Morgunblaðið - 30.12.1981, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1981
21
Minmng:
Bjarni Jónasson
Eyjólfsstöðum
Jafnan er það svo, þegar fréttist
lát góðs vinar, hvort sem hann á
mörg eða fá ár að baki, að líkt er
og strengur taki að syngja í
brjósti manns og leiði hugann til
liðinna samverustunda með hin-
um látna. Þannig fór fyrir mér
þegar ég frétti Íát vinar míns,
Bjarna Jónassonar, sem ekki
þurfti þó að koma mér á óvart því
að Bjarni var farinn að heilsu.
Bjarni á Eyjólfsstöðum var
fæddur í Sauðanesi á Asum 8.
mars 1896. Foreldrar hans voru
hjónin Jóhanna Jóhannsdóttir og
Jónas Jóhannsson. Þau voru fá-
tæk, áttu ekki jarðnæði en átta
börn og voru á faraldsfæti. Það
var hlutskipti flestra fátækra Is-
lendinga á þessum tíma. Bjarni
missti móður sína ungur. Tíu ára
var hann ráðinn að Flögu í
Vatnsdal og varð síðan að standa
á eigin fótum. Hann var á Flögu
þegar hann fermdist og strax að
lokinni fermingarathöfn fór hann
til að sitja ærnar. Þetta er aðeins
dæmi um hörku lífsbaráttunnar
og hvernig allir þurftu að strita
fyrir brauði sínu. Þetta sagði
Bjarni mér sjálfur. Hann bætti
því við að snemma hefði hann haft
yndi af lestri góðra bóka en slík
tækifæri hefðu fá gefist. Ég efast
ekki um að Bjarni hefur drukkið í
sig hvatningarorð aldamótaskáld-
anna og annarra framfarasinn-
aðra manna um að hefjast handa
um framfarir sem veita myndu
þjóðinni betri lífskjör og bættan
hag.
Bjarni giftist 23. júlí 1922
Jennýu Jónsdóttur, góðri konu og
trygglyndri sem staðið hefur þétt
við hlið manns síns jafnt í blíðu
sem stríðu. Fyrsta árið bjuggu þau
á Snæringsstöðum í Vatnsdal, síð-
an næstu árin á Breiðabólsstað í
sömu sveit. Þaðan fluttu þau í
skólahúsið sem var við Sveinsstaði
í Þingi. Þar bjuggu þau í sjö ár.
Þau höfðu nokkrar skepnur en að-
allega vann Bjarni utan heimilis í
vegavinnu á sumrin, sláturhúsi á
haustin og við ýmiss önnur störf
sem til féllu. Það var einmitt í
vegavinnu sem ég kynntist Bjarna
fyrst. Hann var þá verkstjóri við
vegarlagningu í Vatnsdal. Þá voru
tækin hesturinn og kerran, hakinn
og skóflan. Betra var að standa
ekki og styðja sig fram á skófluna,
það þoldi áhugi og kapp verkstjór-
ans ekki. Ég gleymi aldrei þessum
fyrstu kynnum mínum af Bjarna.
Ég var þá unglingur en hann full-
tíða maður. Mér fannst hann
virðulegur og fyrirmannlegur.
Hann var í meðallagi hár, þétt-
vaxinn og beinn í baki. Hann
minnti mig helst á goða eins og
þeim er lýst í íslendingasögum.
Úr skólahúsinu fóru Bjarni og
Jenný að Marðarnúpi í Vatnsdal
og síðan að Hvammi í sömu sveit,
þar sem þau bjuggu í nokkur ár
eða þar til þau fluttu að Eyjólfs-
stöðum árið 1938. Jörðina keyptu
þau nokkru síðar ásamt Bakka
sem þá var eyðijörð undir Eyj-
ólfsstöðum. Ég er viss um að með
þessum jarðakaupum hefur alda-
mótadraumur unga mannsins,
Bjarna, ræst. Eyjólfsstaðir eru ein
fallegasta jörðin í dalnum og
kostamikil. Bjarni þótti þarna
hafa í mikið ráðist ekki síst vegna
þess að mæðiveikin geisaði á þess-
um tíma. En Bjarni og þau hjón
bæði trúðu á landið og mátt mold-
arinnar, komu sér upp kúabúi og
búnaðist vel. „Er ekki er hægt að
búa á Eyjólfsstöðum," sagði
Bjarni, „þá á landið ekki mikla
framtíð fyrir sér.“
Bjarni keypti jörðina af Þor-
steini Konráðssyni og konu hans,
Margréti Jónasdóttur, sem höfðu
flutt til Reykjavíkur til barna
sinna sem þar stunduðu atvinnu-
rekstur eða voru í skóla. Kona
mín, Kristín, dóttir Þorsteins og
Margrétar, og Ingibjörg, dóttir
Bjarna og Jennýar, voru á svipuð-
um aldri. Þær voru saman í barna-
skóla og með þeim tókst traust
vinátta sem haldist hefur síðan.
