Morgunblaðið - 19.12.1981, Side 29

Morgunblaðið - 19.12.1981, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981 29 Doktorsrit- gerð um fræði- lega lausn línudæma BENEDIKT Jóhannesson varði 20. nóvember sl. dokt- orsritgerð við ríkisháskól- ann í Florida, þar sem hann stundaði framhalds- nám í tölfræði og stærð- fræði veturinn 1979. Nefn- ist doktorsritgerðin „Lausnir á bestunardæm- um í samfelldum tíma“ (Solutions to Continuous Time Programming Prob- lems). Dr. Benedikt Jóhannesson Benedikt er sonur Guðrúnar Benediktsdóttur og Jóhannesar Zoega, fæddur 1955, stúdent 1975 frá stærðfræðideild Mennta- skólans í Reykjavík. Lauk haustið 1977 BS-gráðu frá háskólanum í Wisconsin með stærðfræði sem aðalgrein og hagfræði sem auka- grein. Hann er kvæntur Vigdísi Jónsdóttur, MA í sögu og skjala- fræði, og eiga þau tvö börn, Stein- unni og Jóhannes. Doktorsritgerð Benedikts fjall- ar um ákveðna tegund dæma, sem meðal annars koma fyrir í hag- fræði, verkfræði og víðar, þar sem gera þarf áætlanir til langs eða skamms tíma. Markmiðið með þessum líkönum er að fá sem mesta hagsæld, hagkvæmasta orkuvinnslu og svo framvegis, eft- ir því við hvað er fengizt. Gengið er útfrá því, að hráefnisbirgðir geti breytzt stöðugt, til dæmis árstíðabundið. Einnig er gert ráð fyrir því að framleiðsla í framtíð- inni byggist á því hve mikið hefur verið framleitt áður. I ritgerðinni er fyrst fjallað um ýmsa fræðilega eiginleika línu- legra dæma. Meðal annars er í fyrsta sinn fundin fræðileg lausn slíkra dæma. Næst er kynnt ný aðferð til þess að finna slíkar lausnir og fjallað um ýmsa eigin- leika þessarar aðferðar. Jafnframt eru nokkur dæmi leyst með því að beita aðferðinni með aðstoð tölva. Loks er fjallað um ólínuleg dæmi og sýnt fram á að svonefnd refsi- fallsaðferð (penalty function method) leiði til réttrar lausnar. Leiðrétting FYRIRSÖGN greinar Ingvars Gíslasonar í blaðinu sl. fimmtu- dag átti að vera „Frelsisbæn Pól- verja og Steingrímur Thorsteins- son“, ekki „Frelsun o.s.frv.". Þá stóð í greininni kvæðabók en átti að vera kvæðabókum og ennfrem- ur bænaákall í stað bænarákall. Catiou MYNDARLEGAR JÓLAGJAFIR CANON METSÖLUVÉLAR CANON A-1 AT-1 AV-1, AE-1 og F-1 VERÐ FRA KR. 4.565,- POLAROID og KODAK INSTANT AUGNABLIKSMYNDAVÉLAR — TILVALIÐ FYRIR HÁTlÐARMYNDATÖKURNAR 8GERÐIR VERÐ FRÁ KR. 495,- MEÐ FILMU. GJAFARORT FYRIR MYNDATÖKUR I STUDIOI verslunarúttektAhugaljOsmyndarans EÐA OKKAR VINSÆLU LJOSMYNDANAMSKEIÐ. ALBUM 20 GERÐIR VERÐ FRÁ KR. 20,- TIL KR. 275,- NIRON UR ÁLI, LEÐRI OG LEÐURLlKI YFIR 20 GERÐIR VERO FRÁ KR. 155,- MYNDAVELA TÖSRUR MERKI FAGMANNSINS NIKON EM. FM OG FE MYNDAVÉLAR VERO FRA KR. 4.455,- HOYA og CORIN FILTERAR HAMA FYLGIHLUTIR AVALLT VINSÆLIR GERA GOÐA MYND BETRI ÆÐISLEGT ÚRVAL! DURST SUNPAR STÆKKARAR 9 GERÐIR VERÐ FRÁ KR. 1.550,- MIKIÐ ÚRVAL MYRKRAHERBERGISAHALDA OG EFNI FYRIR S/H OG LIT. LEIFTURLJOS 6 GERÐIR VERÐ FRÁ KR. 270, RAMMAR LINSUR I FJÖLBREYTTU URVALI LÁTIÐ OKKUR SETJA MYNDIRNAR I Á MEÐAN BEÐIÐ ER' YFIR 30 GERÐIR Á FLEST ALLAR MYNDAVÉLAR INNRÖMMUN RAMMAGERÐ OKKAR BYÐUR FLJOTA OG VANPAÐA ÞJÓNUSTU NÁLÆGT 100 GERÐIR FALLEGRA RAMMALISTA FYRIRLIGGJANDI. 35 mm „COMPACT” PENTAX SLÆR I GEGN! PENTAX MV, ME OG ME SUPER MYNDAVÉLAR FRAMTlÐAREIGN A HÓFLEGU VERÐI — VERÐ FRA KR. 2.820,- MYNDAVELAR VERÐ FRÁ KR. 2.374,- GOD GREIÐSLUKJOR! Verslið hja fagmanninum LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F. LAUGAVEGI 178 REYKJAVIK SIMI85811

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.