Morgunblaðið - 19.12.1981, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981
29
Doktorsrit-
gerð um fræði-
lega lausn
línudæma
BENEDIKT Jóhannesson
varði 20. nóvember sl. dokt-
orsritgerð við ríkisháskól-
ann í Florida, þar sem
hann stundaði framhalds-
nám í tölfræði og stærð-
fræði veturinn 1979. Nefn-
ist doktorsritgerðin
„Lausnir á bestunardæm-
um í samfelldum tíma“
(Solutions to Continuous
Time Programming Prob-
lems).
Dr. Benedikt Jóhannesson
Benedikt er sonur Guðrúnar
Benediktsdóttur og Jóhannesar
Zoega, fæddur 1955, stúdent 1975
frá stærðfræðideild Mennta-
skólans í Reykjavík. Lauk haustið
1977 BS-gráðu frá háskólanum í
Wisconsin með stærðfræði sem
aðalgrein og hagfræði sem auka-
grein. Hann er kvæntur Vigdísi
Jónsdóttur, MA í sögu og skjala-
fræði, og eiga þau tvö börn, Stein-
unni og Jóhannes.
Doktorsritgerð Benedikts fjall-
ar um ákveðna tegund dæma, sem
meðal annars koma fyrir í hag-
fræði, verkfræði og víðar, þar sem
gera þarf áætlanir til langs eða
skamms tíma. Markmiðið með
þessum líkönum er að fá sem
mesta hagsæld, hagkvæmasta
orkuvinnslu og svo framvegis, eft-
ir því við hvað er fengizt. Gengið
er útfrá því, að hráefnisbirgðir
geti breytzt stöðugt, til dæmis
árstíðabundið. Einnig er gert ráð
fyrir því að framleiðsla í framtíð-
inni byggist á því hve mikið hefur
verið framleitt áður.
I ritgerðinni er fyrst fjallað um
ýmsa fræðilega eiginleika línu-
legra dæma. Meðal annars er í
fyrsta sinn fundin fræðileg lausn
slíkra dæma. Næst er kynnt ný
aðferð til þess að finna slíkar
lausnir og fjallað um ýmsa eigin-
leika þessarar aðferðar. Jafnframt
eru nokkur dæmi leyst með því að
beita aðferðinni með aðstoð tölva.
Loks er fjallað um ólínuleg dæmi
og sýnt fram á að svonefnd refsi-
fallsaðferð (penalty function
method) leiði til réttrar lausnar.
Leiðrétting
FYRIRSÖGN greinar Ingvars
Gíslasonar í blaðinu sl. fimmtu-
dag átti að vera „Frelsisbæn Pól-
verja og Steingrímur Thorsteins-
son“, ekki „Frelsun o.s.frv.". Þá
stóð í greininni kvæðabók en átti
að vera kvæðabókum og ennfrem-
ur bænaákall í stað bænarákall.
Catiou
MYNDARLEGAR
JÓLAGJAFIR
CANON
METSÖLUVÉLAR
CANON A-1 AT-1
AV-1, AE-1 og F-1
VERÐ FRA
KR. 4.565,-
POLAROID og
KODAK INSTANT
AUGNABLIKSMYNDAVÉLAR —
TILVALIÐ FYRIR HÁTlÐARMYNDATÖKURNAR
8GERÐIR
VERÐ FRÁ KR. 495,- MEÐ FILMU.
GJAFARORT
FYRIR MYNDATÖKUR I STUDIOI
verslunarúttektAhugaljOsmyndarans
EÐA OKKAR VINSÆLU LJOSMYNDANAMSKEIÐ.
ALBUM 20 GERÐIR
VERÐ FRÁ KR. 20,- TIL KR. 275,-
NIRON
UR ÁLI, LEÐRI OG LEÐURLlKI
YFIR 20 GERÐIR
VERO FRÁ KR. 155,-
MYNDAVELA
TÖSRUR
MERKI FAGMANNSINS
NIKON EM. FM OG FE MYNDAVÉLAR
VERO FRA KR. 4.455,-
HOYA og CORIN
FILTERAR
HAMA
FYLGIHLUTIR
AVALLT VINSÆLIR
GERA GOÐA MYND BETRI
ÆÐISLEGT ÚRVAL!
DURST
SUNPAR
STÆKKARAR 9 GERÐIR
VERÐ FRÁ KR. 1.550,-
MIKIÐ ÚRVAL MYRKRAHERBERGISAHALDA
OG EFNI FYRIR S/H OG LIT.
LEIFTURLJOS
6 GERÐIR
VERÐ FRÁ KR. 270,
RAMMAR
LINSUR
I FJÖLBREYTTU URVALI
LÁTIÐ OKKUR SETJA MYNDIRNAR I
Á MEÐAN BEÐIÐ ER'
YFIR 30 GERÐIR
Á FLEST ALLAR MYNDAVÉLAR
INNRÖMMUN
RAMMAGERÐ OKKAR BYÐUR
FLJOTA OG VANPAÐA ÞJÓNUSTU
NÁLÆGT 100 GERÐIR FALLEGRA
RAMMALISTA FYRIRLIGGJANDI.
35 mm „COMPACT”
PENTAX
SLÆR I GEGN!
PENTAX MV, ME OG ME SUPER MYNDAVÉLAR
FRAMTlÐAREIGN A HÓFLEGU VERÐI —
VERÐ FRA KR. 2.820,-
MYNDAVELAR
VERÐ FRÁ KR. 2.374,-
GOD GREIÐSLUKJOR!
Verslið hja
fagmanninum
LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F.
LAUGAVEGI 178 REYKJAVIK SIMI85811