Kona mín dvaldist oft á Eyjólfs-
stöðum með dætur okkar ungar.
Þá fyrst kynntist ég náið Eyjólfs-
staðahjónunum og hinu myndar-
lega heimili þeirra, björtu og
hlýju, þar sem allt var í röð og
reglu. En slíkt verður ekki nema
húsmóðirin sé starfi sínu vaxin og
það var Jenný sannarlega.
Bjarni Jónasson var ekki aðeins
duglegur og framfarasinnaður
bóndi sem byggði og ræktaði jörð
sína og gegndi mörgum trúnað-
arstörfum fyrir sveit sína og hér-
að. Hann var einnig mikill fróð-
leiksunnandi. Ég hygg að ættfræði
hafi verið hans mesta áhugamál
fyrir utan búskapinn. Bjarni vann
mikið fyrir þjóðháttastofnunina
með ritun lýsinga á gömlum bú-
skaparháttum og áhöldum. Hann
ritaði viðauka við bókina Reyni-
staðarbræður og rakti þar ættir
Reynistaðarbræðra í nokkra liði.
Mörg'fleiri voru ritstörf Bjarna.
Bjarna var áfram um að fortíð-
in gleymdist mönnum ekki. Hann
vildi að unga fólkið þekkti lífsbar-
áttu forfeðra sinna og þann jarð-
veg sem það var vaxið úr. „Fólkið
má aldrei slíta rætur sínar, þá
týnir það sjálfu sér,“ sagði Bjarni
eitt sinn við mig. Bjarni var haf-
sjór af ljóðum og lausavísum og
var sjálfur vel hagmæltur. Hann
skrifaði líka sögur og einhverjar
þeirra birtust í Húnvetningi.
Fleiri hafa þó verið lagðar til hlið-
ar að því er ég hygg. Oft fékk ég að
heyra hjá honum vel samdar sög-
ur.
Fyrir allmörgum árum bilaðist
Bjarni í fótum þannig að þeir báru
hann ekki lengur til vinnu. Það
hefur orðið honum þung raun jafn
kappsfullum og vinnufúsum
manni. En síðan sat hann jafnan
við skrifborðið við vesturgluggann
í stofunni sinni, las þar og skrif-
aði, horfði yfir tún og engi og
fylgdist með verkum.
Mér eru margar stundir
ógleymanlegar með Bjarna á Eyj-
ólfsstöðum. Það var gaman að
skiptast á skoðunum við hann.
Hann var félagshyggjumaður og
fylgdi fast samvinnustefnunni. Þá
gleymi ég ekki öllum spilakvöld-
unum en jafnan var spilaður
lomber. Ein stund er mér sérstak-
lega minnisstæð úr stofunni á
Eyjólfsstöðum. Þá var Sigurður
Nordal kominn í heimsókn og við
sátum yfir borðum. Hvílík feiknin
öll af gömlum sögnum bæði í
bundnu og óbundnu máli léku á
vörum þeirra. Mér fannst eins og
veggir og loft stofunnar hyrfu og
endalaust víðsýnið blasti við í all-
ar áttir.
Bjarni missti heilsuna fyrir
u.þ.b. þremur árum, en hann kaus
að dvelja heima og njóta umönn-
unar konu sinnar og barna. Þar
leið honum best.
Börn þeirra Eyjólfsstaðahjóna
eru: Ingibjörg, gift Ingvari
Steingrímssyni frá Hvammi og
búa þau á Eyjólfsstöðum, Jón,
giftur Kristínu Lárusdóttur frá
Grímstungu og búa þau á Bakka,
Jóhanna, ógift heima, sem hefur
verið vakin og sofin yfir föður sín-
um í veikindum hans. Öll eru
börnin mannkostafólk sem sest
hefur að á heimaslóðum og tekið
þar þátt í dagsins önn af mynd-
arskap og dugnaði.
Ég kom að Eyjólfsstöðum í
sumar. Bjarni lá í drifhvítu rúmi
sínu og var í hálfgerðu móki.
Jenný sat á rúmstokknum. Þau
héldust í hendur. Bjarni vaknaði
strax af mókinu og þekkti mig. Við
heilsuðumst að gömlum sveitasið.
Hann dró hönd sína úr höndum
konu sinnar og klappaði mér á
kinn og fagnaði mér. Við spjölluð-
um saman smástund en hann
þreyttist fljótt og mókið færðist
aftur yfir hann. Hann rétti báðar
hendur sínar til konu sinnar sem
tók þær og þrýsti. Lyfti síðan
höfði sínu aðeins frá koddanum^
blik færðist í augu hans, og hann
sagði veikum rómi: „Hún hefur
alltaf verið styrkasta stoðin mín.“
Bjarni kvaddi þennan heim á
jafndægri mót birtu og hækkandi
sól. Ég og fjölskylda mín þökkum
Bjarna samfylgdina og allar þær
góðu stundir sem við áttum á
heimili hans sem stundum var í
raun okkar annað heimili.
