Morgunblaðið - 19.12.1981, Qupperneq 32
Demantur m
æðstur eðalsteina
<§iiU $c éxlhtr
Laugavegi 35
TUDOR
rafgeymar
wjá þessir meó 9 líf”
SKORRIHF
Laugavegi 180, s(mi 84160
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981
Um 10% tap á útgerðiiuii
Tap á frystingunni komið í 9%
Tólf ára börn úr Melaskóla hitt-
ust á Lskjartorgi á Tóstudags-
kvöldið og héldu síðan í blysför
að skólanum þar sem halda átti
litlu jólin um kvöldið. Ekki létu
þau rokið á sig fá, en tendruðu
Íjós sín í krukkum og gengu síð-
an í skólann.
KKKSTRARHALLI útgerðarinnar í landinu mun nú vera um 10% a.m.k.
Þjóðhagsstofnun hefur nú lokið við útreikninga á stöðu útgerðarinnar og er
þá miðað við reikninga útgerðarinnar 1980 og þeir framreiknaðir til dagsins
í dag, en þegar síðast var gerð úttekt á stöðu útgerðarinnar voru notaðar
tölur frá 1979 og þær síðan framreiknaðar. Þá er Morgunbiaðinu kunnugt
um að útreikningar Þjóðhagsstofnunar sýna nú um 9% tap á frystiiðnaðinum
í landinu.
Niðurstöðutölur Þjóðhagsstofn-
unar sýna, að því er Mbl. hefur
verið tjáð, 6,6% meira tap á út-
gerðinni ef miðað er við fram-
reiknaðar tölur árins 1980, en ef
miðað er við framreiknaðar tölur
ársins 1979. Þegar síðast var skýrt
frá stöðu útgerðar, við síðustu
fiskverðsákvörðun, voru notaðar
Þingvalla-
vatn allt
ísilagt
ÞINGVALLAVATN er nú allt ísi
lagt og er ísinn sumstaðar sjö
sentimetra þykkur. Guðfinnur
Ólafsson í Skálabrekku við Þing-
vallavatn hefur búið þar alla sína
æfi eða um 60 ár og man hann
ekki eftir að annað eins haft
gerst svona snemma.
Sagði Guðfinnur í samtali
við Mbl. að sjaldan legði ís um
vatnið fyrir sólstöður og aldrei
hefði hann vitað það fyrr að ís
legðist yfir allt vatnið fyrir
áramót. „Þetta er mjög óvenju-
legt,“ sagði Guðfinnur, en
bætti því við að undanfarið
hefði verið óvenjulega mikið
frost við Þingvallavatn og still-
ur og væri það mjög hagstætt
fyrir ísmyndun.
framreiknaðar tölur ársins 1979
og sýndu þær 3,1% tap af tekjum
eða samtals 65,5 millj. kr. halla.
Ekki er Mbl. kunnugt um hversu
mikinn halla framreiknaðar tölur
ársins 1979 sýna nú, en ef miðað er
við framreiknaðar tölur ársins
1980 og tap það sem var á útgerð-
inni kringum síðustu fiskverðs-
hækkun, er ljóst, að það er a.m.k.
10% af tekjum.
Þá er Mbl. kunnugt um að nýj-
ustu tölur sýna 9% tap af fryst-
ingunni, en fyrir nokkrum vikum
var talið að tapið væri 7—8%.
Gunnar Thoroddsen, forsætis-
ráðherra, sagði hins vegar á Al-
þingi í fyrradag, að afkoma út-
gerðarinnar hefði ekki verið betri
í heild sl. 10 ár, en útkoman væri
þó misjöfn, t.d. væri afkoma báta-
flotans góð, en margra nýrri tog-
aranna slæm.
I.josm, RAX.
Eggert Haukdal á Alþingi í gær:
Nauðsynlegasta órbót í orkumál-
um að gefa iðnaðarráðherra frí
ÞAÐ FER víst ekki lengur fram hjá neinum, að nauðsynlegasta úrbót í
orkumálunum sé að gefa hæstvirtum iðnaðarráðherra frí frá störfum,
sagði Eggert Haukdal (S), þingmaður Sunnlendinga og stuðningsmaður
ríkisstjórnarinnar á Alþingi, í gær. Orð hans féllu í umræðum utan
dagskrár vegna fyrirspurnar frá Sigurði Óskarssyni (S) varaþingmanni
Sunniendinga til iðnaðarráðherra vegna fréttar hér í blaðinu í gær þess
efnis, að ráðherrann vildi ekki leyfa framkvæmdir við svonefnda Sult-
artangastíflu.
Eggert Haukdal sagði, að þessi
frestun framkvæmda virtist
stangast á við allar hugmyndir,
sem menn hafa gert sér um þessi
mál. Spurði Eggert, hvers vegna
iðnaðarráðherra Hjörleifur Gutt-
ormsson hefði verið að skrifa
þetta bréf. „Kappið við að drepa
allt í dróma í orkumálunum virð-
ist svo mikið hjá hæstvirtum
ráðherra, að hann sést ekki fyrir
og fer langt út fyrir takmörk sín,“
sagði Eggert Haukdal og spurði
siðan: „Hefur ráðherra borið það
bréf, sem hann skrifaði í gær,
undir ríkisstjórnina og fengið
samþykki fyrir því eða er þetta
einkaframtak hans? Það er nauð-
synlegt að fá svar við þessari
spurningu og ég leyfi mér að óska
svara hæstvirts forsætisráðherra
þar um.“ Fleiri þingmenn ítrekuðu
þessa spurningu til forsætisráð-
herra Gunnars Thoroddsens, sem
tók til máls en svaraði henni ekki.
