leikur undir almennum söng. íslandsmótið í handknattleik KR VÍKINGUR í höllinni sunnudag kl. 20.00 -ingar MÆTUM ALLIR í HÖLLINA og hvetjum okkar lið til sigurs Hvort reynast betur pólskar eða íslenskar leikaðferðir? Það verður stemmning í Höllinni. Komið tímanlega ádur en Höllin fyllist. Strax að leik loknum fer fram leikur KR og Víkings í meistaraflokki kvenna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.