Guðlaugur Guðmundsson
Útför Bjarna fer fram í dag,
miðvikudag, frá Undirfellskirkju
klukkan 2.
| ■ — smáauglýsingar —
íbúöarhúsnæöi
óskast til leigu
helzt á miöbæjarsvæóinu ca.
100 Im. Má þarfnast stööuverör-
ar lagfæringar. Upplýsingar i
símum 22660 og 13570.
St.St. 598201066 — H.V.
Þátttaka tilk. laugard 2. jan. '82
kl. 16—18 og sunnud. 3. jan. '82
kl. 10—12.
ÚTIVISTARFERÐIR
Nýársferð í Þórsmörk
1.—3. jan. Byrjum nýja áriö í
nýja útivistarskálanum i Basum.
Ðrottför kl. 13 á nýársdag.
Brenna, flugeldar, kvöldvaka og
álfadans. (Mætiö meö skraut-
búninga sem eigiö). Gönguferöir
viö allra hæfi. Uppl. og farseölar
á skrifst. Lækjargötu 6a. simi
14606.
Kvenfélag
Hallgrímskirkju
Fundurinn 7. janúar fellur niöur.
Stjórnin.
Hörgshlíð 12
Samkoma i kvöld, miövikudag
kl. 8.
Sunnudagur 3. jan.
kl. 13.00
Ástjall — Hvaleyri. Hressandi
ganga fyrir alla fjölskylduna.
Verð 40 kr. Fritt f. börn m. full-
orðnum.
Farið frá B.S.Í., vestanveröu.
Utivist.
radauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Til sölu
er 625 hö Callesen vél, smíðaár 1976, keyrð
ca. 3500 tíma. Ennfremur er til sölu ýmiss
annar útbúnaður úr bát svo sem vindur,
rafmagnsútbúnaður, radarar og fleira.
Þeir sem áhuga hafa, vinsamlegast leggi inn
nöfn sín hjá auglýsingad. Mbl. merkt: „Til
SÖIu — 6428“.
ti/boö — útboö
||| Tilboð
Tilboð óskast í vöruflutningabifreið í tjóns-
ástandi. Bifreiðin er Hino 1979 og verður til
sýnis í Staðarskála Hrútarfirði, laugardaginn
2. janúar.
Tilboðum sé skilað til aöalskrifstofu Lauga-
vegi 103, fyrir 7. janúar nk.
Brunabótafélag íslands.
kennsla
Frá fjölbrautaskólanum
við Ármúla
Stundakennara vantar í eftirtaldar greinar:
Viðskiptagreinar 14 tímar. Þýska 12 tímar.
Nánari uppl. í skólanum, miðvikudag og
fimmtudag kl. 10—12 sími 84115.
Skólastjóri.
Innritun
nýnema í öldungadeild Menntaskólans við
Hamrahlíð fer fram laugardaginn 9. jan. 1982
kl. 9—12 f.h.
Rektor
húsnæöi i boöi |
Timburhús í gamla
bænum í Hafnarfirði
Járnvarið timburhús á tveimur hæðum, Urð-
arstígur 2, er til sölu. Húsið verður til sýnis
milli 10—15 í dag 30. desember.
Tilboð óskast. Skilafrestur til 5. janúar.
Uppl. í síma 54484 á ofanskráðum tíma.
Húsiö er laust frá 1. janúar 1982.
húsnæöi óskast
Lagerhúsnæði óskast
Óskum eftir að taka á leigu 180—220 fm
lagerhúsnæði. Uppl. í síma 26430 milli kl.
9—12.
%Félogsstarf
Sjálfstœðisflokksins |
Selfoss
Prófkjör til bæjarstjórnarkosninga.
Sjálfstæöisfélagiö Óöinn Selfossi auglysir eftir framboöum á lista
flokksins viö bæjarstjórnarkosningarnar 1982. Rétt til framboös eiga
allir kosningabærir flokksbundnir sjálfstæöismenn á Selfossi. Fram-
boöi skal skila skriflegu ásamt nöfnum 10 meömælenda til stjórnar
Óöins fyrir kl. 24.00, 6. janúar 1982.
Stjórnin.
Utanríkismálanefnd
S.U.S.
efnir til fundar meö bandariska stjórnfræöiprófessornum Herbert J.
Spiro, fyrrum sendiherra, miövikudaginn 30. desember kl. 15.30 i
Valhöll.
Umræöuefni:
Samskipti Bandarikjanna og Evrópu (U.S — European Relations:
From Diplomacy 1o Politics).
Allt áhugafólk um utanríkismál velkomiö.
Utanrikismálanefnd S.U.S.