Ræðu sinni lauk Eggert Hauk-
dal með þessum orðum: „Hæst-
virtur iðnaðarráðherra fékk mikla
eldmessu yfir sig nýlega hér á Al-
þingi frá flokksbróður sínum,
meðal annars varðandi málefni
Suðurlands. Hann virðist samt
ekki læra neitt, heldur vegur hann
áfram í sama knérunn. Það væri
vissulega hægt að gera talsvert
bál, ef allar möppur hæstvirts iðn-
aðarráðherra væru bornar saman
í eina hrúgu og tendrað bál. Gíf-
urleg orka mundi leysast úr læð-
ingi í bili, en hætt er við að sú
orka fjaraði út. Það fer víst ekki
lengur fram hjá neinum, að ein
nauðsynlegasta úrbót í orkumál-
unum sé að gefa hæstvirtum iðn--
aðarráðherra frí frá störfum."
Sjá frásögn á miðopnu.
Æfðu sig að sprengja „fíknó“
Dómurum hafa oft borizt morðhótanir
í FYRRAVOR voru þrír menn, sem allir hafa komið við sögu fíkniefna-
dómstólsins vegna ólöglegs innflutnings og dreifingar á fíkniefnum, að
gera tilraunir með tengingu hvellhettna og dýnamíts í Nauthólsvík með
það fyrir augum að æfa sig fyrir að „sprengja fíknó í loft upp“ (dómara
fíkniefnadómstólsins). Þetta kom fram í dómþingi fíkniefnadómstólsins í
fyrravor.
Einn þessara manna hafði
stolið dýnamíti og hvellhettum
frá Rafmagnsveitum ríkisins.
Þeir fóru með lítinn hluta þess-
ara efna í Nauthólsvík til að æfa
sig í meðferð þeirra, en einn
þeirra hafði nokkra reynslu í
meðferð sprengiefna. Tilraunir
þeirra enduðu þó með ósköpum.
Þeir höfðu tengt dýnamít við
hvellhettur og lögðu í fjöruna og
lögðu rafmagnslínu frá og hugð-
ust koma af stað sprengingu með
rafhlöðu.
En sprengingin lét á sér
standa og því brugðu þeir á það
ráð að tengja við rafgeymi bíls,
sem þeir voru á. Þá kvað við
mikil sprenging og tókst bifreið-
in á ioft, kastaðist um metra í
loft upp og skemmdist talsvert.
Þegar þetta kom fram í dóm-
þingi Fíkniefnadómstólsins var
málið kært til Rannsóknarlög-
reglu ríkisins og þaðan fór það
til saksóknara. Dómsátt var gerð
við einn þessara manna, en ann-
ar hafnaði dómsátt og var mál
hans látið niður falla, en ekki
var álitið af hálfu ákæruvaldsins
að frekari aðgerða væri þörf.
Samkvæmt heimildum Mbl.
hafa dómurum fíkniefnadóm-
stólsins margoft borist morðhót-
anir frá aðilum tengdum fíkni-
efnum og svo er einnig með lög-
reglumenn, sem starfa hjá fíkni-
efnadeild lögreglunnar. Þá hefur
lögreglumönnum verið ógnað
með hnífi. Þegar tveir lögreglu-
menn sóttu mann til yfir-
heyrslna, greip hann til hnífs og
ógnaði þeim. Hann hélt þeim
þannig í um hálftíma, og hugðist
safna liði til að ganga í skrokk á
þeim, áður en lögreglu-
mönnunum tókst að yfirbuga
manninn.
Byggingarvfeitala
hækkar um 12,1%
Framreiknuð myndi hækkunin
á einu ári verða tæplega 58%
HAGSTOFAN hefur reiknað vísitölu
byggingarkostnaðar eftir verðlagi í
fyrri hluta desembermánaðar og
reyndist hún vera 909,12 stig, sem
lækkar í 909 stig, og er þá miðað við
grunn 100 í október 1975.
Þessi vísitala gildir tímabilið
janúar-marz á næsta ári, en við
síðasta útreikning í byrjun sept-
embermánaðar reyndist vísitala
byggingarkostnaðar vera 811 stig.
Hún hefur því hækkað um 12,1%.
A tólf mánaða timabili, janúar-
janúar, hefur byggingarvísitalan
hækkað úr 626 stigum í 909 stig,
eða um liðlega 45,2%. Til saman-
burðar má geta þess, að lánskjara-
vísitala hefur hækkað á einu ári,
miðað við tímabilið desember-
desember, úr 197 í 292, eða um
liðlega 48,2%.
Kauptaxtar fiskvinnslufólks
hækkuðu um 41,6% á einu ári,
miðað við tímabilið desember-
desember sl.
Ef hækkun vísitölu byggingar-
kostnaðar væri framreiknuð yfir
næsta ár, miðað við sömu hækk-
anir á þriggja mánaða fresti,
myndi hækkunin verða tæplega
58%.