Morgunblaðið - 19.12.1981, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 19.12.1981, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981 Óskar Valdórsson Reyðarfirði - Minning Fæddur 10. október 1915 Dáinn 5. desember 1981 Skyndilega og alltof skjótt hef- ur nú verið á lífsþráðinn klippt og lokið er gifturíkri vegferð. Einhver prúðasti og hugljúfasti maður, er ég hefi kynnst, er allt í einu horfinn af sviði og minn- ingarnar einar eftir. En þær minningar eru líka bjartar og góðar og skilja eftir í huganum hlýja þökk. Fátækleg minningarorð mín segja lítið um valmennið Óskar Valdórsson. Ég minnist hans frá bernsku- dögum mínum, sem hins bjartleita og broshýra unga manns, sem var allra hugljúfi og sem feiminn sveinstauli gat rætt við og rabbað um allt milli himins og jarðar. Viðmót hans allt var slikt, að það laðaði að alla, sem umgengust hann, og ekki sízt voru það börnin sem þessa nutu. Og í áranna rás varð þar aldrei nein breyting á, sami hýrleiti, ljúfi og sanni drengskaparmaður- inn var hann til hinztu stundar. Ævilýsing hans mætti vera sú, að í öllu var hann trúr, í engu lét hann sitt eftir liggja, öllum varð hlýtt til hans, er honum kynntust. Og getur í raun hugsast fegurri lífslýsing að ævilokum. Hvar sem hann tók til hendi fór af honum hið bezta orð fyrir sam- vizkusemi, atorku og sérstaka verklagni. Vinnufélagarnir munu bera honum hina ágætustu sögu í hvívetna og þá ekki síður vegna þess, hversu fágætlega umgengn- isprúður hann var. Glettni hans og glitrandi gamansemi var róm- uð, enda var hann orðheppinn með afbrigðum. Þar kom til hans ágæta eðlis- greind og ríkt mannlegt innsæi og þó ljúflyndið öllu öðru fremur. Réttlætiskennd hans var rík og eðlislæg og í hvívetna hélt hann fram rétti þess, sem minni máttar var og þar lagði hann lið sitt á hverju því sviði sem honum var tiltækt. Við það bundust þjóðmálaskoð- anir hans og lífsskoðanir allar, og þær hugsjónir, sem tengdar eru jafnrétti og bræðralagi féllu vel að hugarfari hans og skaplyndi öllu. Fyrir samfylgd í þeim efnum sem öðrum er nú þakkað heilum huga. Orfá æviatriði Óskars Valdórs- sonar verða hér rakin. Óskar var fæddur að Hrúteyri við Reyðarfjörð 10. október 1915. Foreldrar hans voru þau hjónin Herborg Jónasdóttir frá Hlíðar- enda í Breiðdal og Valdór Bóasson af hinni þekktu Stuðla- eða Bóas- arætt. Óskar ólst upp í foreldrahúsum og hóf snemma að starfa s.s. var um unglinga þeirra tíma. óskar bjó á Reyðarfirði allan sinn aldur og stundaði ýmis störf til sjós og lands og rækti þau öll af stakri alúð og samvizkusemi. Þau störf verða ekki tíunduð hér, en öll voru þau með eðlisein- kennum hans, trúmennskan var honum svo í blóð borin. 28. maí 1950 gekk hann að eiga eftirlifandi- eiginkonu sína, Jó- hönnu Maríu Jóhannesdóttur frá Kirkjubóli í Fáskrúðsfirði. María er einstök myndarkona og með þeim hjónum hið mesta jafnræði. Þau hjón bjuggu allan sinn búskap að Ósi í Reyðarfirði. Góð og farsæl vegferð er gengin á enda. Góður vinur er kvaddur hrærðum huga. Að leiðarlokum er borin fram einlæg þökk fyrir öll hin góðu kynni, sem bregða birtu á ævileið og merla í minningunni. Söknuði blandin er samúðar- kveðjan til hans ágætu eiginkonu, Maríu. Mæt verður henni minn- ingin um góðan, dreng og mildar höfgan harm. Blessuð sé hin ljúfa minning um þann góða og sanna drengskaparmann, sem nú er kvaddur hinztu kveðju. Helgi Seljan Fallegt eldfast gler, einföld og stílhrein hönnun. Hentugt notkunargildi. Svona eiga góöir hlutir aö vera. Eigum fyrirliggjandi hin vinsælu „Irish coffee“ glös, eldfastar skálar og fleiri fallegar vörur frá Boda verksmiöjunum. j - :. v . • « vmm. . ‘jrT/Lj msL Guðríður Guðlaugsdóttir og Eggert Engilbertsson Sunnuhvoli í Hveragerði Guðrún Hermannsdóttir Fædd 5. desember 1912 Dáin 25. nóvember 1981 °K Hermann Höskuldsson Fæddur 20. júlí 1964 Dáinn 1. desember 1981 Lífsljósið hennar Guðrúnar minnar er nú slokknað. Hún kvaddi þessa jarðnesku tilveru að- faranótt 25. nóvember síðastliðinn eftir langvinn og erfið veikindi, og hélt yfir fljótið mikla, að strönd- inni hinum megin, þar sem ríkir eilíft vor, birta og friður. Það er ekki ætlun mín hér að tíunda ævi eða lífsstarf Guðrúnar enda mér vissulega um megn. Ég vildi bara að leiðarlokum þakka henni Guðrúnu minni fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og mína, þakka henni fyrir allan þann hlý- leik og hjartagæzku sem hún ætíð sýndi. Að fá að kynnast fólki eins og Guðrúnu Hermannsdóttur gef- ur lífinu aukinn tilgang. Eigin- manni Guðrúnar, börnum þeirra og öðrum ættingjum sendi ég mín- ar innilegustu samúðarkveðjur og bið guðs blessunar. Snögg og óvægin eru skilin í þessari tilveru okkar mannanna. Það er kaldhæðni örlaganna að þau halda nú saman i sína hinztu för hún Guðrún mín og ömmu- drengurinn hennar, hann Her- mann litli, sveinninn ungi og fal- legi, sem svo skyndilega er hrifinn burt í blóma lífsins frá ástkærum föður og systur. Þeim votta ég mína dýpstu samúð og bið góðan guð að gefa þeim styrk í þeirra mikla harmi og kjark til að halda áfram. Þeirra er missirinn sárast- ur, en eftir lifir minningin um tápmikinn glaðværan dreng- hnokka, elskulegan son og bróður. Algóður guð blessi og varðveiti minningu Guðrúnar Hermanns- dóttur og Hermanns Höskuldsson- ar, litla ömmudrengsins hennar. Ásthildur Jónsdóttir + Systir okkar, INGIBJORG ÁGÚSTA GISSURARDÓTTIR, Sólvangi, Hafnarfiröi, andaöist í Vífilsstaöaspítala 17. desember. Sigrún Giasurardóttir, Þórdís Gissurardóttir. Eiginmaöur minn ÓLAFUR HANSSON, prófessor, Tómasarhaga 35, lést í Landspítalanum 18. desember. Valdís Helgadóttír. + Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför TYRFINGS AGNARSSONAR, Bræðraborgarstíg 22. Árný Anna Guömundsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Hjartans þakkir sendi óg öllum þeim sem sýndu mér samúð og vinarhug viö andlát og úttör eiginmanns míns, ALFREDSCLAUSENS, einnig sendi ég sérstakar þakkir til Málarafélags Reykjavíkur og Hauks Clausens. Hulda Stefánsdóttir Clausen, Kristín Edda Clausen, Viggó Sigfinnsson, Kristinn Clausen, Steinar Clausen, Björk Björgvinsdóttir, Róbert Clausen Guörún Emilsdóttir, Jón Clausen, Bryndis Heiömundsdóttir, Hallfríöur Alfreðsdóttir, Ragnheiöur Clausen, Pétur Eínarsson, og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.